Morgunblaðið - 13.12.1989, Page 35
MÓRGU ftéÍLXáíÐ' iiá)fv&utíÁbt(ftYíé. foéSfíifiáSW^i^ M
35K
Málfríður Jörgen-
sen - Minning
Fædd 25. maí 1934
Dáin 4. desember 1989
Hve sæl, ó hve sæl er vor leikandi lund:
en lofaðu engan dag fyrir sólarlagsstund.
(M. Joch.)
Tilveran er undarleg í marg-
breytileik sínum. Vinir heilsast og
kveðjast — leiðir liggja saman eða
skilja án þess að við veitum því
sérstaka athygli í dagsins önn, þar
til við skyndilega emm vakin upp
við leiðarlok sem enginn fær ráðið.
Mismunandi er, hve sterkum til-
finningaböndum samferðamenn
tengjast á lífsleiðinni, en traustustu
böndin bindum við oftast á unga
aldri. Þau kynni verða sem óijúfan-
legur hluti tilverunnar. Þá bindast
þau bönd sem hvorki tími né fjar-
lægð fá rofið.
Mannleg samskipti virðast stöð-
ugt á undanhaldi í samfélaginu en
einmitt þess vegna er dýrmætt að
vita af gömlum vinum og ættingjum
og eiga þá að þegar á reynir, vita
að hægt er að leita þá uppi þegar
tími og tækifæri leyfa og taka upp
þráðinn að nýju. En oft er stundin
skemmri en við ætlum.
Þetta kemur okkur í hug þegar
við kveðjum Málfríði Jörgensen.
Efst í huga er söknuður og sjálfs-
ásökun, að hafa ekki betur varð-
veitt gömul kynni og launað hlýhug
og tryggð.
Sem barn og unglingur var
Málfríður heimagangur á hgimili
foreldra okkar. Hún ólst að nokkru
leyti upp hjá föðursystur okkar,
Sesselju Sigmundsdóttur, ásamt
tveimur systkinum sínum. Hún
stendur fyrir hugskotssjónum, fal-
legri en aðrar stúlkur, fyrirmynd
sem rnaður vildi líkjast.
Hún var við nám í húsmæðra-
skólanum í Hveragerði einn vetur
á unglingsárum og var það henni
dýrmætur tími. Þar eignaðist hún
góðar vinkonur og þar fengu gáfur
hennar og hæfileikar að njóta sín.
Meðal annars var hún mikil sund-
kona og keppti fyrir hönd Skarp-.
héðins á mótum og vann til verð-
launa.
Hún hafði mikið yndi af tónlist,
dansi og íþróttum en henni buðust
ekki mörg tækifæri til að stunda
slíkt því lífsbaráttan var oft hörð.
Hún vann mikið og varð oft að
beijast við heilsuleysi og þröngan
kost. Þá komu mannkostir hennar
best í ljós. Hún hafði óvenju heil-
brigð lífsviðhorf, glaðværð var
henni í blóð borin. Ljúf lund og
óbilandi starfsþrek var ómetanlegt
veganesti.
Mannkostir hennar endurspegl-
ast best í börnunum hennar fjórum,
þeim Helgu Rósu, Jökli, Hafþóri og
Böðvari.
Þegar Málfríður var kornung
stúlka og nýbúin að stofna heimili
veiktist móðir okkar og lá mánuðum
saman á sjúkrahúsi. Þá var leitað
til Mollu, eins og við kölluðum hana
og var hún þá hjá okkur í Glóru
og annaðist heimilið fyrir föður
okkar sem stóð uppi með fjögur
óþekk börn á aldrinum tveggja til
ellefu ára.
Eins og nærri má geta hefur
þetta ekki verið létt verk fyrir
stúlku innan við tvítugt sem að
auki gekk þá með sitt fyrsta barn.
Svo vel leysti hún þetta þó af hendi
að okkur fannst við tengjast henni
böndum sem aldrei slitnuðu þrátt
fyrir lítið samband meðan annir
voru mestar hjá okkur vegna bús
og barna.
Þegar börn Málfríðar voru vaxin
úr grasi og hún orðin ekkja kom
tryggð hennar best í ljós. Einn góð-
an veðurdag birtist hún í dyrunum
hjá okkur, sama glaðværðin og
góðsemin fyllti húsið eins og forðum
daga. Við ritjuðum upp gamlar
stundir og hlógum og spjölluðum.
Síðan hefur hún litið til gamla
„frænda" í Glóru öðru hvoru. Við
erum öll þakkiát fyrir þessar stund-
ir en svíður þó að við skyldum ekki
vera henni betri og Iauna henni í
einhveiju umhyggju hennar.
Hinsta ferð hennar var hingað
austur fyrir fjall að heimsækja
hann. Hún hefur þá ekki gengið
heil til skógar þótt hún bæri það
ekki með sér né íþyngdi öðrum með
slíku. Hún tók sig meira að segja
til og matbjó fyrir hann til nokk-
urra daga til að létta honum verk-
in. Hún spjallaði við hann fram eft-
ir kvöldi á laugardaginn var, sat í
stólnum hennar mömmu heitinnar
og hafði á orði að sér liði svo und-
ur vel. Hann er óendanlega þakklát-
ur fyrir þessa kvöldstund þótt Molla
væri reyndar frá honum tekin skjótt
og harkalega því morguninn eftir
þurfti hann að senda hana frá sér
í sjúkrabíl. Það er erfitt að sætta
sig við svo snögga kveðju, en fyrir
vikið fellur aldrei fölvi á mynd henn-
ar. Hún kveður á tindi lífsins. Við
sendum börnum hennar, systkinum
og öðrum ástvinum dýpstu samúð-
arkveðjur. Blessuð sé mynd hennar.
Kristín og Guðrún
Þórarinsdætur
t
Eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir og afi,
JÓHANN ÓLAFSSON
frá Nesi,
lést í Landspítalanum 11. desember.
Ólöf Gunnsteinsdóttir,
Haraldur Jóhannsson, Fjóla Guðrún Friðriksdóttir,
Guðrún Edda Haraldsdóttir, Jóhann Friðrik Haraldsson.
t
Eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi,
BJARNHÉÐINN HALLGRIMSSON,
Grensásvegi 56,
sem lést í Landspítalanum þann 4. desember sl. verður jarðsung-
inn frá Fossvogskirkju fimmtudaginn 14. desember kl. 15.00.
Fyrir hönd dætra minna, tengdasona og barnabarna,
Dagný Pálsdóttir.
+ Útför móður okkar, stjúpmóður, tengdamóður og ömmu,
SALVARAR JÓNSDÓTTUR,
fer fram frá Fríkirkjunni í kl. 13.30. Reykjavík fimmtudaginn 14. desember
Jóna Pedersen, Haukur Jónsson,
Nanna Pedersen, Olgeir Olgeirsson,
Vilborg Pedersen, Jósef T ryggvason,
Guðgeir Pedersen, Edda Finnbogadóttir,
Auður Pedersen, Valdimar Jónsson,
Karen Nielsen, Guðrún Sundet, Anna Ingebretsen, Fjóla Evensen, Arnfinn Nielsen,
barnabörn og barnabarnabörn.
t
Eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir og afi,
BJÖRGVIN BJARNASON
fyrrv. bæjarfógeti,
Akranesi,
lést í sjúkrahúsi Akraness þann 10. desember sl.
Jarðsett verður frá Akraneskirkju föstudaginn 15. desember nk.
kl. 14.00.
Blóm vinsamlega afþökkuð, en þeim sem vildu minnast hans er
bent á líknarstofnanir.
Sigurbjörg Guðmundsdóttir,
Svanhildur D. Björgvinsd., Eiður Kr. Benediktsson,
Anna Halla Björgvinsdóttir,
Bjarni G. Björgvinsson, Ólöf M. Guðmundsdóttir
og barnabörn.
t
Faðir minn og bróðir okkar,
PÁLMID. BERGMANN
þjónn
frá Hellissandi,
verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju fimmtudaginn 14. desem-
ber kl. 13.30.
Gunnlaugur Pálmason,
Sigurjóna Daniliusdóttir,
Hans Danilíusson,
Vigfúsína Daniliusdóttir,
Cyrus Danilíusson,
Guðrún Danilíusdóttir,
Erla D. Bergmann,
Sjöfn D. Bergmann.
t
Móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma,
HULD GÍSLADÓTTIR,
síðast til heimilis í Elli- og hjúkrunarheimilinu Grund, verður jarð-
sungin frá Dómkirkjunni fimmtudaginn 14. desember kl. 15.00.
Þeim, sem vildu minnast hinnar iátnu, er bent á Minningarsjóð
Guörúnar Lárusdóttur, skrifstofu Elli- og hjúkrunarheimilinu
Grundar.
Guðbjörg Ólöf Bjarnadóttir, Jón Ægir Ólafsson,
Atli Hauksson, Sigríður C. Nielsen,
barnabörn og barnabarnabörn.
t
Eiginmaður minn, faðir okkar og sonur,
STEINÞÓR ÓSLAND SIGURJÓNSSON,
Álfabyggð 8,
Akureyri,
sem lést af slysförum að kvöldi 8. desember, verður jarðsunginn
frá Akureyrarkirkju fimmtudaginn 14. desember kl. 13.30.
Sigrfður Olgeirsdóttir,
Unnur Steinþórsdóttir,
Olgeir Steinþórsson,
Andri Steinþórsson,
Bjarney Bjarnadóttir, Sigurjón Jónasson.
t
Eiginmaður minn, faðir okkar og bróðir,
JÓN M. JÓHANNSSON,
verður jarðsunginn frá Dómkirkjunni fimmtudaginn 14. desember
kl. 13.30.
Oddný Nikódemusdóttir,
Þóra S. Jónsdóttir,
S. Valgerður Jónsdóttir,
Björgvin S. Jónsson,
S. Lára Jóhannsdóttir.
t
Ástkær eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir afi og vinur,
SIGURÐUR BJÖRGVIN JÓNASSON
frá Hróarsdal,
andaðist í Fjórðungssjúkrahúsinu á Akureyri miðvikudaginn 6.
desember. Útförin fer fram frá Akureyrarkirkju föstudaginn 15.
desember kl. 13.30. Þeim, sem vilja minnast hans, er vinsamlega
bent á Samband íslenskra kristniboðsfélaga.
Lilja Sigurðardóttir,
Þorvaldur Sigurðsson,
Björg Sigurðardóttir, Jökull Einarsson,
Valgerður Anna Sigurðard., Hlynur Þór Hinriksson,
Sigurður Björgvin Jökulsson.Kristin Þóra Jökuisdóttir,
Þórey Sigurðardóttir.
SJÁLFSTIEDISFLOKKURINN
F É L A G S S T A R F
Hveragerði
Sjálfstæðisfélagið Ingólfur heldur félagsfund á Hótel Ljósbrá fimmtu-
daginn 14. desember nk. kl. 20.30.
Fundarefni:
1. Tillaga uppstillingarnefndar.
2. Rætt um húsnæðismál félagsins.
3. Önnur mál.
Stjórnin.
Sjálfstæðisfólk á
Sauðárkróki
Fundur verður í bæjarmáJaráði Sjálfstæðisflokksins miðvikudaginn
13. desember kl. 21.00 í Sæborg. Bæjarfulltrúarnir mæta. Sjálf-
stæðisfólk, fjölmennið á þennan síðasta fund ársins.
Stjórnin.
Kópavogur - jólaglögg
Sameiginlegt jólaglögg sjálfstæðisfélaganna i Kópavogi verður hald-
ið laugardaginn 16. desember i Hamraborg 1, 3. hæð kl. 20.30.
Á dagskránni er létt tónlist og piparkökur en einnig er þetta góður
tími til að glöggva sig á framboðsmálum i Kópavogi.
Félögin.
Fulltrúaráð sjálfstæðis-
félaganna í Garðabæ
Áríðandi fulltrúaráðsfundur verður haldinn
fimmtudaginn 14. desember kl. 20.30 í
Sjálfstæðishúsinu, Lyngási 12.
Fundarefni:
1. Tiihögun á vali frambjóöenda á lista
flokksins i væntanlegum bæjar- og sveitar-
stjórnakosningum.
2. Ólafur G. Einarsson alþingismaður,
ræðir stjórnmálaviöhorfiö.
Stjórn Fulltrúaráðs
sjálfstæðisfélaganna i Garðabæ.