Morgunblaðið - 13.12.1989, Page 54
54
MORGUNBLAÐIÐ IÞROTTIR MIÐVIKUDAGUR .13, DESEMBER 1989
ÍÞRÓTTASAMBAND ÍSLANDS
Ufóm
FOLX
■ HVERT sérsamband innan
íþróttasambands íslands velur
íþróttamann ársins úr sínum röðum.
Sérsamböndin eru 20 og heiðrar ÍSI
hið útvalda íþróttafólk.
■ FRJÁLST Framtak gaf verð-
launagripina sem fyrr og Magnús
Hreggviðsson, stjórnarformaður
fyrirtækisins, afhenti íþróttamönn-
unum gripina.
■ GUÐRÚN Júlíusdóttir, TBR,
er badmintonmaður ^ársins 1989.
Hún varð tvöfaldur íslandsmeist-
ari á árinu, í tvíliða- og tvenndar-
leik.
■ STEFÁN Jóhannesson, KA,
var valinn blakmaður ársins. Hann
hefur verið einn af máttarstólpum
landsliðsins undanfarin ár og átt
dijúganþátt í velgengni félags síns,
sem er Islandsmeistari.
■ KJARTAN Briem, KR, var
kjörinn borðtennismaður ársins —
annað árið í röð. Kjartan er Is-
landsmeistari, var punktahæstur
leikmanna í meistaraflokki og lék
13 af 16 landsleikjum á síðasta
keppnistímabili.
■ FJÓLA Ólafsdóttir, Ármanni,
er fimleikamaður ársins og er það
í annað sinn, sem hún er útnefnd.
Fjóla varð í 4. sæti í gólfæfingum
á Norðurlandamótinu, í 2. sæti á
íslandsmótinu og er með hæst
samanlögð stig íslenskra keppenda
i stúlknaflokki á árinu.
■ EINAR Vilhjálmsson var út-
nefndur fijálsíþróttamaður ársins.
Hann sigraði m.a. á sex stórmótum
erlendis og lengsta kast hans, 84,50
m, tryggði honum 7. sætið á heims-
listanum. Einar er eini spjótkastari
heims, sem hefur unnið sér rétt til
þátttöku í úrslitum þriggja stiga-
móta Alþjóðafijálsíþróttasam-
bandsins, en þau mót eru haldin
annað hvert ár.
■ ÚLFAR Jónsson, Keili, var
kjörinn golfmaður ársins. Hann
varð í 7. sæti í einstaklingskeppni
á Evrópumóti landsliða, í 4. sæti
í einstaklingskeppni Evrópumeist-
aramóts félagsliða og í 4. sæti á
Norðurlandameistaramótinu.
Ulfar er Islandsmeistari, meistari
Keiiis og íslandsmeistari í sveita-
keppni GSÍ í 1. deild.
■ ÓLAFUR H. Ólafsson, KR,
var útnefndur glímumaður ársins.
Hann er handhafi Grettisbeltisins
— vann titilinn glímukappi íslands
í þriðja sinn síðastliðið vor. Ólafúr
sigraði í öllum einstaklingsmótum
ársins og e'r því bikarmeistari og
íslandsmeistari í sínum þyngdar-
flokki og skjaldarhafi Ármanns.
■ ÞORGILS Óttar Mathiesen,
FH, er handknattleiksmaður ársins.
Hann leiddi íslenska landsliðið til
sigurs í B-keppninni og var valinn
í heimsliðið með þeim orðum að þar
væri á ferðinni besti stjórnandi og
línumaður heims. Enginn hand-
knattleiksmaður hefur leikið fleiri
landsleiki fyrir íslands hönd en
Þorgils Óttar.
■ SIG URBJÖRN Bárðarson,
Fáki, er knapi ársins í hestaíþrótt-
um, en hann hefur verið keppn-
isknapi í rúm 20 ár. Sigurbjörn,
sem hefur unnið öll verðlaun á Is-
landsmóti í hestaíþróttum og státar
af nokkrum Evrópumeistaratitl-
um, sigraði í tveimur greinuin á
íslandsmótinu í sumar og náði
öðru og þriðja sæti í hinum greinun-
um.
Morgunblaðið/Þorkell
íþróttamenn ársins 1989
Stuttgart átti aldrei möguleika
gegn Werder Bremen í átta
liða úrslitum bikarkeppninnar í
Bremen í gærkvöldi. Þetta var sem
leikur kattarins að
músinni og Stutt-
gart mátti þakka
fyrir að tapa aðeins
3:0, en þannig var
staðan í hálfleik. Eftir hlé kom
Ásgeir Sigurvinsson inná, en það
var erfitt fyrir hann að rífa sam-
heijana upp.
Heimamenn skoruðu strax á
FráJóni
Halldóri
Garðarssynii
V-Þýskalandi
fyrstu mínútu; Bockenfeld, sem var
besti maður leiksins, gaf fyrir mark-
ið og Neubarth skoraði af þriggja
metra færi. Neubarth bætti öðru
marki við með skalla eftir horn-
spyrnu frá Bpckenfeld eftir
hálftíma leik og Ástralíumaðurinn
Rufer gerði þriðja markið á siðustu
mínútu hálfleiksins.
Sókn heimamanna hélt áfram
eftir hlé, en Ásgeir átti fyrsta skot
Stuttgart að marki — með hægri á
65. mínútu. Síðustu 10 mínúturnar
léku gestirnir aðeins 10, höfðu not-
að báða varamennina, Scháfer
meiddist og varð að fara af velli.
Þá átti Bremen m.a. þijú stangar-
skot, en mörkin urðu ekki fleiri.
Immel, markvörður Stuttgart,
bjargaði liði sínu frá stór tapi. Hvað
eftir annað varði hann vel, en gat
ekki komið í veg fyrir tapið og
Stuttgart er þar með úr leik í bikar-
keppninni.
Kaiserslautern vann Dússeldorf
3:1, en í kvöld verða hinir tveir leik-
irnir í átta liða úrsiitum.
„Kominn tími til að sigra“
- sagði Pirmin Zurbriggen, sem
náði loks að vinna heimsbikarmót
„ÞAÐ var kominn tími til að
sigra. Það er eitt ár frá því ég
vann sfðast heimsbikarmót,"
sagði Svisslendingurinn Pirmin
Zúrbriggen eftir sigurinn í
risasvigi sem fram fór í Sestri-
ere á Ítalíu í gær. Helsti keppi-
nautur hans, Marc Girardeili
frá Luxemborg, féll illa íbraut-
inni og verður frá keppni fram
aðáramótum.
Zurbriggen var öryggið upp-
málað er hann keyrði niður
erfíða brautina í Sestiere, sem í var
gervisnjór og því mjög hörð. „Þessi
braut líktist meira bruni en risas-
vigi á sumum köflum. Hún var líka
mjög hættuleg og öryggissvæðin
utanbrautar voru ekki fullnægj-
andi,“ sagði Zúrbriggen, sem fór
brautina á 1:37.39 mínútum.
Þrír Norðurlandabúar voru á
meðal fimm fyrstu. Lars Böije
Eriksson frá Svíþjóð var annar á
1:37.50 mín., Franck Piccard,
Frakklandi, þriðji á 1:37.86 mín.
Norðmaðurinn Atli Skaardal náði
sínum besta árangri með því að ná
fjórða sæti og Niklas Henning frá
Svíþjóð hafnaði í fimmta sæti.
Heimsbikarhafinn frá í fyrra,
Marc Girardelli frá Luxemborg, féll
illa í miðri braut og skall utan í
öryggisnet. Hann var strax fluttur
í þyrlu á sjúkrahús. Hann er mikið
skrámaður og marðist illa á baki,
en er óbrotinn. Hann mun að ölium
líkindum missa af fjórumr næstu
mótum í heimsbikarnum.
Morgunblaðiö/Reuter
Pirmin Zíirbriggen náði loks að
sigra í heimsbikarmóti í gær eftir eins
árs bið.
Zúrbriggen hefur nú 101 stig í
heildarstigakeppninni og er nú að-
eins 17 stigum á eftir Ola Kristian
Furusetd frá Noregi. Svisslending-
urinn á þó alla möguleika á að ná
Furusetd því næstu tvö mót eru
brunmót, en Norðmaðurinn keppir
ekki í þeirri grein.
ÞJÁLFARI
Ungmennafélagið Leiknir, Fáskrúðsfirði, auglýsir eftir
þjálfara fyrir tímabilið frá maí til og með ágúst 1990.
Nánari upplýsingar veitir Þröstur í síma 97-51220 eða
97-51221.
SKÍÐI / HEIMSBIKARINN I ALPAGREINUM
Tíu íþróttamenn sem heiðra átti voru mættir í gærkvöldi. Þeir eru, í fremri röð frá vinstri: Sigrún Huld Hrafns-
dóttir, íþróttamaður fatlaðra, Guðrún Júlíusdóttir, badmintonmaður ársins, Fjóla Ólafsdóttir, fimleikamaður ársins og
Ragnar Már Steinssen, siglingamaður ársins. í aftari röð eru, frá vinstri: Sigurbjörn Bárðarson, knapi ársins, Einar
Páll Garðarsson, skotíþróttamaður ársins, Margrét Svavarsdóttir, tennismaður ársins, Halldór Svavarsson, karatemaður
ársins, Þorgils Óttar Mathiesen, handknattleiksmaður ársins og Stefán Jóhannesson, blakmaður ársins. Pjarverandi
voru: Guðmundur Helgason, Bjarni Ásgeir Friðriksson, Einar yilhjálmsson, Ragnheiður Runólfsdóttir, Jón Kr. Gíslason,
Kjartan Briem, Ólafur H. Olafsson, Örnólfur Valdimarsson, Úlfar Jónsson og Ólafur Þórðarson.
KNATTSPYRNA / VESTUR-ÞYSKALAND
Enn tapar Stuttgart
Lá 3:0 í Bremen og er úr leik í bikarkeppninni
ÍÞRÚmtR
FOLK
M SIGRÚN Huld Hrafhsdóttir,
Ösp, var valinn íþróttamaður ársins
úr röðum fatlaðra, en hún keppir í
flokki þroskaheftra. Sigrún Huld
hefur verið nær ósigrandi á sund-
mótum innanlands og á 12 íslands-
met í sundi í flokki fullorðinna. Á
Norðurlandamótinu vann hún til
fimm gullverðlauna og setti þijú
N orðurlandameistaramótsmet.
Hún tók þátt í fimm greinum á
Heimsmeistaramóti þroskaheftra
og sigraði í þeim öllum. •
M BJARNI Ásgeir Friðriksson,
Ármanni, var útnefndur júdómaður
ársins, en hann hefur verið
ósigrandi í keppni innanlands.
Bjarni glímdi um bronsverðlaunin
í opnum flokki á Evrópumeistara-
mótinu og voru báðir keppendur
jafnir að stigum í lok glímunnar,
en mótheija hans dæmdur sigur og
hafnaði Bjarni því í 5. sæti. Hann
varð í 7. sæti á Heimsmeistara-
mótinu og sigraði í sínum flokki
ög opnum flokki á Opna skand-
inavíska mótinu.
M HALLDÓR Svavarsson, KFR,
var kjörinn karatemaður ársins.
Hann varð Norðurlandameistari
í fijálsri viðureign áNorðurlanda-
mótinu og hlaut auk þess sérstaka
viðurkenningu fyrir skemmtilegar
glímur. Halldór varð tvöfaldur Is-
landsmeistari.
■ ÓLAFUR Þórðarson, Brann,
var valinn knattspyrnumaður árs-
ins. Hann hefur leikið í landsliði
fslands í öllum aldursflokkum og
lék með í fimm af sex a-landsleikj-
um ársins og í þremur af fjórum
landsleikjum með U-21 liðinu, þar
sem hann var fyrirliði.
■ JÓN Kr. Gíslason, ÍBK, er
körfuknattleiksmaður ársins. Hann
varð íslandsmeistari með félagi
sínu sem þjálfari og leikmaður, fyr-
irliði íslenska landsliðsins og bikar-
meistari með danska liðunu SISU,
sem hann hefur leikið með síðan í
haust.
■ GUÐMUNDUR Helgason,
KR, var kjörinn lyftingamaður árs-
ins. Hann bar höfuð og herðar yfir
íslenska keppinauta sína á stiga-
mótum ársins, bætti 12 ára gamalt
íslandsmet í jafnhendingu og lyfti
200,5 kg og vann til silfurverðlauna
á Norðurlandameistaramótinu.
■ RAGNAR Már Steinsen, Ými,
var útnefndur siglingamaður ársins.
Ragnar, sem hefur stundað sigling-
ar í sjö ár en er aðeins 14 ára,
varð íslandsmeistari í flokki „op-
timist-báta“ og hafnaði í 4. sæti á
unglingamóti í Danmörku eftir að
hafa náð fyrsta sæti í einni keppn-
inni... _
■ ÖRNÓLFUR Valdimarsson,
ÍR, er skíðamaður ársins. Hann er
þrefaldur íslandsmeistari í alpa-
greinum og hafnaði í öðru sæti í
bikarkeppninni. Ornólfúr, sem
keppti áHeimsmeistaramótinu í
alpagreinum, stóð sig vel á FIS-
mótunum, sem haldin voru hér á
landi.
■ EINAR Páli Garðarsson var
útnefndur skotmaður ársins. Einar
Páll vann til verðlauna á öllum
helstu mótum hér á landi á árinu
og varð íslandsmeistari ogskoraði
184 stig, sem er jöfnun á Islands-
meti.
■ RAGNHEIÐUR Runólfsdótt-
ir, ÍA, er sundmaður ársins. Hún
á 15 Islandsmet í kvennaflokki og
eitt í stúlknaflokki auk fjölda meta
í boðsundssveitum, en alls hefur
hún sett 111 íslandsmet. Hún
hafnaði í 5. sæti í 100 m bringu-
sundi á Evrópubikarmótinu, sem
er næst besti árangur Islendings
í sundi frá ugphafi.
■ MARGRET Svavarsdóttir var
kjörin tennismaður ársins, en hún
er Islandsmeistari í einliða- og
tvíliðaleik kvenna og sigraði í öllum
mótum, sem hún tók þátt í á árinu.