Morgunblaðið - 13.12.1989, Blaðsíða 48
48
MORGyNgLAÐIÐ MIÐyiKUDAGUR 13. DESEMBER 1989
VEISLUELDHÚSIÐ
ALFHEIMUM 74
• Veislumatur og ðll áhöld.
• Veisluráðgiöf.
' • Salarleiga.
• Málsveröir í fyrirtæki.
• Tertur, kransakökur.
• Snittur og pinnamatur.
686220-685660
LITAVER
UTAVER
Grensásvegi • Sími 82444
*£££ Kork-O'Plast
Sœnsk ocBðavaa 125 ár.
KO«H O PLAST « mcð ihwcrta vmylhúð oa nouö 1 gólf lem mkJÖ
rrucAr A svo urm á nugfiððvum og i yúkranusum
KOffK O PLAST er auðvrtt að pr/U og þrgiiegt ei aö ganga i pvf.
SAlega henrugr iyw vmnusuði. banka og opmöerjr ttnftrorur
KOtK O PLAST tygglr cklu upp ipermu og er rnáJö nouö f
rð*vuhertx!rg|um
KORK O PLAST r«u I 13 mnmurwndi kortrmymtrum
pó Kvae ún A ianu þá senoum vk> »4* ókkyto
____ SÝNOHORN OG BAKUNG.
Þ. ÞORGRIMSSON & CO
fclk i
fréttum
Don og Patti
D’Arban-
ville meðan
að hjóna-
band þeirra
var og hét.
HJÓNABANDSSÆLA
Á fjölskyldulíf ekki
við Don Johnson?
Fjölmargir fylgjast grannt með
hjúskaparmálum leikara og
annars frægs fólks og lýstu yfir
undrun sinni á dögunum, er þau
Don Johnson poppari og eiturlyfja-
lögga í Miami Vice, og leikkonan
Melanie Griffith tóku aftur saman,
en þau höfðu verið gift mörgum
árum áður. Melanie mun ávallt hafa
haldið því til streitu að það kæmist
Melanie GrilTith með dótturina
Dakota.
enginn með tæmar þar sem Don
hefði hælana. Don sparaði hins veg-
ar hrósið um fyrrum konu sína,
þess í stað var hann í tygjum við
fjölmargar konur og má segja að
Melanie hafi hreinlega „hirt Don
af tánum á Barböru Streissand" svo
að notað sé knattspyrnumál. Don
og Barbara höfðu uppi áform um
hjónaband, en fyrirvaralaust sat
söngkonan fræga eftir með sárt
enni. Hafði Don varla fyrir að segja
henni að hann ætlaði aftur til fyrri
konu sinnar.
Reyndar hefur töluvert vatn run-
nið til sjávar síðan umræddir at-
burðir gerðust, en framhald þeirra'
var að Don og Melanie giftu sig á
ný og fyrir rúmum mánuði eignuð-
ust þau meybam. Allt virtist leika
í lyndi, sérstaklega hjá Melanie sem
fór í afvötnun og hreppti síðar
Oskarsverðlaunin eftirsóttu. En
frúin óttast nú að allt sé að liðast
í sundur. Don sé orðinn órólegur
og svo sé hann daglega í símanum
að ræða við aðra fyrrum eiginkonu,
Patti D’Arbanville, og sex ára barn
þeirra, Jesse. Og það séu engin
smásímtöl. Melanie segist óttast að
Patti vilji gjaman reyna aftur sam-
búð með Don og noti Jesse til að
þrýsta á hann. Ottast hún, að Don
hefði ekkert á móti því að reyna.
ÞÁ OG NÚ
Korbut og Retton
blása í gamlar glæður
Tvær af skæmstu stjömum fim-
leikanna fyrr og síðar, sovéska
stúlkan Olga Korbut og bandaríska
stúlkan Mary Lou Retton, tóku sig
til fyrir skömmu og ferðuðust til
átta borga í Bandaríkjunum og
sýndu þar með eftirminnilegum
hætti, að þær hafa litlu gleymt og
snilld þeirra hefur lítið dvfnað. Olga
sló í gegn á Olympíuleikunum 17
ára gömul árið 1972. Þeir voru
vandfundnir sem ekki hrifust af litlu
stúlkunni með tíkarspenana. Leikni
hennar, tækni og kraftur vom með
ólíkindum. Sama má segja um
Mary Lou Retton, sem er raunar
nokkru yngri, en samt „of gömul"
til að keppa í greininni á alþjóðleg-
um vettvangi. Retton ávann sér
heimsfrægð á Olympíuleikunum
árið 1984. Margt hefur drifið á
daga þessara snillinga síðan sól
þeirra skein sem skærast.
Olga Korbut tók þátt í fimleika-
sýningu í Bandaríkjunum í desem-
ber 1976, fjómm ámm eftir leikana
í Munchen, en þá var stjama henn-
ar tekin að dvína. Nadia Comaneci
frá Rúmeníu, sem nýlega flýði hei-
maland sitt, hafði verið stjarna
olympíuleikanna það árið en Olga
komst lítt áleiðis. Hún var orðin
þreytt og hafði lent í andstöðu við
þjálfara sína. Ásetningur hennar
var að taka sér gott frí frá fimleik-
um ef ekki hreinlega að draga sig
endanlega í hlé. Þegar hún hélt í
sýningarferðina til Bandaríkjanna
hitti hún mann nokkum í flugvél-
inni, Leonid Bortkevich að nafni.
Hann var (og er) fyrirliði sovéskrar
poppgrúppu sem var á leið til hljóm-
leikahalds í Bandaríkjunum. Olga
og Leonid ræddu saman alla leiðina
vestur um haf. Síðan liðu 16 mánuð-
ir án þess að þau vissu hvort af
öðm. Olga lauk sýningarferðinni
og sfðan var næst á dagskrá hjá
henni að halda heim og giftast
æskuást sinni í heimaborginni
Grodno. Á síðustu stundu snerist
Olgu hugur. í stað þess að fara til
Grodno hélt hún til nágrannborgar-
innar Minsk, fór þar huldu höfði,
en hringdi þó til foreldra sinna og
sagði ekki mundu koma í eigið brúð-
kaup. í Minsk hitti Olga popparann
Leonid og leið ekki á löngu, þar til
þau gengu í heilagt hjónaband.
Mikið vatn hefur mnnið til sjávar
síðan og þau Olga og Leonid eiga
nú 12 ára gamlan son, Richard.
Og nú eru þau í Bandaríkjunum og
hafa verið um skeið. Olga er að
opna fimleikaskóla undir nafni sínu
og helst vill hún fylgja því eftir
með því að rita fimleikabók fyrir
Bandaríkjamarkað. Bandaríkja-
menn taka henni opnum örmum.
Þeir elskuðu litlu sovésku telpuna
og hafa ekki gleymt henni.
Olga segist muna tímanna
tvenna, þegar þau Leonid giftust
hafi KGB reynt að bregða fæti fyr-
ir þau hvað eftir annað og rægt
þau í hvívetna. Ságt að þau giftu
sig einungis til þess að geta frekar
fengið fararleyfi til Bandaríkjanna.
Þetta segir Olga ósatt með öllu. Á
hinn bóginn hafi þau hjónin sótt
um leyfi til að flytjast frá Sovétríkj-
BÓKRÚN
Kynnt
minnisbók
Fæstir byija í alvöru að hugsa
um áramótin eða skipuleggja
næsta ár fyrr en eftir jólin eða á
milli jóla- og nýárs. í göngugötu
Kringlunnar geta menn fengið
handhæga bók til að auðvelda sér
þessi störf, en bókaútgáfan Bókrún
hefur hana þar á boðstólum. Með-
fylgjandi mynd'var tekin í vaxandi
annríkinu í Kringlunni fyrir
skömmu. Aðstandendur Bókrúnar
voru að kynna jólavörur sínar, ekki
síst Minnisbók Bókrúnar 1990, en
þetta er fjórða árið sem forlagið
sendir frá sér slíkt rit. Bókrún er
kunnust fyrir bækur sínar um kon-
ur eftir Björgu Einarsdóttur en eins
og myndin ber með sér eru það
fleiri en konur sem láta sig bækur
forlagsins varða.
3 1