Morgunblaðið - 13.09.1988, Blaðsíða 57
MORGtJNBIAÐIÐ, ÞRIÐJUÐAGUR 13. SEPTEMBER W88---- ----------------------------- 57
Viltu verða
hótelstjóri
einahelgi?
.. .............. i-irriiiiMirrHiinarr-mMMMMMMMMtMMMMMMMMMMWHtMiiii «'“iinnT .n mi"in fr i .i-|-iimnrr I
Þú getur orðið hótelstjóri eina lielgi a hinu glæsilega l iótel ’
Stykkishólmi!
Fyrir því eru aðeins tvö skilyrði:
1) Að þú sért ekki atvinnumaður í faginu.
2) Að þú útvegir 20 manna hóp, sem þú skipuleggur og
stjórnar eina helgi.
Laun: Ómælt erfiði — Hugguieg helgi með elskunni — Krydd
í tilveruna.
Aðeins (alvöru)hótelstjórinn gefur upplýsingar.
Hótel
Stykkishólmur
Sími 93-81330
Telex2l92
Vistlegt hótel í fögru umhverfi.
Morgunblaðið/Ámi Helgason
Menntamálaráðherra skoðaði m.a. nýbyg-gingn íþróttahússins í
Stykkishólmi. Frá vinstri eru Signrður Kristjánsson yfirsmiður, EIl-
ert Kristinsson forseti bæjarstjórnar, Friðjón Þórðarson alþingismað-
ur, Bjarni Lárentsínusson byggingameistari og Birgir ísleifur Gunn-
arsson menntamálaráðherra.
Menntamálaráðherra
í Vesturlandskjördæmi
Stykkishólmi
Menntamálaráðherra hefir
undanfarið verið á ferð um Vest-
urlandskjördæmi. í fylgd með
honum hafa verið þeir Friðjón
Þórðarson alþingismaður og Sig-
urbjörn Magnússon. Þeir hafa
haft tal af ráðamönnum i hérað-
inu og Birgir ísleifur Gunnars-
son menntamálaráðherra i leið-
inni komið við í skólum byggðar-
laganna, rætt við skólastjóra og
kennaralið um þróun skólamála
og framtiðarhorfur og verkefni.
Birgir var hér í Stykkishólmi 29.
og 30. ágúst sl. og auk þess að
ræða við ýmsa hér kom hann við í
grunnskólanum nýja og skoðaði
hann og kynnti sér vinnuaðstöðu
og námstilhögun. Lúðvíg Halldórs-
son skólastjóri, Gunnar Svanlaugs-
son yfirkennari og Ríkarð Hrafn-
kelsson formaður skólanefndar
fylgdu honum um skólann, ásamt
nokkrum kennurum og bæjarstjóm-
armönnum. Sýndu honum bókasafn
skólans, kennsluáhöld o.fl.
Að lokinni skoðun skólans var
farið í hina nýju byggingu íþrótta-
miðstöðvar sem hér er nú að rísa
í nágrenni skólans. Það er brýn
nauðsyn á að koma þessari bygg-
ingu undir þak nú í haust. Og auð-
vitað verður að klára bygginguna
sem fyrst, úr því hún er komin af
stað til þess að hún geti nýst bæj-
arbúum en þetta átak er þáttur í
því að halda æskulýðnum heima í
héraði.
Menntamálaráðherra, svo og
Friðjón og Sigurbjöm, skoðuðu hús-
ið og áttu um leið tal við byggingar-
meistarann, Bjama Lárentsínusson,
sem sér um framkvæmdir, og yfir-
smiðinn, Sigurð Kristjánsson. Verk-
ið hefír sóst vel og lét ráðherra í
ljós áhuga á að því gæti lokið eins
og hugmyndin er að verði. Var
hann ánægður yfir þeirri byggða-
þróun sem hér hefir átt sér stað
undanfarin ár.
- Arni
PHILIPS VR-6448 MYNDBANDSTÆKIÐ - ÓLYMPÍUMEISTARINN IÁR
Viö vorum aö fá til landsins stóra sendingu af
hágæöamyndbandstækjum frá Philips árgerö 1989 og
getum því boöið þessi frábæru tæki á einstaklega lágu
veröi vegna hagstæöra samninga.
Philipstæki voru valin á Ólympíuleikana í Seoul
HQ kerfi tryggir fullkomin myndgæði
• Hljóðlaus kyrrmynd
• Hægurhraði
• Leitarhnappur
• Fullkomin sjálfvirkni í gangsetningu,
endurspólun og útkasti snældu
• Sjálfvirk endurstilling á teljara
• Fjarstýring á upptökuminni
• 365 daga upptökuminni
• Upptökuskráning í minni samtímis
fyrir 8 dagskrárliði
• Sextán stöðva geymslurými
• 20mínútnaöryggisminni
• Ótal fleiri möguleikar sem aðeins
Philips kann tökin á
• Verðið kemur þér á óvart.
Láttu Philips myndbandstækið sjá
um Ólympíuleikana meðan þú sefur
— þú horfir svo þegar þér hentar.
Heimilistæki hf
Sætúni 8 • Hafnarstræti 3 • Kringlunni
SlMt: 691515 SÍMI:E9152S SÍMI:691520
l/td eAutttSveájyh/téeýA C samuft^uHo