Morgunblaðið - 13.10.1988, Blaðsíða 56

Morgunblaðið - 13.10.1988, Blaðsíða 56
 FIMMTUDAGUR 13. OKTOBER 1988 VERÐ í LAUSASÖLU 70 KR. Stjórnarliðar unnu 9 hlutkesti Tvisvar á þúsund árum samkvæmt líkum Sögulegt neihdakjör fór fram á Alþingi í gær. Stjórnarflokkarnir unnu níu sinnum í röð hlutkesti um meirihluta í nefhdum neðri deildar. Grípa þurfti til hlutkestis þar sem atkvæði féllu jöfia á milli stjómar og stjómarandstöðu, 21:21. Sighvatur Björgvinsson var kjör- inn formaður fjárveitinganefndar og Jóhann Einvarðsson formaður utanríkismálanefndar eftir að leynileg kosning hafði farið fram milli hans og Páls Péturssonar í þingflokki Framsóknar. Tölfræðilegar líkur á úrslitum sem þessum eru 1:512, eða sem næst tveir á móti þúsund. Ef slíkt nefndakjör hefði ávallt verið viðhaft í gjörvallri sögu Alþingis, þá væri það samkvæmt líkum í annað sinn nú, að annar aðilinn ynni öll níu hlutkestin. Kosið var í fastanefndir á Al- þingi í gær. Kom formennska §ár- Stal meðan húsráðandi beið milli vonar og ótta BROTIST var inn í lqallara- íbúð í Hlíðunum í Reykjavík aðfaranótt miðvikudags. Sá sem þar var að verki hafði sig ekki á brott fyrr en kona, sem býr þar ein ásamt þriggja ára syni sínum, kall- aði upp. Konan varð vör við manninn í íbúðinni, en þorði í fyrstu ekki að láta á sér kræla, heldur lá kyrr í rúmi sínu. Maðurinn rótaði í hirslum drykklanga stund, en konan á erfítt með að gera sér grein fyrir hversu lengi. Loks áræddi hún að kalla upp og hljóp maðurinn þá á dyr. Konan hringdi þegar til lögreglunnar, en þá var klukk- an um 2.30. Lögreglan kom fljótt á staðinn og leitaði um hverfíð, en fann innbrotsþjóf- inn ekki. Ekki hafði tekist að fínna hann í gærkvöldi. Þegar konan fór að gæta að eigum sínum kom í ljós að maðurinn hafði haft á brott með sér tvær sparisjóðsbækur með töluverðum innstæðum. Rannsóknarlögregla ríkisins vinnur að málinu. veitinganefndar í hlut Alþýðuflokks og mun Sighvatur Björgvinsson gegna því embætti. Framsóknar- flokkur hefur tvo menn í utanríkis- málanefnd og er annar formaður nefndarinnar. Ekki náðist samstaða í flokksforystunni um að Páll Pét- ursson, formaður þingflokksins, yrði formaður og stóð valið milli hans og Jóhanns Einvarðssonar. Kosið var leynilega í þingflokknum og hlaut Jóhann 7 atkvæði, Páll 6. Þá gaf Páll ekki kost á sér í nefnd- ina og mun Guðmundur G. Þórar- insson því taka sæti þar. Sjá nánar þingfréttir á bls. 33. Jóhann hefúr tak á Kortsnoj JÓHANN Hjartarson lagði Viktor Kortsnoj að velli á Heims- bikarmótinu í skák í gærkvöldi. Hélt Jóhann þvi áfram þar sem frá var horfíð í áskorendaeinvíginu í Kanada siðastliðinn vetur Þá skildu þeir Margeir Pétursson og heimsmeistarinn Gary Ka- sparov jafhir. Á myndinni sést Jóhann glaðbeittur skýra skákina fyrir áhorfendum efitir sigurinn. Á innfelldu myndinni er Kortsnoj að velta fyrir sér hvað fór úrskeiðis. Sjá nánar á miðopnu og viðtal við Boris Spassky á bls. 14-15. Morgunblaðið/Gunnar H. Ársælsson Ávöxtun sf. synjað um greiðslustöðvun: Skiptaráðandi telur skuldir vanmetnar en eignir ofinetnar „Neyddir í gjaldþrot,“ segir Pétur Björnsson ÁVÖXTUN SF. og eigendum þess var syqjað um greiðslustöðvun i skiptarétti Reykjavíkur í gær. Pétur Björnsson segir að með þessu séu eigendur fyrirtækisins sennilega neyddir í gjaldþrot. Ragnar H. Hall borgarfógeti taldi engar iíkur á því að greiðslustöðvun mundi verða til þess að greitt yrði úr fjárhagsvanda fyrirtækisins. Samkvæmt greinargerð lögmanns Ávöxtunar sf. eru skuldir fynr- tækisins umfram eignir um 45,6 miU[jónir króna. Skiptaráðandi telur skuldir vanmetnar en eignir ofmetnar. Eigendur Ávöxtunar sf., Pétur Bjömsson og Ármann Reynisson, bera auk þess ábyrgð á skuldbind- ingum fyrirtækisins með einkaeign- um sínum. Eignir Péturs era metn- ar á 27,5 milljónir og eignir Ár- manns á 5,5 milljónir umfram skuldir. Skilanefnd Verðbréfasjóðs Ávöxtunar hf. hefur lagt fram kröfu í fógetarétti um löghald í eignum Ávöxtunar sf. og eigenda þess til tryggingar 63,5 milljóna skuld þeirra við sjóðinn. Nefndin hefur með bréfi til skiptaréttar lýst þeirri skoðun að eigendum fyrirtækisins sé skylt samkvæmt gjaldþrotalög- um að óska eftir gjaldþrotaskiptum fyrir félagið og sig persónulega. Skilanefnd féllst á að fresta málinu þar til afstaða skiptaráðanda til greiðsiustöðvunar lægi fyrir. „Ég átti ekki von á þessu," sagði Pétur Bjömsson, er hann var spurð- ur álits um niðurstöður fógetaúr- skurðarins. „Ég hélt að maður fengi að ganga frá málum sínum í róleg- heitum og með sanngimi, þannig að sem minnstur skaði hlytist af. En það era einhver önnur öfl sem ráða. Með þessu eram við sennilega reknir í gjaldþrot og raunvirði fæst ekki fyrir eignir seldar nauðunga- sölu úr þrotabúi. Við höfum ekki reynt að fela neitt, enda höfðum við sameignarfélag en ekki hlutafé- lag um reksturinn." Pétur sagði að fljótlega mundi skýrast hvort þeir- leituðu eftir gjaldþroti. Við meðferð málsins í skiptarétti kom einnig fram að Pétur og Ár- mann hafa gengist í persónulegar ábyrgðir fyrir 60-70 milljón króna skuldir annarra aðila sem þeir standa í viðskiptasambandi við. Er þar um að ræða 50-60 milljóna króna ábyrgðir fyrir Kjötmiðstöð- ina, sem veitt hefur verið greiðslu- stöðvun og er talin skulda um 84 milljónir umfram eignir, og um 12,5 milljónir vegna viðskipta Hjartar Nielsen hf. við þrotabú Ragnarsbakarís hf. Telur skipta- réttur verulegar líkur á að á þessar ábýrgðir muni reyna. Pétur Björns- son sagðist hins vegar á öðra máli. Viðræður við lánadrottna Kjötmið- stöðvarinnar gæfu fyllsta tilefni til bjartsýni á að úr rættist. Ávöxtun sf. og Pétur og Armann persónu- lega eiga alls 45% hlutafjár í Kjöt- miðstöðinni og era aðaleigendur Hjartar Nielsen hf. Sjá blaðsíðu 31. Tilboð í bifreiðaviðskipti ríkisins: 86 milljónir króna sparaðar í kaupum, tryggingum og leigu Innkaupastofnun ríkisins hefur sparað ríkissjóði um það bil 86 milljónir króna á þessu ári, með því að bjóða út bifreiðavið- skipti. Stofimnin hefíir leitað eftir tOboðum um afslátt frá fiillu verði hjá bifreiðainnflytjendum, tryggingafélögum og bílaleigum. Stofnunin hefur nú á ný sent bifreiðainnflytjendum fyrirspurn um afelátt og er það fjórða árið i röð sem slíkt er gert. Þessi spamaður er miðaður við milljónir króna miðað við útsölu- fullt verð samkvæmt verðskrám verð bílanna. Keypt var frá fleiri viðskiptaaðila. í fyrra vora keypt- en einu umboði, mest þó af jap- ar 157 nýjar bifreiðir fyrir ríkið önskum bílum. og var afsláttur samanlagt 26,6 Boðnar vora út tryggingar fyr- ir 1.000 ríkisbifreiðir og barst lægsta tilboðið frá Samvinnu- tryggingum, alls 69,2% afsláttur frá iðgjöldum tryggingaársins 1988. Afslátturinn nemur alls rúmum 30 milljónum króna. Sa- mið var við bflaleiguna Geysi eftir útboð um allt að 45% afslátt af leigugjöldum. Gert er ráð fyrir að sá afsláttur skili sér í 20-30 millj- óna króna spamaði á þessu ári. í byijun október sendi stofnun- in bréf til bifreiðainnflytjenda þar sem óskað er verðtilboða vegna bifreiðakaupa fyrir ríkisstofnanir. í bréfinu segir m.a.: „Lögð er áhersla á gæði bifreiðanna, án óþarfa aukabúnaðar eða ytra skrauts." Tilboðum á að skila fyr- ir 11. nóvember næstkomandi. Innkaupastofnun biður nú um verðtilboð fyrir 100 til 116 bíla. Vextir af spari- skírtein- um lækka Fjármálaráðuneytið og söluað- ilar spariskírteina gerðu í gær með sér samkomulag um að lækka vexti af spariskírteinum þannig að vextir af 3 og 5 ára skírteinum lækka i 7,3%. Vextir af 8 ára skírteinum verða hins vegar áfram 7%. Jafnframt varð samkomulag milli aðila um að ávöxtun bankabréfa og annarra hliðstæðra bréfa lækki til sam- ræmis við lækkun vaxta af spari- skírteinum. Fjármálaráðuneytið hafði áður gert tillögu um enn meiri lækkun á vöxtum af spariskfrteinum þar sem gert var ráð fyrir að vextir af 3 og 5 ára skírteinum yrðu 7,25% og vextir af 8 ára skírteinum 6,75%. Bankamenn og forráðamenn verðbréfafyrirtækja sem Morgun- blaðið ræddi við f gær töldu al- mennt að vaxtalækkunin hlyti að draga úr sölu spariskírteina og að nú reyndi á samstöðu banka og sparisjóða um vaxtalækkun á bankabréfum. Sjá enn fremur Bl.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.