Morgunblaðið - 17.03.1989, Blaðsíða 46
46
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 17. MARZ 1989
fclk í
fréttum
Víkingur Arnórsson, yfir-
læknir Barnaspítalans, flutti
ávarp og í lokin bað hann
alla viðstadda karlmenn að
hylla konurnar.
Söngsystur" Hringsins stóðu fyrir fjöldasöng
HRINGURINN
Safiia fyrir nýj-
um bamaspítala
Kvenfélagið Hringurinn fagn-
aði 85 ára afmæli félagsins
á árshátíð sem haldin var í Súlna-
sal fyrir skömmu. í þetta sinn
voru makar Hringsystra boðnir
en þeir fá einungis að mæta með
þeim á fimmtu hveija árshátíð.
Setti það svip á ávörp kvöldsins
að konumar eru að hefja söfnun
fyrir nýjum bamaspítala.
„Það gengur vel að safna. Við
vorum með jólakaffi og jólakort
og verðum með páskabasar í
Kringlunni og þannig munum við
fjármagna nýja bamaspítalann,"
sagði Ragnheiður Viggósdóttir,
formaður Hringsins. Hún lét þess
getið í spaugi að makar fengju
ekki að koma á hveija árshátíð,
væri það liður í spamaðarákvörð-
un. A árshátíðinni fluttu ávörp
Víkingur Amórsson, Ragnheiður
Viggósdóttir og ein af elstu
Hringsystrum, Margrét Ásgeirs-
dóttir. Ýmis skemmtiatriði voru á
dagskrá og var kátt á hjalla.
BROADWAY
Sýning Jerome Robbins
hlaut lofsamlega dóma
Magnús Ragnarsson aðstoðar-
maður Jerome Robbins við
sýningu hans á Broadway er nú
staddur í- fríi hér á landi. í stuttu
spjalli sagði hann frá því hveijar
viðtökur hefðu verið.
„Við fengum lofsamlega dóma.
Öll dagblöðin vom mjög jákvæð.
Af þeim þrettán aðilum sem máli
skipta, svo sem af sjónvarps- og
útvarpsstöðvum og dagblöðum vom
tólf dómar okkur hliðhollir. Dómar
sem birtast í New York Times em
taldir skipta einna mestu máli og
þar var farið mjög lofsamlegum
orðum um sýninguna. Leikdómur í
tímaritinu Time var sá eini sem
ekki var eins jákvæður og aðrir.
HÓTELSTJÓRN
Islensk stúlka hæst í hótelskóla í Sviss
ZUrich. Frá Önnu Bjamadóttur, fréttaritara Morgunblaðsins.
fræði af því
að þeir telja
að hún opni
möguleika til
að starfa og
ferðast í út-
löndum. „En
það er ekki
hlaupið að
því að fá
vinnu erlend-
is þótt maður
sé með þetta
próf,“ sagði
Lovísa. „Það
þarf að út-
vega sér at-
vinnuleyfi og
ganga í
gegnum
ótrúlega
mikið
pappírsfarg-
an til að
komast ein-
hvers staðar
að. Skólinn
er okkur inn-
an handar og
Morgunblaðið/Anna Bjamadótt:
Lovísa Steinþórsdóttir: Það er undir okkur komi
hvernig menntunin verður metin í framtíðinni.
Lovísa Steinþórsdóttir var ekki
viss um hvað hún ætlaði að
taka sér fyrir hendur þegar hún
lauk stúdentsprófi úr Menntaskó-
lanum við Sund fyrir rúmum þrem-
ur árum. Þegar hún sá auglýsingu
frá svissneskum hótelskóla í
íslensku dagblaði ákvað hún að
drífa sig út í nám í hótelstjórn.
Skólinn, Intemational Hotel and
Tourism Training Institute, IH-
TTI, í Luzern bauð upp á þriggja
ára nám og Lovísa útskrifaðist
með glæsibrag í lok febrúar. Hún
hlaut verðlaun fyrir besta námsár-
angurinn ásamt sænskri stúlku og
þær skiptu með sér 1.000 sviss-
neskum frönkum, 33.000 ísl. kr.
Lovísa hlaut einnig viðurkenningu
fyrir besta námsárangurinn í fyrra
ásamt annarri sænskri stúlku.
„Þetta hafa verið mjög reynsl-
urík ár og ég sé sannarlega ekki
eftir að hafa farið út í þetta nám,“
sagði Lovísa. Það kostaði 22.000
sv. franka á ári eða alls tæpar
tvær milljónir íslenskra króna. „En
það er ekki víst að ég starfi endi-
lega í sambandi við það allt mitt
líf. Ég gæti þess vegna farið út í
tannlækningar," sagði hún hlæj-
andi. „Ég er'búin að ráða mig í
starf á Hótel Loftleiðum í sumar,
ég vann þar í gestamóttökunni í
fyrra, en ég veit ekki hvað tekur
við eftir það. Helst vildi ég finna
vinnu þar sem ég gæti unnið hálft
árið á íslandi og hálft árið erlend-
is.“
Margir fara út í hótelrekstrar-
lætur hótel vita af okkur. En auð-
veldasta leiðin til að komast að til
dæmis hjá stærstu hótelkeðjunum
er að ráða sig þangað fyrst í þjálf-
un og sækjast síðan eftir fastri
stöðu." IHTTI útvegar nemendum
COSPER
-Ég hringdi til Vatnsveitunnar þegar þættinum er lokið,
hvað á ég að segja þér það oft.