Morgunblaðið - 13.12.1989, Side 55
MORGUNBLAÐIÐ ÍÞROTTIR MIÐVIKUDAGUR 13. DESEMBER 1989
55
Stefnt að þremur landsleikjum í næstu viku.
Fimmtán landsleikir áætlaðir heima fyrir HM
LANDSLIÐ Austurríkis í
handknattleik kemur senni-
lega til íslands í næstu viku
og leikur tvo eða þrjá lands-
leiki. Tii stóð að Danir kæmu,
en þeir afþökkuðu um helgina
og þá var Austurríkismönn-
um boðið.
Að sögn Jóns Hjaltalíns Magn-
ússonar, formanns HSÍ, var
haft samband við Austurríkis-
menn á mánudag og munu þeir
gefa ákveðið svar í dag. „Þeir
tóku mjög vel í þetta og töldu 99
% öruggt að þeir myndu þekkjast
boðið, en vildu ráðfæra sig við
leikmennina fyrst,“ sagði Jón.
Austurríkismenn, sem sigruðu
Spánverja í fyrstu umferð í B-
keppninni í Frakklandi, halda
sterkt mót um helgina, þar sem
m.a. Danir og Austur-Þjóðveijar
taka þátt. Næstu æfmgabúðir
íslenska landsliðsins heíjast á
mánudag, en rætt var við Aust-
urríkismenn um að leika landsleiki
næstu þrjú kvöld.
íslensku landsliðsmennimir,
sem leika á Spáni, koma ekki til
landsins fyrr en eftir jól, en Júlíus
Jónasson kemur frá Frakklandi
um helgina og verður með allan
undirbúningstímann fram að
Heimsmeistarakeppninni í lok fe-
brúar.
Næsta æfmgalota landsliðsins
verður frá 18. desember tíl 8. jan-
úar. Á þeim tíma verða tveir
landsleikir við Norðmenn, 27. og
28. desember, og þrír við Tékka,
5., 6. og 7. janúar.
Lokaundirbúningurinn hefet
25. janúar. Rúmenar koma og
leika þijá landsieiki 10. - 12. fe-
brúar. Svisslendingar verða í viku
æfingabúðum með íslenska lands-
liðinu og leika tvo leiki, 14. og
15. febrúar. Leikið verður við
Hollendinga 23. og 24. febrúar,
daginn eftir verður haldið tíl
Tékkóstóvakíu, leikið við félagslið
í Gottwaldo 26. febrúar og síðan
hefet úrslitakeppnin 28. febrúar.
SJONVARP
ítalska knattspyman
sýnd beintá Stöð 2
Fimmtán leikir í beinni útsendingu frá
febrúarfram í maí á næsta ári
Morgunblaðíð/Einar Falur
Bandaríkjamaðurinn í liði Grindvíkinga, Ron Davis, átti mjög góðan leik
gegn ÍBK.
Fimmtán leikir úr ítölsku 1.
deildinni í knattspymu verða
sýndir beint á Stöð 2 eftir áramót-
in. Sá fyrsti í byijun febrúar og
síðan einn leikur á hverjum sunnu-
degi fram í maí.
Stöð 2 byijar reyndar að sýna
frá ítölsku deildinni sunnudaginn
7. janúar, vikugamlan leik og sú
verður raunin útþann mánuð. Síðan
taka beinu sendingamar við.
Það er ferðaskrifstofan Sam-
vinnuferðir/Landsýn sem styrkir
útsendingarnar frá ítölsku knatt-
spymunni. „Það eru tvær ástæður
fyrir því að við fömm út í þetta. I
fyrsta lagi emm við þeir einu sem
emm með skipulagðar ferðir til ít-
alíu, og þetta er ágætis kynning á
landinu fyrir heimsmeistarakeppn-
ina næsta*ár. í öðra lagi era marg-
ir sem standa að fyrirtækinu; við
reynum alltaf að gera þeim öllum
til geðs — og meðan fólkið bíður
eftir sumarleyfum sínum viljum við
hjálpa til við að skemmta þvi með
knattspyrnu eins og hún gerist best
í heiminum," sagði Helgi Jóhanns-
son, framkvæmdastjóri ferðaskrif-
stofunnar, í samtali við Morgun-
blaðið í gær.
Mm
FOLX
■ GYLFI Dalmann Aðalsteins-
son, varnarmaður í KR, hefur
ákveðið að leika með Víði í 2. deild
næsta sumar. Gylfi er annar KR-
ingurinn, sem skiptir yfir í Víði í
vetur; hinn er Steinar Ingimund
arson.
■ KRISTJÁN Kristjánsson, sem
hefur leikið með Þór undanfarin
ár, verður þjálfari og leikmaður 4.
deildar liðs Magna, Grenivík, á
næsta tímabili.
■ HALLDÓR Áskeisson, lands-
liðsmaður í knattspymu, verður
áfram með Val næsta sumar.
Halldór dvelst á Akureyri í vetur
•og hafði verið orðaður við sitt gamla
félag, Þór.
I GUÐJÓN Skúlason og Sandy
Anderson úr ÍBK og David Gris
som, UMFG, fengu tvö M í ein-
kunnagjöf Morgunblaðsins fyrir leik
sinn í úrvalsdeildinni á sunnudag-
inn. Þá áttu Keflvíkingarnir, Fal
ur Harðarson og Magnús Guð-
finnsson, að fá eitt M fyrir sama
leik. Einkunnagjöf úr þessum leik
vantaði í blaðið í gær.
■ HK sigraði í 2. deild karla í
handknattleik á síðasta keppn
istímabili, en ekki ÍR, eins og mis
hermt var í blaðinu í gær. Þetta
leiðréttist hér með og er beðist vel
virðingar á mistökunum.
yfGóð liðsheild skóp sigurinn
- sagði Guðmundur Bragason, fyrirliði Grindvíkinga
„ÞAÐ var fyrst og fremst góð
liðsheild og að hafa fengið
þjálfarann okkar aftur á bekk-
inn sem skóp þennan sigur,"
sagði Guðmundur Bragson eft-
irað UMFG hafði unnið ÍBK,
85:82, í Grindavík í gærkvöldi.
Grindvíkingar byijuðu betur og
náðu strax forystu, en Keflvík-
ingar tóku mikinn fjörkipp um miðj-
an fyrri hálfleik og náðu í fyrsta
HHHH sinn að jafna. Guð-
Frímann jón skoraði fjórar
Ólafsson þriggja stiga körfur
sknfar á þessum kafla.
Staðan í hálfleik var
49:46 fyrir gestina.
Seinni hálfleikur var mjög jafn
þar sem liðin skiptust á um að hafa
forystu. Þegar þijár mínútur vora
til leiksloka náði Hjálmar forystunni
fyrir Grindavík með því að gera
þriggja stiga körfu, 79:77. Þegar
mínúta var til leiksloka og staðan
81:78 stal Steinþór Helgason knett-
inum og branaði upp skoraði 83:78
og tryggði svo gott sem sigur
Grindvíkinga.
Grindvíkingar, sem hafa enn ekki
tapað á heimavelli, léku einn sinn
besta leik á tímabilinu og virðist
Bandaríkjamaðurinn ,Ron Davis,
falla vel inn í leik liðsins. Hann lék
mjög vel í vörn og hélt Sandy And-
erson niðri. Guðmundur Bragason
var traustur að vanda og eins átti
Steinþór Helagson góðan leik.
Keflvíkingar léku vel á köflum
en létu mótlætið fara í skapið á sér
Frá Bimi
Bjömssyniá
Sauðárkróki
á stundum og duttu niður við það.
Guðjón Skúlason var mjög góður í
fyrri hálfleik, skoraði þá 22 stig.
Þá átti Magnús Guðfinnsson góðan
leik. Ólafur Gottskálksson lék ekki
með ÍBK vegna meiðsla og veikti
það liðsheildina.
Góöur lokakaf li tryggði Sauð-
krækingum sigur
Með mjög góðum kafla síðustu
tíu mínútur leiksins gegn Þór
náðu Tindastólsmenn að tiyggja sér
nokkuð öruggan sigur, 108:80.
Fram að því var leik-
urinn í járnum, en
eftir að Þórsarar
misstu Jóhann Sig-
urðsson út af með
fimm villur, hrandi leikur liðsins
gjörsamlega. Hann hafði verið mjög
sterkur í vöminni.
Fyrri hálfleikur var mjög jafn og
skemmtilegur, um miðjan hálfleik-
inn slakaði Þór dálítið á og Tinda-
stóll náði mest.tíu stiga forystu en
undir lok hálfleikins rifu Þórsarar
sig upp aftur og minnkuðu muninn
í fjögur stig. Þeir komu síðan mjög
grimmir til leiks eftir hlé, komust
fljótlega yfir og það vora fá stig
sem skildu alveg fram um miðjan
hálfleikinn, er Jóhann fór útaf.
Síðustu tíu mín. leiksins skoruðu
Þórsarar 19 stig en heimamenn 39.
Bo Heiden, Valur Ingimundarson
og Sturla Örlygsson voru bestir hjá
Tindastóli; Sturla tók Bandaríkja-
manninn í Þórsliðinu, Dan Kennard,
nánast úr umferð, mest allan leik-
inn. Þórsarar áttu ekki góðan dag
miðað við það sem þeir hafa sýnt
undanfarið, en vora í raun mjög
óheppnir. Síðari hluta leiksins gekk
nánast ekkert upp hjá þeim, meðan
leikmenn Tindastóls léku mjög vel.
Jón Örn og Guðmundur Björnsson
vora bestir hjá Þór.
12 áhorfendur í Seljaskóla
Tólf áhorfendur, aðallega böm,
sáu ÍR vinna Reyni, Sand-
gerði, 85:71 í frekar döpram leik í
íþróttahúsi Seljaskóla í gærkvöldi.
ÍR-ingar náðu strax
níu stiga forskotí,
en Sandgerðingar
náðu að minnka
muninn í tvö stig um
miðjan seinni hálfleik. Þá rönkuðu
heimamenn við sér og ekki var að
sökum að spyrja.
Bjöm Steffensen var í miklum
ham, skoraði grimmt og var góður
í vörn ÍR. 15 ára piltur, Máras
Amarson, vakti athygli fyrir ör-
ugga leikstjóm og Lee átti ágætan
dag. Athygli vakti að Bjöm Bolla
son, sem virkaði „heitur“ í byijun,
var tekinn út af og var ekki meira
með.
Grissom var áberandi sterkastur
hjá Reyni og Ellert átti góða spretti.
Jón Ben sýndi ágætan leik eftir
hlé. Undir lokin kom Magnús Magn-
ússon inná, en hann er aðeins 14
ára.
Skúli Unnar
Sveinsson
skrifar
URSLIT
UMFG-IBK 85:82
íþróttahúsið Grindavík, úrvalsdeiiin f körfu-
knatlleflc, þriðjudaginn 12. deseniber 1989-
Gangnr leiksins: 0:3, 7:4, 20:4, 24:14,
35:22, 37Ú15. 39:45, 46:49, 56:56, 61:66,
70:70, 76:76, 81:78, 85:82
Stig UMFG: Guðmundur Bragason 25,
Steinþór Helgason 22, Ron Davis 12, Hjábn-
ar Hallgrímsson 9, Rúnar Árnason 8, Guð-
laugur Jonsson 6, Sveinbjöm Sigurðsson
f, Marel Guðlaugsson 1.
Stig ÍBK: Guðjón Skúlason 24, Magnús
Guðfinnsson 16, Sigurður Ingimundarson
12, Sandy Anderson 10, Falur Harðarson
8, Einar Einarsson 7, Nökkvi Jðnsson 4,
Albert Óskarsson 1.
Áhorfendur: Um 500 (fullt hús).
Dómarar: Leifur Garðarson og Kristínn
Albertsson - sluppu vel frá erfiðum leik.
Tindastóll - Þór 108:80
Sauðárkrókur, úrvalsdeildin í körfuknatt-
leik, þriðjudaginn 12. desember 1989.
Gangur leiksins: 8:11,19:19, 32:25,42:33,
44:40, 48:49, 59:57, 66:59, 74:61, 90:69,
108:80.
Stig UMFT: Bo Heiden 38, Valur Ingi-
mundarson 37, Sverrir Sverrisson 14, Sturla
Örlygsson 8, Pétar Sigurðsson 6, Bjöm
Sigtryggsson 3, Ólafur Adolfsson 2.
Stig Þórs: Jón Öm Guðmundsson 24, Guð-
mundur Bjömsson 15, Konráð Óskarsson
14, Dan Kennard 10, Stefán Friðleifsson
6, Ágúst Guðmundsson 4, Jóhann Sígurðs-
son 3, Davíð Hreiðarsson 2, Þórir Agústs-
son 2.
ÁhorfenduraTæplega 400.
Dómarar: Kristinn Albertsson og Guð-
mundur Stefán Mariusson.
ÍR-Reynir 85:71
íþróttahús Seijaskóla, úrvalsdeildin í körfii-
knattleflí, þriðjudaginn 12. desember 1989.
Gangur leiksins:5:0, 15:6, 21:12, 27:23,
40:33, 44:36, 48:40, 58:56, 72:61, 85:71.
Stig ÍR: Bjöm Steffensen 32, Tomas A,
Lee 19, Márus Amarson 10, Jóhannes
Sveinsson.8, Bjöm Bollason 6, Péuir Hólm-
steinsson 6, Bragi Reynisson 4,
Stíg Reynis: David Grissom 27, EUert
Magnússon 16, Jón Ben Eínarsson 14,
Sveinn Hans Gíslason 7, Einar Þór Skarp-
héðinsson 4, Jón Guðbrandsson 3.
Áhorfendun 12.
Dómaran Helgi Bragason og Bergur
Steingrímsson og hafa báðir dæmt betur.
Guðmundur Bragason, Steinþór Heigason
og Ron Davis, UMFG. Guðjón Skúiason og
Magnús Guðfmnsson, ÍBK. Björa Steffens-
en, IR. David Grissom, Reyni. Bo Heiden,
Valur Ingimnndarson og Sturla Örlygsson,
Tindastóli. Jón Örn Guðmundsson og Guð-
mundur Bjömsson, Þór.
w
Hjálmar Hallgrímsson, Rúnar Ámason og
Guðlaugur Jónsson, UMFG. Sandy Anders-
son og Sigurður Ingimundarson, IBK. Már-
us Amarson og Tómas A. lce, ÍR. Eltert
Magnússon, Reyni. Sverrir Sverrisson,
Tindastóli. Konráð Óskarsson og Jóhann
Sigurðsson, Þór.
Ikvöld
HK og FH leika í 1. deild karia á Is-
landsmótinu í handknattleik í Digra-
nesi í kvöld kl 20.15. Tveir leikir verða
í 2. deild karla. UBK og Selfoss tóka
í Digranesi, strax eftir leik HK og FH
og Armann leikur við Fram í Laugar-
daishöll kl. 20.15. Þróttur og UMFA
leika í 2. deild kvenna í Höilinni kL
19.00 og Selfoss og ÍBK leika á Sel-
fossi kl. 20.00
HANDKNATTLEIKUR / LANDSLIÐIÐ
Danir koma ekki, en
Austurríkismenn heitir
KORFUKNATTLEIKUR