Morgunblaðið - 17.03.1989, Blaðsíða 45
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 17. MARZ 1989
45
Haukur Jóhanns-
son - Minning
Fæddur 6. ágúst 1916
Dáinn 10. mars 1989
í dag fer fram frá kapellunni í
Fossvogi útför móðurbróður míns,
Hauks Jóhannssonar, er lést föstu-
daginn 10. mars sl. Það kom mér
ekki á óvart að frétta af andláti
frænda míns. Hann var búinn að
glíma við erfíðan sjúkdóm nokkur
undanfarin ár og nú þegar hann
hefur hlotið hinstu hvíld langar mig
að minnast hans nokkrum orðum.
Haukur var fæddur í Reykjavík
6. ágúst 1916 ogól allan sinn aldur
hér í borg. Foreldrar hans voru
Guðlaug Arnadóttir og Jóhann H.
Jóhannsson, sem um langt skeið
veitti Manntalsskrifstofu
Reykjavíkur forstöðu og var kunnur
borgari í Reykjavík. Þau eru nú
bæði látin. Þau Jóhann og Guðlaug
eignuðust 11 böm og komust öll
upp til manndómsára nema eitt
þeirra, er lést á fyrsta aldursári.
Nú eru fjögur systkinanna á lífí,
ein systir og þrír bræður.
Haukur naut lítillar menntunar
annarrar en bamaskólagöngu
sinnar. Fjölskyldan var stór og
tímar erfíðir á uppvaxtarárum hans.
Það sneri því að honum, eins og
hjá svo mörgum öðrum, að fá sér
einhveija vinnu strax þegar aldur
leyfði. Hann byijaði því snemma
sem sendill og svo aðstoðarmaður
hjá fyrirtækjum hér í bæ, síðan í
vegavinnu og svo á sjónum, en eft-
ir það vann hann lengst af sem
verkamaður og verkstjóri við ýmis
störf. Um langa hríð vann hann hjá
Skipaútgerð ríkisins.
Arið 1941 kvæntist Haukur Sig-
urbjörgu G. Guðjónsdóttur og eign-
uðust þau þijú böm, Sigursvein,
húsasmið, f. 1940, kvæntur Sigur-
björgu Helgadóttur, Jóhann, jáma-
bindingamaður, f. 1942, sambýlis-
kona Þuríður Símonardóttir, og
Signýju, húsfrú, f. 1945, kvænt
Sigurði Ingibjartssyni. Bamabömin
eru fjögur. Haukur og Sigurbjörg
slitu samvistir.
Haukur tók á yngri ámm sínum
þátt í skátahreyfingunni og sótti
fundi í KFUM sem hann hefur no-
tið góðs af. Þegar Haukur þroskað-
ist varð hann mjög vel á sig kominn
líkamlega, fríður, sterkbyggður og
hraustur, liðtækur í fímleikum og
knattspyrnu. Hann var áberandi
ósérhlífínn í starfí, samviskusamur
og vandvirkur. Kom sér alls staðar
vel og ætíð vel liðinn af samstarfs-
mönnum sínum. í frístundum sínum
hafði hann einkum ánægju af að
taka í bridsspil eða tefla skák og
við bóklestur. Hann var ætíð auf-
úsugestur þegar hann bar að garði.
Þar kom til háttvísi hans og hóg-
værð, góð eðlisgreind og ánægju-
legar viðræður. Þrátt fyrir fábrotna
menntun var hann vel lesinn og vel
heima um marga hluti. Ég er þakk-
lát fyrir allar ánægjulegu sam-
verustundirnar og góðu minning-
amar um hann.
Haukur var tilfinninganæmur
þótt ekki bæri hann það utan á sér
og góður drengur. Hann var dulur
um andleg mál, en trú mín er sú,
að inni fyrir hafí hann treyst og
trúað á Drottin sinn og það hafí
veitt honum von og styrk, því aldr-
ei heyrðist æðruorð þrátt fyrir
þrautir í veikingum hans.
Ég kveð góðan frænda minn með
söknuði og þakka honum samfylgd-
ina og bið Guð að veita honum
góða heimkomu. Ég votta ástvinurir*''
hans einlæga samúð.
Far þú í friði,
friður Guðs þig blessi,
hafðu þökk fyrir allt og allt
(V.Briem).
Hrönn Thorarensen
Minning:
Páll Daníelsson
frá Hraunsfírði
Fæddur 5. apríl 1926
Dáinn 8. mars 1989
í dag fer fram í Fossvogskirkju
útför bróður míns, Páls Daníelsson-
ar frá Hraunsfírði, en hann lézt á
Landspítalanum 8. mars eftir þung-
bær og langvarandi veikindi.
Páll fæddist á Örlygsstöðum í
Helgafellssveit, Snæfellsnesi þann ,
5. apríl 1926, sonur Guðrúnar Matt-
híasdóttur og Þorleifs Einarssonar,
sem þá höfðu búið þar um fímm
ára skeið.
Þegar Páll var aðeins níu vikna
gamall, fluttist fjölskyldan búferl-
um að Fjarðarhorni í sömu sveit,
en á þeim bæ voru engin hús uppi-
standandi að heitið gæti og þurfti
því að reisa bæði bæ og flest pen-
ingahús frá grunni. Man ég að við
bjuggum í einhveiju útihúsi á með-
an verið var að koma bænum upp.
Og þótti því ekki þorandi að hafa
komabam í slíkum húsakynnum,
svo að Páll varð eftir í Hraunsfirði,
hjá móðurbróður sínum, Daníel
Matthíassyni og konu hans Ingveldi
Ólafsdóttur, en þau vom bamlaus.
Bærinn að Fjarðarhorni reis af
grunni og við fluttumst öll þangað
inn nema Páll. Hann vantaði í hóp-
inn. Móðir mín hafði ekki haft bijóst
í sér til að taka hann frá Hrauns-
fyarðarhjónunum. Og þróuðust mál-
in þannig, að Páll varð kjörsonur
þeirra Daníels og Ingveldar.
Sem bami fannst mér undarlegt
að sjá fullorðna konu eins og hana
mömmu, vera að gráta af og til það
sumar, er í hönd fór. En tíminn
læknar mörg sár. Og vináttan milli
bæjanna var með þeim hætti, að
okkkur systkinunum fannst við eiga
heima á báðum stöðum.
Og síðar, þegar við systkinin
sáum Pál koma á léitið með lítinn
hund, hana Tátu sína, vorum við
fljót að láta mömmu vita. Kannski
í og með, þar sem í vændum var
stórkostleg pönnukökuveizla.
Minningarnar frá þessum upp-
vaxtarárum okkar, eru sem heiður
himinn vináttu og mannkærleika
milli allra íbúa á nágrannabæjun-
um. En þeir voru: Kolgrafir, Ber-
serkseyri, Seljar, Hraun, Bjarnar-
höfn og Selvellir. Samskiptin við
það góða fólk auðgaði líf okkar allra
heima í Fjarðarhomi.
En nú er dapurlegra um að litast
í Botnunum. Flestir bæjanna komn-
ir í eyði. Og sorgin oft á næsta
leiti. Sumarið 1955 kvaddi Ingveld-
ur, fósturmóðir Páls, sinn jarðneska
ævidag. Og í janúar 1961 lézt Dan-
íel, fósturfaðir hans, af slysförum.
Páll Daníelsson fluttist til
Keflavíkur árið 1959 og vann við
fískvinnslu fyrstu árin..Síðar keypti
hann átján manna rútubíl og stund-
aði hópferðaakstur um skeið. Enn-
fremur starfaði hann um árabil hjá
Olís við Vatnsnestorg. En síðustu
árin vann hann hinsvegar í verk-
smiðju Álafoss. Fyrir átta árum
kynntist Páll eftirlifandi eiginkonu
sinni, Ebbu Þorgeirsdóttur, nú til
heimilis að Efstalandi 6 í Reykjavík.
En hún var þá níu bama móðir.
Eru barnabörnin orðin átján og var
vináttusamband Páls og þeirra
ávallt með miklum ágætum.
{ lífinu þarf oft staf að styðjast
við og stjömur til að lýsa veginn.
Og höfum við systkinin verið ræki-
lega minnt á þau sannindi. Á næst-
liðnum þrem ámm höfum við misst
Guðrúnu móður okkar og bræðuma
Einar og Pál. Er vart láandi, þótt
bognað sé, þegar svo skammt er
stórra högga á milli.
„En sem þú hefur söknuður til fulls
mér sorgarklæði skorið
þá ljómar inn í lokrekkju til min
af ljósi í dökkvann borið:
við sáluhliðið syngur lítill fugl
um sólskinið og vorið."
(Kristinn Reyr)
Að leiðarlokum fæmm við Páli
bróður okkar alúðar þökk fyrir
ástúð hans og kærleika. Megi bæn-
ir okkar fylgja honum á ástvinafund
handan móðunnar miklu.
Helga Jóhannsdóttir
SLOMN*
HAFIMARSTRÆT115,
SÍMI21330
Ki ansar, krossar og
k isl icsk / 'c yt i/igci/'.
Sendum um allt land.
Opið kl. 9-19 virka daga
og til 21 um helgar.
Einstakur bill
fyrir
kröiuharða.
BMW 3161
FYRIRÞÁ
SEMGERA
MIKLAR
KRÖFUR.
Þú fcerö mikid
fyrir peningana pína á
pessum markadi.
sími 689160
yerdié
I dag og á morgun
eru síóustu dagar Stórútsölumarkaóaríns
Opnunartími:
Föstudaga..........kl. 13-19
Laugardaga.........kl. 10-16
Fiöldi fyrirteekja
STEINIR HUÓMPLÖTUR - KASSETTUR KARMABÆR - B06ART - 6ARBÖ TÍSKUFATNAÐUR HUMMEL SPORTVÖRUR ALLS KONAR SAMBANI-
IB FATNAÐUR Á ALLA FJÖLSKYLDUNA RADÍÖBfR HUÓMTÆKI 0.M.FL. Þ.H. ELFUR FATNAÐUR HERRAHÚSIB/ADAM HERRAFATNAÐUR MÍLAMO
SKÓFATNAÐUR BLÖM BLÓM OG GJAFAVÖRUR NAFNLAUSA BðBIN EFNI ALLS KONAR THEÖDÖRA KVENTÍSKUFATNAÐUR M/ERA SNYRTIVÖRUR -
SKARTGRIPIR PARTY TÍZKUVÖRUR SKÖ6LU66INN SKÓR O.M.FL. FYRIRTJEKI