Morgunblaðið - 15.06.1989, Blaðsíða 43

Morgunblaðið - 15.06.1989, Blaðsíða 43
.4- MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 15. JÚNÍ 1989 43 Ljjósmynd/Pálmi Hilmarsson Jón Stefánsson söngstjóri leggur fólki sínu lífsreglumar fyrir tónleikana í Jc-rúsalem. Kór Langholtskirkju á tónleikaferð í Israel Messías fluttur í Jerúsalem að kvöldi páskadags. Um miðjan desembermánuð barst Kór Langholtskirkju boð um að koma til ísrael um páskana og flytja þar óratoríuna Messías eftir Hándel við undirleik innlendrar kammersveitar. Fyrirvarinn var stuttur og ýmsir vom vantrúaðir á að í tima tækist að safha nauðsynlegu íjámiagni til ferðarinnar. Samt var ákveðið að slá til, æfingar hófiist í byrjun janúar og um leið fór af stað öflug ijáröflun. Tíminn leið fijótt og fyrr en varði stóð kórinn á sviði hþ'ómleikahallar í Tel Aviv og flutti Messías fyrir fiillu húsi áheyr- enda. Kór Langholtskirkju hefur reyndar oft áður flutt Messías enda náðu sumir kórfélagar því að syngja verkið í 16. sinn í ísra- el. Nýir félagar voru þó að frum- syngja verkið og því þurfti að æfa það frá grunni. í febrúarlok kom Avner Biron, stjómandi ísraelsku kammersveit- arinnar, í stutta heimsókn til ís- lands til að fylgjast með æfingum og ráðfæra sig við Jón Stefáns- son, stjórnanda kórsins. Biron lagði fram drög að dagskrá, hug- myndir að skoðunarferðum og dagsetningar æfinga og hljóm- leika. Þá varð ljóst að ísraels- ferðin yrði erfið. Á tíu dögum skyldu haldnar þijár hljómsveita- ræfingar og fímm tónleikar og farið í þijár heils dags skoðunar- ferðir. Þrír einsöngvarar, ljórar einsöngsraddir Hluti kórfélaga hélt utan þann 16. mars og varði nokkrum dögum til að skoða Kairó, höfuðborg Egyptalands. Þann 21. mars hitt- ist svo allur kórinn á hóteli í strandborginni Nathanya sem er í 30 km fjarlægð frá Tel Aviv. Nathanya er vinsæ 11 ferðamanna- staður og miðstöð hins mikla dem- antaiðnaðar ísraela. Næsta kvöld var fyrsta æfingin með hljómsveit. Margir höfðu hlakkað til að sjá einsöngvarana sem aðeins voru þrír þrátt fyrir að verkið sé skrifað fyrir íjórar einsöngsraddir. Lori Corrsin frá Bandaríkjunum söng sópranrödd, Yaacov Zamir frá Israel söng bæði alt- og tenórrödd og Wolf Matthias Friedrich frá Austur- Þýskalandi söng baritónrödd. Frá upphafí skapaðist gott samband milli kórs og einsöngvara sem all- ir eru tónlistarfólk á heimsmæli- kvarða eins og reyndar flestir hljóðfæraleikaranna. Ákveðið hafði verið að Jón Stef- ánsson stjómaði fyrstu þremur tónleikunum en Avner Biron tveim þeim síðustu. Fyrstu tveir tónleikarnir voru í Tel Aviv og gengu vel. Messías hefur aðeins tvisvar áður verið fluttur í ísrael, fyrir allmörgum ámm. Viðtökur gyðinga þá vora heldur harkaleg- ar; í báðum tilfellum hentu áhorf- endur grænmeti og ávöxtum í flytjendur. Ástæða þessa var þó ekki slæmur flutningur heldur boðskapur verksins. Messías sæk- ir efnivið sinn að miklu leyti í Nýja testamentið sem ekki er hátt skrifað hjá strangtrúuðum gyðingum. Ýmsir töldu að sagan myndi endurtaka sig nú en svo varð ekki því viðtökur áheyrenda vora góðar. Fagnaðarlæti í Jerúsaiem Mest eftirvænting kórfélaga var bundin við þriðju tónleikana. Þeir vora haldnir í Jerúsalem að kvöldi páskadags og munu senni- lega seint gleymast þeim er fluttu. í tónleikahöllinni vora sæti fyr- ir 600 manns en alls 800 manns fylgdust með tónleikunum. Öll stæði vora fullskipuð og um 500 manns þurftu að snúa frá vegna plássleysis. I lok verksins bratust út mikil fagnaðarlæti og er hinn vel þekkti Hallelúja-kór var end- urfluttur stóðu áheyrendur upp og sungu með. Að tónleikunum loknum var Jóni Stefánssyni afhent sérstakt viðurkenningarskjal frá ferða- málaráðherra ísraels þar sem hann þakkaði kómum fyrir frammistöðuna. Engum duldist að þetta var hápunktur þessarar tónleikaferðar enda einstök reynsla að syngja þvílíkt verk í Borginni helgu á páskadag. Nú tók Avner Biron við stjóm- inni. Á einni æfingu með kór, hljómsveit og einsöngvuram gerði hann sínar breytingar á túlkun verksins og stjómaði síðan tveim- ur síðustu tónleikunum sem báðir vora haldnir í nágrenni Tel Aviv. Að loknum síðustu tónleikunum var haldið stutt hóf til heiðurs þeim er stóðu að þessari uppfærslu á Messíasi í Eftir það lá leið kórsins út á flug- völl með stuttri viðkomu á hótel- inu til að ná í farangurinn. Þar með lauk fyrstu tónleikaferð Kórs Langholtskirkju til ísraels, erfíðri á köflum en ógleymanlegri öllum er að henni stóðu. Texti: Helgi Þór Ingason Treysti mér til að syngja allar raddirnar — Rætt við einsöngvarana er sungu með Kór Langholtskirkju í ísrael Þeir einsöngvarar sem sungu með Kór Langholts- kirkju í ísrael eru allir at- vinnusöngvarar og tónlistar- fólk á heimsmælikvarða. Mesta athygli vakti þó ísra- elski söngvarinn. Hann söng bæði tenór- og altrödd og sýndi á æfingum að hann er feer um að syngja einnig sópr- an- og baritónröddina. Þessi fjölhæfi söngvari heitir Ya- acov Zamir. Aðspurður um hvort ekki væri erfitt að syngja tvær einsöngs- raddir í sama verkinu kvað Ya- acov svo ekki vera. „Það var erfitt að læra hvernig verkið skyldi sungið en eftir það var auðvelt að syngja það. Ég hef stefnt að því í þijú ár að syngja bæði tenór- og altrödd í Messíasi og er því vel undirbúinn." Yaacov sagðist hafa sungið allar raddir í verkinu. „Ég hef sungið alla parta í Messíasi, bæði fyrir kór og einsöngvara. Ég treysti mér til að syngja bæði baritón- og sópranrödd til viðbótar við tenór- og altrödd. Hinsvegar er baritónrödd mín heldur ljós og sópranröddin of dimm. Það er líka ekki ráðlegt að syngja á svo breiðu sviði því þá breytist röddin með tímanum. Til dæmis hefur tenórröddin mín breyst eftir að ég fór einnig að syngja altrödd og þróast í átt að henni.“ Barok með jasssveiflu Yaacov hefur mest gaman af að syngja 17. og 18. aldar tón- list, bæði barok og klassík. Ástæða þessa er það fijálsræði sem hölundar þessa tímabils gefa söngvuram í túlkun ver- kanna. „Ég hef mjög gaman af að spinna (innskot höfundar; „impróvísera") er ég syng. Frændi minn er góður jassklari- nettleikari og ég hreifst mjög fyrir nokkrum árum er ég heyrði hann leika barok með jasssveiflu. Ég nota hvert tækifæri sem gefst til að bæta við frá sjálfum mér eins og heyra má_ á nokkram stöðum í Messíasi. Ég veit aldrei fyrir fram hvað ég kem til með að syngja á slíkum stöðum, þetta kemur beint frá hjartanu. Það er sérstaklega í endurteknum köflum sem ég bæti við frá eigin bijósti enda tel ég að markmið höfundar með því að láta endur- taka kafla, sé að flytjendur geti breytt aðeins til. Við vitum líka að frægustu tónskáld 17. og 18. aldar vora frábærir sólistar. Þar má nefna Bach og Hándel. Þess vegna kýs ég miklu fremur að syngja verk frá þessu tímabili. Seinni tíma höfundar krefjast miklu meiri nákvæmni og veita flytjendum lítið sem ekkert fijálsræði.“ Yaacov hefur enn sem komið er lítið starfað utan heimalands síns en á næstunni verður breyt- ing þar á. „Ég fer til Evrópu í vor og vinn þar allt næsta ár. Þá er ég einnig í sambandi við fólk í Bandaríkjunum og reikna með að syngja einnig þar á næstu áram.“ Engin landamæri lengnr Wolf Matthias Friedrich barit- ónsöngvari er austur-þýskur og hefur búið þar lengst af. „Það er mjög erfitt að vera alþjóðlegur söngvari í Austur-Þýskalandi og í raun ekki nema fímm eða sex söngvarar þar sem geta talist alþjóðlegir. Til að komast í þann hóp þarf maður að leggja ýmis- legt á sig, vera félagi í kommún- istaflokknum og taka þátt í flokksstarfinu. I Austur-Þýska- Iandi er einungis ein umboðs- skrifstofa fyrir söngvara, hún er ríkisrekin og mönnum er óheim- ilt að semja á eigin vegum um að syngja erlendis. Nú er ég fluttur frá Austur-Þýskalandi, ég bý ekki lengur við óyfírstígan- leg landamæri og má syngja hvar sem er í heiminum." Wolf er vel kunnugur Messíasi því hann hefur sungið verkið 10 sinnum áður í heimalandi sínu. „Heima voru flestar uppfærsl- umar á Messíasi hraðar og mjög Frá vinstri: Wolf, Lori og Yaacov. nákvæmar. Þar vora sífellt gerð- ar tilraunir í flutningnum og með nýjum stjómanda kom alveg ný túlkun og ný viðhorf. Þessi upp- færsla hér í ísrael er að ýmsu leyti íhaldssamari en aðrar sem ég hef tekið þátt í. Mér hefur þótt ákaflega gaman að syngja verkið núna, bæði að vinna með svo mörgu góðu tónlistarfólki og að umgangast svo skemmtilegan hóp. Mér þykir mest um vert að hér hefur verið lögð áhersla á tónlistargleði fremur en ná- kvæmni. Okkur hefur öllum þótt gaman að syngja og þannig á það líka að vera. Boðskapur verksins kemst miklu betur til skila ef menn hafa gaman af að flytja það.“ Betra í hvert sinn Lori Corrsin sópransöngkona hefur oft áður sungið Messías í heimalandi sínu, Bandaríkjun- um. Hún var ánægð með flutning verksins í ísrael. „Mér þótti mjög gaman að syngja Messías í Jerúsalem, það var mjög sérstakt og áhrifamik- ið. Það var alls ekki erfitt að taka þátt í þessari töm þó að við hefðum fimm tónleika og þijár æfíngar á tíu dögum. Mér fannst verkið verða betra og betra í hvert skipti." Avner Biron var á sama máli. Hann er stofnandi og stjómandi Rehovot-kammersveitarinnar er lék undir í verkinu og sjálfur stjómaði hann kór og hljómsveit á tveimur síðustu tónleikunum. „Ég er mjög ánægður og mér fínnst tónleikamir hafa verið hver öðrum betri. Kórinn lætur vel að stjóm, ég breytti ýmsu eftir að ég tók við stjóminni af Jóni en allar mínar breytingar komust vel til skila. Mestu skipt- ir að allir voru glaðir og nutu þess af heilum hug að syngja."
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.