Morgunblaðið - 13.10.1988, Qupperneq 27
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 13. OKTÓBER 1988
27
Sagði Robert Peary
ósatt um för sína
til norðurpólsins?
Svo segir bandaríski stjarn- o g
sagnfræðingurinn Dennis Rawlins
Washington. Reuter.
LEIÐARBÓK bandaríska heimskautafarans Roberts Peary bend-
ir tíl, að hann haS vitandi vits sagt ósatt þegar hann þóttist hafa
komist fyrstur manna á norðurpólinn árið 1909. Bandaríska stór-
blaðið Washington Post hafði þetta í gær eftir stjarnfræðingnum
og sagnfræðingnum Dennis Rawlins. Iiefur hann ráðið fram úr
leiðarreikningum Pearys og segir, að hann hafi vantað 195 km
upp á að komast á pólinn.
Leiðarbókin virðist sýna svo
óyggjandi sé, að Peary hafi vitað
hvar hann var staddur þegar hann
sagði öðrum leiðangursmönnum,
að þeir væru komnir á norður-
pólinn, og af bókinni má einnig
ráða ástæðuna: Vistimar voru á
þrotum og hlýnandi veður og mik-
il hreyfing á ísnum stefndi ferð-
inni í tvísýnu.
Rawlins segir og vitnar í bók-
ina, að Peary hafí komist í tveggja
sjómflna fjarlægð frá 88. gráðu,
15. mínútu norðurbreiddar og 14.
gráðu vesturlengdar eða í 195 km
fjarlægð frá pólnum.
Vildi ekki koma heim
tómhentur
„Hann vissi, að þetta var hans
síðasta heimskautsferð og hann
vildi ekki snúa heim tómhentur.
Hann ákvað að hafa rangt við
þótt hann gerði sér grein fyrir
áhættunni," segir Rawlins, sem
telur, að Peary hafi geymt leiðar-
bókina þótt hún gæti komið upp
um hann vegna þess, að hún sýndi
einnig, að enginn annar maður
hafði komist nær pólnum á þess-
um tíma.
Gat ekki sannað sitt mál
Eftir lát Pearys var leiðarbókin
í vörslu konu hans, Jo, ásamt bréfi
þar sem Peary bað konu sína um
að gæta bókarinnar eins og sjá-
aldurs auga síns og birta ekkert
úr henni nema til að klekkja á
Frederick Cook, heimskautafar-
anum, sem vildi eigna sér heiður-
inn af því að hafa orðið fyrstur á
norðurpólinn. Á árunum 1910-11
bar Peary vitni fyrir bandarískri
HEILSUGARÐURINN
Garðatorgi, Garðabæ, sími 656970-71
ALHLIÐA LÍKAMSÞJÁLFUN
Nýtt námskeið hefst um helgina.
sleðahunda S einni heimskauts-
ferðinni.
þingnefnd og viðurkenndi þá, að
hann gæti ekki sannað, að hann
hefði komist á pólinn. Hann hélt
því þó staðfastlega fram og bað
þingnefndina að taka sig trúan-
legan.
í Washington Post kom fram,
að nokkrum sinnum áður hefðu
verið bomar brigður á, að Peary
hefði komist alla leið og hefði
mönnum þá alltaf verið neitað um
að skoða leiðarbókina. Frá árinu
1984 hefur hún hins vegar verið
geymd óinnsigluð á bandaríska
þjóðskjalasaftiinu.
Ef rétt reynist, að Peary hafí
ekki komist á norðurpólinn, fellur
heiðurinn í skaut Norðmanninum
Roald Amundsen, sem kom fyrst-
ur á Suðurskautið árið 1911.
Amundsen gerði þó ekki annað
en að fljúga yfir pólinn árið 1926
en fyrsti maðurinn, sem steig
fæti sínum þar, heitir Joseph
Fletcher. Hann lenti flugvél sinni
á norðurpólnum árið 1952. Sá
fyrsti til að fara þangað landveg
er aftur á móti Ralph Plaisted.
Hann kom þar á snjóbfl árið 1968.
HEILSUGARÐURINN
Garðatorgi, Garðabæ, sími 656970-71
REYKBINDINDI + ÞJÁLFUN
Námskeið hefst um helgina.
VERIÐ VEL KLÆDD I VETUR
gardeur
-dömufatnaður
Stakirjakkar,
einlitir-köflóttir.
Pils-buxnapils.
Buxurmargargerðir,
eitthvað fyriralla.
Tískuvara - gæðavara.
Oduntu
VERSLUN v/NESVEG, SELTJARNARNESI
Grandagarði 2, sími 28855, 101 Rvík.
Hann
er í noisku
ullarnærfötunum
oe verður
ekkikalt
r buxur bolir
945,- 1.023,-
2 985,- 1.101,-
6 1.088,-1.180,-
UM UM ALLT LAND
Börnin okkar þurfa hlýjan
vetrarfatnað. Stil ullarnærfötin
frá Noregi eru þægileg nærföt
sem stinga ekki og má þvo
í þvottavél. Þú færð varla
ákjósanlegri nærfatnað