Morgunblaðið - 04.05.1989, Blaðsíða 55

Morgunblaðið - 04.05.1989, Blaðsíða 55
CRftl lÁV il:líiAnHTl/iMN i-HiiA.iH'/UrlSOM MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 4. MAI 1989 Guðríður Þórhalls- dóttir — Kveðjuorð Guðríður Þórhallsdóttir, Akur- gerði 33, andaðist 21. apríl á Borg- arspítalanum eftir stutta en kvala- fulla sjúkrahúslegu þar, en miklar þrautir háðar undanfarna mánuði. Mig kenndi mikið til, er mér bauð í grun fyrir ári að þetta yrði henn- ar síðasta ganga. Mér fannst það svo ótímabært að hún, þessi sterka og góða kona yrði hrifin svo fljótt frá sinni stóru fjölskyldu, eigin- manni, 9 bömum, mökum þeirra, ömmu- og langömmubömum. Allt þetta skyldulið safnaðist heim til þeirra hjóna, auk margra annarra skyldra og vandalausra. Ég þekkti ekkert svo mannmargt heimili á hátíðisdögum, og engan blíðari móðurfaðm fyrir öll litlu bömin, fyrir utan marga aðra er hún hlúði að. Ég vona að aðrir mér færari reki ættir hennar, læt þess aðeins getið að ég þekkti hennar góðu og mikilhæfu móður, þó ekki fyrr en á síðari æviámm hennar. Hún varisannarlega mikil kjarna- Brids Arnór Ragnarsson Sveit Boga sigraði þriðja árið í röð kona og skilaði sínu dagsverki með miklum sóma. Eins og að framan er greint, Guðríður var svo sönn, falleg og traust. Það hefur sennilega einhvem- tíma verið þungur róðurinn með það stóra heimili, þótt eiginmaðurinn Haukur Pálsson væri trésmíða- meistari sívinnandi í góðri atvinnu og ekki vom frídagamir teknir margir, eftir því sem gerist í dag. Seinna þegar börnin fór að heiman og mynduðu sér heimili, fór hún sjálf að vinna úti með sínum heimil- isstörfum sem virtust þó ærin fyrir. Sífellt hlúð að ömmubömunum ef mæður þeirra þurftu þess með, hún var enn í móðurhlutverkinu alltaf ef á þurfti að halda. En það er víst ekki að hennar skapi að um þetta séu höfð mörg orð. Enn manns eigin tilfínningar hljóta að bijótast út fyrst stungið er niður penna. Ég hefði gjaman viljað eiga með henni fleiri samverustundir, en þær áttu í mínum huga eftir að verða fleiri, en maður ræður ekki hvenær klippt er á þá vináttustrengi. En þeir rofna ekki, Guði sé lof, ekki við það fólk sem maður metur mik- ils á lífsleiðinni, þótt að dauðinn skilji að um stundarsakir. Þetta em aðeins vináttukveðjur frá mér og fjölskyldu minni, þar sem ég á yndislega tengdadóttur, elsta barn þeirra hjóna, sem hefur alltaf verið okkur öllum handgengin og kær. Kæri Haukur, flölskylda þín öll og aðrir ástvinir, við vottum ykkur innilega samúð okkar og ég festi mér aðeins í huga, hennar eilífðar björtu braut. Guð blessi minningu mætrar konu. Jónína St. Jónsdóttir Sveit Boga Sigurbjömssonar frá Siglufirði sigraði í Norðurlandsmótinu í brids sem fram fór um síðustu helgi á Akureyri. Var svcitin mjög vel að sigr- inum komin, hlaut 159 stig, og tapaði engum leik á mótinu sem að þessu sinni var spilað með Monrad-fyrirkomulagi. Þetta er í þriðja árið í röð sem sveitin vinnur Norðurlandsmótið og vann því bikar þann sem keppt var um til eignar. 1 sveit Boga spiluðu ásamt honpm, bræð- ur hans, Anton, Jón og Asgr. ..ur auk tveggja sona Jóns þeir Ólafur og Steinar. Sextán sveitir víðs vegar að af Norður- landi tóku þátt í mótinu. Þó vantaði Þingey- inga og Húsvíkinga og aðeins ein sveit kom frá Siglufirði sem er allsendis óvanalegt. Röð efstu sveita: Bogi Sigurbjörnsson 159 Grettir Frímannsson 138 Kristján Guðjónsson 120 GylfiPálsson 118 GunnarBerg 115 Hellusteypan 112 Stefán Benediktsson 110 ÖmEinarsson 107 Sveit Boga er frá Siglufiröi, sveit Stefáns Benediktssonar er úr Fljótum en hinar svelt- imar spiluðu á heimavelli. Spilaðir vom 24 spila leikir. Spilað var í Félagsborg. Keppnisstjóri var Albert Sig- urðsson. Bridsfélag Hafíiarljarðar Laugardaginn 22. apríl fór fram hin ár- iega keppni milli bridsfélaganna á Selfossi og í Hafnarfirði og var spilað f félags- heimilinu Garðaholti. Keppt var nú í fjórða sinn um veglegan farandbikar, sem gefinn var af Setbergsbúinu. Einnig var keppt um sérstök aukaverð- laun, en þau hlaut sú sveit, sem sigraði með mestum mun. Töluverð forföll vom í liðum beggja félaganna, meðal annars vegna úrslitakeppni íslandsmótsins í tvímenningi. Hafnfirðingar bára sigur úr býtum að þessu sinni með 103 stigum sam- anlagt gegn 77 stigum Selfyssinga. Úrslit á einstökum borðum urðu þessi: Þröstur Sveinsson — Kristján Gunnarsson 13:17 Þórarinn Sófusson — Sigurður Hjaltason 24: 6 Kjartan Markússon — Leifur Leifsson 17:13 Ólafur Torfason — ValdimarBragason 18:12 Erla Siguijónsdóttir — Grímur Amarson 16:14 Sigurður Lámsson — GuðmundurSæmundsson 15:15 Síðustu keppni starfsársins, sem var fjög- urra kvölda Butler-tvímenningur, lauk mánudaginn 24. apríl. Þátttaka var góð, en bar þó merki þess að vorhugur var kom- inn í suma, þrátt fyrir lítil hlýindi. Keppnin var spennandi frá byrjun og skiptust menn á um forystuna, en þegar upp var staðið að lokinni síðustu umferð- inni kom í ljós að staða efstu para var þessi: Kristófer — Guðbrandur 178 Ari — Gylfi 163 Jón —Jens 156 Ólafur — Sverrir 136 Bjöm —Ólafur 129 Kristján — Ingvar 129 Aðalfundur félagsins verður haldinn föstudaginn 5. maí í Sjálfstæðishúsinu Strandgötu 29 og hefst kl. 20.30. Á fundin- um verða meðal annars veitt verðiaun í keppnum vetrarins og kosin ný stjóm. Allir félagar era hvattir til að mæta og þó sér- staklega þeir sem vita sig eiga inni verð- laun úr keppnum vetrarins. t Frænka mín, KRISTÍN VILHJÁLMSDÓTTIR frá Þuríðarstöðum f Fljótsdal, lést á Elliheimilinu Grund 2. þ.m. Fyrir hönd ættingja, Vilborg Guðjónsdóttir. Frænka mín, t KARITAS PÁLSDÓTTIR, lést 3. maí á Hrafnistu, Hafnarfirði. Páll Halldórsson. t Hjartkær faðir okkar, GUÐMUNDUR ÓLAFSSON frá Króki, Ásahreppi, Kaplaskjólsvegi 37, Reykjavfk, andaðist í Landakotsspítala 2. maí. Börnin. t Faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, HJÖRTUR EIRÍKSSON, Valhöll, Hvammstanga, verður jarðsunginn frá Hvammstangakirkju föstudaginn 5. maí kl. 16.00. Þeim, sem vildu minnast hans, er bent á Krabbameins- félagið. Eggert Hjartarson, Guðrún Pálsdóttir, Perla Hjartardóttir, Geir Hólm, Eirikur Hjartarson, Sigrún Guðmundsdóttir, Hilmar Hjartarson. t Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, GUÐBJÖRG BJÖRNSDÓTTIR frá Efstu-Grund, Breiðvangi 1, Hafnarfirði, sem lést 27. apríl í St. Jósefsspítala, Hafnarfirði, verður jarðsung- in föstudaginn 5. maí kl. 13.30 frá Víðistaðakirkju. Kristjana Björg Þorsteinsdóttir, Hólmgeir Júlfusson, Elín Asa Guðmundsdóttir, Ingibjörg Sigurðardóttir, barnabörn og barnabarnabörn. t Móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, KRISTÍN GUÐBJÖRG GUÐMUNDSDÓTTIR, verðurjarðsungin frá Fossvogskirkju föstudaginn 5. maí kl. 10.30f.h. Guðmundur Jónsson, Guðrún Jóhannesdóttir, Guðjón Már Jónsson, Erna Vilbergs Vilbergsdóttir, barnabörn og barnabarnabarn. t KRISTMUNDUR ÁGÚST ANDRÉSSON, Hellukoti, Stokkseyri, verður jarðsettur frá Stokkseyrarkirkju laugardaginn 6. maí kl. 14.00. Systur hins látna og aðrir aðstandendur. t Móðir okkar, ÁSTA GUÐRÚN JENSEN fædd Jónsdóttir, lést þann 19. apríl sl. í Kaupmannahöfn. Minningarathöfn verður í Mosfellskirkju laugardaginn 6. maí kl. 11.00. Jón M. Gunnarsson, Henny Christiansen. t Faðir minn, tengdafaðir, sambýlismaður og afi, GUÐMUNDUR S. HANNESSON, áður Stekkjarflöt 4, Garðabæ, verður jarðsunginn frá Hafnarfjarðarkirkju föstudaginn 5. maí kl. 15.00. Ásdís Guðmundsdóttir, Þórður Árelíusson, Sveiney Guðmundsdóttir, og barnabörn. t Útför móður minnar, systur okkar og dóttur minnar, ÁGÚSTU KRISTINSDÓTTUR, verður gerð frá Fossvogskirkju föstudaginn 5. maí kl. 13.30. Hjördfs Arnardóttir, Guðrún Kristinsdóttir, Sigurður Kristinsson, Anna Bryndfs Kristinsdóttir, Kristinn Hallsson. t Eiginmaður minn, faðir, fósturfaðir og tengdafaðir okkar, BJÖRN JÓNSSON fyrrum hreppstjóri og bóndi Bæ, Höfðaströnd, sem lést í sjúkrahúsi Sauðárkróks þann 24. apríl, verður jarðsung- inn frá Sauðárkrókskirkju laugardaginn 6. maí kl. 14.00. Greftrun fer fram í heimagrafreit að Bæ. Kristfn Kristinsdóttir, börn, fósturbörn og tengdabörn. t Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, GUÐRÚN S. BERGMANN, Sólvallagötu 6, Keflavfk, verður jarðsungin frá Keflavíkurkirkju laugardaginn 6. maí kl. 14.00. Þeim, sem vildu minnast hinnar látnu, er bent á Krabbameins- félag íslands. Guðrún Bergmann, Valgeir Ó. Helgason, Rúnar Júlíusson, Marfa Baldursdóttir, Ólafur E. Júlíusson, Svanlaug Jónsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. t Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og vinarhug við andlát og útför, HÁKONAR BJARNASONAR fyrrv. skógræktarstjóra. Guðrún Bjarnason, Laufey Bjarnason, Rúnar Sigmarsson, Ágúst H. Bjarnason, Sólveig Sveinsdóttir, Björg Bjarnason, Sveinn Guðjónsson, Jón Hákon Bjarnason, Lára Kristjánsdóttir og barnabörn.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.