Morgunblaðið - 22.12.1989, Side 33

Morgunblaðið - 22.12.1989, Side 33
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 22. DESEMBER 1989 Grindavík: Fangahúsi lög- reglunnar lokað Grindavík. > Heilbrigðisfulltrúi Suðurnesja bannaði notkun fangahúss lög- reglunnar í Grindavík á miðviku- dag. Hann gerði athugasemdir vegna aðbúnaðar fanga og frá- gangs á fangaklefa. „Athugasemdirnar eru vegna Bílslys við við Kerling- arskarð Borg- í Mikiaholtshreppi. UMFERÐARÓHAPP varð á þjóðveginum um Kerlingar- skarð á miðvikudag. Bíll með tveimur mönnum fauk út af veginum og lenti á hvolfi. Mennirnir sem í bílnum voru sluppu ómeiddir en bíllinn er ónýtur. Bíllinn var frá Stykkis- hólmi. Undanfarandi daga hefur verið hvöss norðaustanátt, frost komist í fimnltán stig en snjólaust verið að mestu og vegir vel færir. Páll. loftræstingar, þrifnaðaraðstöðu og frágangs á niðurfalli í fangaklef- um,“ sagði Sigurður Ágústsson aðalvarðstjóri í samtali við Morgun- blaðið. Sigurður sagði ennfremur að frestur hefði verið gefinn undan- farin ár til þess að bæta úr, en það hefði ekki verið gert og því hefði notkun verið bönnuð. Hann sagði að ef lögreglan þyrfti að vista menn yrði að aka þeim til Keflavíkur. Sigurður sagðist vonast til þess að ráðamenn tækju við sér í fram- haldi af þessari lokun og ráðist yrði í að fullgera nýja lögreglustöð í húsi sem var keypt af Landsbank- anum og hefur staðið autt síðastlið- ið eitt og hálft ár. „Aðstaða lögreglumanna er ekki síður bágborin, til að mynda eru allar skýrslur unnar á kaffistofunni og fatahengið er um leið biðstofa skrifstofu bæjarfógeta," sagði Sig- urður að lokum. wa INNLENT Sex kvennanna sjö sem gerðar voru að heiðursfélögum Hjúkrunarféiags íslands. Frá vinstri: Elísabet Erlendsdóttir, fyrrverandi bæjarhjúkrunarkona í Hafharfirði; Guðríður Jónsdóttir, fyrrverandi forstöðu- kona Kleppsspítala; systir Hildegardis, priorinna Landakoti; Ingibjörg R. Magnúsdóttir, skrifstofustjóri heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytis; María Lysnes, fyrrverandi rektor Statens skole fro psykiat- riske sykepleiere Oslo og Sigurlín Gunnarsdóttir, fyrrverandi hjúkrunarforstjóri Borgarspítala. A mynd- ina vantar Sigrúnu Magnúsdóttur, fyrrverandi forstöðukonu Heilsuverndarstöðvar Reykjavíkur. Hjúkrunarfélag íslands 70 ára: Sjö brautryðjendur heiðraðir HJÚKRUNARFÉLAG íslands, sem í upphafi hét Félag íslenskra hjúkrunarkvenna, stóð nýlega fyrir ráðstefhu í tilefni af 70 ára afmæli sínu undir yfírskriftinni Hjúkrun - þjóðfélagslegt afl. í upphafi ráðstefhunnar voru sjö brautryðjendur í hjúkrunarmál- um heiðraðir. Á ráðstefnunni, sem um 370 hjúkrunarfræðingar sáu, var fjallað um faglega þróum í hjíkrun, þróun stjórnunar og rannsóknir i faginu. Einnig var framtíð félagsins rædd. í dag, föstudag, frá klukkan ' 16-19 hefur Hjúkrunarfélag íslands móttöku í húsakynnum síðum að Suðurlandsbraut 22 fyrir hjúkruna- rfræðinga og velunnara félagsins. Skáldsaga um ungl- inga og umferðina BÓKAÚTGÁFAN Reykholt hefur í samstarfí við Uihferðarráð, SEM- hópinn, Klúbb 17 og Rauða kross íslands gefið út bókina Lífið er lukkuspil, sem er skáldsaga eftir Norðmanninn Erling Pedersen. Sagan fjallar um þrjú ungmenni á bílprófsaldri og hvernig hræðileg- ur atburður breytir lífi þeirra allra. Markmið bókarinnar segja útgef- , endur vera að koma á framfæri jákvæðum viðhorfum tii umferðar. Það sé meðal annars gert með að lýsa biturri reynslu ungmenna sem lenda í umferðarslysi. Nauðsynlegt sé að beina umfjöllun af þessu tagi til ungra ökumanna, sem séu rúmur fimmtungur af fórnarlömbum um- ferðarslysa og um þriðjungur þeirra sem látast í umferðarslysum. Lífið er lukkuspil er til sölu í bokabúðum. Næstu daga verður bókinni einnig dreift ókeypis til þeirra ungmenna sem eru að fá ökuskírteini í fyrsta skipti. Guðmundur Sæmundsson bóka- útgefandi í Reykholti áfhendir Sigmundi Sigurðssyni eintak af bókinni Lífið er lukkuspil í af- greiðslu lögreglustöðvarinnar þar sem Sigmundir var kominn til að fá afhent ökuskírteini. FISKVERÐ Á UPPBOÐSMÖRKUÐUM 21. desember. FISKMARKAÐUR hf. í Hafnarfirði Hæsta Lægsta Meðal- Magn Heildar- verð verð verð (lestir) verð (kr.) Þorskur 58,00 54,00 56,55 61,318 3.467.219 Þorskur(óst) 75,00 58,00 62,47 0,468 29.235 Þorskur(smár) 20,00 20,00 20,00 0,477 9.534 Ýsa 93,00 81,00 84,04 15,125 1.271.076 Ýsa(ósl.) 60,00 60,00 60,00 0,849 50.940 Karfi 35,50 30,00 33,58 27,239 914.638 Ufsi 38,00 20,00 37,46 9,785 366.565 Steinbítur 20,00 20,00 20,00 1,782 35.647 Langa 42,00 20,00 28,28 0,839 23.737 Lúða 235,00 170,00 184,50 0,314 57.988 Grálúða 37,00 20,00 23,93 2,628 62.901 Koli 35,00 35,00 35,00 2,624 91.854 Keila 10,00 10,00 10,00 0,080 797 Keila(ósL) 10,00 10,00 10,00 0,183 1.830 Skötuselur 110,00 110,00 110,00 0,030 3.344 Samtals 51,62 123,742 6.387.305 Selt var aðallega úr Sigurey BA 20. desember (109,386 tonn). Seld voru samtals 5,153 tonn 21. desember fyrir 386.757 krónur, eða 75,06 króna meðalverð. Þar af voru seld 3,569 tonn af ýsu fyrir 86,18 króna meðal- verð, 0,471 tonn af steinbít fyrir 45 króna meðalverð, 0,253 tonn af löngu fyrir 20 króna meðalverð, 0,197 tonn af lúðu fyrir 235,15 króna meðalverð og 0,663 tonn af keilu fyrir 10 króna meðalverð. FAXAMARKAÐUR hf. í Reykjavík Þorskur '53,00 40,00 43,03 35,197 1.514.404 Ýsa 102,00 50,00 93,89 28,034 2.632.233 Karfi 40,00 29,00 38,41 26,910 1.033.740 Ufsi 35,00 35,00 35,00 0,465 16.275 Hlýri+steinb. 60,00 60.00 60,00 0,645 38.700 Langa 20,00 20,00 20,00 1,307 26.140 Lúða 345,00 210,00 278,18 0,688 191.385 Skarkoli 41,00 41,00 41,00 1,461 59.901 Keila 6,00 6,00 6,00 0,231 1.386 Skata 90,00 20,00 75,80 0,079 5.988 Skötuselur 230,00 210,00 213,73 0,166 35.480 Kinnar 87,00 70,00 77,85 0,052 4.048 Samtals 58,38 95,236 5.559.681 Selt var úr Margréti EA og Hjalteyrinni EA. Morgunblaðiö/Þorkell Grundarfj örður: Asi opnar matvöruverslun Grundarfirði. „MARKMIÐIÐ er að ná niður verði á matvöru,“ segir Friðrik Clausen, Ási í Ásakaffi, en hann hefúr ásamt börnum sinum opnað verslunina Ásakjör í Grundarfirði. Ási og fjölskylda hans tók á leigu hús Kaupfélags Grundarfjarðar og keypti vörubirgðir félagsins en kaupfélagið varð gjaldþrota fyrr í mánuðinum. „Við lækkuðum verðið á gömlu birgðunum og ætlum í framtíðinni að selja alla matvöru, mjólk, brauð, frystar kjötvörur og nýlenduvörur, og hreinlætisvörur. Til að halda vöruverði niðri verða einungis tveir til þrír starfsmenn í versluninni og hvorki reikningsvið- skipti né greiðslukort. Framvegis verður opið frá kl. 9 til 18 en lokað í hádeginu. Nú fyrir jólin ætlum við að hafa sama afgreiðslutíma og aðrar verslanir," sagði Ási. Verslun- arstjóri í Ásakjöri er Friðrik R. Frið- riksson. Ragnheiður Moi-gunbladid/Ragnheiður Gunnarsdóttir Friðrik, Ási og Anna Dröfh í nýju versluninni. ÁTVR: Lokað á Þor- láksmessu ÁFENGISÚTSÖLUR á landinu verða lokaðar á Þorláksmessu en opið verður til kl. 21 í kvöld í Reykjavík og Akureyri. Opnun- artími áfengisverslananna er breytilegur eftir sveitarfélögum en reglan er sú að þær eru opn- ar jafn lengi og aðrar verslanir. Búist er við miklum önnum í áfengisútsölum í dag þar sem lokað er á Þorláksmessu. Bjarni Þor- steinsson, starfsmaður ÁTVR, sagði að áfengisútsölurnar mættu ekki hafa opið lengur en aðrar verslanir og þar sem Þorláksmessu ber úpp á laugardegi verður lokað þann dag. 27. desember verða áfengisútsöl- ur opnar til kl. 18 í Reykjavík og á Akureyri en 28. og 29. desember verður opið til kl. 19. Lokað verður í áfengisútsölum 30. desember. Flutninga- bifreið valt í Kelduhverfi Hraunbrún, Kelduhverfi. FLUTNINGABÍLL valt efst í Auðbjargarstaðabrekku í Kelduhverfi laust fyrir há- degi í gær, fimmtudag. Er þetta annar flutningabíllinn sem veltur í þessari brekku í vetur en ekki hafa orðið slys á fólki. Flutningabíllinn er frá Sva- vari og Pétri á Húsavík sem sjá um mjólkurflutninga hér austur um sveitir. Bíllinn var kominn af stað niður brekkuna þegar hann fór að renna til vegna hálku og sá bílstjórinn þann kost vænstan að beina bílnum inn að hlíðinni en komst ekki hjá því að velta. Það er þó skárri leið en að fara fram af því að brekkan er mjög há og nánast þverhnípt. Bíllinn virðist ekki vera mikið skemmdur. Inga t

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.