Morgunblaðið - 03.11.1988, Blaðsíða 45
fefett' SíitiaaSÍVOM .8 AUÖACílíí'idliU i ,(JiUAJ.ÖlUiKiOM
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 3. NÓVEMBER 1988
JC*r
45
8Í&3SA3B8SÍ
K R A F T A R
NÁTTÚRUNNAR
A Ð V E R K I
JHERI REDDING HEFUR BEISLAÐ
KRAFTA NÁTTÚRUNNAR OG BÚIÐ TIL
HÁRSNYRTIVÖRUR SEM HENTA ÖLLUM í
FJÖLSKYLDUNNI.
FÁST EINUNGIS í SNYRTIVÖRUVERSLUNUM
REDDW6 KRI REDDW6
, XURY «TRA FIRM
REDDIH6 íffOO flWNG SPRAY
M 175
Ml OratíMJM JÍWiMNö
AU* iífin QWts
*bou2»»S ^ W«3WC KMMílCtó
„Himinn og
hel“ eftir
Emanuel
Swedenborg
BÓKAÚTGÁFAN Örn og Örlyg-
ur hefur gefið út bókina Himinn
og hel — undur lífsins eftir dauð-
ann — eftir sænska vísindafröm-
uðinn, rithöfúndinn og sjándann
Emanuel Swedenborg. Þýðingu
annaðist Sveinn Ólafsson.
í fréttatilkynningu frá útgefanda
segir m.a.: „Himinn og hel“ fjallar
um framlífið og byggist á upplifun
og reynslu Swedenborgs í lífi ann-
ars heims um langt árabil. Hann
lýsir nákvæmlega lífinu eftir dauð-
ann. Er sú lýsing talin hin yfirgrips-
mesta og nákvæmasta sem mann-
kyninu hefur nokkru sinni gefist.
Sýnt er hvernig maðurinn gengur
inn í líf annars heims; hið andlega
eðli umhverfisins; hvar og hvernig
dómurinn á sér stað; hið undirfagra
líf himnanna; uppeldi barna; eðli
hjúskapar og margt fleira. í trúar-
skýringum sínum leitast Sweden-
borg við að gæða hina göfugu
kristnu kenningu endurnýjandi
lífskrafti. Hið nýja inntak, sem hann
birtir, segir hann gefið af Drottni,
til að gjöra hana að kórónu allra
trúarbragða."
Setning og prentun bókarinnar
fór fram hjá Filmur og prent hf.,
en bókband hjá Arnarfelli.
Allir áfangar byggingarinnar
eru boðnir út og hagstæðum tilboð-
um tekið og á það einnig við um
efniskaup.
- Árni
Stykkishólmi.
BYGGING íþróttamiðstöðvar í
Stykkishólmi hefúr gengið vel
og betur en áætlað var í upp-
hafi. Aðalverktaki er Trésmiðja
Stykkishólms hf. og verkstjóri er
Bjami Lárentsínusson.
Arkitektar hússins eru Ormar
Þór Guðmundsson og Örnólfur Hall
frá Arkitektastofunni sf. en verk-
fræðivinnu annast Verkfræðistofa
Sigurðar Thoroddsen.
Fréttaritari spurði Sturlu Böðv-
arsson bæjarstjóra um fjármögnun
íþróttamiðstöðvarinnar. Hann sagði
að unnið yrði fyrir um 25 milljónir
á þessu ári og þá væri miðað við
að húsið væri fokhelt og frágengið
að utan.
Sturla sagði að nú væri mjög
brýnt að fjárveitinganefnd Alþingis
veitti framlög til framkvæmda bæj-
arins sem væru knýjandi og þar á
meðal til íþróttahússins. Hann sagði
að framkvæmdahraði þessa húss
væri mun meiri en títt væri um
slíkar byggingar. Með því ynnist
tvennt, húsið verður fyrr tilbúið til
notkunar og kostnaður verður
minni.
Morgunblaðið/Ámi Helgason
Eigandí - Stykkishólm<;hi«Mt. **'"
..aimimjiM,.,
, Arkiteki - Arkítekfcloto^ft
Verkfr
Verkfrœðisto
Aðalverkfakí
Tres
Fánar voru dregnir að hún þegar
íþróttamiðstöðin í Stykkishólmi
varð fokheld.
Ormar Þór Guðmundsson arki-
tekt, Sturla Böðvarsson bæjar-
stjóri, Bjarni _ Lárentsínusson
verkstjóri, Jón Ágúst Guðmunds-
son verkfræðingur og Erlar
Kristjánsson bæjarverkfræðing-
ur.
Stykkishólmur:
Iþróttamiðstöðiii
komin undir þak