Morgunblaðið - 17.03.1989, Blaðsíða 23
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 17. MARZ 1989
23
Sól og sandur
á Broadway
MIKLAR breytingar hafa verið gerðar á veitingastaðnum Broad-
way, sem i kvöld opnar undir slagorðinu „Sól og sandur". „Hér inni
í Brodway hefur verið búinn til alveg nýr heimur út af fyrir sig, og
er það í rauninni risastór leikmynd sem flytur gesti staðarins til
baðstrandarlífs á suðrænum slóðum," segir Birgir Hrafnsson, mark-
aðsstjóri Ólafs Laufdal.
„Þegar gestirnir koma í húsið
verða þeir staddir á einskonar
brautarstöð þar sem skilti og veg-
vísar gefa til kynna hvert hægt er
að fara. Staðnum hefur í raun ver-
ið breytt í baðströnd, en leikmynd-
inni er skipt niður í 4-5 sjálfstæðar
einingar. Þar má til dæmis nefna
ítalskan veitingastað með öllu til-
heyrandi, sem verður að hluta til
eins og undir berum himni, og sér-
staka sundlaugareiningu, en allt
Eldur við Hverfisgötu:
Fólki bjargað
úr reykjarkófí
með stígnm
slökkvifíðs
tengist þetta jú baðstrandarlífí.I
Broadway verður gesturinn í raun-
inni bæði úti og inni, og götur og
vegvísar gefa til kynna hvar gestur-
inn er staddur hveiju sinni og hvert
hann getur farið.
Bryddað verður upp á þeirri nýj-
ung að í staðinn fyrir að vera með
hefðbundin skemmtiatriði á sviði
verður skemmtiatriðunum stýrt frá
öllum börum hússins, en til liðs við
okkur eru komnir um 25 krakkar
sem vanir eru að fást við allskyns
uppákomur. Þessir krakkar munu
vinna á og í kringum barina í 4-6
manna hópum og halda uppi sjálf-
stæðum skemmtiatriðum, sem geta
til dæmis verið danssýningar, lát-
bragðsleikur, söngur eða annar tón-
listarflutningur. Þessi skemmtiat-
riði verða í gangi allt kvöldið, og
þau verða alveg óháð dansgólfínu.
Reyndar verða nú tvö dansgólf í
Broadway, en þar verður flutt allra-
handa tónlist og að sjálfsögðu einn-
ig suðræn tónlist. Þá verða líka
^ . Morgunblaðið/Emilía
I vikunni var unnið dag og nótt við breytingar í Broadway. Á myndinni eru talið frá vinstri: Maguús
Scheving, skemmtanastjóri, Guðný Richards, hönnuður innréttingar og Birgir Hrafhsson, markaðsstjóri.
allskyns uppákomur á víð og dreif
um húsið, og má þar til dæmis
nefna rakara, skóburstara, pylsu-
sala og farandsla, en sífellt verður
bryddað upp á nýjungum í því sam-
bandi, þannig að aldrei verður um
það sama að ræða frá einni helgi
til annarrar. Þá má geta þess að
þeir sem mæta fyrir klukkan 22.30
og kaupa mat á ítalska staðnum
þurfa ekki að greiða aðgangseyri,
en kl. 23 breytist matsölustaðurinn
í strandbar þar sem boðið verður
upp á léttar veitingar.
Við höfum kallað inn nýtt starfs-
fólk í húsið vegna þessara breyt-
inga, og verður það klætt í sam-
ræmi við þennan suðræna sumar-
anda sem hér mun ríkja. Klæðnaður
gesta má að sama skapi vera mjög
frjálslegur, svo framarlega sem
hann er snyrtilegur og innan vel-
sæmismarka, og fólk má jafnvel
vera í sundfötum hér ef það vill,“
sagði Birgir Hrafnsson.
Hönnuður leikmyndarinnar í
Broadway er Guðný Richards, en
Magnús Scheving hefur umsjón
með öllum skemmtiatriðum sem
boðið verður upp á.
ELDUR kom upp á annrri hæð
fjögurra hæða steinhúss, Hverf-
isgötu 50, aðfaranótt fimmtu-
dagsins. Slökkvilið þurfti að
bjarga íbúum á efri hæðum húss-
ins, sem sluppu óskaddaðir út úr
reykjarkófi, með stiga- og
körfúbflum. Líklegast er talið að
kviknað hafi í út frá sígaretu-
glóð.
Eldurinn kom upp í félagsheimili
Vöku, félags lýðræðissinnaðra stúd-
enta, en fyrr um kvöldið hafði þar
verið gleðskapur til að fagna sigri
félagsins í kosningum til Stúdenta-
og Háskólaráðs.
Miklar skemmdir urðu innan-
stokks í húsnæði Vöku og einnig
urðu reykskemmdir í íbúðum á efri
hæðum hússins. RLR vinnur að
rannsókn málsins.
Gljáandi
HARKA
með
Kópal
Geisla
Veldu Kópal
með gljáa við hæfi.
B.H. líkamsþjálfunartæki eru sérstaklega ætluð til heimilisnota fyrir
fólk almennt. Notkun þeirra stuðlar að betri heilsu og vellíðan. Hún
styrkir hjartað og eykur þrekið og lífskraftinn, örvar blóðrásina, styrkir
slappa vöðva (til dæmis maga- og bakvöðva), kemur í veg fyrir vöðva-
bólgur, brennir burtu aukakílóum og þjálfar og styrkir allan líkamann.
Öll B.H. þrektækin eru sérlega hentug til heimilisnotkunar. Þau eru
örugg, sterk og einföld í notkun og taka litið pláss. Verðið er einstaklega
gott miðað við gæði.
676 Electronlc - Þrekhjól
með róðrastýri.
• Nýtískuleg hönnun og
rafeindamælar.
• Sæti rennt upp og niður
I einu handtaki.
• Innilokaðdrifogkasthjól.
Verð kr. 12.980.- stgr.
747 ERGOMETER - Þrekhjól
með róðrarstýri
• Hitaeiningamælar.
• Þungt kasthjól m/reim.
• Breitt og mjúkt sæti.
Verð kr. 15.430.- stgr.
17 Home-Blke - Þrekhjól
með róðrastýri.
• Stillanleg átaksþyngd.
• Innilokaðdrif og kasthjól.
• Sérstaklega stöðugt.
Verð kr. 12.320.- stgr.
7000 Electronlc- „High Tech" þrekhjól með róðrastýri.
• Hátæknihönnun og rafeindamælar.
• Þungt kasthjól með átaksreim gefur sérstaklega jafnt ástig.
• Sérstakur þrekmælir sýnir hitaeiningarbrennslu.
Verð kr. 16.320.- stgr. ^
páskaafsláttur
(TAKMARKAÐAR BIRGÐIR)
MJÖg svelgjanleg grelðslukjör
Ekkert út, grelðlst á 12 mánuðúm
Sendum I póstkröfu um lartd altt
Reióhjólaverslunin ,--------
Spífalasfíg 8 símar: 14661.26888