Morgunblaðið - 13.12.1989, Page 2
2
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 13. DESEMBER 1989
Sjóvá-Al-
mennar eign-
ast 2,4% í
Flugleiðum
SJOVÁ-Almennar tryggingar hf.
hafa keypt 2,4% hlut í Flugleiðum
hf. af Orlofshúsum hf. og eiga nú
4,3% í félaginu. Naftiverð hluta-
bréfanna er 26 milljónir króna,
en miðað við skráð gengi á hluta-
bréfamarkaði eru bréfin um 40
milljóna virði. Einar Sveinsson
framkvæmdastjóri Sjóvár-
Almennra segir að kaupverðið
hafi verið samkvæmt samkomu-
lagi og að jafníraint hafi verið
samkomulag um að gefa það ekki
upp;
Einar segir að ástæður kaupanna
séu fyrst og fremst að Sjóvá-Almenn-
ar telji þessa fjárfestingu góða. „Við
höfum trú á því að þetta félag eigi
eftir að standa til framtíðar og þetta
sé því góð fjárfesting."
Hann segir ekki hafa verið rætt
né skoðað, hvoft Sjóvá-Almennar
muni fá mann í stjórn Flugleiða eft-
ir þessi kaup. Ekki er um að ræða
stefnu, af hálfu Sjóvár-Almennra,
að kaupa hlut í öðrum fyrirtækjum,
að sögn Einars. „Við eigum í þremur
félögum eitthvað sem heitið getur.
Það eru Eimskip, Grandi og Flugleið-
ir.“ Hann segir að kaup sem þessi
verði skoðuð, eins og í þessu tilviki,
þegar þau bjóðast.
Ekki náðist í Ólaf Agnar Jónasson
stjómarformann Orlofshúsa og
Kristjana Milla Thorsteinson stjóm-
armaður vildi ekki tjá sig um ástæð-
ur sölunnar né heldur um hve stóran
hlut Orlofshúsa væri að ræða.
Svona
erlífið
Lýst eftir stutt-
um lífsreynslu-
sögum
MORGUNBLAÐIÐ hefiir í
hyggju að birta í gamlárs-
dagsblaði sínu stuttar
lífsreynslusögur, skondnar
og/eða alvarlegar, sem koma
upp í huga fólks þegar litið
er yfir farinn veg.
Blaðið fer þess á leit við les-
endur að þeir sendi inn slíkar
frásagnir með fullu nafni og
heimilisfangi. Þær skal stíla á:
Ritstjóm Morgunblaðsins,
„Svona er lífið“, Aðalstræti 6,
101 Reykjavík. Hámarkslengd
er eitt vélritað blað í aðra hverja
línu (A-4). Skilafrestur er til 22.
desember. Morgunblaðið áskilur
sér rétt til að ritstýra efninu.
MorgunbladiðÁmi Sæberg
20 milljónir bréfa íjólamánuðinum
ALLS fara um 20 milljónir bréfa og hátt í 150.000
bögglar um póststofumar í Reykjavík á leið sinni
til viðtakenda á íslandi og í útlöndum í desember.
Frestur til að senda bréf og böggla með flugpósti
til Evrópulanda rennur út 14. desember vilji sendend-
ur tryggja að sendingamar skili sér fyrir jól. Frest-
ur til að senda póst utan Evrópu rann út 11. desem-
ber. Jólabréf og kveðjur til viðtakenda innanlands
þarf að póstleggja í síðasta lagi 18. desember.
Bjöm Bjömsson, póstmeistari í Reykjavík, sagði
að fjöldi bréfa og böggla væri svipaður og á sama
tíma undanfarin ár en þó væra bögglar frá fyrirtækj-
um til starfsmanna öllu færri en áður og kenndi
hann samdrætti í þjóðfélaginu um það.
350 manns em við útburð á vegum póststofanna
í Reykjavík auk 180 skólanema sem bæst hafa í
hóp póstburðarmanna.
Bjöm reiknaði með að hátt í 4 milljónir jólakorta
yrðu send innanlands um þessi jól.
Vísitala fram-
færslukostn-
aðar hækkar
um 2,2%
Verðbólgan um 25%
VÍSITALA framfærslukostnað-
ar hækkaði um 2,2% frá nóvem-
ber til desember og hefiir þá
hækkað um 5,7% siðastliðna
þijá mánuði eða um 24,9% um-
reiknað t.il heils árs, að því er
fram kemur í frétt frá Hagstofu
íslands. Hækkun vísitölunnar
síðustu 12 mánuði hefiir verið
svipuð eða 25,2%.
Verð á áfengi hækkaði um 5,8%
og á tóbaki um 6,4% og olli það
0,2% hækkun á vísitölunni. Verð
á bensíni hækkaði um 3,6% og
hafði það einnig í för með sér 0,2%
hækkun. Af öðrum verðhækkun-
um má nefna að 2,5% hækkun á
fatnaði olii um 0,2% hækkun og
1,8% hækkun húsnæðiskostnaðar
olli einnig 0,2% hækkun, en 1,9%
hækkun á mat- og drykkjarvörum
olli 0,4% hækkun. Verðhækkun
ýmissa annarra vöra- og þjónustu-
liða olli alls um 1,0% hækkun á
vísitölu framfærslukostnaðar.
Gjaldþrot Lindalax:
Skuldir nema tæplega
einum milljarði króna
Um 500 milljónir taldar tapaðar
ÓSK Lindalax hf. um gjaldþrotaskipti var samþykkt í skiptarétti
Gullbringusýslu í gær. Skuldir þrotabúsins nema tæpum 1.000 millj-
ónum króna en óvíst er hvers virði eignir eru þar sem þær eru að
stórum hluta fískur í eldisstöð fyrirtækisins. Er gert ráð fyrir að tap
vegna gjaldþrotsins verði um 500 milljónir. Iðnaðarbankinn og Den
Norske Kreditbank, sem eru stærstu kröfuhafar auk Iðnþróunar-
sjóðs, hafa ábyrgst rekstur stöðvarinnar á meðan kannað er hvort
hægt er að koma eldisfiskinum í verð.
til 10. desember til að skoða málið.
Þá lá fyrir að ekki yrði hægt að
uppfylla skilyrðin og því var óskað
eftir gjaldþrotaskiptum.
Lindalax var stærsta laxeldis-
stöðin hérlendis. Helstu hluthafar í
fyrirtækinu voru norskt fyrirtæki,
Seafood Development sem átti um
49% hlutafjár, og landeigendur á
Vatnsleysuströnd.
Búsljórar þrotabúsins voru skip-
aðir Ingi H. Sigurðsson og Jón G.
Briem.
Samkvæmt upplýsingum Péturs
Guðmundarsonar lögmanns, sem
aðstoðaði stjóm Lindalax hf. á
greiðslustöðvunartímanum, era
veðskuldir búsins um 750 milljónir
en almennar ótryggðar kröfur um
210 milljónir króna. Almennir
kröfuhafar eru um 190 talsins.
Pétur sagði að eignir búsins, auk
mannvirkja, væra um 570 tonn af
eldisfiski á ýmsum vaxtarstigum í
strandeldisstöð á Vatnsleysuströnd,
og erfitttværi að segja til um verð-
mætið. Sama mætti segja um verð-
mæti mannvirkjanna.
Lindalax fékk greiðslustöðvun
27. september sl. Pétur Guðmund-
arson sagði, að ljóst hafi verið að
endurskipulagning næðist ekki
nema inn kæmi nýtt fé í félagið.
Viðræður hefðu hafist milli stærstu
hluthafanna og bankanna um að-
gerðir til að bjarga félaginu og
hefðu báðir aðilar verið tilbúnir til
að leggja fram fé gegn ákveðnum
skilyrðum. Þegar þessi skilyrði
komu endanlega fram, í upphafi
desember, tóku báðir aðilar sér frest
* >
Alyktun framkvæmdastjórnar VMSI:
Ekki liðið að atvinnu-
leysi verði viðvarandi
VERÐLAGSHORFUR framundan
voru meginefhi fundar Alþýðu-
sambands Islands og vinnuveit-
enda í gærmorgun og í dag munu
hagfræðingar aðila funda með
Stéttasambandi bænda um það
sem framundan er varðandi bú-
vöruverð. Þá er einnig í athugun
Læknar í Reykjavík mótmæla
frumvarpi um heilsugæslu
FULLTRÚAR lækna á höfuðborgarsvæðinu afhentu forseta samein-
aðs Alþingis í gær mótmæli 343 lækna gegn nýju lagafrumvarpi
heilbrigðisráðherra um heilbrigðisþjónustu. Segja læknarnir að í
frumvarpinu felist stóraukin mlðstýring og ríkið sé að yfirtaka rekst-
ur heilbrigðisþjónustunnar í landinu.
Læknarnir gagnrýna einnig und-
irbúning framvarpsins. Olafur F.
Magnússon heimilislæknir, einn
þeirra sem gengu á fund forseta
Alþingis, sagði við Morgunblaðið
að hann teldi það hneyksli að þetta
mál hafi í langan tíma verið til
umsagnar hjá ýmsum aðilum, öðr-
um en læknafélögunum, þó ljóst sé
að þeir síðastnefndu hafi langbesta
yfirsýn og þekkingu til að fjalla um
frumvarpið.
í erindi til Alþingis segjast lækn-
arnir lýsa sérstaklega andstöðu
sinni við áform um að afnema sjálf-
stæða starfsemi heimilislækna enda
telji þeir fólkið í landinu eiga að
hafa valfrelsi í heilbrigðisþjónustu.
í frumvarpinu er m.a. gert ráð
fyrir að í Reykjavík verði starfrækt-
ar 13 heilsugæslustöðvar og er
borginni skipt í jafnmörg svæði.
Ólafur F. Magnússon sagðist telja
að hverfaskipting í Reykjavík ætti
fyrst og fremst við um heilsuvemd-
arþáttinn en ekki almenna læknis-
þjónustu. Hann sagði að ef fara
ætti strangt eftir þessu ákvæði
þyrfti að reisa 8 nýjar heilsugæslu-
stöðvar í Reykjavík og kostnaður
yrði væntanlega um 2 milljarðar
króna. Þetta ætti að gera þótt nóg
væri af heimilislæknum í Reykjavík
sem veittu nú þegar meirihluta
Reykvíkinga ágæta læknisþjónustu.
Framvarpið þýddi því útgjaldaauka
án þess að bæta þjónustu, sem
væri í miklu ósamræmi við yfirlýs-
ingar um sparnað í heilbrigðiskerf-
inu.
Þá sagði Ólafur lækna hafa mikl-
ar áhyggjur af afdrifum Heilsu-
vemdarstöðvar Reykjavíkur sem
væra með öllu óljós í frumvarpinu.
Ef flytja ætti berklavamarstöðina
og húð- og kynsjúkdómadeild þaðan
yrði það hreinasta afturför í lækn-
ingum, samfara miklum kostnaðar-
auka.
í erindi læknanna til Alþingis
segja þeir það vera glapræði ef all-
ir meðlimir heilbrigðismálaráða
læknishéraða verði skipaðir af ráð-
herra eins og lagt sé til í frum-
varpinu. Þá lýsa læknamir and-
stöðu sinni við þá tillögu að afnema
heimild ráðherra til að gera sam-
komulag við aðila utan ríkisins um
rekstur heilbrigðisstofnana. Segjast
læknamir ekki sjá. ástæðu til að
binda í lögum bann við fijálsum
atvinnurekstri á íslandi.
hvaða hækkanir á gjaldskrá opin-
berrar þjónustu kunni að vera
framundan. Nýr fiindur aðila hef-
ur verið boðaður á morgun,
fimmtudag.
IVamkvæmdastjórn Verkamanna-
sambands Islands sendi frá sér álykt-
un í gær þar sem segir að verkalýðs-
hreyfingin muni aldrei líða það að
atvinnuleysi verði viðvarandi ástand
hér á landi. Þá er varað við hávaxta-
stefnunni og sagt að ein aðalorsök
þeirrar kreppu sem atvinnulífið eigi
nú við að stríða sé verðbólga og
okurvextir.
„Lækkun vaxta og hjöðnun verð-
bólgu er því skjótvirkasta aðferðin
til að hjól atvinnulífsins fari að snú-
ast á ný af fullum krafti. Fram-
kvæmdastjóm VMSI telur að í kom-
andi kjarasamningum verði að fara
nýjar leiðir. Lækkun verðlags meðal
annars með endurskoðun á fyrir-
komulagi á ákvörðun verðs land-
búnaðarvara verður að vera þýðing-
armikill þáttur í samningunum ásamt
samvirkum aðgerðum' verkalýðs-
hreyfingar, atvinnulífs og stjóm-
valda í því skyni að stöðva kaup-
máttarhrapið, lækka verðbólgu og
hefja nýja sókn á sviði atvinnumála
og lífskjarajöfnunar." Einar Oddur
Kristjánsson, formaður VSI kom á
fund framkvæmdastjómar VMSÍ og
ræddi horfumar í kjara- og þjóðmál-
um. Er það í fyrsta skipti sem for-
maður VSÍ kemur á fund stjómar
VMSÍ.