Morgunblaðið - 13.10.1988, Side 1

Morgunblaðið - 13.10.1988, Side 1
72 SIÐUR B 234. tbl. 76. árg. FIMMTUDAGUR 13. OKTÓBER 1988 Júgóslavía: Leiðtogar Serba sæta gagnrýni Reuter Ihaldsmenn vilja selja kolanámur o Glatt var i Brighton hjá Margaret Thatcher og félögum á öðrum degi þings breska Ihaldsflokksins. Þá boðaði Cecil Parkinson, orkumálaráðherra, sölu bresks kolaiðnaðar til einkaaðilja. „Lengra verður ekki komist í einkavæðingunni," sagði ráðherrann. Víst þykir að þessi áform mæti harðri andstöðu verkalýðshreyfingarinnar og stjórnarandstöðunnar. Þjóðnýting kolaiðnaðar var kjarninn í efnahagsstefnu Verkamannaflokksins og stjórnar Clements Attlees eftir stríð. Yasser Arafat á fundi með Hosni Mubarak: Ákvörðun um sjálfstætt ríki Palestínumanna ekki frestað Belgrað. Reuter. MESTA stjórnmálakreppa í Júgóslavíu frá stríðslokum versnaði í gær þegar þjóðernis- sinnaðir Serbar urðu fyrir mik- ilU gagnrýni frá leiðtogum ann- Deilan um JanMayen tekin fyrir Kaupmannahöfn. Frá Nils Jörgen Bruun, fréttaritara Morgunblaðsins. Alþjóðadómstóllinn í Haag hefúr nú tekið fyrir mál Dana á hendur Norðmönnum í deilu um lögsögumörk Grænlands og Jan Mayens. Að sögn danska dagblaðsins Politiken er búist við að þijú ár líði áður en dómur fellur. Telur blaðið líklegt að hann verði Dönum í vil. Deila ríkjanna er þannig til komin að Norðmenn og íslend- ingar, sem hafa gert samning sín á milli um samnýtingu fiski- miða á þessu svæði, halda því fram að draga skuli miðlínu milli Jan Mayens og Grænlands vegna þess að ekki er nægilegt svigrúm fyrir báða aðila að hafa 200 mflna efnahagslögsögu. Danir segja fyrir hönd Græn- lendinga að Jan Mayen sé svo lítil eyja að Norðmenn hafi ekki rétt á að draga 200 mflna lög- sögu í kringum hana. Þess vegna eigi Danmörk rétt á fullri 200 mflna lögsögu út af Austur- Grænlandi. Utanríkisráðherra Danmerk- ur, Uffe Ellemann-Jensen, lýsti þvi yfir í sumar, að deilan um svæðið kæmi íslendingum ekk- ert við. Hins vegar var haft eft- ir Thorvald Stoltenberg, utanrík- isráðherra Noregs, að ekki yrði samið um svæðið án aðildar ís- lendinga. íslensk stjómvöld gagnrýndu þá ákvörðun Dana að vísa málinu til Alþjóðadóm- stólsins. arra þjóðflokka í landinu. Komm- únistaflokkur Júgóslavíu býst nú til að reka þriðjung félaga í Stjóramálaráðinu og þriðjung miðstjórnarmanna flokksins á miðstjóraarfúndi á mánudag. Leiðtogar annarra lýðvelda í Júgóslavíu en Serbíu sökuðu for- ystumenn Serba í gær um að færa sér óeirðir í héraðinu Kosovo í nyt. „Það er kominn tími til að grípa í taumana og bjarga landinu frá stjómleysi," sagði Milan Kucan á fundi miðstjómar flokksdeildarinn- ar í Slóveníu. Stefan Korosec, fé- lagi í Stjómmálaráðinu, æðstu valdastofnun landsins, sagði að ver- ið væri að búa til lista yfir þá sem fengju að fjúka á miðstjómarfund- inum á mánudag. Búist er við mestu hreinsunum innan flokksins frá upphafi. Þykir það sýna að ráða- menn í Júgóslavíu óttist að ríkið sé að liðast í sundur. í Júgóslavíu em sex lýðveldi og tvö sjálfstæð hémð, Kosovo og Vojvodina. Á þessu ári hefur spenna aukist milli Albana og Serba, efna- hagur landsins er í rúst, verðbólga nemur 217%, atvinnuleysi 15% og lifskjömm hefur hrakað mjög. Kairó, Jerúsalem. Reuter. NÚ DREGUR að útlagaþingi Þjóðarráðs Palestínu þar sem gæti farið svo að lýst yrði yfir stofnun sjálfstæðs rikis Pal- estínumanna. Yasser Arafat, formaður Frelsissamtaka Pal- estinu, PLO, sagði í gær á fúndi með Hosni Mubarak, Egypta- landsforseta, að Þjóðarráðið myndi ekki fresta þvi að taka ákvörðun fram yfir þingkosning- ar í Israel eða forsetakosningar i Bandarikjunum. Mubarak og ýmsir aðrir ráðamenn i araba- heiminum höfðu hvatt PLO til að bíða átekta fram yfir mánaða- mót til þess að hægri menn i ísra- el gætu ekki nýtt sér niðurstöðu fúndar Þjóðarráðsins i kosninga- baráttunni. „Við tökum ekki tillit til þess sem er að gerast í Bandarílq'unum eða í ísrael," sagði Arafat við frétta- menn þegar hann var spurður hvort fresta ætti yfirlýsingu um stofiiun sjálfstæðs ríkis Palestínumanna. „Markmið mitt er að finna þjóð minni land.“ Arafat sagði að á fund- inum hefði einnig verið rætt um nauðsyn þess að halda Alþjóðlega friðarráðstefnu um deiluna fyrir botni Miðjarðarhafs. Abu Mazim, formaður sendi- nefndar PLO sem stödd er í Moskvu, sagði í gær að hann teldi að Banda- ríkin væru farin að hallast að hug- myndum samtakanna um slíka frið- arráðstefnu. Hann bætti því við að sovésk stjómvöld væru hlynnt því að lýst yrði yfír stoftiun sjálfstæðs ríkis Palestínumanna. Yitzhak Rabin, vamarmálaráð- herra ísraels, sagði f gær í Jerúsal- em að ísraelski herinn væri reiðubú- inn að yfirgefa hemumdu svæðin að mestu og láta palestínska fanga lausa ef óeirðunum linnti. Hann ítrekaði þá afstöðu stjómar sinnar að ekki yrði samið við PLO heldur einungis við Palestínumenn sem Prentsmiðja Morgunblaðsins búa á hemumdu svæðunum. Enn- fremur sagði ráðherrann að lausn væri óhugsandi án þátttöku Jórd- ana. „Við eram hlynntir jórdansk- palestínsku ríki austan ísraels svo fremi um eina stjóm, ein lög, einn fána og eina höfuðborg — Amman — verður að ræða.“ Vitranir í Jórdaníu Amman, Jórdaníu. Reuter. JÓRDÖNSK kona, Lina Qara- bashi, tvítug að aldri, segir að María mey hafi vitrast sér 11 sinnum siðan á föstudag i síðustu viku. Þvi til stuðnings bendir hún á ljósrauðan kross á barmi sér. Qarabashi segir að María mey hafi fyrst birst sér er hún lá á sjúkrahúsi eftir uppskurð. Hún seg- ir að þegar sýnin hafi horfið hafi hún fundið fyrir bruna á barmi sér. Eftir stóð ljósrautt krossmark á bringu stúlkunnar. Læknir sem rannsakað hefur krossmarkið segist ekki geta fundið náttúralegar skýringar á þvi. Kaþ- ólskir prestar í Jórdaníu hafa ekki tekið afstöðu til þess hvort um kraftaverk sé að ræða. Umbótum lofaðíAlsír Borgarstarfsmaður í Algeirs- borg sést hér gera við klukku sem skemmdist í óeirðum um helgina. Neyðarlögum, sem giltu í sex daga, hefúr verið aflétt og herinn dregið úr við- búnaði í borginni. Talið er að 250 manns hafi fallið og mörg hundruð slasast í óeirðunum sem hófúst 4. október. Chadli Benjedid, forseti Alsírs, til- kynnti í gær að dregið yrði úr völdum Þjóðfrelsisfylkingar- innar, eina flokks landsins frá árinu 1962, og efiit til þjóðarat- kvæðagreiðslu um stjómar- skrárbreytingar. Reuter

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.