Morgunblaðið - 13.10.1988, Síða 31
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 13. OKTÓBER 1988
31
Ávöxtun sf. synjað um
greiðslustöðvun
RAGNAR Hall borgarfógeti syiy-
aði í gær greiðslustöðvunarbeiðni
Ávöxtunar sf. Úrskurður hans fer
hér á eftir óstyttur.
Úrskurður
Mál þetta var tekið til úrskurðar
hinn 10. október 1988. Meðferð þess
var endurupptekin og það að nýju
tekjð til úrskurðar fyrr í dag.
Ávöxtun sf., Reykjavík, kennitala
660183-0519, hefur með bréfi, sem
barst skiptaráðandanum í Reykjavík
hinn 6. október 1988, óskað eftir
heimild til greiðslustöðvunar í allt
að þijá mánuði. Jafnframt hafa eig-
endur félagsins, Ármann Reynisson,
Smáragötu 5, Reykjavík, og Pétur
Björnsson, Fomhaga 19, Reykjavík,
sett fram sams konar beiðni hvor
fyrir sig persónulega. Jafnframt hef-
ur Björgvin Þorsteinsson, hæstarétt-
arlögmaður, lýst yfir að hann muni
verða greiðslustöðvunarbeiðendum
til aðstoðar á greiðslustöðvunartím-
anum, verði umbeðin heimild veitt.
í greinargerð með beiðni um
greiðslustöðvun fyrir félagið er skýrt
svo frá, að Ávöxtun sf. hafi verið
stofnað árið 1983 og tilgangur þess
verið að ávaxta_ fé fyrir einstaklinga
og fyrirtæki. Ávöxtunin hafi farið
fram með þeim hætti að félagið
keypti skuldabréf og kröfur með af-
föllum. Síðar hafi félagið flárfest í
fasteignum og fyrirtækjum í ágóða-
skyni. Hafi félagið þá keypt fasteign-
ir sem lagfæra þurfti, séð um endur-
bætur á þeim og síðan selt aftur.
Þau fyrirtæki sem félagið hafi keypt
hafi það ýmist rekið í skamman tíma
og síðan endurselt, eða reki enn.
Avöxtun sf. og eigendur þess félags
séu stærstu hluthafarnir í Verðbréfa-
sjóði Ávöxtunar hf. og Rekstrarsjóði
Ávöxtunar hf. Þessir sjóðir hafi gef-
ið út „ávöxtunarbréf" sem seld voru
og andvirðið notað til kaupa á skulda-
bréfum og öðrum fjárkröfum. Ávöxt-
un sf. hafí séð um rekstur sjóða þess-
ara og einnig fengið fé að láni hjá
þeim.
Eigendur „ávöxtunarbréfa" hafi
nú í haust krafist innlausnar á bréf-
um sínum í mun ríkari mæli en
ástæða hafi verið til að búast við.
Hafi það átt rætur að rekja til um-
mæla stjómmálamanns þess efnis
að ónafngreindir verðbréfasjóðir
gætu ekki efnt skuldbindingar sínar.
Þar sem fé sjóðanna hafi að mestu
verið bundið í langtímakröfum hafi
reynst ógemingur að innleysa bréfin
og mál þróast svo að eftir kröfu
bankaeftirlits Seðlabanka íslands
hafi verið ákveðið að leysa upp sjóð-
ina og þeim kosnar skilanefndir í því
skyni. Skilanefnd Verðbréfasjóðs
Ávöxtunar hf. hafi nú krafist þess
að Ávöxtun sf. greiði nú þegar það
fé, sem fyrirtækið hefur haft að láni
frá verðbréfasjóðnum, en samkvæmt
bókhaldi félaganna nemi ijárhæð
þeirrar skuldar kr. 52.074.193,00 og
hafi skilanefndin krafist löghalds í
eignum Ávöxtunar sf. og eigenda
1. Skuldunautar:
Ýmsir skuldunautar
Hughönnun hf.
Hughönnun hf.
Reikningar og lager
hjá Ragnarsbakan'i
2. Víxileignir
3. Skuldabréfaeign
4. Innréttingar, málverk
ogtæki
5. Fasteignir:
Smiðshöfði 8
Byggingarréttur við
Tryggvagötu
Alviðra í Garðabæ
Hverfisgata 12
Þingholtsstræti 4
Holtagerði22
Hverfisgata 37
Laugavegur 145
Garðastræti 16
6. Hlutafjáreign
Eignir samtals að
verðmæti
Lögmaðurinn gerir á sama hátt
grein fyrir skuldum félagsins, sem
hann kveður sundurliðast sem hér
segir:
1. Skammtímaskuldir.
Hlaupareikningur
hjá Spron
Ýmsar skammtímask.
Lánardrottnar
Ógreiddur kostnaður
v/Ragnarsbakarís
Samþykktirvíxlar
Skuldabréf í vanskilum
Ógr. v/kaupsamninga
Verðbréfasjóður
Ávöxtunar hf.
2. Langtímakröfur:
Ávöxtunarreikningar
Skuldabréf vegna
kaupsamninga
Skuldir samtals
félagsins til tryggingar þeirri kröfu.
Til þess hafi Avöxtun sf. ekki hand-
bært fé og sé ljóst, að ekki verði unnt að greiða skuldir Ávöxtunar sf. án þess að selja fasteignir félagsins og koma öðram eignum þess í verð. Lögmaður greiðslustöðvunar- breiðanda hefur á grandvelli árs- reiknings Ávöxtunar sf. og saman- tektar, sem hann kveður stafa frá endurskoðanda félagsins, gert eftir- farandi grein fyrir þeim eignum, sem Ávöxtun sf. eigi:
kr. 10.232.170 6.479.407 666.176 kr.
3.500.000 20.877.753 1.561.738 ca. 11.000.000
1.500.000
19.000.000
5.000.000 11.000.000 25.000.000 30.000.000 606.000 6.500.000 400.000 400.000 ca. 17.000.000 97.906.000
148.435.491
kr. kr.
5.822.823 12.578.775 1.820.073
10.000.000 5.072.300 4.870.000 11.248.500
52.674.193 104.086.664
59.875.397
30.120.887 89.996.284 194.082.948
Lögmaður greiðslustöðvunarbeið-
anda bendir ennfremur á, að til fulln-
ustu skuldbindinga Ávöxtunar sf.
standi auk framangreindra eigna
þær eignir, sem sameigendumir eigi.
Kveður hann eignir Armanns Reynis-
sonar nema að frádregnum skuldum
hans kr. 5.500.000, en eignir Péturs
Bjömssonar að frádregnum skuldum
nemi kr. 27.500.000.
Af hálfu greiðslustöðvunarbeið-
andá'ér þvi haldið fram að ná megi
tökum á íjárhagsmálefnum félagsins
og eigenda þess með því að veita
þessum aðilum heimild til greiðslu-
stöðvunar í þrjá mánuði. Þann tíma
sé ætlunin að nýta sem hér segir:
„Leita þarf tilboða í allar fasteign-
ir þeirra, bæði persónulegar eignir
og eignir Ávöxtunar sf.
Leita þarf samninga við lánar-
drottna og eigendur ávöxtunarreikn-
inga um greiðslufresti og lækkun
krafna. Nú þegar hefur verið haft
samband við allmarga eigendur
ávöxtunarreikninga og hafa nánast
allir þeir sem í hefur náðst samþykkt
að falla frá ‘/3 af kröfum sínum. Þá
er ljóst að þeir eigendur ávöxtunar-
reikninga sem tengdir eru þeim Ár-
manni og Pétri fjölskylduböndum
munu falla frá kröfum sínum til þess
Leiðrétting
í forystugrein Morgunblaðsins í
gær féll niður orðið ekki í tilvitnun
í orð Manfreds Wörners. Rétt er
tilvitnunin þannig: „Á meðan her-
styrkur Sovétríkjanna minnkar
ekki getum við ekki dregið úr okk-
ar herafla."
að forða þeim frá gjaldþroti. Gangi
þessi áætlun eftir þýðir það lækkun
skulda um 20—25 milljónir eingöngu
vegna lækkana á ávöxtunarreikning-
um. Hvað aðra lánardrottna varðar
verður einnig leitast við að fá þær
kröfur lækkaðar um allt að 50%. Er
þar fyrst og fremst átt við eigendur
krafna vegna Ragnarsbakarís kr.
10.000.000,- lánardrottna að fjár-
hæð kr. 12.578.775,-, eigendur víxla
að ijárhæð kr. 5.072.300,- og skuld
vegna kaupa á fasteigninni Þing-
holtsstræti 4 kr. 5.332.500,- en
Ávöxtun sf. hefur fengið afsal fyrir
eigninni þrátt fyrir skuld þessa sem
er á víxlum. Að, lokum þá mun þess
freistað að fá lækkaða skuld Ávöxt-
unar sf. við Verðbréfasjóð Ávöxtunar
hf. en útreikningar á fjárhæð skuld-
arinnar eru að mínu mati óeðlilegir."
Greiðslustöðvunarbeiðandi tekur
fram að miðað við fyrstu viðbrögð
lánardrottna Ávöxtunar sf. séu mjög
góðar líkur á að veruleg lækkun fá-
ist á skuldum félagsins, sem leiði til
þess að eignir verði örugglega um-
fram skuldir. Óvissa ríki hins vegar
um það, hvemig ganga muni að selja
fasteignir félagsins, en rejmt verði
að afla strax tilboða í þær, svo og
eignir Hjartar Nielsen hf., en Ár-
mann Reynisson og Pétur Bjömsson
séu aðaleigendur þess fyrirtækis.
Með greiðslustöðvunarbeiðni sinni
hefur greiðslustöðvunarbeiðandi lagt
fram Qölmörg skjöl til upplýsinga
og skýringa á fjárhagsstöðu sinni,
þar á meðal ljósrit ýmissa kaupsamn-
inga varðandi fasteignakaup og
samninga varðandi sölu á eignum
sem keyptar voru af þrotabúi Ragn-
arsbakarís hf. í Keflavík á sínum
tíma.
Skilanefnd Verðbréfasjóðs Ávöxt-
unar hf. hefur með bréfi, sem barst
skiptaráðanda 6. október 1988, lýst
þeirri skoðun, að eigendur Ávöxtunar
sf. sé skylt samkvæmt 14. gr. gjald-
þrotalaga nr. 6/1978 að hlutast til
um að bú félagsins og eigendanna
sjálfra verði tekið til gjaldþrota-
skipta. Jafnframt er því viðhorfi lýst
í bréfi þessu að skilanefndin telji að
greiðslustöðvun mundi ekki geta leitt
til þess að félagið næði tökum á íjár-
hagsvanda sínum, en framlenging á
þeim tíma, sem fyrirsvarsmenn fé-
lagsins geti ráðskast með fiármuni
þeirra spariQáreigenda, sem trúðu
þeim fyrir ijármunum sínum, sé í
hæsta máta óeðlileg og gæti haft í
för með sér undanskot eigna undan
gjaldþrotaskiptum. Skilanefndin hef-
ur í fógetarétti Reykjavíkur lagt fram
beiðni um löghald í eignum Ávöxtun-
ar og eigenda félagsins til trygging-
ar gjaldföllnum skuldum, sem skila-
nefndin kveður nema samtals tæpum
63,5 milljónum króna að meðtöldum
vöxtum til 5. október 1988. — Lög-
manni greiðslustöðvunarbeiðanda
var kunnugt um þetta erindi skila-
nefndarinnar, er hann lagði fram
greiðslustöðvunarbeiðnina.
Niðurstaða:
Í upptalningu krafna, sem Ávöxt-
un sf. telur sig eiga á hendur öðr-
um, virðast vextir og/eða verð-
bætur reiknaðar fram til ágústloka
sl. Að því er samantekt skulda varð-
ar, er slíkur vaxtareikningur hins
vegar ekki framkvæmdur varðandi
verulega háar skuldir.
Ýmis nöfh á listum yfir skuldu-
nauta Ávöxtunar sf. gefa tilefni til
að ætla að umtalsverðar íjárhæðir
útistandandi krafna séu í raun óinn-
heimtanlegar.
Engin frambærileg gögn hafa
verið lögð fram af hálfu greiðslu-
stöðvunarbeiðanda varðandi verð-
mæti fasteigna Ávöxtunar sf. á
fijálsum markaði. Alkunna er að
söluverð fasteigna á fijálsum mark-
aði ræðst að verulegu leyti af
greiðslukjörum, en fátítt er að slíkar
eignir séu greiddar af kaupendum
á skemmri tíma en 12 mánuðum
og þá með verulegum afslætti frá
verði, sem miðaðist við greiðslu á
mörgum árum. Með því að leggja
beiðni sína fyrir réttinn með þeim
hætti sem hér er gert leggur
greiðslustöðvunarbeiðandi það und-
ir mat réttarins, hvort hér geti ver-
ið um trúverðugar matsfjárhæðir
að ræða. Sé hliðsjón höfð af þeim
ljósritum kaupsamninga um fast-
eignir, sem greiðslustöðvunarbeið-
andi hefur lagt fram með beiðni
sinni og auk þess tekið mið af þeim
lauslegu kynnum sem skiptaráðandi
hefur haft af fasteignamarkaði í
Reykjavík og nágrenni á undan-
FiskverA á uppboAsmörkuAum 12. október.
FISKMARKAÐUR hf. í Hafnarfirði
Hæsta Lægsta Meðal- Magn Helldar-
verð verð verð (lestir) verð (kr.)
Þorskur 56,80 48,00 54,21 7,214 391.098
Ýsa 82,00 - 64,18 4,391 281.815
Ufsi 24,00 15,00 22,31 1,184 26.421
Karfi 28,00 20,00 27,18 10,662 289.757
Keila 23,50 18,00 23,43 5,181 121.365
Langa 30,00 15,00 29,09 2,358 68.592
Lúða 185,00 90,00 149,28 0,603 90.043
Skötubörö 190,00 190,00 190,00 0,107 20.330
Selt var úr Stakkavík ÁR, frá Hraðfrystihúsi Hellissands og úr
ýmsum bátum. í dag veröur selt m.a. frá Hraöfrystihúsl Breiö-
dælinga og úr ýmsum bátum.
FAXAMARKAÐUR hf. í Reykjavík
Þorskur 53,00 42,00 52,35 8,700 455.476
Ýsa 76,00 30,00 53,96 2,328 125.601
Karfi 32,00 25,50 29,26 88,932 2.602.260
Ufsi 27,00 26,00 26,68 29,738 793.308
Keila 19,00 19,00 19,00 0,497 9.443
Lúða stór 175,00 175,00 175,00 0,166 29.050
Skötuselur 160,00 160,00 160,00 0,044 7.040
Blálanga 33,00 29,00 31,64 4,996 158.054
Grálúða 31,00 31,00 31,00 0,915 28.365
Selt var úr bv Engey RE og bv Ottó N. Þorlákssyni RE. í dag
verður selt úr Baröa NK og Ásgeiri RE.
FISKMARKAÐUR SUÐURNESJA hf.
Þorskur 55,00 30,00 52,66 49,976 2.631.736
Keila 18,50 12,00 15,35 1,300 19.950
Ýsa 78,00 50,00 61,02 19,438 1.186.123
Ufsi 27,00 15,00 22,70 2,913 66.119
Karfi 29,50 7,00 27,87 28,007 780.661
Steinbltur 33,00 12,00 24,67 0,383 9.448
Blálanga 30,50 30,50 30,50 1,220 37.211
Langa 30,50 28,00 29,03 1,036 30.057
Lúða 180,00 100,00 165,54 0,254 41.997
Skata 152,00 71,00 79,22 0,128 10.140
Skötuselur 335,00 305 322,31 0,080 25.785
Selt var aöallega úr Eldeyjar Hjalta GK, Bergvik KE, Geir RE,
Reyni GK, Hörpu GK og Þresti RE ásamt ýmsum bátum. I dag
verður selt m.a. úr Gnúpi GK og Hrafni Sveinbjarnarsyni GK,
u.þ.b. 60 tonn af karfa og ufsa. Einnig verður selt úr ýmsum
dagróörabátum.
fömum árum, þykja þessar matstöl-
ur veralega ósennilegar sem stað-
greiðsluverð fyrir umræddar eignir.
Af hálfu greiðslustöðvunarbeið-
anda var í framlögðum gögnum
með greiðslustöðvunarbeiðni ekki
gerð nein grein fyrir því, að hvaða
marki eigendur Ávöxtunar sf. séu
í persónulegum fjárhagsábyrgðum
vegna skulda annarra aðilja, sem
þeir hafa staðið í viðskiptasambandi
við. Óskaði skiptaráðandi eftir upp-
lýsingum frá lögmanni greiðslu-
stöðvunarbeiðanda um slíkar skuld-
bindingar. Af gögnum sem lögmað-
urinn afhenti vegna þessara til-
mæla má ráða, að slíkar ábyrgðir
nemi 60 til 70 milljónum króna.
Era slíkar skuidbindingar vegna
Kjötmiðstöðvarinnar hf. á bilinu 50
til 60 milljónir, og vegna viðskipta
Hjartar Nieisen hf. við þrotabú • -
Ragnarsbakarís hf., Keflavík, ná-
lægt 12,5 milljónum. í því sam-
bandi er þess að geta, að Kjötmið-
stöðin hf. fékk heimild til greiðslu-
stöðvunar í 3 mánuði með úrskurði
skiptaréttar Garðakaupstaðar upp-
kveðnum hinn 29. september sl. og
vora skuldir þess félags þá taldar
ríflega 84 miljónir króna umfram
eignir. Verður því að telja umtals-
verðar líkur á því að reynt geti á
persónulegar ábyrgðir þriðja aðilja
á skuldbindingum þess félags, að
minnsta kosti er ekki hægt að líta
fram hjá þeim möguleika þegar
afstaða er tekin til þeirrar beiðni,
sem hér liggur fyrir. Verður ekki
hjá því komist að álykta, að *
greiðslustöðvunarbeiðandi hafi af
ásettu ráði látið hjá líða að tíunda
slíkar fjárskuldbindingar í þeim
gögnum er hann lagði fram með
beiðni sinni.
Ekki hefur greiðslustöðvunar-
beiðandi heldur séð ástæðu til að
gera í greinargerð sinni nokkra
grein fyrir stöðu mála varðandi við-
skipti Hjartar Nielsen hf. við
þrotabú Ragnarsbakarís hf. . í
Keflavík. Skiptaráðandi hefur feng-
ið þær upplýsingar frá skiptarétti
Keflavíkur, að Hjörtur Nielsen hf.
hafi keypt eignir þrotabús Ragnars-
bakarís hf. á sínum tíma, en þeir •
Ármann Reynisson og Pétur
Bjömsson gengist í persónulega
ábyrgð fyrir greiðslu kaupverðs.
Svo virðist sem þeir félagar hafi
síðar með einhveijum hætti „af-
hent“ Ávöxtun sf. réttindi sín að
þessum eignum, að minnsta kosti
er Ávöxtun sf. sagður seljandi þess-
ara sömu eigna þegar þeir félagar
selja þær aftur hinn 21. ágúst 1988.
Samkvæmt upplýsingum skiptaráð-
anda í Keflavík hefur samningur
Hjartar Nielsen hf. við umrætt
þrotabú verið veralega vanefndur
af hálfu kaupanda. Þá mun samn-
ingsgerð um sölu á rekstri bakarís-
ins og um yfirtöku kaupanda á
skuldbindingum Hjartar Nielsen hf.
við þrotabúið hafa farið fram án
nokkurs samráðs við þrotabúið. Af
því er ljóst, að Armann og Pétur
era ekki lausir frá ábyrgðum á
greiðslu kaupverðs gagnvart þrota-
búi Ragnarsbakarís hf.
Fyrir liggur að Ávöxtun sf. rak
verðbréfamiðlun í skjóli leyfis, sem
Pétur Bjömsson hafði til slíkrar
starfsemi. Hann hefur verið sviptur
því leyfi. Ávöxtun sf. rekur því
enga atvinnustarfsemi. Mun að-
dragandi að leyfissviptingunni hafa
verið sá, að bankaeftirlit Seðla-
banka íslands taldi þann hátt sem
félagið hafði á starfseminni að
ýmsu leyti andstæðan lögum um
viðskiptabanka nr. 86/1985 og lög-
um um verðbréfamiðlun nr.
27/1986. í ljósi ýmissa þeirra upp-
lýsinga, sem fram koma í greinar-
gerð með greiðslustöðvunarbeiðn-
inni og meðfylgjandi gögnum og
raktar vora hér að framan, þykir
sú ályktun ekki með öllu ósennileg.
Þegar framanritað er virt og fyr-
iriiggjandi gögn metin í heild þykja
ekki vera fyrir hendi neinar líkur á
því að takast niegi að ráða bót á
fjárhagsvanda Ávöxtunar sf. með
því að veita félaginu heimild til
greiðslustöðvunar. Verður því að
hafna þeirri beiðni.
Ragnar Halldór Hall borgarfóg-
eti kvað upp úrskurð þennan.
Úrskurðarorð:
Beiðni Ávöxtunar sf., Reykjavík,
kennitala 660183-0519, um heimild
til greiðslustöðvunar er synjað.