Morgunblaðið - 13.12.1989, Qupperneq 41
Afinæliskveðja:
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 13. DESEMBER 1989
41
Gissur Pálsson
Fyrir okkur ungu mennina, þessa
óþolinmóðu, þessa sem þykjumst
hafa skýr svör á reiðum höndum
við öllum gátum lífsins, þá er það
oft eins og að fá kalda vatnsgusu
í andlitið þegar við gefum okkur
tíma til þess að setjast niður og
spjalla við þessa gömlu. Þá rennur
upp fyrir manni að hlutirnir eru
ekki annaðhvort klipptir eða skorn-
ir, annaðhvort svartir eða hvítir.
Þá rennur upp fyrir manni hvað
lífið, sorgir þess og gleði, starf og
leikur, eru miklu meiri skóli en
prófskírteinin sem maður er með í
rassvasanum.
Þegar ég sest niður með afa
mínum, Gissuri Pálssyni, til að
spjalla við hann um landsins gagn
og nauðsynjar þá verð ég þessa
ávallt áskynja.
Afi, Gissur Pálsson rafvirkja-
meistari í Bóistaðarhlíð 41, hér í
Reykjavík, fæddist í Þykkvabæ í
Landbroti fyrir nákvæmlega 80
árum, 13. desember 1909. I góðu
skyggni blasir við af hlaðinu í
Þykkvabæ fjallið Lómagnúpur og
austar Öræfajökull með Hvanna-
dalshnjúk, hæstan hnjúka á ís-
landi. í millum renna þungar
straumharðar jökulár sem löngum
voru miklir farartálmar á ferðum
um Skaftafellssýslur. Þessi nátt-
úrusýn er áhrifamikil og hleypir
þrótti í menn. Það virðist alla vega
vera raunin með afa — enda hefur
hann nánast verið á hlaupum alla
ævi. Afi er framsýnn, hann er mað-
ur morgundagsins og það segir
mikið um framsýni hans að hann
skuli ungur hafa ákveðið að helga
starfskrafta sína þá algerlega nýrri
og ókannaðri grein, rafmagninu.
Hlutdeild hans í þeirri grein, vönduð
vinnubrögð og fórnfúst starf í þágu
félags rafvirkjameistara um langan
aldur þekkja félagar hans þaðan
miklu betur en ég. En ég veit að
hlutdeild hans þar hefur verið mik-
il. Ég veit líka að afi rak stórt fyrir-
tæki, Hf. Rafmagn, hafði fjölda
manna í vinnu og rafvæddi heilu
þorjiin og bæina.
Eg veit líka að hann hefur verið
einn ötulasti baráttumaður bindind-
ismála í landinu og gegnt fjölda
trúnaðarstarfa fyrir bindindishreyf-
inguna. Ég man t.d. ferð sem ég
fór með honum fyrir ca. 25 árum,
til að skoða skógarsvæði fyrir aust-
an Galtalæk í Landsveit með það í
huga að þar yrði útivistarsvæði
bindindismanna. Það hefur svo
sannarlega komið á daginn eins og
öll áform sem afi ráðgerir. Engan
þekki ég annan sem betur fylgir
þeim einkunnarorðum að lýsa ekki
einungis fæðingarhríðunum heldur
sýna krógann.
Ég veit líka að hann hefur verið
leiklistarstarfinu hér í Reykjavík
einhver harðasti stuðningsmaður.
Hjá Leikfélagi Reykjavíkur hefur
hann sinnt ljósameistarastarfi í
ljölda ára — svona með öllu hinu.
Og sinnt því af aðdáunai-verðri trú-
mennsku.
Best veit ég þó um hversu mikill
bakhjarl hann er fyrir fjölskyldu
sína. Hversu vel hann stendur und-
ir því að vera höfuð ættarinnar —
hvernig hann er einskonar enda-
punktur fjölskyldunnar. Aðeins
menn sem hafa oft þurft að stíga
krappa ölduna í lífsins ólgusjó og
styrkst af því geta sinnt þessu hlut-
verki svo sómi sé af. Og það hefur
afi gert.
Bæði austan og vestan við Land-
brotið, fæðingarsveit afa, renna
margar óhreinar jökulár enda stutt
í jökulinn. í gili rétt við Þykkvabæj-
arhúsin rennur hreinn og tær berg-
vatnslækur. Þannig getur hið
óhreina jökulvatn orðið þegar það
hefur runnið lengi um hraun og
bruna. Það sama á við um sálina
og hugann. Hugurinn skýrist og
sálin mildast við ójöfnurnar sem
yfir er farið. Þetta hefur afi leitt
mér fyrir sjónir.
Ég óska honum innilega til ham-
ingju með afmælið og ég hlakka til
þeirra mörgu stunda sem við eigum
eftir að eiga saman. Stunda þegar
hann hvetur mig — til að hugsa
fram á við.
Bræður mínir tveir og faðir hveij-
ir búa erlendis senda honum einnig
sínar bestu kveðjur á þessum tíma-
mótum.
Gissur Pétursson
Gissur tekur á móti gestum í
Templarahöllinni, Eiríksgötu 5, í
dag, afmælisdaginn, milli kl. 17 og
20.
Til greinahöfunda
Aldrei hefur meira aðsent efni borizt Morgunblaðinu en nú
og því eru það eindregin tilmæli ritstjóra blaðsins til þeirra, sem
óska birtingar á greinum, að þeir stytti mál sitt mjög. Æskilegt
er, að greinar verði að jafnaði ekki lengri en 2-3 blöð að stærð A4
í aðra hverja línu.
Þeir, sem óska birtingar á lengri greinum, verða beðnir um
að stytta þær. Ef greinahöfundar telja það ekki hægt, geta þeir
búizt við verulegum töfum á birtingu.
Minningar- og
afinælisgreinar
Af sömu ástæðum eru það
eindregin tilmæli ritstjóra Morg-
unblaðsins til þeirra, sem rita
minningar- og afmælisgreinar í
blaðið, að reynt verði að forðast
endurtekningar eins og kostur
er, þegar tvær eða fleiri greinar
eru skrifaðar um sama einstakl-
ing. Þá verða aðeins leyfðar
stuttar tilvitnanir í áður birt ljóð
inni í textanum. Almennt verður
ekki birtur lengri texti en sem
svarar einni blaðsíðu eða fimm
dálkum í blaðinu ásamt mynd
um hvern einstakling. Ef meira
mál berst verður það látið bíða
næsta eða næstu daga.
Ræður
Töluvert er um það, að Morg-
unblaðið sé beðið um að birta
ræður, sem haldnar eru á fund-
um, ráðstefnum eða öðrum
mannamótum. Morgunblaðið
mun ekki geta orðið við slíkum
óskum nema í undantekningart-
ilvikum. Ritstj.
FYRIRHEITNA LANDIÐ EFTIR EINAR KÁRASON.
Sjálfstætt framhald Djöflaeyjunnar og Gulleyjunnar. Hún lýsir för þriggja
afkomenda Thulefólksins til fyrirheitna landsins, Ameríku, á vit Presleys,
Badda, Gógóar og allra hinna. Lifandi mannlýsingar, hröð frásögn,
skrautlegt baksvið og góður húmor. - Skemmtileg bók.
Eyjabækurnar fást nú allar í Stórbók.
NÁTTVÍG EFTIR THOR VILHJÁLMSSON. Ástin, dauðinn og
hafið. Áhrifamikil og viðburðarík saga úr undirheimum Reykjavíkur. Hún
greinir frá tveimur sólarhringum í lífi leigubílstjóra nokkurs sem dregst
nauðugur inn í atburðarás óhugnaðar og ofbeldis. Þessi bók er enn einn
sigur Thors Vilhjálmssonar á ritvellinum.
Mal Iml og menning
• ■ í PJÓÐBRAUT HEIMSBÓKMENNTANNA
Síðumúla 7-9. Sími 688577. Laugavegi 18. Sími 15199-24240.
VILHJALMSSON