Morgunblaðið - 13.12.1989, Page 43
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 13. DESEMBER 1989
43
Rafinagnseftirlit ríkisins:
RAFMAGNIÐ OG RETT
UMGENGNIYIÐ ÞAÐ
Ef nolað er fjöltengi milli raf-
tækis og veggtengils er mikilvægt
að nota rétt fjöltengi. Ef raftækið
á að vera jarðtengt verður að nota
fjöltengi með jarðtengdri taug og
kló, og á að sjálfsögðu að stinga
í samband við jarðtengdan vegg-
tengil. Öskynsamiegt er að hlaða
mörgum straumfrekum tækjum á
sama fjöltengið.
(]ö55m ;
Gefið gaum að merkingum á
raftækjum, t.d. lömpum:
MAX 60 W þýðir að peran má
ekki vera stærri en 60 vött. Ann-
ars hitnar lampinn of mikið. Peran
verður líka að vera af réttri gerð
fyrir lampann.
Þetta tákn
fyrir lágmarks-
fjarlægð kast-
ara frá brennan-
legu efni. (Fjarlægðin er breyti-
leg.)
Stórt V táknar spennu (Volt.)
Algengasta notendaspenna er 220
volt. Maður sem lendir inni í
straumrás með slíka spennu er í
lífshættu. Nú eru mjög í tísku
lampar með innbyggðum eða sam-
byggðum spenni, sem lækkar
spennuna niður í 12 eða 24 volt.
Þessir lampar eru ýmist ætlaðir
til fastrar lýsingar, eða sem færan-
legir borð- eða gólflampar. Hita-
stig smáspenntra lampa getur far-
ið upp í 400 stig á Celsíus, en það
er fjórum sinnum hærra en gerist
með venjulega glóperulampa. Því
þarf að gæta sérstakrar varúðar
við uppsetningu slíkra lampa, svo
og alla meðhöndlun í námunda við
brennanleg efni.
Gilding (viðurkenning)
raffanga af hálfii RER
Jólaljósasamstæður (seríur)
eiga að vera samþykktar til notk-
unar af Rafmagnseftirliti rikisins,
og þeim eiga að fylgja leiðbeining-
ar á íslensku.
Inniljósasamstæður eru yfirleitt.
tengdar 220 V spennu. Þótt ein
eða fleiri perur bili í sumum sam-
stæðum, getur áfram logað á hin-
um. En spennan hækkar þá á þeim
og þær hitna, springa eða bræða
einangrun og geta þannig valdið
íkveikju. Því er nauðsynlegt að
eiga réttar varaperur og skipta
strax um bilaðar perur.
Útiljósasamstæður eru bæði til
Almennar
umgengnisreglur
Gætið þess að börn leiki sér
ekki með dúkkulampa, klemmu-
lampa eða önnur rafföng, sem
tengd eru 220 volta spennu.
Farið ekki frá djúpsteikingar-
potti meðan hann er í sambandi.
Sjálfvirkur hitastillir getur bilað.
Sama gildir um straujárnið.
Farið ekki frá og gleymið raf-
magnshellu sem búið er að kveikja
á, þótt siminn hringi eða hringt
sé dyrabjöllu og gestur komi í
kaffispjall. Slík gleymska hefur
valdið mörgum eldsvoðum.
Yfirfarið og skiptið um gamlar
og gallaðar snúrur á heimilistækj-
um. Notið réttar klær og festið
taugina vel í klónni.
Fleygið gömlum, óviðurkennd-
um jólasamstæðum. Varist að
kaupa óviðurkennd rafföng, svo
og rafföng á útimörkuðum, ný eða
notuð. Slíkur varningur getur ver-
ið hættulegur.
Slökkvið á ljósasamstæðum og
öðrum skrautljósum á nóttunni,
Gleymið ekki eldavélinni eða djúpsteikingarpottinum, þótt síminn e'ns ef íbúðin er skilin eftir mann-
hringi.
fyrir beina tengingu við 220 V og
einnig fyrir 24 volt. Festið útisam-
stæðuna vandlega, og skiptið
strax um brotnar eða bilaðar per-
ur. Spennar við smáspenntar sam-
stæður eru prófaðir sérstaklega
og þurfa að hafa hlotið gildingu
eða samþykkt af hálfu RER. Setj-
ið ekki fleiri samstæður við sama
spenni en ætlast er til af framleið-
anda, og notið ekki aðra og
óskylda spenna við ljósasamstæð-
ur.
Fjöltengi og
framlengingarsnúrur
Gangið þannig frá framlenging-
arsnúru utanhúss, að samskeyti
séu vatnsþétt.
laus.
ÍH Tákn fyrir tvöfalda einangnin
| Q í Tákn fyrir lágmarksfjarlægð kastara frá brennanlegu efni {t.d. 0,5m; G,8m; osfr.)
: MAX60W Hámarksstærð peru í tiltekinn lampa
j (g) Tákn fyrir jarðtengingu
j JS_ Viðurkenningarmerki RER
RER RAFMAGNSEFT1RUT RÍKISINS
Nýjar stéttir heilbrigðisþjónustu?
Aðstoðarsjúkraliðar og heilsuliðar
eftirHalldór
Halldórsson
Rangfært var í frétt Morgun-
blaðsins 12. september sl. af
námsstefnu sjúkraliða á Húsavík
þann 9. september að undirritaður
hefði þar rætt hugmyndir heilsu-
gæslulækna um að mennta fólk
til starfa á heilsugæslustöðvum.
Mér var mest í mun að fjalla um
skort á faglærðu fólki til þjónustu
við aldraða og leyfi mér að senda
til birtingar meginhluta þess sem
ég flutti á námsstefnunni.
Á sl. ári vann ég að könnun á
stöðu öldrunarþjónustu í hinum
ýmsu sveitarfélögum á Norður-
landi eystra. Þá gerði ég tilraun
til samanburðar á mönnun á þeim
stofnunum sem þjónusta aldraða
og greini frá eftirfarandi dæmum.
A Fjórðungssjúkrahúsinu á Ak-
ureyri er haldið stíft við þá stefnu
að ráða ekki ófaglært fólk til að-
stoðar við hjúkrun og plássum lok-
að ef ekki fást nægjanlega margir
hjúkrunarfræðingar og sjúkraliðar
til starfa. Reynt er að halda mönn-
unarhlutfalli sem næst einum sem
þýðir að fjöldi starfsfólks við
hjúkrun, sem skiptist á að gegna
morgun-, kvöld- og næturvöktum,
er jafn fjölda inniliggjandi sjúkl-
inga (en ekki að stöðugt sé jafn
margt starfsfólk að störfum og
sjúklingarnir eru). Ég efast ekki
um að við slíkar aðstæður eru
vinnuskilyrði eftirsóknarverðust
og þjónustan best. Svo vel mönn-
uðum deildum ætti ekki að liðast
að tregðast við að taka inn þunga
hjúkrunarsjúklinga ef pláss eru
laus.
Á Kristnesspítala hefur um ára-
bil ekki tekist að ráða hjúkrunar-
fræðinga né sjúkraliða i allar
stöðuheimildir og ófaglært fólk
ráðið í staðinn til hjúkrunarstarfa.
Ekki eru nægjanlegar stöðuheim-
ildir hjúkrunarfræðinga né sjúkra-
liða til að ná mönnunarhlutfallinu
einum. í október ’88 var mönnun-
arhlutfall á Kristnesspítala 0,64
og 45% starfsliðs við hjúkrun ófag-
lært.
Verst var ástandið á hjúkrunar-
deild Húsavíkurspitala. Mönnun-
arhlutfall þar var 0,60 og 80%
starfsfólks við hjúkrun ófaglært.
Við slíkan skort á faglærðu fólki
er augljóst áð erfitt, ef ekki ógjör-
legt, er að halda uppi fullnægjandi
þjónustu.
En hvað er til ráða? Sjúkraliðar
og hjúkrunarfræðingar geta betur
svarað því en ég hve miklu það
breytti að bæta ráðningarkjör —
laun, barnagæslu, húsnæði o.fl. —
og að breyta vinnutilhögun —
vöktum, verkaskiptingu o.fl. Þó
að vöntun faglærðs starfsfólk sé
mikil nú þegar virðast horfur á
„Ég tel það vera skyldu
okkar, sem vinnum við
þessi skilyrði innan
heilbrigðisþjónustunn-
ar, að benda á vandann
og koma með tillögur
til lausnar.“
að hún verði enn meiri á næstu
árum því að gömlu og veiku fólki
virðist munu fjölga mun hraðar
en hjúkrunarfræðingum og
sjúkraliðum. Ég tel það vera
skyldu okkar, sem vinnum við
þessi skilyrði innan heilbrigðis-
þjónustunnar, að benda á vandann
og koma með tillögur til lausnar.
Mér virðist liggja beinast við að
fara að fordæmi nágrannaþjóða
okkar og mennta nýja stétt heil-
brigðisstarfsfólks. í Danmörku
heitir þessi stétt „plejehjemsas-
sestenter". Ég tel mjög brýna þörf
á að koma á minna en 1 árs námi
fyrir fólk sem vill vinna við umönn-
un aldraðra. Það gæfi þeim starfs-
réttindi á dvalarheimilum og
hjúkrunarheimilum og ef til vill á
hjúkrunardeildum sjúkrahúsa og
við heimaþjónustu. Námið veitti
starfsöryggi og kauphækkun og
bætti vonandi úr skorti á starfs-
fólki. Konum sem stofnað hafa
heimili og eignast böm áður en
þær luku öðru en skyldunámi og
gætu hugsað sér að starfa við
umönnun aldraðra þegar börnin
eru komin á legg vex i augum að
setjast fyrst á skólabekk í 2-4
vetur til að ljúka sjúkraliðanámi,
en 8-12 mánaða nám sem byðist
á heimaslóð og væri bæði verklegt
og bóklegt gæti höfðað til þeirra.
Hjúkrunarfræðingar voru,
a.m.k. sumir, á móti því að sjúkra-
liðanámi væri komið á. En hver
vildi nú vera án sjúkraliðastéttar-
innar? Nú virðist sjúkraliðum
kannski að þessi nýja stétt yrði
ógnun við þá. En er ekki hægt
að komast hjá því með því að af-
marka réttindi þeirra við fyrr-
nefndar stofnanir? Starfssvið
stéttarinnar þyrfti að skilgreina. í
mínum huga yrði þetta nám sem
líkast því sem nám sjúkraliða var
á Akureyri í upphafi.
Æskilegast væri að mennta-
kerfið væri svo opið og sveigjan-
legt að einstaklingar úr þessari
nýju stétt, sem e.t.v. mætti kalla
aðstoðarsjúkraliða, gætu menntað
sig til sjúkraliða með viðbótar
námi þegar áhugi og aðstæður
væru fyrir hendi. Sjúkraliðar hefðu
einnig möguleika á að mennta sig
til að verða hjúkrunarfræðingar
og hjúkrunarfræðingar að verða
læknar. Allar þessar stéttir þurfa
að vinna saman og enginn getur
án hinna verið.
Höfundur eryfirlæknir á
Krístneshælinu.
Sjónvarpstœki
Sjónvarps-
myndavélar
Hljómtœkja-
samstœður
Ferðaviðtœki
Útvarpsvekjarar
Gœðatœki fyrir
þig og þína!
SMITH&
NORLAND
Nóatúni 4 - Sími 28300
Áskriftanimim er 83033