Morgunblaðið - 17.03.1989, Blaðsíða 52
52
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 17. MARZ 1989
*
Ast er...
.. .að fagna í sama egg-
inu.
TM Reg. U.S. Pat Off.—all rights fesorved
• 1989 Los Angetes Times Syndicate
Mamma! Hvað er gert þeg-
ar sósan virðist ætla að
mistakast?
Með
morgunkaffinu
Ert það þú sem hefúr ver-
ið hér að verki?
HÖGNI HREKKVlSI
„ PAD vafhast EKKERT a v/ð stóca
£KAL AF kATTA/tAAT/VlEÐ J/A.RE>ARBERTC||M
OG &.3ÓMA."
Varaflugvöll Atlandshafs-
bandalagsins á Langanes
Til Velvakanda.
Á Langanesi eru nú uppi áform
um að byggja nýjan flugvöll á næstu
árum og yrði þá flugvöllurinn á
Sauðanesi lagður niður um leið en
sá völlur var mikið notaður af vamar-
liðinu þegar ratsjárstöð var stafrækt
á Heiðarfjalli.
Ný ratsjárstöð Atlandshafsbanda-
lagsins er nú í byggingu á Gunnólfs-
víkurfjalli í allra næsta nágrenni við
væntanlegan innanlandsflugvöll.
Með nýrri útfærslu má auðveldlega
gera þennan völl að þeim varaflug-
velli sem menn deila um. Einnig er
mjög æskilegt að völlurinn verði í
sjónlínu og í nálægð við ratsjárstöð-
ina.
Allt þetta svæði er afar dreifbýlt
og á ríkissjóður jarðimar Sauðanes,
Efra-lón og Ytra-lón en á þeim yrðu
mestar framkvæmdir. Jarðvegur er
þama tiltölulega þéttur blágrýtis-
gunnur og grunnvatnsslys því mun
ólíklegri en þar sem jarðvegur er
gljúpur. Æskilegt er að draga þarna
verulega úr búfjárbeit því svæðinu
veitir svo sannarlega ekki af hvíld
gróðurfarslega séð enda á sér stað
mikill uppblástur.
Með þessu fyrirkomulagi væru
komnir tveir fullkomnir flugvellir á
sitthvoru homi landsins. Benda má
á að mikill hluti eftirlitsflugs varnar-
liðsins fer fram á svæðinu austur og
norður af Langanesi. Með tilkomu
vallar á Langanesi til afnota fyrir
Atlandshafabandalagið myndu hern-
aðarumsvif á Keflavíkurflugvelli
stórlega dragast saman.
Aðaldalur og allt það umhverfí í
heild sinni er ein af perlum íslenskr-
ar náttúm og þó víða væri leitað.
Ekki er mikill ágreiningur um það.
Það er því að mati flestra ákveðið
ábyrgðarleysi að ætla sér að byggja
svo mikið mannvirki sem alþjóðlegan
varaflugvöll á því svæði og gera það
hugsanlega einnig í óþökk við land-
eigendur. Flestir staðir á Norðaust-
urlandi koma sennilega frekar til
greina.
Það þarf ekki að verða mengunar-
slys til að hriplegt umhverfið á þess-
um stað sé í stórhættu. Á flugvelli
sem þessum er stöðug efnamengun
svo ekki sé talað um hávaðamengun.
Öll éfni sem fara í jörð eiga t.d.
greiða leið í Laxá. Það má segja að
hugmyndir sérfræðinga um flugvöll
á þessum stað sé mikil skammsýni.
Ef ákvörðun um staðsetningu
vamarliðsins yrði tekin í dag á tímum
kjamorku-efna og sýklavopna er
mjög ósennilegt að Miðnesheiði yrði
fyrir valinu vegna nálægðar við
byggð þorra landsmanna. Staðsetn-
ingin er engan vegin í takt við
tímann. Finnst t.d. einhverjum líklegt
að Norðmenn myndu leyfa slíkan
flugvöll í námunda við Osló? Það er
ólíklegt. Öll slík starfsemi er þar
víðsfjarri mesta þéttbýlinu.
Það ætti m.a. að vera kappsmál
almannavama og fleiri ábyrgra opin-
berra aðila jafnvel herstöðvarand-
stæðinga að varavöllurinn yrði
byggður á hinu homi landsins, hinu
dreifbýla Langanesi. Frá sjónarhomi
framtíðar heildarskipulags landsins
er þetta einnig æskilegast, og veru-
legt jafnvægi skapaðist í flugumferð
landsins. Ef höfð er í huga hætta frá
þessum flugvelli á ófriðartímum þá
mun hún ekki aukast á þessum stað
með tilkomu vallarins því þama er
fyrir mikilvægasta hemaðarratsjá í
Norður-Atiandshafi.
Þegar allt kemur til alls þá er það
ekki kostnaðurinn við framkvæmd-
imar eða reksturinn sem við þurfum
að hafa áhyggjur af heldur þurfum
við að vanda val staðarins sem allra
mest.
Meirihluti landsmanna vill áfram-
haldandi varnarsamstarf við vest-
rænar þjóðir og Atlandshafsbanda-
lagið. Er því brýnt að farsæl framtíð-
arlausn finnist á þessum málum.
Þingeyingur
Yíkverji skrifar
Menningarsjóður útvarpsstöðva
hefur verið mjög umdeildur. í
þennan sjóð hafa runnið 10% af aug-
lýsingatekjum útvarpsstöðvanna og
þær hafa síðan fengið peningana til
baka til að kosta innlenda dagskrár-
gerð.
Aðaleigandi Bylgjunnar hefur set-
ið í sjóðsstjóminni við litla hrifningu
eigenda Stjörnunnar. Þeir hafa skilj-
anlega ekki haft á því áhuga að senda
inn umsóknir um peninga til þátta-
gerðar þegar keppinauturinn getur
jafnharðan séð hvaða nýja þætti
Stjaman hefur á prjónunum. Nú
hefur það gerst að sjóðurinn hefur
verið aflagður og jafnframt hafa
Stjaman og Bylgjan gengið í eina
sæng. Þetta deilumál ætti því að
verða úr sögunni.
Það kemur eflaust mörgum
spánskt fyrir sjónir að einn útvarps-
þátturinn sem Menningarsjóðurinn
hefur styrkt er Bibba á Brávallagöt-
unni, sem Bylgjan hefur flutt. Þátt-
urinn gengur aðallega út á það að
afbaka málshætti og orðtök. Að
margra mati er þetta helsti ómenn-
ingarþátturinn sem fluttur er í út-
varpi!
xxx
alsmenn bindindishreyfingar-
innar hafa látið í sér heyra
vegna lögleiðingar bjórsins eins og
búast mátti við. Því miður hafa sum-
ir þeirra dottið í þann pytt að veitast
að mönnum með stóryrðum og þann-
ig unnið málstað sínum ógagn. Næg-
ir í því sambandi að nefna bréf
þekkts templara í Velvakanda á dög-
unum, þar sem hann veittist að Hösk-
uldi Jónssyni forstjóra ÁTVR.
Áfengisvamarráð, sem er opinber
stofnun, hefur einnig farið út yfir
mörkin í málflittningi sínum. í blað-
inu Bæjarbót í Grindavík er birt bréf
frá Áfengisvamarráði vegna um-
sóknar um opnun ölstofu í bænum.
Könnun var gerð í bænum og voru
50,5% aðspurðra fylgjandi opnun öl-
stofu, 44,0% voru á móti en 5,5%
voru hlutlausir. í bréfinu segir
Áfengisvamarráð m.a: Áfengisvarn-
arráð vekur athygli á að mjög orkar
tvímælis hvort rétt sé að veita leyfi
til bjórsölu þar eð augljóst er að um
það bil helmingur íbúa Grindavíkur
hefur ekki áhuga á slíku. Þá er og
líklegt að í hópi þeirra sem jáyrði
guldu við opnun bjórstofu séu ýmsir
óábyrgir einstaklingar og einnig
þeir sem fyrir ýmissa hluta sakir eru
ólíklegir til að sjá fótum sínum
forráð.
Um þetta bréf segir Bæjarbót:
Þetta bréf, undirritað af Ólafi Hauki
Ámasyni, er með ólíkindum hroka-
fullt og særandi í garð þeirra sem
vilja fá ölstofu í bæinn. Svona til-
skrif eru höfundum sínum til skamm-
ar.
xxx
pplýst var í DV á dögunum að
Ólafur Ragnar Grímsson fjár-
málaráðherra hefði haldið veizlu í
Ráðherrabústaðnum fyrir nokkra
útvalda alþýðubandalagsmenn. Hið
opinbera tilefni var að heiðra Lúðvík
Jósepsson í tilefni af því að 31 ár
var liðið frá útfærslu landhelginnar
í 12 mílur! Þá upplýsti DV einnig
að Friðrik Sophusson hefði haldið
nokkrum bekkjarbræðrum sínum
veizlu í Rúgbrauðsgerðinni á meðan
hann var iðnaðarráðherra. Um þessa
veizlu sagði Friðrik í DV: „En ef
ráðherra getur ekki boðið nokkrum
bekkjarbræðrum sínum í glas þá er
ekki mikið eftir."
Víkveiji var alveg orðlaus þegar
hann las þetta. Getur það verið að
varaformanni stærsta stjómmála-
flokks þjóðarinnar þyki sjálfsagt að
halda bekkjarbræðrum sínum veizlu
á kostnað skattborgara? Og getur
það verið að formanni Alþýðubanda-
lagsins þyki sjálfsagt að halda
flokksbræðrum sínum veizlu á kostn-
að skattborgara?
XXX
ú er komin nokkur reynsla á
bjórinn. Neyzla hefur verið tals-
vert mikil en athygli hefur vakið að
drykkulæti virðast ekki hafa aukizt
við tilkomu bjórsins og sömuleiðis
er ekki merkjanleg aukning á ölvun-
arakstri þrátt fyrir mikið eftirlit lög-
reglu.
Hitt þykir Víkveija merkilegast
að nokkrar bjórtegundir eni ekki enn
ekki komnar í verzlanir ÁTVR. Má
það undrum sæta þegar haft er í
huga að bjórfrumvarpið var sam-
þykkt á Alþingi í fyrravor. Seina-
gangurinn í kerfinu lætur ekki að
sér hæða!
Þá má einnig gagnrýna bjórsölu
ríkisins fyrir að hafa ekki veikari
bjór til sölu, þ.e.a.s. svokallað milli-
öl. Allflestar bjórtegundir, sem til
sölu eru nú em um og yfir 5% að
styrkleika. Bjór getur verið góður,
þótt hann sé ekki svo sterkur. Til
dæmis má nefna „græna Tuborg-
inn“, sem Danir drekka hvað mest
af. Sá bjór er mjög góður, en styrk-
leikinn er mun minni. Það er eins
og sú stefna að selja aðeins eldsterkt
sé enn við lýði hjá ÁTVR og út úr
því fari virðist fyrirtækið ekki geta
hrokkið.
XXX
Sigur Vals á austur-þýzka hand-
knattleiksliðinu Magdeburg var
eftirtektarverður. Hann sannar enn
einu sinni sterka stöðu íslands á
handknattleikssviðinu. Enginn vafi
leikur á því að Valur 'er sterkasta lið
íslands í dag. íslenzkt félagslið hefur
ekki sýnt svo góðan leik síðan
Víkingar vom yfirburðalið fyrir
nokkmm ámm.