Morgunblaðið - 08.02.1990, Qupperneq 51
MORGUNBLAÐÍÐ IÞROTTIR FIMMTUDAGUR 8. FEBRÚAR 1990
51'
faém
FOLK
■ ÓLAFUR Þórðarson, lands-
liðsmaður í knattspyrnu sem æfir
nú með Crystal Palace, átti að
leika með varaliði félagsins gegn
Fulham í gærkvöldi enjeiknum var
frestað vegna veðurs. Olafur sagð-
ist í samtali við Morgunblaðið í
gærkvöldi vera ánægður með dvö-
lina hjá Palace. „Það er ekki enn
farið að ræða neinn samning. Það
var reiknað með í upphafi að ég
æfði með liðinu í þijár til fjórar
vikur. Ég vil þó fá það á hreint
fyrr hvort af samningi verður,“
sagði Ólafúr.
M ÞAÐ hefur ekki verið algengt
í gegnum árin að KA-menn á Ak-
ureyri hafi verið í herbúðum Þórs
eða öfugt. Nú bregður hins vegar
svo við að þjálfari 2. flokks KA í
knattspymu í sumar verður Eiríkur
Eiriksson fyrrum markvörður
Þórs. Hann mun einnig sjá um
vetraræfingar KA-manna áður en
Guðjón Þórðarson heldur norður.
Þá verður Gunnar „Gassi“ Gunn-
arsson aðstoðarþjálfari meistara-
flokks hjá Þór auk þess að þjálfa
2. flokk, en hann er uppalinn í KA.
Gunnar er bróðir Sigbjörns Gunn-
arssonar fyrrum leikmanns IBA
og KA.
■ LUKA Kostic, þjálfari Þórs-
ara, er mættur til leiks frá Júgó-
slavíu og æfingar því að hefjast
fyrir alvöru. Með honum komu Jú-
líus Tryggvason og Birgir Karls-
son, leikmenn Þórs sem voru ytra
við æfingar hjá þjálfaranum í mán-
ono i»viq
■ JÚGÓSALA VARNIR tveir
sem leika í sumar með Selfossi í
2. deildinni eru komnir til landsins.
Það eru framheijarnir Izudin
Dervic og Salih Porca.
I ÓVÍST er hvort annar Júgó-
slavi en Luka Kostic leiki með Þór
í sumar. Hugsanlegt er þó að fram-
heijinn Bojan Taneski komi aftur
til félagsins.
■ MAGNI Björnsson, 32 ára
Vopnfirðingur, hefur verið ráðinn
fijálsfþróttaþjálfari hjá Ungmenna-
félaginu Óðni í Vestmannaeyjum.
Magni er íþróttalífeðlisfræðingur,
lærður í Auburn í Alabamafylki í
Bandarikjunum. Þetta kom fram
í Fréttum.
GETRAUNIR
Bogdan bjart-
sýnn fyrir HM
BOGDAN Kowalczyk, lands-
liðsþjálfari íslands í handknatt-
leik, er bjartsýnn á gott gengi
íslenska liðsins á Heimsmeist-
aramótinu íTékkóslóvakiu ef
marka má spá hans fyrir ís-
lenskar getraunir.
mr
Islenskar getraunir hafa ákveðið
að vera með aukaseðil fyrir HM
í Tékkóslóvakíu þar sem fólki gefst
kostur á að tippa á leikina í riðla-
keppninni. Getraunir fengu nokkra.
„handboltasérfræðinga“ til að tippa
og var Bogdan Kowalczyk einn
þeirra.
Bogdan spáir því að Islendingar
sigri Kúbveija og Júgóslava en geri
jafntefli við Spánveija í riðlakeppn-
inni. Þetta þýðir, ef þessi spá ræt-
ist, að ísland fari áfram með þijú
stig í milliriðil, ef við gerum ráð
fyrir því að Kúba komist ekki
áfram. Í milliriðli mætir ísland
líklega Sovétríkjunum, Póllandi og
Austur-Þýskalandi.
Jón Hjaltalín Magnússon, form-
aður HSI, er enn bjartsýnni og spá-
ir að ísland vinni alla leiki sína í
forriðlinum. Guðjón Guðmundsson,
liðsstjóri, er hinsvegar varkár í sinni
spá og spáir íslandi jafntefli gegn
Kúbu og Spáni, en vinni Júgóslavíu.
Bogdan Kowalczyk spáir því að
ísland sigri Kúbu og Júgóslavíu en
geri jafntefli við Spán í riðlakeppninni.
KORFUKNATTLEIKUR
Körfuboltahátíð
í Keflavfk
Bíll í verðlaun fyrir þann sem hittir
í körfuna frá miðju vallarins
KORFUBOLTI
1. deild kvenna:
Annar
sigur
KR-inga
KR-stúlkum hefur ekki
gengið vel í 1. deild kvenna
í körfuknattleik en í fyrrakvöld
náðu þær öðrum sigri sínum í
I deildinni er þær
Vanda unnu Grindvík-
Sigurgeirsdóttir inga, 56:38. Sig-
skrifar ur kr var gr.
uggur en liðið
hafði tiu stiga forskot í leikhléi,
24:14.
ÍR sigraði Njarðvík, 66:55, í
ipjög sveifiukenndum leik. Mun-
urinn var frá 5 til 26 stig en í
leikhléi var staðan 29:21. Harpa
Magnúsdóttir átti mjög góðan
leik f liði Njarðvíkur og gerði
17 stig í síðari hálfleik en lið ÍR
var nokkuð jafnt.
KKI og Samtök íþróttafrétta-
manna standa fyrir körfuknatt-
leikshátíð í Keflavík annað
kvöld. Úrvalslið Suðurnesja-
manna mun leika gegn úrvals-
liði landsins. Einnig verður
troðslukeppni og þriggja stiga
skotkeppni.
Hátíðin hefst kl. 19.00 í íþrótta-
húsinu í Keflavík með undan-
keppni í troðslu og þriggja stiga
skotum. Síðan verður leikur Suður-
nesjamanna og landsins. Leikurinn
verður fjórir leikhlutar, 12 mínútur
hver leikhluti.
í fyrsta leikhléi verður leikur
milli stjórnar KKÍ og íþróttafrétta-
manna. Þess má geta að stjórnar-
menn KKI hafa samanlagt leikið
193 landsleiki. í öðru leikhléi verða
úrslit í troðslukeppninni og þriggja
stiga skotkeppninni. í þriðj leikhléi
fá tveir heppnir áhorfendur tæki-
færi til að vinna Nissan Micra bíl
frá Ingvari Helgasyni h/f að verð-
mæti kr. 700.000 ef þeir hitta
tveimur skotum af þremur í körfuna
frá miðju vallarins.
Liðin eru skipuð eftirtöldum leik-
mönnum:
Suðurnesjaúrvalið:
Guðmundur Bragason og Hjálmar Hallgr-
ímsson, UMFG, Magnús Guðfinnsson, Guð-
jón Skúlason og Sandy Anderson, ÍBK,
Teitur Örlygsson, Patrick Releford, Friðrik
Ragnarsson og ísak Tómason, UMFN og
David Grissom, Reyni Sangerði.
Úrvalslið landsins:
Chris Behrens, Val, Valur Ingimundarson,
UMFT, Dan Kennard, Þór, Pálmar Sigurðs-
son og Jonathan Bow, Haukum, Bjöm Stef-
fensen, ÍR, Axel Nikulásson, Anatolfj Ko-
uvtoum, Guðni Guðnason og Páll Kolbeins-
son.
Stjórnandi Suðumesjaliðsins er Dennis
Matika, en Torfi Magnússon mun stjórna
landsúrvalinu.
KNATTSPYRNA / EVROPA
Dorin Mateut frá Dynamo Búkarest í Rúmeni var markahæsti knatt-
spymumaður Evrópu 1989 og hlaut gullskó Adidas. Við hlið hans (t.h.) er
landi hans, Marcel Coras, sem hlaut silfurskóinn.
Gull- og silfur-
skómir fóm
tilRúmeníu
... Mateut, miðheiji Din-
no Bukarest, sem nú heitir
r Unirea, var markahæsti
lyrnumaður Evrópu 1989
ggði sér Gullskó Adidas.
franska knattspyrnublaðið
Football sem sér um hina
árlegu útnefningu í samvinnu við
Adidas.
Mateut tók við Gullskónum í
Köln á mánudagskvöldið, en það
var í fyrsta skipti sem athöfnin
fór fram utan Frakklands. Mateut
skoraði alls 43 mörk fyrir Dinamo
Ruut Gullit tók við viðurkenningu
fyrir hönd AC Mílanó, sem var útn-
efnt besta knattspyrnulið Evrópu.
Búkarest í fyrra. Landi hans
Marcel Coras, sem leikur með
Victoría Búkarest, fékk silfurskó-
inn. Hann skoraði 36 mörk, en
Brasilíumaðurinn Baltazar, sem
leikur með Atletico Madrid, fékk
bronsskóinn. Hann skoraði 35
mörk.
AC Mílanó, sem varð sigurveg-
ari í Evrópukeppni meistaraliða,
var útnefnt besta knattspyrnulið
Evrópu. Ruud Gullit tók við viður-
kenningu fyrir félagið. Félagi
hans Marco van Basten fékk við-
urkenningu fyrir að vera besti
knattspyrnumaður Evrópu.
BLAK
Breiðablik
náði ekki
að tvyggja
sér titilinn
Víkingur sigraði Breiðablik í 1.
deild kvenna í blaki í Digra-
nesi í gærkvöldi, 3:2 (9:15, 11:15,
15:10, 15:2, 15:11). Blikastúlkur,
milB sem hefðu með sigri
Guðmundur tryggt sér deildar-
Þorsteinsson meistaratitilinn,
sknfar verða því enn að
bíða eftir leik
Víkings og KA á föstudagskvöld. í
þeim leik ræðst það hvort það verð-
ur Víkingur eða Breiðablik sem
hljóta tilitinn. Ef Víkingur vinnur
KA þá verður Víkingur deildar-
meistari, annars Breiðablik.
Stórleikur á
Seltjarnarnesi
Efstu liðin í úrvalsdeildinni í körfu-
knattleik, KR og ÍBK, leika í fþrótta-
húsinu á Seltjarnarnesi í kvöld kl.
21.00. KR hefur forystu í B-riðli og
ÍBK f A-riðli: Reynir og Tindastóll
leika f Sandgerði kl. 20.00.
H JOVICA Cvetkovic, aðal örv-
henta skyttan í landsliði Júgóslava
í handknattleik, verður ekki með á
HM í Tékkóslóvakíu. Hann hefur
hætt æfingum með liðinu vegna
meiðsla í ökkla. Júgóslavar eru í
riðli með Islendingum sem kunn-
ugt er.
■ GAMLA brýnið Alexandr Ry-
manov er ekki í hópi Sovétmanna
fyrir HM í Tékkóslóvakíu. Annar
leikmaður sem vel ætti að vera
kunnur hér á landi, stórskyttan
Mikhaíl Wasilíev, er ekki heldur í
hópnum. Þeir eru báðir um þrítugt,
og leika í vetur með liðum í vestur-
þýsku 2. deildinni.
Cvetkovic. Rymanov.
■ RÚMENAR, sem koma ríl
landsins á laugardag og mæta ís-
lendingum á sunnudag, mánudag
og þriðjudag, sigruðu á móti í Búlg-
aríu á dögunum. Þeir sigruðu í öll-
um leikjunum og fengu 10 stig;
unnu Portúgali 25:23, Frakka
26:17, Búlgari 22:17, Grikki 25:20
og loks búlgarska 1. deildarliðið
Balkan 35:18. Frakkar urðu í öðru
sæti á mótinu með 8 stig, töpuðu
aðeins fyrir Rúmenum, Búlgarir
fengu 6 stig og Grikkir, Portúgalir
og lið Balkan 2 stig.
■ EFTIR mótið í Búlgaríu héldu
Frakkar til V-Þýskalands og
mættu heimamönnum í tveimur
landsleikjum. V-Þjóðveijar unnu
fyrri leikinn 18:15 en Frakkar unnu
þann síðari 20:14. Þess ber að geta
að nokkra leikmenn vantaði í lið
Þjóðveija í báðum leikjum, m.a.
Klemm frá Dormagen, Fitzek frá
Gummersbach og Quarti frá Ess-
en. Þeir eru allir meiddir. Þá var
Jochen Fraatz ekki með í síðari
leiknum, en hann hafði verið
markahæstur V-Þjóðveija í þeim
fyrri með 7 mörk.
ÚRSLIT
Handknattleikur
2. deild karla:
UBK-UMFN................22:21
2. deild kvenna:
Selfoss — UMFA..........19:16
3. deild karla:
ÍS-UFHÖ.................28:21
Skíðaganga
Toyota-mót Skíðafélag Reykjavfkur fór
fram í Bláfjöllum á laugardaginn. Úrslit
voru sem hér segir:
Karlar 20 - 49 ára (10 km)
Daníel Jakobsson, Isafirði........29,28
Baldur Hermannsson, Siglufirði....30,23
Halldór Matthíasson, ÍR...........31,25
Ólafur Valsson, Siglufirði........34,10
Eiríkur Stefánsson, SR............41,31
Gunnar Gunnlaugsson, SR......:....41,44
Sigurjón Marinósson, SR...........44,40
Piltar 16 - 20 ára (10 km)
Marinó Siguijðsson, SR............36,39
Konur (5 km)
Steila Hjaltadóttir, ísafirði.....18,49
LiljaÞorleifsdóttir, SR............23,50
Karlar 50 ára og eldri (5 km):
Matthías Sveinsson, SR............20,36
Hörður Guðmundsson, SR............22,00
Drengir 10 ára og yngri (5 km)
Guðni Eiríksson, SR...............24,50
Borðtennis
Úrslit á Víkingsmótinu skoluðust örlítið til
i þriðjudagsblaðinu. Flokkur stúlkna 11 ára
og yngri var merktur sem drengjaflokkur
og nöfnin í drengjaflokki vantaði. Röðin þar
varð þessi: 1. Guðmundur P. Stephensen
Vikingi, 2. Einar Karl Birgisson UMSB, 3.
Tryggvi Jónsson Víkingi. Þá varð. ólafur
Stephensen annar í flokki drengja 11-13
ára, ekki Ólafur Rafnsson eins og sagt
var. Beðist er velvirðingar á mistökunum.
Knattspyrna
ÍTALÍA - 1. deild:
AC Mflanó - Veróna............0:0