Morgunblaðið - 04.05.1989, Qupperneq 60

Morgunblaðið - 04.05.1989, Qupperneq 60
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 4. MAÍ 1989 6a Það verður að smyija lam- irnar á gólfhleranum strax! Á ÞESSUM TÍMUM Velvakandi. Til ritstjóra Morgunblaðsins. Tvisvar með skömmu millibili er ég búinn að rekast á í leiðara Morg- unblaðsins mikla undrun yfir því að kennarar skuli efna til vinnu- stöðvunar vegna lélegra kjara á þessum tíma skólaársins. Ég get ekki orða bundist að gera athugasemdir við þessi leiðaraskrif. Það eru nefninlega ekki kennararn- ir sem velja sér þennan tíma. Það er ríkisvaldið sem til þessa hefur ekki gefið kost á öðru en að samn- ingstími miðist við áramót. Samn- ingar eru venjulega lausir í byrjun janúar og þess vegna verða kjara- deilur alltaf seinni hluta vetrar ef samningar nást ekki fyrir þann tíma. í ár voru samningar bundnir með lögum til 15. febrúar. Kennarasamband íslands hefur marg oft farið fram á að samnings- tíminn væri frá hausti til hausts, það er í takt við launaár kennara, en á það hefur ríkisvaldið ekki vilj- að fallast, hver svo sem setið hefur í stól fjármálaráðherra. Ég trúi því ekki að Morgunblaðið sé vísvitandi að sverta kennara- stéttina með því að hamra á því hvenær kennarar beita vinnustöðv- unum. En ritstjórum þess ætti að vera það ljóst að kennarar eru neyddir til að nota þennan tíma, í annan tíma eru samningar ekki lausir. Ég vona svo að Morgunblaðið leggist á sveif með að bæta kjör þeirra sem vinna að menntun unga fóiksins í landinu, mikilvægasta verkefninu sem varðar framtíð þessarar þjóðar. Með fyrirfram þökk fyrir birting- una. Kári Arnórsson. Aths. ritstj.: Úr því að samningstími kennara er yfirleitt miðaður við áramót og nú að þessu sinni 15. febúar, má spyija, hvers vegna kennarar hafa ekki farið í verkföll fyrr á árinu. Það er skárra fyrir nemendur, að verkföll lami skólastarfið fljótlega eftir áramót eða í febrúar. Kennarar velja hins vegar jafnan þann árstíma, sem augljóslega kemur nemendum verst, þ.e. þegar loka- próf nálgast. Truflun á skólastarfi á þessum árstíma er verri en á öðr- um tímum - fyrir nemendur. At- hugasemd Kára Arnórssonar stað- festir gagnrýni Morgunblaðsins að þessu leyti. Hitt er svo annað mál, að þeir sem sjá eiga um menntun ■æskunnar eiga að fá mannsæmandi laun, svo mikilvægt sem starf þeirra er. En þá má einnig minna á nýleg orð menntamálaráðherra, að skatta- þanþol almennings er takmarkað og til þess verður einnig að taka tillit. Það er kennurum sízt af öllu í hag, að atvinnufyrirtæki geti ekki Til Velvakanda. Ragnar úr Seli skrifar grein í Velvakanda þann 25. apríl og segir þar m.a.: „Það gleður mitt gamla, guðlausa hjarta að hlusta á glæsi- Iegan æskumann lýsa yfir með djörfung: Ég trúi ekki á guð.“ Til- efnið er fyrirbæri, sem nefnt hefur verið „borgaraleg ferming". Undirritaður undrast það mest, ef guðleysi er það, sem staðfesta á, að þörf sé á að nota nafn, sem skírskotar til kristinnar athafnar, nefnilega að kalla þetta fenningu. Getur guðleysið þá ekki staðið eitt og sér, án þess að skírskotað sé til kristni og reynt að rífa niður athöfn okkar í leiðinni? Ragnar segir ennfremur: „Þessi glæsilegu ungmenni sem þarna tóku vígslu til samfélags þeirra full- orðnu, laus við þrældómsok krist- innar trúar, eru fijáls og bjartsýn á framtíðina. Þau eru von okkar öldruðu um betri heim. Ég þakka þeim foreldrum sem stóðu að þess- ari fyrstu borgaralegu fermingu á íslandi og er þess fullviss að þessar manndómsvígslur verða haldnar í vaxandi mæli á næstu árum.“ Hvers vegna er þetta þá ekki kallað manndóms- og kvendóms- vígsla? Eða er hér vísvitandi verið að fara út í samkeppni við kirkj- una? Gott væri að fá að vita í hvers nafni. Guðleysis? Ferming merkir vissulega stað- festing innan kirkjunnar, en ekki á hveiju sem er, af hveijum sem er. borið sig vegna verðbólgu og ein- staklingar séu að sligast undan sköttum. Finna þarf nýjar leiðir til raunhæfra kjarabóta eins og Morg- unblaðið hefur marg oft bent á t.a.m. með aðhaldi, hagræðingu og lækkun vöruverðs með aukinni sam- keppni. En engum, hvorki stjóm- málamönnum né forystumönnum launþegasamtaka, virðist vera það efst í huga, þeir hjakka í sama far- inu þangað til alit er komið í óefni. Þetta hjakk er orðið þjóðarkækur. En hann má ekki verða vandamál unga íslands. Fermingarundirbúningurinn á ekki upphaf eða takmark í sjálfum sér, heldur er hann síðasti áfangi skímarfræðslu kirkjunnar. Bömin hafa hlotið trúarlega uppfræðslu og uppeldi frá því þau vom skírð, á heimilum sínum, í barnastarfi kirkjunnar, i skólum landsins, í al- mennu guðsþjónustuhaldi kirkjunn- ar, auk fermingamndirbúnings, áð- ur en þau eru fermd. Undirritaður fermdi 84 fermingarbörn ásamt söfnuðinum í ár. Auk lesturs texta- bókarinnar unnu þau vinnubók, voru lesarar eða dyraverðir í kirkj- unni við guðsþjónustur, unnu út- drætti úr prédikunum, settu fram spurningar um það, sem fram fór við guðsþjónustur, tilgreindu fyrir- bænarefni, lásu Ritninguna og fræddust um einstakar bækur hennar, kynntust efni Sálmabókar kirkjunnar, ræddu um siðfræðileg málefni, kynntust bænahaldi o.s.frv. Þau unnu samkvæmt vinnuáætlun í allan vetur og for- eldrar fengu umsagnir um gengi þeirra, auk hvatningar um meiri þátttöku heimilanna. Og síðan voru þessi fermingarbörn staðfest af söfnuði sínum og presti sem ein- staklingar, sem játa sömu trú og við, sem þegar höfum verið stað- fest. Og það má gjarna koma fram, að þessi fermingarbörn hugsuðu um það, sem þau voru að gera. Virðingarfyllst, sr. Bragi Skúlason, Vestmannaeyjum. Borgaraleg ferming? HÖGNI HREKKVÍSI Víkverji skrifar Idag er uppstigningardagur, sem er sjötti fimmtudagur eftir páska og fertugasti dagur frá og með páskadegi. Áður hét dagur þessi „helgi þórsdagur“, en dagurinn er til minningar um himnaför Krists. Víkveiji hefur alltaf jafngaman af að glugga í Rímfræði menningar- sjóðs, því að þar er ýmsan fróðleik að finna, t.d. um tímatalið. Þar segir m.a.: „Hin mörgu tímatöl, sem notuð hafa verið að fornu og nýju, eiga það yfirleitt sameiginlegt, að þau grundvallast bæði af gangi sólar og tungls. Þær náttúrulegu tímaeiningar, sem notaðar hafa verið, eru þijár: sólarhnngurinn, tunglmánuðurinn og hvarfárið eða árstíðaárið. Af öðrum einingum er vikan merkust". Venjulegast er þá átt við 7 daga viku, en tíðkast hafa aðrar vikulengdir með ýmsum þjóð- um, þar á meðal 10 daga, 8 daga og 5 daga vikur. Sjödagavikan er þó sú, sem sigrað hefur, en hana má rekja til ísraelsmanna mörgum öldum fyrir Krists burð. Það sem gerir tímatal svo flókið, er, að hinar náttúrulegu einingar eru algjörlega ósamstæðar: tungl- mánuðurinn er rúmlega 29,5 sólar- hringar og hvarfárið er tæplega 12,5 tunglmánuðir eða tæplega 365,25 dagar. „Þótt enn séu margs konar tíma- töl í notkun, s.s. tímatal gyðinga og tímatal múhameðstrúarmanna, hafa flestar þjóðir sameinazt um gregorianska tímatalið, sem innleitt var var Gregorianusi páfa 13. árið 1582 e. Kr. Það var arftaki hins júlíanska, sem Júlíus Cæsar kpm á i Rómarveldi árið 46 f. Kr. í því tímatali var venjulegt almanaksár talið 365 dagar, en fjórða hvert ár var gert að hlaupári með 366 dög- um. Nöfn mánuðanna og lengd þeirra virðist hafa haldist óbreytt allt frá dögum Cæsars. Febrúar vár þá talinn síðasti mánuðurinn og hlaupársdeginum bætt við hann. Meðallengd júlíanska ársins var 365,25 dagar, sem var 11 mínútum og 14 sekúndum lengra en hvarfár- ið. Þetta leiddi til skekkju sem sífellt jókst, þannig að á 16. öld voru vor- jafndægur orðin nálægt 11. marz í stað 21. marz. Með gregorianska tímatalinu voru þá felldir niður 10 dagar, svo að í stað 5. október 1582 kom 15. október. Jafnframt var sú breyting gerð, að aðeins 4. hvert aldamótaár skyldi vera hlaup- ár. Með þessu varð meðallengd gregorianska ársins 365,2425 dag- ar, sem skakkar minna en degi á 3.000 árum frá hinu náttúrulega ári (hvarfárinu). Gregorianska tímatalið var tekið upp á mismun- andi tímum í hinum ýmsu löndum. Á íslandi var það lögleitt árið 1700, og kom þá 28. nóvember í stað 17. nóvember.“
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.