Morgunblaðið - 13.09.1988, Blaðsíða 73
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 13. SEPTEMBER 1988
73
Mikið tjón
þegar vatn
flæddi inn
í verslanir
MIKIÐ tjón varð þegar vatn
flæddi inn í fjórar verslanir við
Skipholt 50b á sunnudagsmorg-
un.
Lögreglan kallaði slökkviliðið sér
til aðstoðar til að dæla vatni úr
verslununum, en lekinn reyndist
stafa af því að tengi á heitavatns-
lögn fór. Ejórar verslanir urðu fynr
barðinu á lekanum og urðu
skemmdir í þeim öllum. Þar á með-
al skemmdist viðargólf í einni þeirra
og ýmsar vörur í hinum.
Ekið á gang-
andi mann
EKIÐ var á mann á gangbraut á
Hjallabraut í Hafnarfirði á laug-
ardag og meiddist hann töluvert.
Okumaðurinn ók á brott, en náð-
ist skömmu síðar.
Slysið varð um kl. 18 á laugar-
dag. Bifreið var ekið vestur Hjalla-
braut og á mann á sjötugsaldri, sem
var á leið yfir götuna á gangbraut.
Maðurinn, sem var nærri kominn
yfír götuna þegar slysið varð, skall
til jarðar og meiddist töluvert. Hann
er m.a. marinn á fæti, með brákað
rifbein og skorinn á hendi. Ökumað-
urinn stöðvaði bifreiðina, steig út
og leit á manninn, en ók því næst
á braut. Hálfri stundu síðar fannst
hann og var þá heima hjá sér.
Hann reyndist vera ölvaður, en
þrætti fyrir að hafa verið undir
áhrifum þegar slysið varð.
Ekið á pilt á
skellinöðru
UNGUR piltur slasaðist nokkuð
þegar hann varð fyrir bifreið á
Flókagötu í Hafnarfirði síðdegis
í gær.
Slysið varð um kl. 15.45. Piltur-
inn ók skellinöðru í suðurátt á
vinstri akrein Flókagötu. Á hægri
akrein og í sömu átt ók bifreið, sem
skyndilega var sveigt í veg fyrir
piltinn og á skellinöðruna. Pilturinn
féll í götuna og hlaut af nokkur
meiðsli. Hann var fluttur á slysa-
deild og var talinn lærbrotinn.
Fróóleikur og
skemmtun
fyrir háa sem lága!
Stepp
ÞAÐGETAALLIR
LÆRT AÐ DANSA
í DANSSKÓLA HERMANNS RAGNARS
Síðastliðin 30 ár hafa þúsundir Isler.dinga lært sín fyrstu
spor í DHR og margir þeirra eru enn að. I DHR er ekki ein-
göngu lögð áhersla á holla og góða hreyfingu, heldur létt
og skemmtilegt andrúmsloft.'
Það sem við kennum í vetur:
• Jazzleikskólinn
• Jazzdans
• Jazzballett
• Stepp
• Barnadansar
• Suður-amerískir dansar
• Samkvæmisdansar
• 10 hagnýtir dansar
og gömu dansarnir
Innritun hefst mánudaginn
kl. 11-19 í símum 68 74 80
Börn 3ja-6 ára.
Börn 6-8 ára
9 ára og eldri
9 ára og eldri
Börn 3ja-6 ára
7 ára og eldri
7 ára og eldri
Fyrir fullorðna
sept. og verður daglega
68 75 80.
Trygging fyrir réttri tilsögn
í dansi
Afhending skírteina fer fram laugardaginn 17. sept. kl.
14-18. Kennsla hefst mánudaginn 19. sept.
VERTU MEÐ Á 30.
AFMÆLISÁRINU!
HEÐINN
SEUAVEGI 2.SÍMI 624260
'
^SS^íSSSSSSSSSiSSSii