Morgunblaðið - 13.10.1988, Side 14
14
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 13. OKTÓBER 1988
1-
Sparisjóóur Reykjavíkurog nágrennis
í BREIÐHOLTINU
ÁLFABAKKA 14 • SÍMI 670500
Morgunblaðið/RAX
Skákmenn eru yfir-
leitt engar félagsverur
- segir Borís Spasskíj fyrrverandi heimsmeistari í skák
Á FJÖGURRA daga firesti eiga stórmeistararnir 18 frí. Eiginlega
eru þessir dagar ætlaðir til þess að útkljá biðskákir en lítið hefur
farið fyrir þeim á heimsbikarmótinu til þessa. Kapparnir verja tóm-
inu, sem gefst, á ýmsa vegu. Spurst hefur til Timmans á Gauki á
Stöng, Andersson hlustar á Whitney Houston og skundar sinn veg
á reiðhjóli, Kortsnoj fer í Hagkaup með Beljavskíj og Portisch horf-
ir á myndbönd og fer í laugarnar — hann er reyndar sá eini sem
tók eiginkonuna með. Á mánudaginn brugðu nokkrir hugaðir skák-
menn sér í Bláa lónið. Blaðamaður slóst í för og spjallaði á leiðinni
við Borís Spasskíj, heimsmeistarann fyrrverandi, sem fór héðan
sviptur tigninni árið 1972 eftir einvígi aldarinnar við Fischer en
ber engu að síður hlýjan hug til lands og þjóðar, sem man hann
sem Rússann hugumprúða. Spasskíj fluttist vestur til Frakklands
fyrir nokkrum árum, sovésk yfirvöld tóku hann aldrei í sátt eftir
að hann tapaði fyrir Bandaríkjamanninum.
„Þetta er í fimrnta skipti sem
ég tefli hér á íslandi," segir
Spasskíj þegar við hefjum samtalið.
„Eg kann vel við mig héma. Ég
er ánægður með aðstæður á heims-
bikarmótinu nema hvað ljósin eru
of skær fyrir mig en ég hef nú
ekki kvartað yfir því. Frammistaða
mín til þessa, fjögur jafntefli og tvö
töp, er ekki alls kostar góð. Til
dæmis missti ég af vinningi gegn
Júsúpov."
Hvemig kanntu við þessi löngu
mót með 17 umferðum?
„Ég kann vel við þau. Þetta er
mjög sterkt og jafnt mót. Undan-
farin ár hafa slík mót fallið í skugg-
ann af opnu mótunum með sviss-
neska kerfinu. Ég er íhaldssamur
og vill frekar tefla í mótum eins
og þessu. Mér gekk því vel á heims-
bikarmótinu í Belfort. Ég er fullur
bjartsýni. Stærsta vandamálið er
að venjast loftslaginu og breyttum
aðstæðum. Ég á í vandræðum með
svefn, svaf bara fjórar stundir í
nótt, en vonast til að vera í betra
formi eftir þijá, fjóra daga. Þess
vegna reyni ég líka að synda mikið
til að halda mér í formi.“
Ertu hissa á því að Míkhaíl Tal
skuli leiða mótið eftir sex umferðir?
„Já það kemur skemmtilega á
óvart. Ég held með honum því hann
er af minni kynslóð. Hann teflir
líka mjög vel.“
Fischer var mesta
verkalýðshetjan
Hvað með Kasparov, vinnur
hann mótið?
„Nei. Hann tefldi mjög vel í
Belfort og á sovéska meistaramót-
inu. Áður fyrr í skáksögunni tefldu
menn í slíkum mótum einu sinni
til tvisvar á ári. Nú er Kasparov
alltaf að. Á þremur árum tefldi
hann yfír 130 skákir við Karpov,
sem væn eðlilegur fjöldi á fimmtán
árum. Ég held að andlegt þrek
hans sé ekki ótæmandi. Þetta skil-
ur hann ekki. Hann er ungur og
heldur að hann geti allt. Ég efast
því um að hann vinni þetta mót.
Hann er búinn að tefla of mikið
og ég sé á taflmennskunni að sköp-
unarmátturinn fer þverrandi. Ég
tek undir orð Botvinniks þegar
hann sagði — maður ríkur að hæfí-
leikum verður að fara vel með þá
og virða. Kasparov endurtekur þau
mistök sem ég gerði þegar ég var
heimsmeistari. Hann tekur þátt í
alls konar öðru félagsstarfí. Ég
reyndi á sínum tíma að stofna
nokkurs konar verkalýðssamtök
skákmanna í Sovétríkjunum en sá
fljótt að þetta voru draumórar. Það
er enginn grundvöllur fyrir slíku.
Maður verður að fara varlega, jafn-
vel á hans aldri.“
En nú hefur Stórmeistarasam-
bandið verið stofnað að frumkvæði
Kasparovs, gerir það ekki góða
hluti?
„Jú, jú, líkt og að skipuleggja
Heimsbikarkeppnina. En sjáðu til,
þetta eru ung samtök og ég tel að
stórmeistaramir í broddi fylkingar
hugsi ekki nægilega vel um að-
búnað skákmanna. Bobby Fischer
var okkar stærsta verkalýðshetja.
Hann barðist fyrir besta mögulega
aðbúnaði fyrir atvinnuskákmenn.
Stjóm Stórmeistarasambandsins
hugsar nær einungis um peninga-
hliðina."
Kasparov verður ekki
lengi á toppnum
Á Kasparov á hættu að tapa
heimsmeistaratitlinum vegna
annríkis?
„Ég hugsa að hann verði ekki
lengi heimsmeistari, ekki eins lengi
og Karpov. Kasparov teflir mun
líflegar, hann leggur mikið undir í
hverri skák og eyðir of mikilli orku.
Stíll Karpovs er eðlilegri. Skákir
Kasparovs eru ein flugeldasýning.
Þegar ég var nýbakaður heims-
meistari reyndi ég líka að finna
eitthvað nýtt í hverri skák. Ég var
gjörsamlega búinn eftir hveija við-
Samband veitinga- og gistihúsa:
Anægja með „fundarstað ft*amtíðar“
Hótelstjórar og veitingamenn
víðs vegar að af landinu Qöl-
menntu til Hafhar í Hornafirði
í síðustu viku á aðalfúnd Sam-
bands veitinga- og gistihúsa.
Wilhelm Wessman hjá Gildi h.f.
var kjörinn formaður SVG. A
fúndinum voru rædd fjölmörg
baráttu og framfaramál í ferða-
þjónustu , markaðsmál, starf-
semi Ferðamálaráðs og almenn
markaðsstarfsemi.
Aðalfundurinn lýsti yfir mikilli
ánægju sinni með verkefni
Reykjavíkurborgar, „Reykjavík,
fundarstaður framtíðar." Taldi
fundurinn þetta verkefni merkt
framtak af hálfu Reykjavíkur og
aðilum á landinu hvatning til dáða
við erfiðar aðstæður.
Auk Wilhelms formanns sitja í
stjóm SVG þeir Bjami I. Ámason,
Hótel Óðinsvé, Ólafur Laufdal,
Hótel Islandi, Gunnlaugur Hreið-
arsson, Hótel Lauga-ási, Sigurður
Skúli Bárðarson, Hótel Stykkis-
hólmi, Guðvarður Gíslason, Gauk
á Stöng og Hans Indriðason, Hót-
el Loftleiðum. Varamenn í stjóm
em Birgir Jónsson í Gullna hanan-
um og Jón St. Karlsson, Hótel
Hvolsvelli.
i