Morgunblaðið - 17.05.1989, Side 1

Morgunblaðið - 17.05.1989, Side 1
88 SIÐUR B/C STOFNAÐ 1913 108. tbl. 77. árg. MIÐVIKUDAGUR 17. MAI 1989 Prentsmiðja Morgunblaðsins Valdaránstil- raun í Eþíópíu Nairobi. Reuter. Ríkisútvarpið í Eþíópíu skýrði frá því í gær, að komið hefði verið í veg fyrir tilraun nokkurra foringja í hernum til að steypa af stóli marxistastjórn Mengistus Hailes Mariams forseta. Fréttir af valdaránstilrauninu voru enn óljósar í gærkvöld en hún var gerð á sama tíma og Mengistu kom í opinbera heimsókn til Austur- Þýskalands. Seint í gær fóru af því frétt- ir, að skriðdrek- ar og brynvarð- ar bifreiðar hefðu umkringt vamarmála- ráðuneytið í Ad- dis Ababa og kanadískur stjómarerind- Mengistu reki sá hermenn skjóta á opinbera bifreið. Ormstuflugvélar og fall- byssuþyrlur flugu reglulega yfir borgina og eftir hjálparstofnana- fólki var haft, að skriðdrekar hefðu verið á ýmsum mikilvægum stöðum í miðborginni. fjarskiptasamband milli Eþíópíu og annarra landa var rof- ið í gær og flugvellinum í Addis Ababa lokað en BBC, breska ríkisútvarpið, sem náði sendingum eþíópska útvarpsins, segir, að lesin hafi verið upp tilkynning frá ríkis- ráðinu um að valdaránstiljaunin hefði farið út um þúfur. í gær- kvöld hafði þetta þó ekki verið staðfest með öðram hætti en er- lendir stjórnarerindrekar sögðu fyrr um daginn, að svo virtist sem einhveijar samningaviðræður ættu sér stað. Ástandið í eþíópskum efnahags- Eyðing ósonlagsins: Ragnarök í suðurhöfúm? EKKI er ólíklegt, að útQólu- bláir geislar, sem eiga nú greiðari leið til jarðar vegna eyðingar ósonlagsins, séu þeg- ar famir að drepa hvali og aðrar lífvemr í suðurhöfúm. Skýrði breska ríkisútvarpið, BBC, frá þessu í gær í fréttum af alþjóðlegri ráðstefnu, sem er haldin um þessi mál á Tas- maníu. Á Tasmaníuráðstefnunni koma í fyrsta sinn saman sér- fræðingar um lofthjúp jarðar og læknar og líffræðingar víðs veg- ar að úr heimi. I máli eins vísindamannanna kom fram, að vegna mikillar eyðingar óson- lagsins yfir suðurheimskauti næðu útfjólubláir geislar að þrengja sér æ dýpra ofan í sjóinn við Ástralíu og Suðurheim- skautslandið. Afleiðingarnar væfu þær, að átan, sem margar hvalategundir lifðu á, væri farin að drepast og hvalirnir í kjölfar- ið. Sagði hann, að geislunin væri einnig farin að hafa áhrif á fisk- stofna á þessum slóðum og mætti búast við, að það sama yrði uppi á teningnum á öðrum hafsvæð- um. málum er afar bágborið og herinn hefur beðið hvern ósigurinn á fæt- ur öðmm fyrir skæraliðum í norð- urhluta landsins. Er stjómarherinn að hluta skipaður óhörðnuðum unglingum, sem flýja fremur en að beijast við bardagavana skæra- liðana. Hefur Mengistu að undan- fömu íað að því, að hann vilji taka upp viðræður við skæraliða og fréttir era um, að embættismenn og almenningur í borgum, sem stjórnarherinn ræður á ófriðar- svæðunum, hafí sjálfir beitt sér fyrir samningum við skæraliða. Reuter Þegar þeir Mikhail Gorbatsjov og Deng Xiaoping höfðu ákveðið að binda enda á gamlar væringar rikjanna tókust þeir í hendur og skáluðu síðan í kínversku hrísgrjónabrennivíni. Pekingheimsókn Míkhaíls Gorbatsjovs sovétleiðtoga: Kínveijar krefjast lýðræð- is á stund sögulegra sátta Peking. Reuter. MÍKHAÍL Gorbatsjov, leiðtogi Sovétrílyanna, og Deng Xiao- ping, ráðamaður í Kína, bundu í gær enda á fjandskapinn, sem verið hefúr með ríkjunum í 30 ár, og innsigluðu sættirnar með sögulegu handabandi. Á sama tíma efndu hundruð þúsunda Kínveija, námsmenn og fólk úr öllum stéttum þjóðfélagsins, til mikilla mótmæla í Peking og kröfðust málfrelsis og lýð- ræðislegra umbóta. „Segjum skilið við fortíðina og tökumst á við framtíðina," sagði Deng þegar þeir Gorbatsjov höfðu tekist í hendur og ákveðið að end- umýja tengslin milli þessara tveggja stærstu kommúnistaríkja í heimi. Úti fyrir, á Torgi hins himneska friðar og nálægum strætum í mið- borg Peking, endurómuðu þessi orð með öðram hætti frá hundrað- um þúsunda manna, námsmanna, verkamanna, menntamanna og annarra, sem kröfðust þess, að komið yrði á lýðræði í Kína. Segja erlendir fréttaskýrendur, að mót- mælin séu mesta ögran við stjóm- völd síðan kommúnistar komust þar til valda. Um 3.000 námsmenn era í hungurverkfalli til að leggja áherslu á kröfurnar og borist hafa fréttir um svipuð mótmæli í öðram kínverskum borgum. Viðræður Gorbatsjovs við Deng Xiaoping og aðra kínverska ráða- menn hafa snúist um alþjóðamál og samskipti ríkjanna og sagði Li Peng, forsætisráðherra Kína, að vissulega væri ágreiningur um margt en mestu varðaði að geta skipst á skoðunum. Komið hefur fram, að leiðtogana greinir enn á um Kambódíu og hersetu Víet- nama, skjólstæðinga Sovétmanna. í dag mun Gorbatsjov flytja ræðu í Alþýðuhöllinni í Peking og er haft eftir heimildum, að hann hafi setið fram á nótt við að endur- Reuter Peronistar aftur til valda CARLOS Menem, litríkur lærisveinn Juans heitins Perons, fyrrum forseta Argentínu, bar sigur úr býtum í forsetakosningunum, sem fram fóru í landinu á sunnudag. Lofaði hann landsmönnum sínum „byltingar- kenndum umbótum", launahækkunum til allra og nægu lánsfé til að auka framleiðslu og neyslu. Að auki ætlar hann að minnka verulega erlendar skuldir þjóðarinnar. Þykja þessi fögra fyrirheit minna á fyrri valdatíma peronista, sem ávallt enduðu með þjóðfélagslegri og efna- hagslegri upplausn. Hér eru fylgismenn hans að fagna úrslitunum. Sjá „Gerðist kaþólikki ..." á bls. 32. skrifa ræðuna með tilliti til mót- mælanna í Kína. Sjá „Dagskránni ítrekað ...“ á bls. 32 Salthamst- ur í Moskvu Moskvu. Reutcr. ORÐRÓMUR um að saltið í grautinn væri nú meðal þess, sem farið er að skorta í Sovétríkjun- um, olli slíku kaupæði í Moskvu, að verslanir eru orðnar uppi- skroppa með þessa nauðsynja- vöru. Sagði frá þessu í gær í Trúd, dagblaði verkalýðssamtak- anna. í blaðinu sagði, að salthamstrið í höfuðborginni stafaði eingöngu af kviksögum, sem komið hefði verið á kreik, og hefðu ekki aðrir hagnast á því en þeir, sem öiinuð- ust saltviðskiptin. í Sovétríkjunum er engum vand- kvæðum bundið að koma af stað sögum um skort á hinu og þessu enda er ástandið í Moskvu þannig, að tannkrem, sápa og þvottaefni eru illfáanleg. Þá er sykur skammt- aður í fyrsta sinn frá því seint á fimmta áratugnum. Mannréttinda- frömuðurinn Andrei Sakharov, sem nú er gestur á flokksþingi ítalskra sósíalista, sagði raunar í ræðu á sunnudag, að Sovétríkin horfðust í augu við efnahagslegar ófarir og kollsteypu vegna þess hve illa gengi að koma á raunveralegum umbót- um.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.