Morgunblaðið - 04.05.1989, Blaðsíða 50

Morgunblaðið - 04.05.1989, Blaðsíða 50
50 , ,^0fiGy^BMÐ^Ðr,F^MTTO4GyB> 4. ,MAU989 Ódýrt sumarleyfí 600.- á dag. Vió bjóóum tvö yndisleg, vel búin sumarhús (samliggjandi) í Danmörku. Hvort hús tekur 6/8 manns. Húsin eru á fögrum stað á Fjóni, þarsem Dan- irnireiga sjálfirsín sumarhús (ekki ferðamanna- þorp) með bestu baðströnd Danmerkurá aðra hönd og friðaðan skóg með miklu dýralífi á hina. Það erstutt íallaráttir, Kaupmannahöfn, Jót- land (Legoland) og Þýskaland. Leigan á mann erca. 600.-á dag (miðað við 6 íhúsi), þannig að vikan kostar4.200,-plús flug sem er frá 11.600 til 20.600 eftir möguleikum. Sé um langtímaleigu, t.d. starfsmannafélög, er hægt að gefa verulegan afslátt. Athugið að húsin eru rafhituð með tvöföldu gleriþannig að hægt erað búa þarmestallt árið. Einnig erhægtað leigja bíla fyrirdkr. 200.- á dag, ótakmarkaður akstur. Vinsamlega sendió nöfn, heimilisföng og síma ípósthólf 1037, 121 Reykjavík, eóa hringið í síma 91-17678. María Magnúsdótt- ir - kveðjuorð Fædd 5. maí 1910 Dáin 12. mars 1989 Á morgun 5. maí hefði vinkona mín og frænka frú María Magnús- dóttir orðið 79 ára, en hún lést að morgni sunnudgsins 12. mars sl. í Borgarspítalanum eftir löng og erf- ið veikindi. María var kjördóttir heiðurs- hjónanna Magnúsar Benjamínsson- ar úrsmíðameistara og kaupmanns í Reykjavík og konu hans frú Sigríð- ar Einarsdóttur. Þau Magnús og Sigríður séttleiddu einnig dreng, Krstinn sem lærði bakaraiðn og rak brauðgerð og verslun í Þingholts- stræti alla sína starfsævi. María giftist Sverri Sigurðssyni, kaupmanni, Magnússonar héraðs- læknis á Patreksfirði og síðar á Ólafsfirði og konu hans Esther Helgu Jensen. María og Sverrir eignuðust tvo syni Magnús og Gunnar. Sverrir rak í fjöldamörg ár verlsunina Magnús Benjamíns- son og Co. í Veltusundi 3, sem tengdafaðir hans stofnaði 1881. Sverrir er látinn fyrir nokkuð mörg- um árum. Móðuramma mín Guðlaug var systir Magnúsar Benjamínssonar og dáði hann mjög. í hennar augum var enginn maður betri né fallegri en Magnús bróðir. Hún lét eina af dætrum sínum, móður mína, Magn- úsínu, heita í höfuðið á honum og á uppvaxtarárum mínum heyrði ég mikið talað um frænda eins og mamma ávallt nefndi nafna sinn í Reykjavík. Hún hafði dvalið vetrar- tíma á heimili þeirra Sigríðar að Ásvallagötu 1 er hún lærði kjóla- saum hjá frk. Berþóru Elfar. Minn- ingarnar frá dvölinni á þessu fagra menningarheimili voru henni afar kærar. Hún sagði mér oft frá því hvað þarna hefði verið gott og gam- an að vera og ekki talaði hún minnst um Maju frænku, heimasæt- una, sem spilaði svo vel á píanó og var svo kát og skemmtileg. Já, það var áreiðanlega oft glatt á hjalla þá hjá þeim frænkum, mikið hlegið, spilað og sungið. Húsbændurnir voru einnig glaðir og gestrisnir höfðingjar í sjón og raun. Vinátta mömmu og Maju hélst óbreytt þó leiðir skildu. Þær skrif- uðust á og heimsóttu hvor aðra oft meðan önnur bjó fyrir norðan og hin fyrir sunnan. Eftir að foreldrar r Siuuar, Hvað ætlar þú að gera í sumar? Nú stendur yfir dreifing á sumarstarfs- bæklingi íþrótta- og tómstundaráös Reykjavíkur. Aö vanda er í bæklingnum aö finna upplýsingar um nánast alla þá starfsemi sem félög, samtök og stofnanir í Reykjavík gangast fyrir nú í sumar. Bæklingnum er dreift til allra nemenda grunnskólanna í borginni og eru foreldrar hvattir til að kynna sér vel ásamt börnum sínum þá möguleika sem þar er aö finna. Innritun í starf á vegum íþrótta- og tómstundaráðs hefst á sérstakri innritunarhátíð í Laugardalshöll laugardaginn 20. maí kl. 13.00-17.00. mínir fluttu suður skiptust þau mjög oft á heimsóknum og pabbi og Sverrir, sem báðir voru skákunn- endur tefldu og þær frænkurnar sátu með handavinnu sína, en báðar voru þær snillingar í höndunum. Það má segja að sagan hafi end- urtekið sig er ég kom suður til starfs og náms 1943 og Maja og Sverrir buðu mér að búa hjá sér. Þau voru mér bæði afar góð og minnist ég þessa tíma með þakklát- um huga. Það var eins og mamma sagði um æskuheimili Maju, „þar var gott og gaman að vera“, mikið hlegið og spaugað en einnig hvatt til alvarlegri hluta. Sverrir var óþreytandi að hvetja til náms í einu eða öðru og sýndi áhuga á öllu sem maður var að gera. Maja og Sverrir sóttu alltaf mik- ið tónleika, leikhús og málverkasýn- ingar enda bæði listunnendur. Eins og ég minntist á áður lék Maja frænka mjög vel á píanó. Mér fannst eins og mömmu unun að hlusta á hana spila. Henni tókst að láta hljóðfærið syngja, sem þeir ein- ir geta er leggja sál sína í túlkun á tónverkum. j Ógleymanleg er mér ferðin til Þingvalla á Lýðveldishátíðina 1944, með þeim, strákunum þeirra og frú Sigríði. Farið var austur þann 16. júní og gist í tjaldi. Úrhellisrigning var og hélst fram á þann 17. en ekki náði það að spilla léttri lund þeirra og gleði okkar allra vegna hins stóra dags í lífí þjóðarinnar. Eftir að ég giftist bjuggum við Ingvi mikið erlendis fyrst við nám og seinna við störf en sambandið við vini mína á Ásvallagötu 1 rofn- aði aldrei. Á þessum árum byggðu þau Maja og Sverrir sér glæsilegt ein- býlishús við Ægissíðuna sem innan húss og utan bar vitni smekkvísi þeirra og fegurðarskyrii. Þau hjónin ferðuðust ávallt mikið bæði um landið og einnig til út- landa, heimsóttu t.d. oft systur Sverris í Danmörku. Og þegar við Ingvi vorum við störf í Brussel komu þau í heimsókn, okkur öllum til mikillar ánægju. Þegar við bjuggum heima á ís- landi seinast, árið 1982—1987, var Maja frænka orðin ekkja og bjó með eldri syni sínum Magnúsi, sem reyndist henni góður og traustur sonur. Ég hafði alltaf samband við hana og hún fylgdist með líðan for- eldra minna, sem á þessum árum áttu við heilsbrest að stríða. Við spjölluðum oft saman í síma og því miður var umræðuefnið oftast erfíð- leikar líðandi stundar, en hún hafði sjálf átt við heilsuleysi að stríða árum saman. Þrátt fyrir það glat- aði hún ekki ró sinni. Hin góða greind hennar sagði henni áreiðan- lega, að öll fengjum við byrðar að bera í þessu lífí sem ekki þýddi um að sakast. Með þessum línum kveð ég Maju frænku, og þakka þeim Sverri sam- fylgdina og þá ómetanlegu hand- leiðslu sem þau veittu mér ungri. Gott er að eiga góða að, segir mál- tækið. Ég veit að mamma mín mundi vilja vera með mér í þessari hinstu kveðju, en hún lifir frænku sína 89 ára gömul. Magga og Gunnari sendum við Ingvi einlægar samúðarkveðjur og óskum þeim velfarnaðar í fram- tíðinni. Washington, D.C. Hólmfríður Guðlaug Jónsdóttir
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.