Morgunblaðið - 13.12.1989, Page 45
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 13. DESEMBER 1989
45
isafmælið, flutti Bjarni að Hlað-
hömrum og hafði þar litla íbúð til
umráða. Þar leið honum vel í hópi
góðra vina því hvar sem Bjarni fór
eignaðist hann vini. Þó aldurinn
hafi verið orðinn nokkuð hár var
minnið svo gott að hann gat flutt
heila bragi, án þess að reka í vörð-
urnar. Eins hafði hann frá mörgu
að segja og gat haft samtöl orðrétt
eftir, ef því var að skipta.
í seinni tíð sótti hann samkomur
eldri borgara í Mosfellsbæ og var
vinsæll spilafélagi, enda jafnvígur
á brids og lomber.
Ég var 15 ára þegar Bjarni og
fjölskylda hans komu að Hömrum,
og ég hef ætíð litið á hann sem
stóra bróður. Hann var mér bæði
hollráður og hjálplegur. Ekki var
ég mikið samtíða honum á Hömr-
um, því eftir þetta var ég alla vetur
á Mosfelli. Þar til haustið 1941 að
ég giftist Einari Tönsberg, sem á
sama tíma varð framkvæmdastjóri
við Alifuglabú bakarameistara hf.
Eftir þetta kynntist ég Bjarna bet-
ur, því Einar sóttist mjög eftir hon-
um til starfa þegar verið var að
byggja upp á Sogamýrarbletti 46
og bjó hann þá á heimili okkar.
Þeim varð vel til vina Einari og
Bjarna og höfðu um margt að
spjalla. Brátt varð öll fjölskylda
Bjarna bestu vinirnir, sem við Einar
eignuðumst á lífsleiðinni. Þar sem
Einar átti ekki fjölskyldu hér á
landi, verður þessu góða fólki aldr-
ei fullþökkuð samfylgdin.
Með þessum línum kveð ég
Bjarna og sendi dætrum hans,
bamábörnum og öðrum ^ástvinum
og vinum samúðarkveðjuf.
Hér er góður drengur genginn.
Blessuð sé minning hans.
Ingibjörg Tönsberg
Um 1950 flutti Bjarni Guð-
mundsson að Ljósafossi ásamt
Hædí, eiginkonu sinni. Fengu þau
litla íbúð í skólanum og bjuggu þar
í nokkur ár ásamt eldri dótturinni,
Helgu. Vann Bjarni í fyrstu við
skólann, en síðar við rafstöðvarnar
þar til hann fluttist að Fellsmúla í
Mosfellssveit. Bjarna hafði ég þekkt
frá því ég var barn, en góður vin-
skapur var með föður mínum og
þeim bræðrum Bjarna og Eyjólfi frá
gamalli tíð.
Bjarni var þeirrar gerðar, að það
var gott að vera í návist hans.
Hann var góður verkamaður að
hveiju sem hann gekk, og þótti öll-
um gott með honum að vera. Bjarni
var jafnlyndur og glaðsinna og
næmur á hið broslega í tilverunni.
Hann kunni frá mörgu að segja,
sumu broslegu, og gerði það af
snilld. Var hermikráka þegar við
átti. Allt var þetta græskulaust og
til gleði.
Eftir að Bjarni flutti í Mosfells-
sveitina var það árviss tilhlökkun
að fá hann í heimsókn kvöldið fyrir
Hólaréttir. Með honum komu jafnan
frændur hans, ýmist einn eða tveir
og var glatt á hjalla. Sest var að
spilum og teknar nokkrar rúbertur
í léttum dúr. Bjarni hafði gaman
af spilum og var lunkinn spilamaður
hvort sem spilað var lomber eða
brids. Ekki skemmdi þegar snjallir
spilamenn eins og Guðmundur og
Órn Ingólfssynir, systursynir hans,
voru með honum. Þá gátu sagnir
orðið þó nokkuð glæfralegar. Þessi
kvöld gleymast ekki.
Næsta morgun var svo risið
snemma úr rekkju, farið í morgun-
kaffi að Efri-Brú og svo í réttirnar.
Vín aðeins til upplyftingar og alltaf
í_hófí.
Nú er Bjarni allur, en eftir lifa
minningar um góðan dreng. Við
Svava sendum ástvinum innilegar
samúðarkveðjur.
Böðvar Stefánsson
t
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og vináttu við fráfall og
útför hjartkærs eiginmanns míns, föður, tengdaföður og afa,
ARA ÞÓRÐARSONAR,
Norðurgötu 38,
Akureyri.
Sérstakar þakkir til allra á Kristnesspítala sem Ari hefur haft kynni
af í lengri eða skemmri tíma.
Guð blessi ykkur öll og gefi ykkur gleðilega jólahátíð.
Pálfna Jónsdóttir, börn, tengdabörn og
barnabörn.
Sérverslun með
AUSTURLENSK TEPPI
Strangt gæðaval.
Hóflegt verð.
Kirkjustræti 8. o 621260
)
%'C»***
Nei ■ b?,a
Bvavi^1 .
\askap'
Hvaða^f0'
ekki'as®'
,nað Btaua
„HVsama
■ 1 "
. 90 09 Kóoa'°t'r"
Borgartúm 20 09
Aðeins kr. 6.980
J
líiand
írnmmm*
Ev° Steen
Erik Nerlöe
SVIKAVEFUR
Blse-MarieNo-
ckUGQS ik.
SKUGGSJÁ
EKKI ER ALLT SEM SYINIIST. Theresa Charles.
Annabella hafði verið yfir sig ástfangin af Davíð, og var niðurbrotin, þegar
hann fór skyndilega til Ástralíu. En hún var viss um að hann myndi snúa
aftur til hennar, þó aðrir væru ekki á sama máli.
LYKILORÐIÐ. Tlse-Marie Nohr.
Hugo Hein bíður ásamt lítilli dótturdóttur sinni eftir móður litlu telpunnar.
En hún kemur ekki. Skelfingu lostinn sér gamli maðurinn að dóttur hans
er rænt. Litla telpan stendur einmana og yfirgefin. Mamma er horfin.
AUÐUG OG ÓERJÁLS. Barbara Cartland.
Til að bjarga föður sínum frá skuldafangelsi giftist Crisa Silas P. Vander-
hault. Nokkru siðar er Crisa orðin ekkja eftir einn af ríkustu mönnum í
Ameríku. En nú er hún eins og fangi í gylltu búri.
SVIKAVEEDR. Erik Nerlöe.
Hún hefur að því er virðist allt, sem hugurinn girnist. Hún hefur enga
ástæðu til að stela, en samt er það einmitt það sem hún gerir. Eða hvað?
Er einhver að reyna að koma rangri sök yfir á hana?
q/V
ENGINN SÁ ÞAÐ GERAST. Eva Steen.
Hún er daufdumb. Hún hefur búið hjá eldri systursinni, frá því að foreldrar
þeirra fórust í bílslysi. Systirin hefur haldið vandlega leyndu fyrir yngri
systur sinni leyndarmálinu, sem foreldrar þeirra tóku með sér í gröfina.
SKUGGSJÁ - BÓKABÚÐ OLIVERS STEMS SF