Morgunblaðið - 13.10.1988, Blaðsíða 4
4
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 13. OKTÓBER 1988
Sala á greiðslukortanótum:
Vaxtakostnaður tæplega helm-
ingur af 7% aflnllum á mánuði
AFFÖLL af sölu á greiðslukortanótum geta orðið um 7% á mánuði
ef þóknun lánastofiiana og gjald til greiðslukortafyrirtælga er reikn-
að með. Ávöxtun á þessum lánum er mismunandi, en er til dæmis
í Búnaðarbankanum sú sama og á almennum skuldabréfúm. Vaxta-
kostnaður í fyrrnefiidu dæmi er til dæmis aðeins um 3% af 7% af-
follum alls. Ein helsta ástæðan fyrir miklum viðskiptum með
greiðslukortanótur nú mun vera sú að kaupmenn vilji leysa út reiðufé
til að fá staðgreiðsluafslátt hjá heildsölum, að sögn Magnúsar E.
Finnssonar, framkvæmdastjóra Kaupmannasamtakanna.
Mismunandi er hve afföll af sölu
á greiðslukortanótum eru mikil og
fer það einkum eftir því hve há
gjöld viðkomandi fyrirtæki greiðir
til greiðslukortafyrirtækjanna. Ef
afföllin eru 7% á 30 dögum myndi
það skiptast þannig að 3% er gjald
til greiðslukortafyrirtækjanna, 1%
er í þóknun til lánastofnunar og 3%
í vexti til íjármagnseigenda, Sam-
kvæmt upplýsingum frá Pétri
Blöndal hjá Kaupþingi hf. Dagvext-
ir væru 0,1%, sem þýddi um 45%
ávöxtun á ári. Þessi ávöxtunarkráfa
hefði farið lækkandi eftir því sem
almennir vextir og verðbólga færu
lækkandi.
Útvegsbankinn og Búnaðarbank-
inn munu vera hvað umfangsmestir
í kaupum á greiðslukortanótum,
auk fjármögnunarfyrirtælqanna.
Stefán Pálsson, bankastjóri Búnað-
arbankans, sagði að bankinn hefði
byijað að kaupa greiðslukortanótur
á fyrra ári, vegna óska frá við-
skiptavinum. Afföll væru breytileg
eftir dagafjöida, en þau væru alls
ekki óeðlileg, þar sem ávöxtunar-
krafa væri eins og á almennum
skuldabréfum, sem væri nú 21,5%.
Magnús E. Finnsson, fram-
kvæmdastjóri Kaupmannasamtak-
anna, sagði að fyrir nokkrum vikum
hefði verið gerð 55% ávöxtunar-
krafa í þessum viðskiptum, sem
væntanlega hefði lækkað eitthvað
vegna vaxtalækkana. Ofan á þetta
legðist síðan 1% þóknunargjald
bankanna á viku og það gjaid sem
greiðslu kortafyrirtækin krefðust.
Magnús sagði að ein helsta
ástæðan fyrir sölu á greiðslukorta-
nótum væri sú að margir smásalar
þyrftu að Ieysa út reiðufé til að fá
staðgreiðsluafslátt hjá heildsölum.
Þessi viðskipti væru afleiðingar af
því ófremdarástandi sem skapast
hefði í smásöluversluninni, þar sem
kaupmenn þyrftu að lána þessar
vörur í allt að sex vikur. Notkun
greiðslukorta hlyti að hækka vöru-
verð, en þess hefði þó ekki gætt
mikið vegna þess að samkeppni í
matvöruverslun væri svo gífurleg
að álagning hefði lækkað.
„Það er dálítið einkennilegt með
greiðslukortaviðskipti að það er sá
sem lánar sem borgar kostnað og
vextina, en ekki sá sem tekur lán-
ið. Þetta stríðir í sjálfu sér á móti
öllum venjulegum lögmálum i við-
skiptum og verslun og þrengir mjög
að rekstri þess sem lánar og bindur
hans fé,“ sagði Magnús.
Pétur Blöndal hjá Kaupþingi hf.
sagði að fyrirtæki sem ekki seldu
sínar greiðslukortanótur þyrftu
engu að síður að greiða gjaldið til
greiðslukortafyrirtækjanna, sem
væri um 1,5 til 3%. Spumingin
væri þá einungis um þau 4% eða
minna á mánuði sem fjármagnseig-
endur og miðlarar fengju í sinn hlut.
Menn fengju andvirði greiðslu-
kortanótnanna greitt 20 til 50 dög-
um fyrr en ella og því væri hægt
að líta á þessi viðskipti sem stað-
greiðsluafslátt af peningum.
Loðnuveiðín
dottin niður
Loðnuveiðin er nú dottin
niður að nýju. Smá kippur
kom í hana á mánu- og þriðju-
dag, en í gær hvarf hún aftur.
Aðeins eitt skip, Hólmaborg
SU, hélt til lans í gær með afla.
Hún fór heim til Eskifjarðar með
1.150 tonn og hafði að minnsta
kosti fengið 1.100 fyrir gærdag-
inn. Skipin reyndu lítils háttar
fyrir sér í fyrrinótt og gærmorg-
un, en köstin gáfu lítið sem ekk-
ert af sér. Veður hefur verið
gott á miðunum norður af
Strandagrunni, en loðnan veiðist
ekki þrátt fyrir það.
VEÐUR
v
V
IDAGkl. 12.00:
Heimild: Veðurstofa Islands
(Byggt á veöurspá kl. 16.15 í gær)
VBÐURHORFUR í DAG, 13. OKTÓBER
YFIRLIT í GÆR: Lægð á suðvastur Grænlandshafi og skil að nálg-
ast úr suövestri.
SPÁ: Fremur hæg suðvestanátt með smá skúrum um vestanvert
landið en úrkomulaust í öðrum landshlutum.
VEÐURHORFUR NÆSTU DAGA
HORFUR Á FÖSTÚDAG: Vaxandi sunnan- og suðaustanátt og hlýn-
andi veður. Súld eða rigning á Suöur- og Vesturlandi en þurrt ann-
ars staöar. Léttskýjað norðaustanlands.
HORFUR Á LAUGARDAG: Suðaustanátt og rigning víða um land.
Hiti 6—12 stig.
TÁKN: x Norðan, 4 vindstig: ' Vindörin sýnir vind-
A stefnu og fjaðrirnar
Heiðskírt vindstyrk, heil fjöður er 2 vindstig.
'Cm Léttskýjað / / / / / / / Rigníng
A / / /
1i> Mál,skýjað * / *
Skýiað / * / * Slydda / * /
* *
r-\A,skýiað * * * * Snjókoma * * *
10 Hitastig:
10 gráður á Celsíus
y Skúrir
*
V
Él
— Þoka
= Þokumóða
’, ’ Súld
OO Mistur
—Skafrenningur
|T Þrumuveður
VEÐUR VÍÐA UM HEIM kl. 12:00 í gær að ísl. tima httl veður Akureyri 6 léttskýjað Reykjavik 7 úrk. í gr.
Bergen ð lóttskýjaö
Helsinki 7 léttskýjað
Kaupmannah. 10 rigning
Narssarssuaq +1 skýjað
Nuuk +1 snjókoma
Oslö 8 skýjað
Stokkhólmur 9 skýjað
Þórshöfn 10 léttskýjað
Algarve 18 skýjað
Amsterdam 14 skýjað
Bareeiona 22 léttskýjað
Chicago +1 léttskýjað
Feneyjar 18 þokumóða
Frankfurt 12 rigning
Glasgow 10 rigning
Hamborg 10 rignlng
Las Palmas 28 skýjað
London 14 skúr
Los Angeles 18 alskýjað
Lúxemborg 12 rigning
Madríd 14 skýjað
Malaga 20 skýjað
Mallorca 24 iéttskýjað
Montreal 4 skýjað
Now York 6 léttskýjað
París 16 hélfskýjað
Róm 23 þokumóða
San Diego 18 alskýjað
Winnipeg +2 skýjað
Saltað á 11
plönum í gær
- von er á Sovétmönnum til við-
ræðna um miðjan mánuð
SALTAÐ var a 11 plönum í gær á svæðinu frá Vopnafirði suður
að Djúpavogi. Búizt var við því að saltað yrði í um 2.500 tunnur og
heildin að loknum fyrstu þremur dögunum yrði því um 6.500 tunnur.
Veiðin hefur gengið vel og eru
dæmi um að sami báturinn hafí
landað tvívegis á einum sólarhring,
enda er stutt á miðin. Nú er aðeins
saltað fyrir Svía og Finna, enda
hafa samningar við Sovétmenn ekki
tekizt. Þeir eru seint á ferðinni eins
og undanfarin ár. Von er á mönnum
frá Sovrybflot um miðjan mánuð-
inn. Enn er því ekki ljóst hvort
þeir hafa aflað sér heimildar til að
semja um kaup á meiru en þeim
100.000 tunnum, sem þeir höfðu
heimild til á síðasta samninga-
fundi. Fulltrúar Sovrybflot munu
einnig í þessari ferð ræða um mögu-
leg kaup á 3.000 tonnum af freð-
físki til viðbótar því, sem áður hef-
ur verið samið um fyrir þetta ár.
Loks munu þeir undirbúa kaup á
lagmeti fyrir næsta ár.
Morgunblaðifl/Ingvar Guðmundason
Bifreiðin, sem valt í Svínahrauni, er talin ónýt, en ökumaður hennar
slapp með lítils háttar áverka.
Svínahraun:
••
Okumaður slapp lítt
meiddur úr bílveltu
SNEMMA I gærmorgun valt bifreið á Suðurlandsvegi, i Svína-
hrauni. Ökumaðurinn, sem var einn á ferð, slapp með lítils háttar
áverka, en bifreiðin er talin ónýt.
Lögreglunni á Selfossi barst til-
kynning um veltuna kl. 7.55. Þegar
hún kom á staðinn var ökumaður
horfínn á braut og reyndist hann
hafa fengið far með annarri bifreið
á lögreglustöðina í Árbæ. Þaðan
var hann fluttur á slysadeild til
rannsóknar, en meiðsli hans voru
talin lítils háttar.
Mikil hálka var á þessum slóðum
og annað óhapp varð skömmu síðar.
Ókumaður, sem sá bifreiðina úti í
hrauni, stöðvaði til að kanna hvort
einhveijir væru i henni. Þá bar að
aðra bifreið og tókst ökumanni
hennar ekki að stöðva í hálkunni,
svo bifreið hans rann aftan á þá
kyrrstæðu.