Morgunblaðið - 24.09.1988, Side 33
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 24. SEPTEMBER 1988
33
Kjörbúð Skutuls. Á innfelldu myndinni er eigandi verslunarinnar, Morgunblaðið/RúnarÞór
Sæmundur Friðriksson. _____________________________________
Pajero og fíange fíover
Merktar
aurhlífar.
Svartar
lugtargrindur.
Merktir
hliðarlistar.
•
Úrval af
aukahlutum
Sendum í póstkröfu samdægurs!
Varahlutaversiun Akureyri,
Símar 96-21365 og 96-21715.
Kjörbúð á hjólum
Opin á morgnana
úti í Þorpi
og á Brekkunni
eftir hádegi
Nýstárleg verslun hóf starf-
semi sína á Akureyri í vikunni,
en það er kjörbúð á hjólum í eig-
inlegri merkingu. Verslunin er
rekin í enskum eðalvagni, Bed-
ford, árgerð 1955, sem er meira
að segja með stýrið „öfúgu“
megin. Verslunin er opin á
morgnana úti i Þorpi, nánar til-
tekið við Bugðusíðu, frá kl. 9-12
og í hádeginu er versluninni
beinlínis ekið upp á Brekku og
þar er opið frá kl. 13-18 á gatna-
mótum Hlíðarlundar og Hjalla-
lundar.
Sæmundur Friðriksson á og rek-
ur versiunina. Auk hennar rekur
hann fiskverkun Skutuls, sem er á
Óseyri. „Hugmyndin kviknaði í
fyrra þegar ég og Helgi Bergþórs-
son rákum fiskbúð við Strandgötu.
Okkur datt þá í hug að láta byggja
ofan á vörubíl, sem við þá áttum,
og gerast svona farandfisksalar í
bænum. Við sóttum um leyfi til fisk-
sölu í bænum sem við fengum, en
framkvæmdin var bara of dýr svo
við hættum fljótlega við þetta.
Síðan gerist það að ég og konan
mín vorum á ferðalagi fyrir austan
í sumar og sáum þennan bfl, sem
var auðvitað upplagður í slíkan
verslunarrekstur, en á Egilsstöðum
var búið að reka bflinn sem kjörbfl
Héraðsbúa í ein 20 ár,“ sagði Sæ-
mundur.
Hann sagðist hafa gert nokkrar
lagfæringar á bflnum eftir kaupin
og sett í hann kælipressu og einn
kæliskáp til viðbótar við þá skápa
sem fyrir voru. Auk þess lét hann
tengja í hann vask og rennandi
vatn. Á báðum þeim stöðum, þar
sem bfllinn er á daginn, hefur Sæ-
mundur látið setja upp fyrir sig
rafmagnstöflu og getur hann því
stungið kæliskápunum við rafmagn
þar. Sæmundur sagði að stefnan
hjá sér væri að rýmka svolítið opn-
unartímana og mætti þá búast við
að bfllinn yrði opinn á kvöldin og
um helgar.
Verslunin er með nýjan fisk á
boðstólum auk nýs kjötmetis frá
Bautabúrinu og Kjamafæði. Einnig
er boðið upp á tilbúna fiskrétti frá
fiskbúð Baldurs, mjólk, kaffi,
pakkavörur, súpur, sósur, grauta,
hreinlætisvörur og ný brauð frá
Einars bakaríi svo eitthvað sé nefnt.
„Eg er í raun með allt það helsta
sem smærri nýlenduvöruverslanir
bjóða upp á,“ sagði Sæmundur að
lokum.
Ráðstefina um
umhverfismál
Ráðstefna um umhverfismál
hófst á Hótel KE A í gær. Þátttak-
endur eru yfir 150 talsins og er
ráðstefhan haldin á vegum Fé-
lags íslenskra landslagsarkitekta
í samvinnu við umhverfisdeild
Akureyrar og Skipulag ríkisins.
Ráðstefnunni iýkur á sunnudag.
Sigfús Jónsson bæjarstjóri á
Akureyri setti ráðstefnuna kl. 18.00
í gær og því næst kynnti Finnur
Birgisson skipulagsstjóri Akur-
eyrarbæjar skipulag bæjarins. Eftir
kvöldverð, var opnuð sýning á fyrir-
huguðu skipulagi Skátagils og Ráð-
hústorgs og á hverfaskipulagi
Reykjavíkur.
I dag kl. 9.30 ræðir próf. Sven
Ingvar Andersson frá Arkitekta-
skólanum í Kaupmannahöfn um
útivistarsvæði í bæjum. Þá flytja
þeir Einar E. Sæmundsen garðyrk-
justjóri í Kópavogi og Hallgrímur
Guðmundsson sveitarstjóri á Höfn
í Homafirði erindi um stjóm um-
hverfismála hjá sveitarfélögum.
Eftir hádegið flytur Þorvaldur S.
Þorvaldsson forstöðumaður Borg-
arskipulags Reykjavíkur erindi um
hugtakið „Winter Cities", bæir á
norðurslóð. Hallgrímur Indriðason
framkvæmdastjóri Skógræktarfé-
lags Eyfirðinga ræðir því næst um
útivistarskóga og frá kl. 16-18
verður farið í skoðunarferð um
skógræktarsvæði í Eyjafirði. Áætl-
að er að slíta ráðstefnunni formlega
kl. 23.00 á laugardagskvöld, en á
sunnudag á milli kl. 11 og 12 verð-
ur boðið upp á skoðunarferð um
Lystigarð Akureyrar undir leiðsögn
starfsmanna á Náttúrufræðistofn-
un Norðurlands.
Glötuö ást
Carolc Morllrocr
Q*
ásútgáfan
^ Já, nú getur þú gert
hj hagstæð haustinnkaup!
í ár bjóöum viö upp á tvær gerðir af
KJARABÓTAR-pökkum:
A-geröina sem inniheldur, file
roastbeef, gullas, snitsel í raspi,
hakk og hamborgara. Þyngd og
hlutföll samsvara því aö keyptur sé
ca 1/7 hluti af skrokk. Þessi pakki
kostar aðeins 9.500,00
B-geröin inniheldur blöndu af
DÚDDA-vörunum okkar, sem
flestir þekkja úr frystiborðum
verslana, þennan pakka bjóöum
viö á aðeins 5.500,00 kr.
\
i
/
Það er gott að geta sparað