Morgunblaðið - 03.11.1988, Qupperneq 29
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 3. NÓVEMBER- 1988
oo
29
Frakkland:
Le Pen reynir að veqa
heiður sinn fyrir rétti
Tner. Frá Steingfrími Signrg'eirssyni, fréttaritara Morgunblaðsins.
ÞESSA dagana standa yfir í París réttarhöld vegna ummæla sem
læknirinn Jean-Marie Demarquet lét hafa eftir sér í viðtali við
Le Monde árið 1985 um Jean-Marie Le Pen, formann Þjóðernis-
fylkingarinnar. Demarquet og Le Pen höfðu um áratuga skeið
verið nánir vinir en í viðtalinu sakaði Demarquet Le Pen um
gyðingahatur og sagði hann bera ábyrgð á dauða milljónamærings-
ins Huberts Lamberts. Lambert, sem átti sementsverksmiðjur með
sama nafiii, var alkóhólisti og dvaldi síðasta ár lífs síns á heimili
Le Pens. Að sögn Demarquet á Le Pen að hafa dælt áfengi stöð-
ugt ofan í Lambert og þar með hafa orðið valdur að dauða hans.
Eftir lát Lamberts kom í ljós að hann hafði arfleitt Le Pen að
öllum eignum sínum.
Auk Demarquet þurfa dagblöð-
in Le Monde og Liberation sem
birtu ummæli hans, að svara til
saka í réttarhöldunum er nú hafa
loks hafist eftir þriggja ára undir-
búning. Lögfræðingur Le Pens,
George Wagner, krefst 150.000
franka (1,2 millj. ísl. kr.) fyrir
rógburð gegn Le Pen og svívirð-
ingu á mannorði látins manns
(Lamberts). í framsöguræðu sinni
sagði Wagner þessi ummæli Dem-
arquets stafa af því að hann hefði
ekki sætt sig við að vera ekki
skipaður á framboðslista Þjóðern-
isfylkingarinnar í kjördæminu
Bouches-du-Rhone (Marseille) fyr-
ir þingkosningamar 1986.
Veijendur Le Monde og Libera-
tion, þeir Henri Leclerc, Jean-Paul
Lévy og Yves Baudelot, telja sig
hins vegar geta fært sönnur á all-
ar staðhæfingar Demarquets.
Einkaspæjarinn Marcel Gianmar-
inaro, sem' starfað hefur fyrir
Philippe Lambert, frænda Huberts
og lögmæts erfingja, segir að and-
legri heilsu Huberts hafi hrakað
svo mjög vegna áfengisins, sem
Le Pen veitti honum, að hann
= HÉÐINN =
VÉLAVERSLUN, SÍMI 624260
SÉRFRÆÐIÞJÓNUSTA-LAGER
hafi ekki verið fær um að undir-
rita skjöl eða skrifa ávísanir. Það
sé því líklegt að hann hafi verið
blekktur til að breyta .efðaskrá
sinni, Le Pen í hag. Varðandi ásak-
anirnar um gyðingahatur segjast
lögfræðingamir hafa litlar áhyggj-
ur af því að geta ekki sannað að
þær hafi átt við rök að styðjast.
En það beinast fleiri spjót að
Le Pen þessa dagana. í væntan-
legri bók eftir fyrrverandi eigin-
konu hans, Pierrette, eru að sögn
tímaritsins L’Evenement du Jeudi
frásagnir af því hvernig Le Pen
smyglaði milljónum franka til
Sviss og lagði þar inn á leynilega
bankareikninga. Þá er einnig sagt
frá tengslum hans við melludólg-
inn Henry Botey sem stundum er
kallaður „guðfaðir" Pigalle-hverf-
isins í París. Botey er einnig guð-
faðir yngstu dóttur Le Pens og
segir Pirette í bókinni að hann
hafi á undanfömum árum séð Le
Pen fyrir lífvörðum.
Þokkadísirá Spáni
Reuter
Stöllumar á myndínni heita Morgan Fox (t.v.),18 ára gömul yng-
ismær frá Kanada, og Catherine Bushell sem er 21 árs og frá
Astralíu. Þær taka þátt í undankeppni Miss World-fegurðarsam-
keppninnar í Marbella á Spáni. Lokakeppnin fer síðan fram í
London i næstu viku.
AF ÞESSIIM TEGUNDIHH:
Blómstrandi
nóvemberkaktus
aðeins kr.
Haustlaukar 20% afsláttur
Nú er um að gera að drífa haustlaukana niður
áður en það er um seinan.
JUKKUR
DREKATRÉ
BURKNAR
FÍKUSAR (STÓRIR)
PÁLMAR (STÓRIR)
KAKTUSAR
Keramik, glervara, kerti o.fl.
Alls konar vörur á ótrúlegu verði.
Komid
íBlómaval
oggerid
góðkaup
blómciuol
Gróðurhúsinu v/Sigtún Sími: 68 90 70