Morgunblaðið - 15.06.1989, Side 29
MORGUNBLAÐIÐ FTMMTUDÁGUR 15; JUNÍ 1989
Sovétríkin:
Sprenging í
klórgeymi
Moskvu. Reuter.
SJÖTÍU manns voru fluttir á
sjúkrahús, vegna gruns um
eitrun eftir að klórgeymir
sprakk í Khabarovsk, í austur-
hluta Sovétríkjanna, á þriðju-
dag. Við sprenginguna fóru
800 kg af eitri út í andrúms-
loftið. Þeir sem urðu fyrir eitr-
uninni höfðu fiestir dvalist á
baðströnd við ána Amur. í
hópi þeirra voru mörg börn.
27 manns eru enn á sjúkra-
húsi, þar af eru fyórir illa
haldnir að sögn sovésku frétta-
stofunnar TASS.
Bretland:
Thatcher lýsir
yfir stuðningi
við Lawson
Lundúnum. Reuter.
MARGARET Thatcher, for-
sætisráðherra Bretlands,
reyndi á þriðjudag að styrkja
stöðu breska pundsins og
binda enda á vangaveltur í fjöl-
miðlum um að ágreiningur
væri á milli hennar og Nigels
Lawsons fjármálaráðherra í
efnahagsmálum. „Ég styð
ijármálaráðherrann í einu og
öllu og er mjög stolt af hon-
um,“ sagði Thatcher á breska
þinginu, þar sem hún sat við
hlið Lawsons. Gengi pundsins
féll á þriðjudag og hefur það
ekki verið jafn lágt gagnvart
vestur-þýska markinu í 15
mánuði. Lawson fjármálaráð-
herra hefur hækkað vexti við-
skiptabanka um hartnær
helming undanfarna tólf mán-
uði og er það liður í tilraunum
hans til að draga úr verðbólgu
og þenslu. Hagfræðingar hafa
haldið því fram að ráðherrana
greini á um orsakir verðbólg-
unnar og áhöld séu um hver
ráði í raun ferðinni í efnahags-
málum.
Haftiarverka-
menn í verk-
falli
Lundúnum. Reuter.
YFIR þriðjungur breskra hafn-
arverkamanna hafa verið í
verkfalli frá því á fimmtudag
til að mótmæla því að stjórn-
völd hyggjast afnema ævi-
ráðningu þeirra. Verkfallið
náði upphaflega til 13 borga
en hafnarverkamenn í fjórum
þeirra hafa samþykkt að hefja
störf að nýju. Dómstóll úr-
skurðaði fyrir viku að verk-
fallið væri ólöglegt og því
hvöttu verkalýðsleiðtogar fé-
lagsmenn til að mæta til vinnu.
Þing fímm ara-
baríkja sett
Alsír. Reuter.
SAMEIGINLEGT þing fimm
norður-afrískra ríkja var sett
í fyrsta sinn á laugardaginn í
Alsír. Þingið er liður í aðgerð-
um ríkjanna til að mynda sam-
eiginlegan markað og búa sig
undir innri markað Evrópu-
bandalagsins 1992. Ríkin
fimm eru Alsír, Líbýa, Máret-
anía, Marokkó og Túnis og í
þeim búa 62 milljónir manna.
Reuter
Ronald Reagan, fyrrum Bandaríkjaforseti, í ræðustól í Guildhall í
London. Reagan lýsti yfir stuðningi sínum með kinversku þjóðinni
sem tiann sagði að hefði kynnst anda lýðræðisins.
Ronald Reagan í Bretlandi;
Bretadrottning heiðrar
forsetann fyrrverandi
sJ
London. Reuter.
ELISABET Bretadrottning sæmdi Ronald Reagan, fyrrverandi
Bandaríkjaforseta, stórkrossi Bath-orðunnar við hátíðlega athöfrí
í Buckingham-höll í gær. Fátítt er að útlendingum sé sýndur
þessi heiður en orðan rekur uppruna sinn til þess er enskir kon-
ungar tilnefiidu riddara við hirðir sínar og vísar nafii hennar til
þess að þeir fóru í bað fyrir hina hátíðlegu athöfrí. Orðan veitir
Reagan ekki rétt til að setja titilinn Sir við skímarnafrí sitt þar
sem hann er ekki breskur þegn.
Forsetinn fyrrverandi og eigin-
kona hans, Nancy, eru í fjögurra
daga einkaheimsókn í Bretlandi
og á þriðjudag flutti Reagan sína
fyrstu ræðu á erlendri grund frá
því að hann lét af embætti. Reag-
an beitti sér ákaft fyrir nánum
samskiptum Breta og Bandaríkja-
manna í alþjóðamálum meðan
hann sat á forsetastóli og var náið
samstarf milli hans og Margaret
Thatcher, forsætisráðherra Bret-
lands.
í ræðu í Guildhall í London á
þriðjudag vék Reagan að ógnartí-
ðindunum frá Kína og sagði að
lýðræðisþrá þjóðarinnar yrði ekki
kæfð með ofbeldi. „Hugsjónum
verður ekki fargað. Skriðdrekum
verður ekki ekið yfir vonina. Lýð-
ræðisþrá einnar þjóðar verður ekki
slökkt með vélbyssuskothríð,"
sagði Reagan.
Þá minntist hann fjögurra leið-
togafunda sem hann átti með
Míkhaíl Gorbatsjov Sovétleiðtoga.
Hann hvatti vestræn ríki til að
hafa vara á sér í samskiptum við
austantjaldsþjóðir og vitnaði í
rússneskt orðatiltæki; „Doveijaj,
no proveijaj“ — „Treystið, en
sannreynið".
Reagan-hjónin eru væntanleg
til Parísar í dag, fimmtudag, þar
sem forsetinn fyrrverandi tekur
við heiðursnafnbót við Frönsku
akademíuná í siðfræði og stjórn-
málavísindum.
BIACKSlDECKER’
I HINUM SMÆRRI
HEIMILISTÆKJ UM
Hitablásarar. Stoivaway ferðasett. Kaffive'lar. Peytarar.
Borgarljós hafa nú fengið umboð
fyrir Black & Decker heimilistæki
Hið heimsþckkta fyrirtæki Black & Decker Heimilstækjaúrvalið frá Black & Dcckcr
framleiðir fleira en borvélar! Á undanförn- er fjölbreytt, allt frá rafknúnum dósaopnur-
um árum hefur fyrirtækið sífellt vcrið að um til öflugra handryksuga. Borgarljós hf.
auka t'ramleiðslu sína á tækjum til heimilis- eru stolt af því að bjóða nú á íslandi þessi
nota. Black & Deckcr hafa yfirburðar mark- vönduðu tæki, frá framlciðanda, sem unnið
aðshlutdeild í heiminum á tækjum eins og hefur sér óbilandi traust í hugum (slendinga
t.a.m. þráðlausum handryksugum. á undanförnum áratugum.
Umboðsaðilar: Rafþjónusta Sigurdórs, SkagabrautB, Akranesi / Radlóvinnustotan Kaupangi v/Mýrarveg, Akureyri / Einar Stefánsson, Brekkuhvammi 12, Búðardal / Verslunin Ósbær, Pverbraut 1, Blónduósi,
Guðni E. Hallgrlmsson, Grundargötu 42, Grundarfirði / Grlmur og Árni, Túngötu 1, Husavfk / R. Ó. Rafbúð, Hafnargötu 52, Keflavlk / Kaupfélag Vestur-Húnvetninga, Hvammstanga / Húsið, Aðalgötu 63,
Stykkishólmi / Árvirkinn hf., Eyrarvegi 29, Selfossi / Rás, Raftækjaverslun, Selvogsbraut 4, Þorlákshöfn / Glóey hf., Ármúla 19 / Peran, Ármúla 32, / Ljðs og raftæki, Strandgötu 39, Hafnarfirði.