Morgunblaðið - 03.11.1988, Qupperneq 39
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 3. NÓVEMBER 1988
39
Morgunblaðið/Emilía
Siguijón Pétursson, Þráinn Jónsson og Einar Sveinsson við af-
hendingu á austfirsku íslandsklukkunnar frá Borgarfirði eystra.
Sjóvá fær aust-
fírska basaltklukku
UMBOÐSMENN Sjóvá á Austurlandi færðu félaginu nú nýverið gjöf
í tilefiii af 70 ára afinæli þess sem var 20. október sl. Þráinn Jóns-
son, umboðsmaður fyrirtækisins á Fljótsdalshéraði, afhenti gjöfina.
Gjöfin er klukka úr austfirsku basalti frá Borgarfírði eystra.
Þráinn sagði í samtali við Morg-
unblaðið að umboðsmennimir hefðu
valið klukku vegna þess að þeim
fyndist forsvarsmenn Sjóvá fylgjast
vel með tímanum. „Þetta eru ungir
og framsæknir menn hjá nútíma-
legu fyrirtæki sem fylgjast vel með
tímanum. Klukkan er frá fyrirtæk-
inu Álfasteini á Borgarfirði eystra,
þetta er Islandsklukka úr austfirsku
basaiti og það eru merktir inn á
hana þeir staðir á Austurlandi þar
sem umboðsmenn Sjóvá eru,“ sagði
Þráinn.
Einar Sveinsson framkvæmda-
stjóri Sjóvá sagði að það hefðu allt-
af verið einstaklega góð samskipt:
við umboðsmennina á Austurland
og reyndar um allt land. „Um þriðj-
ungur af viðskiptum Sjóvá kemui
í gegnum umboðsmennina á lands-
byggðinni, þeir eru því afar mikil-
vægir í starfsemi fyrirtækisins,"
sagði Einar. Hann sagðist vilja
þakka austfirsku umboðsmönnun-
um fyrir þessa gjöf. Siguijón Pét-
ursson aðstoðarframkvæmdastjóri
sagði að mannlegi þátturinn væri
mikilvægur í samskiptunum við
umboðsmenn fyrirtækisins. „Þetta
eru ekki köld og ómánnúðleg við-
skiptasambönd," sagði Siguijón.
■
1
! '
SundskýU við Gvendarlaug hins góða við Klúkuskóla. Þau hafa nú
veríð vatnsvarín af Bjarnfirðingum.
Gvendarlaug á Klúku:
Sundskýlin viðarvarin
Laugarhóli, Bjarnarnrði.
TÍU íbúar BjarnarQarðar komu saman heigina 22. og 23. október
til að viðarveija sundskýlin við Gvendarlaug hins góða, en það var
einn þeirra þátta sem ólokið er við byggingu sundskýlanna. Tóku
því íbúarnir höndum saman og mættu með það efiii er til þurfti og
báru viðarvörn á sundskýlin, sem annars lágu beinlínis undir
skemmdum. Var þetta glaður hópur sem sá húsið breyta um svip
meðan unnið var.
Verkinu stjórnaði Ólafur Ingi-
mundarson á Svanshóli, en hann
var byggingarmeistari skýlanna á
sínum tíma og jafnframt annar
verktakanna er byggði þau. En nú
var mætt til sjálfboðavinnu, þar sem
ekkert hafði gerst af opinberri hálfu
um framhald verksins og óvarið
timbur stenst ekki ágang vestfirsks
veðurs til lengdar nema það sé vel
saltað rektimbur.
Vann hópurinn af miklum dugn-
aði laugardaginn 22. október nema
hvað gert var hlé til að drekka
kaffi og borða vöffiur, sem Torf-
hildur Steingrímsdóttir, settur
j skólastjóri, færði mannskapnum. Á
T sunnudaginn var svo farið yfir
síðustu blettina og tekið til. Ágætis
veður var um helgina og því var
þetta tækifæri gripið til að veija
sundskýlin fyrir veturinn, þar sem
viðurinn hafði að mestu leyti náð
að þoma.
Það var glaður og hress hópur
sein sneri heim að loknu góðu verki
í þetta sinn. Er gott að minnast
þess að Bjamfirðingar byggðu á
sínum tíma sundlaugina á Klúku
og þar áður sundlaugina í Svans-
hólslandi í sjálfboðavinnu svo þetta
er ekki nýnæmi hér í sveit að allir
leggi sig fram um sameiginlegar
hagsbætur, sem jafnvel fólk utan
sveitar nýtur góðs af.
AF ERLENDUM VETTVANGI
eftir STEINGRÍM SIGURGEIRSSON
Franskir mótmælendur:
Fámennir en valdamiklir
MÓTMÆLENDUR hafa ávallt veríð í miklnm minnihluta í hinu
kaþólska Frakklandi. Fyrr á öldum voru voru þeir ofsóttir fyrir
trú sína og jafiivel drepnir í stórum stil. Blóðbaðið á degi heilags
Barthelomeusar árið 1572 er líklega frægasta dæmið þar »im en
þá voru urn 300 mótmælendur drepnir að skipan Karls IX Frakk-
landskonungs. Það var ekki fyrr en áríð 1789 sem mótmælendur
fengu með stjórnarskránni lagalega jafnstöðu gagnvart kaþólikk-
um. Eitthvað virðist hafa rofað til hvað varðar stöðu þeirra síðan.
*
Ijúní á þessu ári var mótmæl-
andinn Michel Rocard skipaður
forsætisráðherra af Francois
Mitterrand, Frakklandsforseta,
sem er strang-kaþólskur. Rochard
tók tvo mótmælendur til viðbótar
með sér inn í ríkisstjómina, þá
Pierre Joxe, innanríkisráðherra,
og Lionel Jospin, menntamálaráð-
herra. En mótmælendur eru ekki
einungis áhrifamiklir innan sósíal-
istaflokksins. Þeir eiga fjölda full-
trúa í embættismannakerfí og við-
skiptalífi Frakklands og skipa þar
veglegan sess.
Þó að mótmælendur séu nú
meira áberandi en oft áður i
frönskum stjómmálum þá er það
ekkert einsdæmi að þeir skipi þar
æðstu valdastöður. Gaston Dou-
mergue, forseti Frakklands á ár-
unum 1924-1931, var mótmæl-
andi og árið 1968 skipaði Charles
de Gaulie hershöfðingi og forseti
mótmælandann Masurice Couve
de Murville forsætisráðherra. í
ríkssljómum sósíalista fyrr á
þessum áratug hafa mótmælend-
ur líka verið fjölmennir. Sem
dæmi um ráðherra má nefna Ge-
orgina Dufoix, Lous Mexandeu,
Georges Fillioud, Jean-Pierre Cot,
Nicole Questiaux og Catherine
Lalumiére. Af einhveijum ástæð-
um virðast flestir mótmælendur
vera vinstra megin við miðju hvað
stjómmál varðar. Kom það meðal
annars fram í skoðanakönnun sem
Ifop-stofhunin framkvæmdi árið
1980. Hafa þeir staðið framarlega
í baráttu fyrir málum á borð við
fóstureyðingar, getnaðarvamir,
afnám nýlendustefnunnar og jafti-
réttisbaráttu kvenna. Vissulega
má þó fínna þó nokkur dæmi um
mótmælendur sem náð hafa
frama í stjómmálum er hafa verið
hægra megin við miðju. Er de
Murville líklega besta dæmið þar
um.
mótmælenda má nefna fyrirtækið
Shlumberger, sem þjónustar olíu-
iðnaðinn. Það var stofnað árið
1927 af Elsass-bræðrum Conrad
og Marcel og er nú það stærsta
í heiminum á sínu sviði. Hottingu-
er-fjölskyldan hefur stundað
bankaviðskipti í Frakklandi síðan
1786 og er valdamikil í franska
bankaheiminum. Annar áhrifa-
mikill mótmælandi þar er
Jean-Marc Vemes. Hann er stofn-
andi La banque Vemes, sem var
þjóðnýttur árið 1981, þegar sósía-
listar komust til valda. Þó stofn-
aði Vemes Banque du Marais
skömmu síðar. í dag er hann for-
stjóri stórfyrirtækisins . Beghin
Say, og stjómarformaður í fyrir-
tælgum á borð við L’Air liquide,
Rhone-Poulenc, Victoire og Elec-
tronique Serge Dassauit, svo
nokkur séu nefiid.
Sterk fjölskyldubönd
Sumir telja sig sjá margt sam-
eiginlegt með gyðingum og mót-
mælendum í kaþólskum löndum á
borð við Frakkland. Þeir eiga erf-
iðara með að komast á toppinn
en kaþólikkar og þurfa því að
skara fram úr vilji þeir ná ein-
hveijum árangri. Innbyrðis tengsl
og fylskyldubönd eru líka mjög
sterk meðal franskra mótmæl-
enda. Stóm fjölskyldumar, Hott-
inguer, Vemes, Peugeot, Seydo-
uz, tengjast allar hver annarri.
Tengslin við mótmælendur í öðr-
um löndum em líka mjög sterk.
Í vínhéraðinu Bordeaux, þar sem
mótmælendur em §ölmennir og
ijársterkir, kvarta kaþólskir jafii-
vel yfir því að of margar ákvarð-
anir sem snerta vínframleiðslu
héraðsins séu teknar í London eða
Haag en ekki Bordeaux. Þessí
sterku tengsl em kannski ekki svo
skrýtin þegar haft er í huga að
margir franskir mótmælendur
flúðu norður til Hollands eða
Þýskalands þegar ofsóknir gegn
þeim stóðu sem hæst, t.d. eftir
að „édit de Nantes“-lögin sem
sett vom árið 1598 og tryggðu
rétt mótmælenda, vom felld úr
Þótt mótmælendur séu einungis 2% frönsku þjóðarinnar eru þeir
íjölmennir í áhrifastöðum. Hinn strangkaþólski forseti, Francois
Mitterrand (t.v.), skipaði mótmælandann Michel Rocard í forsætis-
ráðherraembætti í júní í ár.
Menntun, viðskipti
og Qölmiðlar
Ustinn yfir mótmælendur sem
áberandi hafa verið f stjómmálum
þessarar aldar í Frakklandi er
ekki síst merkilegur þegar haft
er í huga að franskir mótmælend-
ur em einungis um 810.000 eða
u.þ.b. 2% þjóðarinnar. Fjölmenn-
astir em þeir f Elsass-héraði í
Norður-Frakklandi. Mótmælend-
ur em einnig mjög áberandi í
æðri menntastofiiunum á borð við
IEP (Institut des études Politiqu-
es) en nám þar er nauðsynlegur
áfangi á leið inn í ENA (Éeole
nationale d’Administration),
æðstu menntastofnun Frakk-
lands, sem útskrifar alla æðstu
embættismenn og diplómata
landsins auk fjölda stjómmála-
manna.
Mótmælendur em líka mjög
áberandi í viðskiptalífí Frakk-
lands. Meðal fyrirtækja f eigu
í fjölmiðlaheiminum franska
eiga mótmælendur einnig sín ítök.
Nicolas Seydoux er stjómarfor-
maður Gaumont, stærsta kvik-
myndafyrirtækis Frakklands, og
eigandi tímaritsins Le Point.
Bróðir hans, Jerome, á stór út-
gáfufyrirtæki og er einnig hlut-
hafí í fímmtu sjónvarpsstöðinni,
la Cinq. Jerome Seydouz hefur
einnig lagt fé í tímaritið Le Nou-
vel Observateur. Loks má nefna
fyrirtæki í lúxusiðnaði Frakka
sem em í eigu mótmælenda: Lou-
is Vuitton, Guerlain og Hermes
og elstu bifreiðaframleiðendur
veraldar, Peugeot-fjölskylduna.
En þó að Peugeot SA sé í eigu
mótmælenda er stjómandi fyrir-
tækisins kaþólskur — Jaques Cal-
vet — sem áður stjómaði einka-
skrifstofú Valéris Giscards
D’Estaings í fjármálaráðherratíð
hans og var bankastjóri Banque
nationale de Paris áður en hann
hóf störf hjá Peugeot.
gildi árið 1658 — sem þýddi f
raun að menn urðu að taka kaþ-
ólska trú eða deyja.
Samskiptin við mótmælendur
frá öðmm löndum geta þó stund-
um tekið á sig vandræðalega
mynd. Heniy Racamier, stjóm-
andi fyrirtækisins Louis Vuitton,
og þar af leiðandi „að sjálfsögðu"
mótmælandi, segir frá því f sam-
tali við tímaritið Le Point þegar
hann tók á móti mikilvægum
norskum viðskiptavini í Paris.
Hann vissi að Norðmaðurinn væri
einnig mótmælandi og því bauð
Racamier honum á hinn vinsæla
stað Crazy Horse þar sem létt-
klæddar blökkustúlkur dilla sér í
takt við tónlist. En æ, æ. Norð-
maðurinn var harðlínumaður í
trúnni og brást hinn versti við.
Þessi uppákoma hafði þó ekki
áhrif á viðskipti hans við Vuitton-
fyrirtækið, að sögn Racamier, þar
sem Norðmaðurinn var raunsæis-
maður á viðskiptasviðinu.