Morgunblaðið - 17.03.1989, Qupperneq 12

Morgunblaðið - 17.03.1989, Qupperneq 12
12 sei SHAM ,TI flUOAClUTgÖ'í (IKIAJÍIHUOHOM MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 17. MARZ 1989 Hringuríiin er í stöðugri sókn Rætt við Ragnheiði Viggósdóttur formann Kvenfélagsins Hringsins Hringskonur eru vinnufusar. Þarna er unnið að munum fyrir Páskabasarinn. Ragnheiður Vigg- ósdóttir formaður félagsins er yst til vinstri á myndinni. Kvenfélagið Hringurinn er 85 ára um þessar mundir. Fé- lagið var stofhað árið 1904 af 45 konum og var frú Kristin Vídalín Jakobsson formaður þess fyrstu Qóra áratugina. Að sögn Ragnheiðar Viggósdóttur, núverandi formanns, var þessi fyrsti forveri hennar \s starfi mikil atorkukona og undir hennar stjórn varð Kvenfélagið Hringurinn að því öfluga líknarfélagi sem það er enn í dag, þó starfssvið þess hafi breyst í réttu hlutfalli við að- stæður í þjóðfélaginu. Fyrsta verkefni félagsins var að aðstoða bágstaddar sængur- konur með mjólkurgjöfum og bamafatnaði. En fljótlega beind- ust augu félagskvenna að fóm- arlömbum berklaveikinnar, sem var mjög skæð hér á landi á fyrstu áratugum þessarar aldar. Áttu margir um sárt að binda af henn- ar völdum. Að sögn Ragnheiðar greiddi Hringurinn iðulega legu- kostnað fyrir berklasjúklinga og styrkti þá með peningagjöfum eftir að hælisvist lauk. Þegar berklavamalögin komu til fram- kvæmda árið 1921 tók ríkið að sér að greiða legukostnað sjúkl- inga. Eftir sem áður áttu margir berklasjúklingar, sem útskrifuð- ust af spítölum lítt eða ekki vinnu- færir, í fá hús að venda. Hrings- konur brutust í að koma upp hressingarhæli í Kópavogi fyrir þetta fólk. Þær byggðu hús sem rúmaði 25 sjúklinga og ráku bú- skap á jörðinni Kópavogi um ára- bil, til þess að standa straum af kostnaði við rekstur hælisins. Þetta starf gekk vonum framar, búskapurinn bar sig og afrakstur hans, ásamt annarri fjáröflun fé- lagskvenna, nægði til að hjálpa fjölmörgum til heilsu á ný. Kópa- vogshælið var, að sögn Ragn- heiðar, fyrsta hressingarhæli landsins. „Nú hefur SÍBS fyrir löngu tekið þessi mál að sér,“ hélt Ragn- heiður áfram frásögn sinni. „Það félag hefur lyft Grettistaki, svo sem kunnugt er. Þegar stjóm SÍBS hélt sinn fimmhundraðasta fund fyrir nokkru minntust stjóm- armenn brautryðjendastarfs Hringsins og færðu félaginu af- mælisgjöf að upphæð 500.000 krónur. Þessi rausnarlega gjöf og sú mikla viðurkenning sem henni fylgdi kom út tárunum á Hrings- konum á afmælisfundi þeirra. Að fá slíka viðurkenningu á þýðingu starfs síns fyrir heilbrigðismál þjóðarinnar, frá jafn virtu félagi og SÍBS er, það er ekkert smá- mál fyrir eitt lítið kvenfélag," sagði Ragnheiður ennfremur. Næsta verkefni og baráttumál Hringsins, eftir að berklavama- málin komust í höfn, var að reisa bamaspítala. Að því hefur, að sögn Ragnheiðar, verið unnið síðan og margir sætir sigrar unn- ist í þeirri baráttu. En mörg verk- efni eru þó framundan. Ber þar hæst áætlun um nýjan bamaspít- ala í hentugra húsnæði en nú er og með öllum fullkomnustu tækj- um sem völ er á. „Þetta er kannski ekki raunhæf áætlun meðan ástand heilbrigðis- mála er þannig að talað er um að loka mörgum sjúkradeildum," sagði Ragnheiður. „En framtí- ðardraumur er það samt og þegar er byijað að vinna að því máli. Hringurinn er í stöðugri sókn. Alltaf er verið að leita nýrra leiða til fjáröflunar. Eitt af því nýjasta er Páskabasar, sem við höldum í Kringlunni í dag og á morgun. Þar seljum við ýmiskonar páska- skraut sem félagskonur hafa út- búið að undanfömu. Meðal annars seljum við lifandi greinar með smáskrauti á.“ Þess ber að geta að minningarkort Hringsins em seld í allflestum apótekum, hjá formanni félagsins og hjá hjúkr- unarforstjóra Landspítalans, Vigdísi Magnúsdóttur. Allt fé sem safnast rennur til bamaspítalans. „Þó Hringskonur séu ákaflega vinnufúsar og bjartsýnar næði það skammt ef ekki kæmi til velvilji og örlæti almennings," sagði Ragnheiður að lokum. „Margt smátt gerir eitt stórt, með samein- uðu átaki getum við lagt mikið af mörkum til þess að tryggja heilsu bama okkar. Eitt stærsta mál hvers heimilis er heilsa og velferð þeirra bama sem vaxa upp í skjóli þess." GSG BÚÐARKASSAR í ÚRVALI Standast allir fullkomlega kröfur nýju reglu- gerðarinnar (Nr. 407-1988) um búðarkassa. örugg og góð þjónusta. Verð frá kr. 32.110,- st0r Komdu við hjá okkur eða hringdu og fáðu frekari upplýsingar. Einar J. Skúlason hf. Grensásvegi 10, sími 68-69-33 Þegar illa viðrar Fiskur með sveppum. Heimilishorn Bergljót Ingólfsdóttir Það fer ekki hjá því á fyrstu mánuðum ársins, að það koma dagar þegar ekki er völ á nýveidd- um fiski (þ.e. ýsunni okkar góðu) í verslunum. Þeir sem eru því vanir að geta matreitt nýjan fisk af hjartans list nær allt árið, kaupa ekki alltaf með glöðu geði þann frysta. En það er hægt að gera ljómandi máltíð úr frystum fiski, víða hafa neytendur ekki völ á öðru svo okkur ætti ekki að vera vorkunn að hafa slíkan mat á borðum stöku sinnum. Hjá fisksölum eru oft á boðstól- um lausfryst flök, þegar nýtt er ekki fáanlegt, og í stærri mat- vöruverslunum eru venjulega til litlir pakkar með frystum fiski, u.þ.b. 400 g að þyngd. Það getur komið sér vel að eiga slíkan mat í frysti heima til að grípa til þeg- ar þannig stendur á og tími hefur ekki unnist til að fara í verslun að vinnudegi loknum. Uppskrift- imar hér á eftir eru miðaðar við frystan físk þó að sjálfsögðu sé hægt að hafa hann nýjan. Fiskur með möndlum 600 g frystur fiskur, 1 tsk. salt, safi úr einni sítrónu, 1 dl vatn. Ofan á er sett blanda úr: 100 g hýðislausum möndlum, 1 dl brauðmolum, 1 msk. smjörs eða smjörlíkis, V4 tsk. pipar, Ú2 tsk. salt, 1 tsk. timian. Möndlumar brytjaðar gróft, smjöri, brauðmolum og kryddi blandað saman við. Fiskur með möndlum. Fiskurinn látinn þiðna áður en hann er settur í ofnfast fat, salti stráð yfír ásamt blöndu úr sítrónusafa og vatni. Möndlu- blandan sett yfír fískinn og bakað er í rétt meðalheitum ofni í 25-45 mín. eftir þykkt stykkjanna. Borið fram með grænmetissalati og soðnum kartöflum og ætlað fyrir 3-4. Fiskur með sveppum 600 g ftystur fískur, IV2 tsk. salt, safi úr hálfri sítrónu. Ofan á er sett blanda úr: 200 g nýjum sveppum, 1 meðalstórum lauk, 1 msk. smjörs eða smjörlíkis, steinselju eða graslauk. Sveppimir hreinsaðir og skom- ir í sneiðar, laukurinn brytjaður smátt og hvoru tveggja brugðið í smjör á pönnu, steinselju síðan blandað saman við. Fiskurinn látinn þiðna til hálfs, eða alveg, lagður í ofnfast fat, salti stráð yfir og safínn kreistur úr sítrónunni yfír fiskinn. Sveppa- blandan sett yfir og fískurinn inn í ofn, bakaður við 225°C í u.þ.b. 25 mín. Borið fram með soðnum kartöflum og grænmetissalati og ætlað fyrir 3-4.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.