Morgunblaðið - 08.02.1990, Síða 52
kt/
WKIi
FLUGLEIÐIR
tfgtmfyUifeffe s
— EMM'A —
Kaffipokar
FIMMTUDAGUR 8. FEBRUAR 1990
VERÐ I LAUSASOLU 90 KR.
Gefur Hafii-
firðingum
340 málverk
EIRÍKUR Smith, listmálari, hefiir
gefið Haftiarfjarðarbæ 340 verk
eftir sig og verða þau í vörzlu
Hafharborgar, menningar- og
listastofhunar Hafnarfjarðar.
I gjöfinni eru teikningar, vatnslita-
myndir, pastelmyndir og olíumál-
verk. Elztu myndimar eru krítar-
teikningar frá 1948 og þær nýjustu
frá því í fyrra.
Sýning á 80 þessara mynda verður
opnuð í Hafnarborg á laugardaginn.
Sjá í miðopnu: „Mikill vegsauki
að Eiríkur treystir okkur fyrir
að varðveita sögu sína.“
Fimm félög
samþykkja
samninga
Dagsbrún með
fund á mánudag
NÝGERÐIR kjarasamningar Al-
þýðusambands Islands við vinnu-
veitendur voru samþykktir á al-
mennum félagsfundum i fimm
verkalýðsfélögnm í gærkveldi og
hafa þá verið samþykktir í níu
aðildarfélögum ASI.
Verkalýðs- og sjómannafélag
Keflavíkur samþykkti samningana
með 77 atkvæðum gegn 22 og
Trésmíðafélag Reykjavíkur með
þorra atkvæða. Samningarnir voru
einnig samþykktir í verkalýðsfélag-
inu Boðanum í Þorlákshöfn með 40
atkvæðum gegn 1. Þá voru þeir sam-
þykktir í verkalýðsféiaginu á
Húsavík og í verslunarmannafélagi
A-Skaftafellssýslu.
Verkamannafélagið Dagsbrún í
Reykjavík verður með félagsfund um
kjarasamningana á mánudaginn
klukkan 16 í Bíóborginni við Snorra-
braut. Þá verður verkakvennafélagið
Framsókn í Reykjavík með félags-
fund um samningana í kvöld í Sókn-
arsalnum og Iðja verður með félags-
fund á laugardaginn.
MorgunDiaoiO/Kax
Þröstur Kristófersson, Arsæll Arsælsson og Magnús Einarsson, skipverjarnir þrír af Dodda, sem björguð-
ust í gærkvöldi. A innfelldu myndinni er Rafti Guðlaugsson skipsljóri á Auðbjörgu, sem bjargaði þre-
menningunum.
Doddi SH 222 fékk á sig brotsjó út af Rifí:
Tel að röð af kraftaverk-
um hafi bjargað lífi okkar
segir Þröstur Kristófersson skipstjóri á Dodda
„ÉG tel að röð af krafatverkum blaðið á heimiii sínu á Hellissandi
hafi bjargað lfi okkar og svo það,
að við héldum ró og yfirvegun í
því sem við gerðum til að bjarga
okkur, þegar þrír brotsjóir höfðu
lagt Dodda á hliðina og hvolft
honum eftir stutta stund,“ sagði
Þröstur Kristófersson, skipstjóri á
Dodda í samtali við Morgun-
um miðnætttið í nótt. Skömmu
eftir kvöldmat fórst bátur hans
Doddi um 3,5 mílur frá heima-
höfti. Skipverjarnir þrír, Þröstur,
Arsæll Arsælsson og Magnús Ein-
arsson, náðu að komast í björgun-
arbát eftir að hafa svamlað i sjón-
um hangandi utan á Dodda á
Guðmundur Daníels-
son rithöfímdur látinn
GUÐMUNDUR Daníelsson, einn helzti rithöfundur landsins, Iézt á
áttugasta aldursári á þriðjudaginn í sjúkrahúsi Suðurlands á Sélfossi.
Guðmundur Daníelsson fæddist
í Guttormshaga í Holtum, Rangár-
vallasýslu, 4. október 1910. For-
eldrar hans voru Daníel Daníelsson
bóndi og kona hans, Guðrún Sigríð-
ur Guðmundsdóttir. Guðmundur
stundaði nám við Laugarvatnsskóla
1930-1932, lauk kennaraprófi
1934 og stundaði framhaldsnám í
Kaupmannahöfn.
Guðmundur Daníelsson samdi
50 bækur á rithöfundarferli sínum,
þar á meðal skáldverk, viðtals-
bækur, ferðabækur, bækur um lax-
veiðiár og ljóðabækur. Fyrsta bók
hans, ljóðabókin Ég heilsa þér, kom
út 1933 og fyrsta skáldsaga hans,
Bræðumir í Grashaga, kom út árið
1935. Síðasta skáldverk Guðmund-
ar var heimildaskáldsagan Óskin
er hættuleg, sem kom út fyrir
síðustu jól. Guðmundur Daníelsson
þýddi einnig nokkrar bækur, þar á
meðal ljóðabækur. Nokkrar skáld-
sögur hans hafa verið þýddar á
önnur tungumál og ljóð eftir hann
líka. Guðmundur Daníelsson skip-
aði heiðurslaunaflokk Alþingis frá
1974.
Hann var ritstjóri Suðurlands í
tuttugu ár frá 1953.
Guðmundur var kennari frá
1934, skólastjóri á Suðureyri við
Súgandafjörð 1938-43, kennari á
Eyrarbakka 1943-44, skólastjóri
þar 1945-68 og kennari við Gagn-
fræðaskólann á Selfossi 1968-73.
Guðmundur Daníelsson sat í
hréppsnefnd Selfoss 1970-74.
Hann var formaður Félags
íslenzkra rithöfunda 1970-72 og
sat í rithöfundaráði 1974-78.
Guðmundur kvæntist 1939
Sigríði Arinbjarnardóttur, sem lifir
Guðmundur Daníelsson
mann sinn. Þau eignuðust þijú
börn.
Guðmundur Daníelsson skrifaði
mikið í Morgunblaðið og átti blaðið.
langt og ánægjulegt samstarf við
hann. Er það nú þakkað um leið
og ekkju hans, börnum og öðrum
ástvinum eru sendar samúðar-
kveðjur.
hvolfi, en þremur stundarfjórð-
ungum síðar var þeim bjargað um
borð í Auðbjörgu SH 197, 70 tonna
bát undir stjórn Rafns Guðlaugs-
Við fengum skyndilega brotsjó á
bátinn, sem hallaði honum og í sömu
andrá reið annað brot yfir, sem lagði
bátinn á hliðina þannig að ekkert
varð gert honum til bjargar því
stjórnborðsglugginn var þá kominn
á kaf í sjó“, sagði Þröstur. „Þá los-
aði ég björgunarbátinn með hand-
fangi inni í stýrishúsinu, þar sem við
vorum allir þrír, en við vissum þó
ekkert hvernig björgunarbátnum
reiddi af í sjónum eftir brotsjóina.
Það var hvasst, sjö vindstig, og leið-
indasjólag. Áður en við fórum út úr
bátnum, þar sem hann lá á hliðinni,
skipulögðum við hvemig við skyldum
bregðast við, þegar við færum í sjó-
inn
Á sömu stundu og við komum út
úr brúnni fór báturinn á hvolf. Ar-
sæll svamlaði þá að björgunarbátn-
um, sem var óuppblásinn og byijaði
að toga í öryggislínuna, en ég náði
taki á öxl Ársæls og dró hann aftur
að bátnum. Okkur fannst líða langur
tími, þar til bátinn blés upp, en ég
tel að það hafi orðið okkur tii iífs
að við losuðum bátinn strax. Og svo
það, að hann kom upp hlémegin við
Dodda og einnig að við náðum að
hanga á lensportunum meðan við
vorum að blása björgunarbátinn upp.
Ef báturinn hefði komið upp á hitt
borðið værum við ekki hér til frá-
sagnar. Ég hafði náð að kalla neyðar-
kall: Doddi er kominn á hliðina, áður
en talstöðin datt út, en Auðbjörg
hafði fylgst með okkur á landatím-
inu. Okkur gekk vel að komast upp
í bátinn, en það var mikill sjór í hon-
um og kalt. Við tendruðum handblys
og sendum neyðarblys á loft, en ég
tel að það mætti vera meira af slíku
í þessum bátum. Við vorum ekki í
flotbúningum og maður nagar sig í
handarbökin fyrir það eftirá.
Við viljum senda þakklæti til
þeirra sem björguðu okkur og þeirra
sem voru reiðubúnir að koma okkur
til liðs,“ sagði Þröstur.
„Þetta gerðist allt saman ógurlega
snöggt, en tókst vel,“ sagði Rafn
Guðlaugsson skipstjóri á Auðbjörgu
við Morgunblaðið í gærkvöldi. „Það
var kolniðamyrkur, en við hugsuðum
fyrst og fremst um að bjarga mönn-
unum og það gekk áfallalaust. Mað-
ur er alltaf hræddur, sérstaklega um
svona litla báta, og mínúturnar, þeg-
ar við sáum ekkert og vissum ekk-
ert, voru langar og leiðinlegar."
Sjá bls. 4: „Kallið var snöggt
og ógreinilegt."
Sparisjóðir
sameinast
ÞRÍR sparisjóðir í Suður-Þing-
eyjarsýslu hafa ákveðið að sam-'
einast í einn sjóð.
Sparisjóðirnir eru Sparisjóðui*'
Reykdæla, Sparisjóður Kinnunga1
og Sparisjóður Aðaldæla. Sam-'
kvæmt heimildum Morgunblaðsins
er veruleg hreyfing með sparisjóð-
unum til sameiningar og slíkar hug-'
myndir ræddar í Eyjafirði og ál
Vestfjörðum.
Sjá Viðskipti / Atvinnulíf Bl.