Morgunblaðið - 04.05.1989, Blaðsíða 61

Morgunblaðið - 04.05.1989, Blaðsíða 61
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 4. MAÍ 1989 61 VELVAKANDI SVARAR í SÍMA 691282 KL. 10-12 FRÁ MÁNUDEGI TIL FÖSTUDAGS tUm M/ M/_©)©) _ BIOHOU. Kisa er týnd Hvítur fimm mánaða gamall högni hvarf frá heimili sínu að Heiðnabergi 9, í efra Breiðholti, mánudaginn 24. apríl. Hann var með græna ól um hálsinn. Ef ein- hver hefur orðið var við ferðir kisa eða veit um hann núna, vinsamleg- ast látið vita í síma 74717. Þessir hringdu ... Kennaraverkföll dreifbýlis- fólki til óþæginda Foreldri í dreifbýli hringdi: Ég er faðir framhaldsskólanema úr dreifbýli, sem hafa verið undan- fama vetur í menntaskólum á höf- uðborgarsvæðinu. Það hafa verið stöðug stórvandræði vegna árlegra verkfalla menntaskólakennara, sem hafa nýtt sér vandræði nemenda sinna sem þeir svo í hinu orðinu segja að sér þyki svo vænt um. Sá áróður er lítið trúverðugur þegar þess er alltaf vandlega gætt að hefja verkfall þegar nemendum kemur það sem verst. Þessi nær árlegu verkföll hafa ekki síst bakað dreifbýlisfólki mikil vændræði vegna kostnaðarsamra ferðalaga og annars í þá vem. Þau hafa ekki getað setið í heimilisranni heldur verið á hrakhólum og ekki vitað hvað þau ættu af sér að gera. Ég tel ástæðu til þess að senda félögum í BHMR samúðarkveðjur í tilefni þess hve vanhæft fólk þeir hafa valið sér til forystu. Allir þeir sem hafa sjóndeildarhring sem nær lengra en niður á eigin nafla sáu að nú voru ekki þjóðfélagslegar aðstæður til byltingakenndra kjara- bóta. Því gátu flokksbræður þeirra í ríkisstjómarstólum ekki breytt. Myndavélataska tapaðist Ljósbrún myndavélataska' með Olympus myndavél og þremur lins- um tapaðist á leið frá Laugavegi að Bergstaðastræti. Finnandi vin- samlegast hringi í síma 26464. Fundarlaun. Ekki orðið var við ónæði ■Þórarinn, íbúi við Eiðistorg, hringdi: Ég vil mótmæla þeim niðurrifs- skrifum og ummælum um Rauða ljónið sem birtust í Velvakanda sl. föstudag. Ég bý við Eiðistorgið, beint fyrir ofan Rauða ljónið, og hef ekki ennþá orðið fyrir ónæði af starfsemi Rauða ljónsins eða gestum þess. Því verð ég að álykta að einhveijar annarlegar hvatir liggi að baki þegar hlaupið er í ijöl- miðla með svona skrif. Það má með sanni segja að Rauða ljónið, sem er mjög smekklega innréttuð krá, hafi náð hinni réttu evrópsku kráar- stemmningu og hafi til þessa að mestu verið blessunarlega laus við þá viðskiptavini sem koma óorði á bjór og brennivín. Kolaportið S.H. hringdi: Ég blrá mér á markað í Kolaport- inu sl. laugardag. Ekki var ég hrif- in af öllu þar. Þegar komið er inn er svo dimmt að maður sér varla hvað er á boðstólum og lágt undir loft. Þrátt fyrir þessa galla var gaman að sjá hvað fólkið var alúð- legt við afgreiðsluborðin. En eitt vakti undrun mína og reiði. Við endann á einu borði stóð kassi sem átti að vera tombólu- kassi. Þar hrúguðust börnin í kring, ýmist ein eða með foreldrum sínum. Þau keyptu marga miða, en fengu engan vinning. Ég kenndi í bijósti um þau. Miðinn kostaði 40 kr. og vinningurinn átti að vera eitthvað smá tuskudót. Mig langar að vita hvort það sé leyfilegt að hafa tomb- ólu þarna. Ég vona að við fáum gott sumar og útimarkaðurinn verði áfram í Austurstræti. Það lífgar upp á bæinn og veitir ekki af. Við verðum að halda miðbænum lifandi og skemmtilegum. Leðurjakki og taska töpuðust á Hótel Borg Laugardaginn 22. apríl tapaðist fatahengisnúmer á Hótel Borg. Sá sem náði í svartan þykkan leður- jakka, svart veski með snyrtivörum og kristallyklakippu með tveimur lyklum er vinsamlegast beðinn um að hafa samband við Sonju í síma 46900 eða 42502. Góðum fundar- launum heitið. Á að standa með kennurum? Bókagerðarmaður hringdi: Maður veit ekkert hvort maður á að standa með kennurum í þessu verkfalli eða ekki, því það hefur ekki birst í neinum fjölmiðlum hvaða laun þeir hafa. Það eina sem maður veit er að þeir sem eru að byija eru með 60.000 krónur á mánuði.' Sumartími Skrifstofa Sjálfstæðisflokksins í Valhöll, Háaleit- isbraut 1, Reykjavík, verður opin frá kl. 8-16 frá 1. maí til 30. september. Sjálfstæö isflokkurinn. I | Góðan daginn! Hjartanlega þakka ég vinum og œttingjum fyr- ir heimsóknir, gjafir og hlýhug mér sýndan á 85 ára afmœli mínu þann 28. apríl sl. Guð blessi ykkur öll. Ragnheiður Jónasdóttir, Elli- og hjúkrunarheimilinu Grund.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.