Morgunblaðið - 13.12.1989, Síða 32
32
MORGUNBLAÐIg MIÐVIKU.DAQUR 13, DESEMBER 1989
Þrotabú Vinkils:
Viljum ekki missa
reksturmn úr bænum
- segir Hólmsteinn Hólmsteinsson
formaður atvinnumálanefndar
BÚSTJÓRI þrotabús Vinkils sf. á
Akureyri hefur sent atvinnumála-
nefnd bréf þar sem m.a. er beðið
um að nefndin fjalli um málið og
hugsanlegar leiðir til að koma
rekstrinum í gang. Starfsmenn
atvinnumálanefhdar eru nú að
skoða þetta mál.
Vilji er fyrir því innan atvinnu-
málanefndar að halda rekstrinum
gangandi og sagði Hólmsteinn Hólm-
steinsson formaður nefndarinnar að
málið yrði skoðað i samvinnu við
bústjóra og aðra sem því tengjast.
Hólmsteinn sagði að reynt yrði að
koma saman einhverjum sem tekið
gætu að sér reksturinn. „Við munum
leita allra leiða til að koma rekstrin-
um í gang aftur og höfum falið okk-
ar starfsmönnum að kanna hvaða
leiðir eru færar í því sambandi. Menn
vilja ekki missa þennan rekstur úr
bænum,“ sagði Hólmsteinn.
Asgeir Björnsson bústjóri vildi
ekki tjá sig um þessi mál í gær, en
samkvæmt heimildum Morgunblaðs-
ins er komið fram tilboð í fasteign
fyrirtækisins, vélar og tæki og að
því standa heimamenn og aðilar úr
Eyjafirði.
Grímsey:
Net tekin upp
HAFÍSINN hefur verið að nálg-
ast Grímsey síðustu daga og á
sunnudag voru net þeirra
tveggja báta sem verið höfðu á
netum tekin upp.
Bára Sævaldsdóttir fréttaritari í
Grímsey sagði að línubátar hefðu
verið á sjó í gær, en íshrafl væri
umhverfis eyjuna og stakir jakar á
reki. Austanáttin var ríkjandi í
gær, en Bára sagði að ef brygði til
norðlægra átta mætti búast við að
ísinn ræki alveg upp að eyjunni og
væru bátaeigendur viðbúnir því að
taka báta sína upp á land.
ar Bóasdóttur, en Guðrún A. Krist-
insdóttir raddþjálfaði kórana og leik-
ur jafnframt undir á píanó.
Karlakór Akureyrar héit fyrstu
lúsíuhátíðina fyrir 42 árum og hefur
síðan staðið fyrir slíkum hátíðum,
nú í samvinnu við Karlakórinn Geysi,
en lúsíuhátíðin hefur átt sívaxandi
vinsældum að fagna.
Akureyri
íþróttakennari
Vegna forfalla vantar íþróttakennara í
heila stöðu við Síðuskóla frá áramótum.
Um er að ræða 33ja stunda kennslu í
íþróttum og sundi.
Nánari upplýsingar gefur skólastjóri,
Jón Baldvin Hannesson, í síma
96-22588.
Akureyrarbær
Öldrunarþjónusta
HJÚKRUHARFRiEDINGAR
Viö viljum ráða hjúkrunarfræðinga nú þegar eða
eftir samkomulagi einkum á helgar- og nætur-
vaktir.
SJÚKRALIDAR
í ársbyrjun 1990 vantar okkur sjúkraliða bæði í
fullt starf og hlutastöður. Umsóknarfrestur er til
30. desember. Komið og kynnið ykkur starfsemi
heimilisins.
Nánari upplýsingar veitir hjúkrunarforstjóri í síma
96-27930 alla virka daga frá kl. 08.00-16.00.
Hjúkrunarheimilið Hlíð.
Morgunblaðið/Rúnar Þór
Atvinnuástand í Hrísey hefur verið gott og verður full vinna i eynni fram til jóla. í gærmorgun var
unnu þær Erna, Lóa og Vera hjá Rifí hf. við að beita, en Svanur, bátur fyrirtækisins er nú á línu.
Hrísey:
Mikil atvinna og fólki boðið að
vinna í fiski milli jóla og nýárs
Akureyrarkirkja:
Lúsíuhátíð í kvöld
Lúsíuhátíð Karlakórs Akureyrar og Karlakórsins Geysis verður í Akur-
eyrarkirkju í kvöld, miðvikudagskvöld og hefst hún kl. 20.30. Lúsíuhát-
íðin verður síðan endurtekin næstkomandi laugardagskvöld, einnig í
Akureyrarkirkju kl. 20.30.
Flytjendur á Lúsíuhátíðinni eru
karlakóramir tveir, undir stjóm Mic-
haels Clarkes, kór Bamaskóla Akur-
eyrar undir stjðm Birgis Helgasonar,
í hlutverki lúsíunnar er Margrét Bó-
asdóttir, Strengjasveit Tónlistarskóla
Akureyrar leikur og Bjöm Steinar
Sólbergsson leikur einleik og annast
undirleik. Lúsíurnar mynda kvenna-
kór sem syngur undir stjórn Margrét-
NÆG atvinna er í Hrísey og svo hefúr verið í allt haust. Unnið verð-
ur alla næstu viku i fískvinnslu hjá þeim fyrirtækjum sem hana
stunda. Þá verður því fólki sem vill boðið upp á að vinna á milli jóla
og nýárs, m.a. að ýmsum verkefnum sem ekki heftir legið á. Súlna-
fell kemur úr síðustu veiðiferð sinni á næsta mánudag og verður
aflinn unnin næstu viku. Þá fískar Frosti frá Grenivík kvóta fyrir
Borg hf. og Svanur, bátur Rifs hf. er á línu og hefur fengið nokkuð
þokkaiegan afla.
Oli Bjömsson verkstjóri hjá Rifi
hf. sagði atvinnuástand gott og svo
hefði verið allt frá því í sumar. Rif
hf. gerir út Svan EA sem er um
60 tonn að stærð og er hann nú á
línu. Um 8-10 manns vinna við
beitingu, en aflinn er unninn í salt
og í salthúsi vinna 7 menn. ,,Þetta
er svona reytingur," sagði Oli að-
spurður um aflabrögð. Svanur hefur
verið að fá þetta 4-5 tonn í róðri
undanfarið. I salthúsinu hefur verið
unnið alla laugardaga í nóvember
og það sem af er desember og þá
hefur skólafólk gengið til liðs við
þá Rifsmenn. „Það hefur verið mik-
ið að gera hérna síðan báturinn fór
á línu,“ sagði Óli.
Hjá Borg hf. hefur einnig verið
nóg að gera undanfarið, en þaðan
eru gerðir út bátamir Eyborg og
.ísborg. Báðir bátarnir eru á rækju
og landa aflanum á Blönduósi, en
Frosti EA frá Grenivík er að veiða
Plasteinangrun:
Skiptaráðandi óskar
eftir viðbótargögnum
ARNAR Sigfússon skiptaráðandi bæjarfógetaembættisins á Akureyri
sendi forráðamönnum Plasteinangrunar hf. bréf í gærmorgun þar sem
hann óskaði eftir að fá í hendur ítarlegri gögn varðandi stöðu fýrirtæk-
upp í kvóta Borgar og landar aflan-
um í Hrísey. Frosti er á línu og
segir Jóhann Sigurðsson verkstjóri
að aflinn hafi verið þokkalegur.
Um 10 manns vinna við saltfisk-
verkun hjá Borg og verður unnið
þar alla næstu viku. Jóhann sagði
að það fólk sem vildi, gæti fengið
vinnu milli jóla og nýárs.
Súlnafellið kemur úr sinni síðustu
veiðiferð næstkomandi mánudag,
og verður aflinn unninn hjá frysti-
húsi KEA í Hríey í næstu viku.
Eftir það verður fólkinu boðið upp
á að taka launalaust leyfi fram
yfir áramót, en Magnus Mikaelsson
verkstjóri sagði að þeir sem vildu
gætu fengið vinnu milli jóla og
nýárs. „Það á eftir að pakka haus-
um og þunnildum og gera ýmislegt
sem ekki hefur legið á og við höfum
ekki látið vinna í eftirvinnu. í frysti-
húsinu vinna 30-35 manns. „Við
hefðum gjarnan viljað hafa meiri
kraft í þessu, þetta hefur gengið í
öðnim gír, en menn vilja gjarnan
vera í fimmta," sagði Magnús.
Eins og fram kom í frétt í blaðinu
í gær rann fimm mánaða greiðslu-
stöðvun Plasteinangrunar út ' á
sunnudag og hefur félagið lagt inn
beiðni um heimild til að leita nauða-
samninga. Skiptaráðandi hefur farið
yfir gögn frá fyrirtækinu og hann
hefur nú óskað eftir ýmsum við-
bótargögnum.
Frestur félagsins til að skila inn
þessum gögnum er til mánudags í
næstu viku og fyótlega eftir það mun
verða tekin til þess afstaða hvort
félaginu verði heimilt að fara þessa
leið.
Atvinnumálanefiid:
Tilbúin að styrkja verkefni
á sviði fiillvinnslu sjávarafla
FULLVINNSLA sjávarafla var til umræðu á fúndi sem atvinnumála-
nefnd efndi til með fulltrúum nokkurra stærstu fyrirtækja á þessu sviði
á Akureyri. Engar ákvarðanir voru teknar um framhald málsins, en
atvinnumálanefnd lýsti sig reiðubúna til að styrkja slíkan iðnað og
jafnvel taka þátt í slíkum verkeftium væri vilji fyrir hendi hjá þessum
aðilum.
Hólmsteinn Hólmsteinsson for-
maður atvinnumálanefndar sagði að
málin hefðu verið rædd vítt og breitt.
„Við boðuðum aðallega til þessa
fundar til að heyra sjónarmið manna
og láta það koma skýrt í ljós að við
værum tilbúnir að aðstoða ef hug-
myndir af þessu tagi eru í gangi í
fyrirtækjunum," sagði Hólmsteinn.
Á fundinn komu Kristján Jónsson
frá Niðursuðuverksmiðju K. Jónsson
og Co, Gunnar Ragnars og Ásgeir
Amgrímsson frá Útgerðarfélagi Ak-
ureyringa, Þorsteinn Már Baldvins-
son frá Samheija og Kristján Ólafs-
son sjávarútvegsfulltrúi Kaupfélags
Eyfirðinga.
Hólmsteinn sagði að verið væri
að vinna að þessum málum á einn
eða annan hátt hjá umræddum fyrir-
tækjum og hjá K. Jónsson hefði til
að mynda verið unnar afurðir beint
á neytendamarkað. „Menn eru nú
að hugsa málið hver í sínu lagi og
við bíðum eftir að heyra hvað kemur
út úr því.“
Steinþór Siguijónsson
Lést af
slysforum
MAÐURINN, sem lést eftir
vinnuslys í verksmiðju Sana
á fdstudag, hét Steinþór Sig-
uijónsson.
Steinþór var 37 ára gamall,
til heimilis að Álfabyggð 8.
Hann lætur eftir sig eiginkonu
og þijú börn.