Morgunblaðið - 17.05.1989, Síða 1
88 SIÐUR B/C
STOFNAÐ 1913
108. tbl. 77. árg.
MIÐVIKUDAGUR 17. MAI 1989
Prentsmiðja Morgunblaðsins
Valdaránstil-
raun í Eþíópíu
Nairobi. Reuter.
Ríkisútvarpið í Eþíópíu skýrði frá því í gær, að komið hefði verið
í veg fyrir tilraun nokkurra foringja í hernum til að steypa af
stóli marxistastjórn Mengistus Hailes Mariams forseta. Fréttir af
valdaránstilrauninu voru enn óljósar í gærkvöld en hún var gerð
á sama tíma og Mengistu kom í opinbera heimsókn til Austur-
Þýskalands.
Seint í gær
fóru af því frétt-
ir, að skriðdrek-
ar og brynvarð-
ar bifreiðar
hefðu umkringt
vamarmála-
ráðuneytið í Ad-
dis Ababa og
kanadískur
stjómarerind- Mengistu
reki sá hermenn skjóta á opinbera
bifreið. Ormstuflugvélar og fall-
byssuþyrlur flugu reglulega yfir
borgina og eftir hjálparstofnana-
fólki var haft, að skriðdrekar
hefðu verið á ýmsum mikilvægum
stöðum í miðborginni.
fjarskiptasamband milli
Eþíópíu og annarra landa var rof-
ið í gær og flugvellinum í Addis
Ababa lokað en BBC, breska
ríkisútvarpið, sem náði sendingum
eþíópska útvarpsins, segir, að lesin
hafi verið upp tilkynning frá ríkis-
ráðinu um að valdaránstiljaunin
hefði farið út um þúfur. í gær-
kvöld hafði þetta þó ekki verið
staðfest með öðram hætti en er-
lendir stjórnarerindrekar sögðu
fyrr um daginn, að svo virtist sem
einhveijar samningaviðræður
ættu sér stað.
Ástandið í eþíópskum efnahags-
Eyðing ósonlagsins:
Ragnarök í
suðurhöfúm?
EKKI er ólíklegt, að útQólu-
bláir geislar, sem eiga nú
greiðari leið til jarðar vegna
eyðingar ósonlagsins, séu þeg-
ar famir að drepa hvali og
aðrar lífvemr í suðurhöfúm.
Skýrði breska ríkisútvarpið,
BBC, frá þessu í gær í fréttum
af alþjóðlegri ráðstefnu, sem
er haldin um þessi mál á Tas-
maníu.
Á Tasmaníuráðstefnunni
koma í fyrsta sinn saman sér-
fræðingar um lofthjúp jarðar og
læknar og líffræðingar víðs veg-
ar að úr heimi. I máli eins
vísindamannanna kom fram, að
vegna mikillar eyðingar óson-
lagsins yfir suðurheimskauti
næðu útfjólubláir geislar að
þrengja sér æ dýpra ofan í sjóinn
við Ástralíu og Suðurheim-
skautslandið. Afleiðingarnar
væfu þær, að átan, sem margar
hvalategundir lifðu á, væri farin
að drepast og hvalirnir í kjölfar-
ið. Sagði hann, að geislunin væri
einnig farin að hafa áhrif á fisk-
stofna á þessum slóðum og mætti
búast við, að það sama yrði uppi
á teningnum á öðrum hafsvæð-
um.
málum er afar bágborið og herinn
hefur beðið hvern ósigurinn á fæt-
ur öðmm fyrir skæraliðum í norð-
urhluta landsins. Er stjómarherinn
að hluta skipaður óhörðnuðum
unglingum, sem flýja fremur en
að beijast við bardagavana skæra-
liðana. Hefur Mengistu að undan-
fömu íað að því, að hann vilji taka
upp viðræður við skæraliða og
fréttir era um, að embættismenn
og almenningur í borgum, sem
stjórnarherinn ræður á ófriðar-
svæðunum, hafí sjálfir beitt sér
fyrir samningum við skæraliða.
Reuter
Þegar þeir Mikhail Gorbatsjov og Deng Xiaoping höfðu ákveðið að binda enda á gamlar væringar
rikjanna tókust þeir í hendur og skáluðu síðan í kínversku hrísgrjónabrennivíni.
Pekingheimsókn Míkhaíls Gorbatsjovs sovétleiðtoga:
Kínveijar krefjast lýðræð-
is á stund sögulegra sátta
Peking. Reuter.
MÍKHAÍL Gorbatsjov, leiðtogi
Sovétrílyanna, og Deng Xiao-
ping, ráðamaður í Kína, bundu
í gær enda á fjandskapinn, sem
verið hefúr með ríkjunum í 30
ár, og innsigluðu sættirnar með
sögulegu handabandi. Á sama
tíma efndu hundruð þúsunda
Kínveija, námsmenn og fólk
úr öllum stéttum þjóðfélagsins,
til mikilla mótmæla í Peking
og kröfðust málfrelsis og lýð-
ræðislegra umbóta.
„Segjum skilið við fortíðina og
tökumst á við framtíðina," sagði
Deng þegar þeir Gorbatsjov höfðu
tekist í hendur og ákveðið að end-
umýja tengslin milli þessara
tveggja stærstu kommúnistaríkja
í heimi.
Úti fyrir, á Torgi hins himneska
friðar og nálægum strætum í mið-
borg Peking, endurómuðu þessi
orð með öðram hætti frá hundrað-
um þúsunda manna, námsmanna,
verkamanna, menntamanna og
annarra, sem kröfðust þess, að
komið yrði á lýðræði í Kína. Segja
erlendir fréttaskýrendur, að mót-
mælin séu mesta ögran við stjóm-
völd síðan kommúnistar komust
þar til valda.
Um 3.000 námsmenn era í
hungurverkfalli til að leggja
áherslu á kröfurnar og borist hafa
fréttir um svipuð mótmæli í öðram
kínverskum borgum.
Viðræður Gorbatsjovs við Deng
Xiaoping og aðra kínverska ráða-
menn hafa snúist um alþjóðamál
og samskipti ríkjanna og sagði Li
Peng, forsætisráðherra Kína, að
vissulega væri ágreiningur um
margt en mestu varðaði að geta
skipst á skoðunum. Komið hefur
fram, að leiðtogana greinir enn á
um Kambódíu og hersetu Víet-
nama, skjólstæðinga Sovétmanna.
í dag mun Gorbatsjov flytja ræðu
í Alþýðuhöllinni í Peking og er
haft eftir heimildum, að hann hafi
setið fram á nótt við að endur-
Reuter
Peronistar aftur til valda
CARLOS Menem, litríkur lærisveinn Juans heitins Perons, fyrrum
forseta Argentínu, bar sigur úr býtum í forsetakosningunum, sem fram
fóru í landinu á sunnudag. Lofaði hann landsmönnum sínum „byltingar-
kenndum umbótum", launahækkunum til allra og nægu lánsfé til að
auka framleiðslu og neyslu. Að auki ætlar hann að minnka verulega
erlendar skuldir þjóðarinnar. Þykja þessi fögra fyrirheit minna á fyrri
valdatíma peronista, sem ávallt enduðu með þjóðfélagslegri og efna-
hagslegri upplausn. Hér eru fylgismenn hans að fagna úrslitunum.
Sjá „Gerðist kaþólikki ..." á bls. 32.
skrifa ræðuna með tilliti til mót-
mælanna í Kína.
Sjá „Dagskránni ítrekað ...“
á bls. 32
Salthamst-
ur í Moskvu
Moskvu. Reutcr.
ORÐRÓMUR um að saltið í
grautinn væri nú meðal þess, sem
farið er að skorta í Sovétríkjun-
um, olli slíku kaupæði í Moskvu,
að verslanir eru orðnar uppi-
skroppa með þessa nauðsynja-
vöru. Sagði frá þessu í gær í
Trúd, dagblaði verkalýðssamtak-
anna.
í blaðinu sagði, að salthamstrið
í höfuðborginni stafaði eingöngu
af kviksögum, sem komið hefði
verið á kreik, og hefðu ekki aðrir
hagnast á því en þeir, sem öiinuð-
ust saltviðskiptin.
í Sovétríkjunum er engum vand-
kvæðum bundið að koma af stað
sögum um skort á hinu og þessu
enda er ástandið í Moskvu þannig,
að tannkrem, sápa og þvottaefni
eru illfáanleg. Þá er sykur skammt-
aður í fyrsta sinn frá því seint á
fimmta áratugnum. Mannréttinda-
frömuðurinn Andrei Sakharov, sem
nú er gestur á flokksþingi ítalskra
sósíalista, sagði raunar í ræðu á
sunnudag, að Sovétríkin horfðust í
augu við efnahagslegar ófarir og
kollsteypu vegna þess hve illa gengi
að koma á raunveralegum umbót-
um.