Morgunblaðið - 13.12.1989, Síða 13
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 13. DESEMBER 1989
13
Alvarlegt óréttlæti
eftirFriðrik
Sophussoii
Hinn 5. desember ákvað ríkis-
stjórnin að hækka vexti af lánum
úr Byggingasjóði ríkisins úr 3,5%
í 4,5%. Vaxtahækkunin nær aðeins
til þeirra lántakenda, sem ekki
höfðu leyst til sín lánin 5. desem-
ber eða fyrr. Miklar umræður urðu
um þetta mál á Alþingi sl. laugar-
dag. í þeim umræðum kom eftir-
farandi m.a. fram:
1. Efast var um lögmæti þess
að láta vaxtabreytingar aðeins ná
til hluta þeirra, sem tekið hafa lán
í sama lánaflokki á sömu kjörum
á grundvelli sömu laga.
2. Ríkisstjórnin fór hvorki að
tillögum húsnæðismálastjómar né
umsögn Seðlabankans, en í lögun-
um er henni skylt að leita tillagna
og umsagnar þessara aðila. Hús-
næðisstjóm lagði til óbreytta
vexti. Seðlabankinn taldi rétt að
vaxtahækkunin yrði 1% á nýjum
lánum í lánaflokknum, en 0,5%
hækkun á eldri lánum.
3. Ekki er meirihluti á Alþingi
fyrir ákvörðun ríkisstjómarinnar.
Stjórnarandstöðuflokkamir styðja
hana ekki. Borgaraflokkur og
Framsóknarflokkur hafa lýst yfir
andstöðu sinni. Einnig er vitað um
andstöðu einstakra þingmanna í
Alþýðuflokki og Alþýðubandalagi
við þessa ákvörðun, sem er þess
vegna óþingræðisleg.
4. Ráðherra ber fyrir sig, að
ákvörðunin um það að á láta vexti
aðeins hækka á nýjum lánum sé
byggð á samningi ríkisstjómarinn-
ar og Kvennalistans frá 1. maí sl.
Kvennalistaþingmenn hafa lýst því
yfir, að ríkisstjórnin hafi ekki
staðið við samninginn og Kvenna-
listinn sé á móti vaxtahækkuninni.
5. Ráðherra hélt því fram með
tilvísun í lögfræðilegt álit, að
ákvörðunin sé ekki brot á jafnræð-
isreglunni, enda geti ríkisstjómin
á faglegum, málefnalegum sjónar-
miðum breytt vöxtum á tilteknum
lánum innan lánaflokksins, nái
breytingin til allra einstakíinga,
sem fengið hafa lán innan sömu
tímamarka. Þetta þýðir í raun, að
ráðherrann telur sig t.d. geta
hækkað (eða lækkað) vexti ein-
göngu á þeim lánum, sem tekin
vom á fyrri hluta ársins 1988, ef
hækkunin (eða lækkunin) nær til
allra afgreiddra lána á þeim tíma.
6. Hugtakið „afturvirkni" þýðir
ekki, að útilokað sé að ný vaxta-
ákvörðun nái til þegar tekinna
lána. Breytingin er ekki afturvirk,
ef þess er gætt að ákvörðunin um
breytta vexti gildi frá ákvörðunar-
degi eða síðari dagsetningu. Ekki
skiptir máli í því sambandi hvort
lánin, sem vaxtabreytingin nær
til, em gömul eða ný.
Breytilegir vextir
Vextir af lánum Byggingasjóðs
ríkisins hafa skv. lögum verið
ákveðnir af ríkisstjóm frá miðju
ári 1984. Fyrstu árin var gert ráð
fyrir að vextir yrðu ákveðnir einu
sinni á ári að fengnum tillögum
húsnæðismálastjómar og umsögn
Seðlabankans. Þessu var breytt á
miðju ári 1986 með nýjum lögum
í tengslum við Iq'arasamninga, en
þá var samið um skuldabréfakaup
lífeyrissjóða, enda nytu aðilar að
lífeyrissjóðunum sérstakra láns-
réttinda hjá Byggingasjóðum. í
lögunum frá árinu 1986 var sér-
staklega tekið fram, að „vextir af
lánum Byggingasjóðs ríkisins
skulu vera breytilegir“. Þáver-
andi ríkisstjóm ákvað vaxtahlut-
fallið 3,5% og lofaði að hækka
ekki vextina þann tíma, sem eftir
lifði kjörtímabilsins.
Sá, sem þessar línur ritar, var
formaður þeirrar þingnefndar í
neðri deild Alþingis, sem fjallaði
um málið, þegar frumvarpið var
samþykkt vorið 1986. í nefndinni
sat m.a. Jóhanna Sigurðardóttir
núverandi félagsmálaráðherra.
Undirritaður telur augljóst, að
orðalagið „breytilegir vextir“ hafi
verið sett í lögin til að ríkisstjórn-
in gæti á hveijum tíma ákveðið
vexti með hliðsjón af annars vegar
almennum vaxtakjörum og hins
vegar vaxtakjömm, sem um semd-
ist milli ríkisstjómar og lífeyris-
sjóðanna, því að ríkissjóður verður
að standa straum af útgjöldum
vegna vaxtamunarins.
Beðið eftir kerfisbreytingu
Fljótlega eftir að ríkisstjórn
Þorsteins Pálssonar var mynduð
vom hugsanlegar vaxtabreytingar
ræddar í stjórninni. Jóhanna Sig-
urðardóttir taldi rétt að bíða með
slíka ákvörðun, þar til tillögur
lægju fyrir um kerfisbreytingu,
sem gæti dregið úr ásókn í lán
úr Byggingasjóðunum. Hún taldi
að tillögur gætu legið fyrir eftir
örfáa mánuði. Málið tafðist von
úr viti og kerfisbreytingin (Hús-
bréfakerfið) átti sér ekki stað fyrr
en rúmum tveimur ámm síðar.
Óréttlát ákvörðun
Ákvörðun ríkisstjómarinnar er
að mínu mati ólögmæt og augljós-
Friðrik Sophusson
„Ákvörðun ríkisstjórn-
arinnar er að mínu
mati ólögmæt óg aug-
ljóslega óréttlát. Þeir,
sem lengst hafa þurt't
að bíða eftir lánum, eru
einir látnir axla aukna
vaxtabyrði. Þetta fólk
hefur þurft að fjár-
magna íbúðarkaup sín
á almennum lánsfjár-
markaði, þar sem vextir
eru mun hærri en vext-
ir Byggingasjóðsins.“
lega óréttlát. Þeir, sem lengst
hafa þurft að bíða eftir lánum, eru
einir látnir axla aukna vaxtabyrði.
Þetta fólk hefur þurft að fjár-
magna íbúðarkaup sín á almenn-
um lánsfjármarkaði, þar sem vext-
ir em mun hærri en vextir Bygg-
ingasjóðsins. Rikisstjómin heldur
því fram að vextir séu almennt
að lækka. Þeir hafi verið hæstir
síðari hiuta ársins 1987 og árið
1988. Það veldur því furðu að
ríkisstjórnin skuli nú hækka vexti
eingöngu á þeim lántakendum,
sem hafa beðið eftir lánum Bygg-
ingasjóðsins allan þennan tíma og
þurft að taka skammtímalán til
að fjármagna íbúðarkaup, þegar
vextir vom hæstir. Til að kóróna
óréttlætið frysti ríkisstjómin um
tíma hluta af fjármagni Bygginga-
sjóðsins í stað þess að stytta bið-
röðina eftir lánum.
Óvissa á fasteignamarkaði
Ákvörðun ríkisstjórnarinnar
byggist á þeim lagasjónarmiðum,
að hún geti breytt vöxtum innan
sama lánaflokks á tilteknum lán-
takendum, þótt sömu lög gildi um
vaxtaákvarðanir og skuldabréfin
séu nákvæmlega eins orðuð. Slíkt
veldur veralegri óvissu á fast-
eignamarkaðinum, þar sem ljóst
er, að vaxtahlutfall áhvílandi lána
hefur áhrif á kaupverð íbúða.
Ekki er lengur hægt að treysta
því, að lánskjör samskonar lána í
sama lánaflokki á gildistíma sömu
lagaákvæða séu jöfn.
Á gmndvelli þeirra sjónarmiða,
sem hér hafa verið rakin, er ein-
sýnt, að það er skylda ríkisstjóm-
arinnar að endurskoða ákvörðun-
ina frá 5. desember. Ráðherra,
sem telur sig jafnaðarmann og á
sæti í ríkisstjórn, sem kennir sig
við jafnrétti, hlýtur að hugsa sitt
ráð, þegar slík slys eiga sér stað.
Höfundur er einn af
alþingismönnum Sjálfstæðisflokks
fyrir Reykjavíkurkjördæmi.
UNGLINGAR GEGN
HLJÓMLEIKAR
LAUGARDALSHÖLL
FOS.l5.DES. KL. 2/L-OO
MIÐAVERÐ 1500 KR.
u cæ x
+ LAMARHIR
FORSALA AÐGÖNGUMIÐA:
SKÍFAN ■ GEISLI • GRAMMIÐ
STEINAR AUSTURSTRÆTI 22