Morgunblaðið - 13.10.1988, Blaðsíða 37
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 13. OKTÓBER 1988
37
Minning:
Pétur Gretar Steins-
son, bifvélavirki
Fæddur 31. mars 1919
Dáinn 4. október 1988
í dag kvedjum við elsku afa okk-
ar seip lést á Landakotsspítala 4.
október síðastliðinn. Við eigum erf-
itt með að sætta okkur við það að
hann skuli ekki vera hjá okkur leng-
ur, en eftir eigum við minningar
um yndislegan afa sein alltaf tók á
móti okkur opnum örmum. Þrátt
fyrir að heilsa hans hafí ekki alltaf
verið sem best var alltaf stutt í
gamanið hjá honum og ætíð ríkti
gleði í návist hans. Afí hafði gaman
af því að veiða og voru ófáar stund-
imar sem hann dvaldi í veiðikofan-
um sínum og veiddi handa okkur í
soðið. Hann var einnig sérstaklega
handlaginn og eigum við flest ein-
hvem grip sem hann hafði unun
af að búa til handa okkur. Munu
þeir ætíð vera okkur kær minning.
Við biðjum góðan guð að halda
vemdarhendi sinni yfír afa og þökk-
um honum fyrir allar góðu stundim-
ar sem við áttum með honum.
Elsku amma, megi guð styrkja
þig á þessum erfíðu stundum og
vera með þér í framtíðinni.
Barnabörnin
Aldrei verður það víst svo, að það
komi manni ekki í opna skjöldu,
þegar andlát góðs vinar ber að hönd-
um. Þannig fór mér, þegar mér barst
sú sorgarfregn, að vinur minn Pétur
G. Steinsson, bifvélavirki, Tungu-
vegi 96, væri látinn.
Pétur fæddist á Siglufirði en flutt-
ist með foreldmm sínum, Sigríði
Þorláksdóttur og Steini Einarssyni,
á fyrsta ári til Akraness og ólst þar
upp. Tólf ára gamali fór hann á sjó-
inn, og var þar'oft í góðum skipsrúm-
um, meðal annars var hann með
Bjama Ólafssyni, þeim mikla afla-
manni. Á sjónum var Pétur flest
stríðsárin en fluttist síðan til
Reykjavíkur og réðst til Páls Stef-
ánssonar, bifreiðakaupmanns. Þar
hóf hann nám í bifvélavirkjun, sem
hann síðan lauk hjá Kr. Kristjáns-
syni. Að náminu loknu vann hann
um skeið að iðn sinni hjá því fyrir-
tæki. Næstu og síðustu vistaskipti
hans um störf voru þau, að hann
réðst til Vita- og hafnamálastofnun-
arinnar og þar starfaði hann síðan
um aldarfjórðung eða unz hann lét
af störfum fyrir rúmum mánuði,
farinn að heilsu enda þá stutt í
ævilokin.
Árið 1943 kvæntist Pétur
Oddnýju Guðmundsdóttur frá Eski-
firði, dóttur hjónanna Guðmundar
Þórarinssonar, vélstjóra, og Súsönnu
Guðjónsdóttur. Oddný missti móður
sína komung og varð eftir það upp-
eldisdóttir foreldra minna, Páls Bó-
assonar og Vilborgar Einarsdóttur.
Böm þeirra hjóna, Péturs og
Oddnýjar, fímm að tölu, em þessi:
Vilborg, gift Sigurði Haraldssyni,
bifvélavirkja. Guðmundur, deildar-
stjóri hjá hf. Tryggingu, kvæntur
Elsu Jónsdóttur. Sigríður, gift Heið-
ari Vilhjálmssyni kaupmanni. Hend-
rik, rennismiður, kvæntur Salvöra
Héðinsdóttur, og Halldóra, gift Jó-
hanni Helgasyni, blikksmið. Bama-
bömin era orðin 12 og barnabarna-
bömin 2.
Hjónaband þeirra Oddnýjar og
Péturs var ætíð hið bezta og afkom-
endur þeirra sómafólk. Má því ör-
ugglega telja Pétur Steinsson hafa
verið gæfumann í lífi hér, svo sem
hann vissulega átti skilið.
Veri svo minn góði vinur kært
kvaddur. Ekkju hans, Oddnýju,
bömum þeirra og öðrum afkomend-
um sendum við Gunnar bróðir minn
einlægar samúðarkveðjur.
Einar H. Pálsson
Þegar maður hugsar til baka er það
oft skringilegt hvemig menn kynn-
ast, hvemig þau kynni geta svo
síðar meir endað i sama starfí þó
aldursmunur sé mikill. Þannig var
það með okkur Pétur Steinsson.
Þegar ég var lítill strákur var Pétur
alltaf að vinna í bflskúmum sínum
á Suðurlandsbraut 111 og ég var
að sniglast í kringum hann. Þegar
lengra leið og ég fór að vita meira
um lífíð og tilverana, kom það oft
fyrir að ég fékk að sitja á kassanum
við skrúfstykkið í skúmum og
spyija um bfla og bflaviðgerðir.
Hver veit nema að þama hafí áhug-
inn fyrir bflaviðgerðum vaknað, í
það minnsta lágu leiðir okkar Pét-
urs saman þannig að við höfum
báðir verið starfandi sem bifvéla-
virlq'ar og í Félagi bifvélavirkja.
Nú er hins vegar enginn Pétur
Steinsson sem kemur á félagsfund
lengur til þess að fylgjast með því
hvað þar fer fram.
í þeirri hörðu lífsbaráttu sem
flest það fólk átti í sem bjó á Suður-
landsbrautinni á þessum tíma, var
ekki mikið um tilbreytingu í lífínu.
Það gekk vanalega til vinnu
snemma að morgni og kom seint
heim að kveldi, þreytt eftir erfíði
dagsins. En það fannst maður í
hverfínu sem leyfði sér þann munað
að rækta sitt umhverfi. Hann var
það fallegur bletturinn hans Péturs
að það kom ekki til mála hjá okkur
strákunum að spila fótbolta á hon-
um eftir að blómin fóra að springa
út og fuglamir að undirbúa hreiður-
gerð í tijánum hans Péturs, enda
kom það oft fyrir að húsbóndinn á
Suðurlandsbraut 111 væri að skríða
um garðinn á íjórum fótum eftir
langan vinnudag, tínandi arfa og
einn og einn ánamaðk sem var þá
settur í kistuna. Það var aldrei að
vita nema hægt væri að fara einn
og einn dag yfír sumarið í silung-
sveiði, en það var aldrei hægt ef
ÍA var að keppa á Laugardalsvellin-
um. Þá rölti Pétur á völlinn með
allan strákaskarann á eftir sér. Það
var reglan hjá Pétri að allir fengu
að fara með sem vildu. Þegar Pétur
var í mannfagnaði var hann vana-
lega miðdepill samkvæmisins, enda
hláturinn mikill þar sem hann var.
Hæfileiki hans við að fínna spaugi-
lega hlið mannlífsins án þess að
meiða nokkum var einstakur.
Nú þegar öll íbúðarhúsin eru fall-
in á Suðurlandsbrautinni og þeir
eru einnig famir að tína töluijni sem
þar bjuggu, fínnur maður fyrir
söknuði og tómleika í sálinni, ekki
hvað síst þegar góður drengur er
fallinn í valinn áður en hann náði
þeim aldri að geta notið elliáranna
til þess að veiða silung eins og
hugurinn stóð til.
■ J'lJlÍl /,111111
jœis
C0UMC710M
Laugavegi 59, 2. h., sími: 1 52 50
Minningin um glaðværan og
traustan félaga sem gerði baráttu
lítilmagnans að sínum málstað, er
góð minning sem ekki verður tekin
frá manni þó lífshlaupi hér á jörðu
sé lokið. Hafí hann heila þökk fyrir
gott samstarf, vináttu og tryggð.
Guðmundur Hilmarsson
í dag verður til moldar borinn
Pétur Gretar Steinsson, bifvéla-
virki, Tunguvegi 96, Reykjavík. 25.
maí 1964, fyrir 24 árum, kynnt-
umst við Pétri er við hófum að vinna
saman hjá Áhaldahúsi vita- og
hafnamála í Kópavogi. Frá fyrsta
degj tókst með okkur mikil vinátta
sem aldrei féll skuggi á. Pétur var
svo einstakur maður og fjölhæfur
að það fyllti stóra bók ef allt ætti
að taka til sem hann hafði áhuga
á. Pétur hafði gott vald á íslenskri
tungu og var mjög annt um móður-
málið eins og hortum var það mikið
mál að ísland væri hreint og ómeng-
að. Pétur hafði ákveðna meiningu
en var jafnframt viðkvæmasta sál
sem ekkert mátti aumt sjá og var
stöðugt á þönum við að hjálpa öðr-
um. En kæmi það fyrir að Pétur
þyrfti á hjálp að halda þá var það
aldrei fullþakkað. íþróttir, laxveið-
ar, garðrækt, á öllu hafði Pétur
áhuga. Fljótlega eftir að Pétur hóf
störf hjá Hafnamálum var hann
kosinn í stjóm starfsmannafélags-
ins og var mikil gróska í félaginu.
Athyglisgáfa Péturs var frábær og
kom hann oft á óvart. Hann var
mikill mannþekkjari og stundum
var engu líkara en hann læsi hugs-
anir manna. Pétur var góður fag-
maður og jafnvígur á þungavinnu-
tæki sem úrverk. Listhneigður var
hann og era til margir fagrir hlutir
sem hann bjó til. Pétur var mikill
húmoristi og var ætíð glatt á hjalla
í kringum hann, því hann var hrók-
ur alls fagnaðar og hvers manns
hugljúfi.
I 24 ára samstarfi kynntust fíjöl-
skyldur okkar og margar ógleymau**
legar gleðistundir áttum við á ferða-
lögum og öðram mannamótum með
Pétri og Oddu, eiginkonu hans, sem
er einstök kona fyrir hlýju og
tryggð. Nú þegar kveðjustundin er
rannin upp og ekki verður til baka
snúið. Þökkum við fjölskyldan í
Aratúni 3 forsjóninni fyrir að hafa
átt slíkan mann að vini og þökkum
hoiium samstarfíð og samfylgdina.
Blessuð sé minning Péturs Gretars
Steinssonar.
Oddnýju, bömum, tengdabömum
og bamabörnum svo og öðram ást<4i
vinum hans flytjum við okkar
dýpstu samúðarkveðjur.
Hafdís og Hilmar
t
Eiginkona m(n, dóttir m(n og móðir okkar,
ÁSDfS SVAV ARSDÓTTIR,
Laugavegi 132,
lóst 29. september. Útför hennar fór fram 7. október.
Þökkum auðsýnda samúð.
Gunnlaugur Sigurgeirsaon, Slgurbjörg Ögmundsdóttlr,
Svavar Egllsson, Slgurbjörg Egllsdóttir,
Eglll Halldór Egllsson, Anna María Egllsdóttlr,
Guftjón Egllsson.
Lokað
í dag fimmtudag 13. október frá kl. 12-15 vegna jarðar-
farar GUÐMUNDAR KRISTJÁNSSONAR.
Afgreiðsla Kassagerðar Reykjavíkur.
50 ÁRA AFMÆLI
Afmælishátíð S.Í.B.S. verður haldin að við-
stöddum forseta íslands í Súlnasal Hótels Sögu
fóstudaginn 14. október nk. og hefst
stundvíslegakl. 15.00.
Eftir kaffiveitingar verður fræðsludagskrá í
hliðarsal A um nýjungar í ofnæmisforvömum
og endurhæfingu lungna- og hjartasjúklinga.
Stjórn S.Í.B.S.