Morgunblaðið - 19.04.1990, Side 37
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 19. APRÍL 1990
37
Hin árlega kaffisala Skógarmanna KFUM verdur
haldin á Amtmannsstíg 2B sumardaginn fyrsta
(19. apríl) kl. 14.00-18.00.
Að kvöldi verður Skógarmannasamkoma kl. 20.30.
Skráning hefst 23. apríl á Amtmannsstíg 2B,
sími 13437.
Gleðilegt sumar Skógarmenn KFUM.
DAGBOK
Frá Dagbókarsíðu.
ÁRNAÐ HEILLA
pT A ára afmæli. Á laugar-
OV/ daginn kemur, 21.
apríl, er fimmtug frú Jó-
hanna Þorbergsdóttir veit-
ingastjóri, Haukshólum 4
hér í Rvík. Maður hennar er
Jón Óli Gíslason skipstjóri og
taka þau á - móti gestum í
Menningarmiðstöðinni
Gerðubergi kl. 17-19 á af-
mælisdaginn.
2DAGA
T I L B O Ð
* Miðað við 2 fullorðinspör og 2 barnapör.
/?A ára afmæli. Á morgun,
0\/ 20. apríl, er sextugur
Víðir Fiimbogason, Blika-
nesi 11 í Garðabæ, kaup-
maður í Teppalandi hér í Rvík.
Kona hans er frú Karen
Magnúsdóttir. Taka þau á
móti gestum á heimilinu í
Blikanesi á afmælisdaginn
eftir kl. 17.
Þú svalar lestrarþörf dagsins
' stóum Moggans!
Bókauppboð Kiausturhóla:
0«
VJOA6
A 990*
á V«f* *
RR Skór, Kringlunni
Skóbúð Keflavíkur
Skóhöllin, JL Húsinu
Skóhöllin, Hafnarfirði
Axel Ó, Laugavegi og
Axel Ó, Vestmannaeyjum
Eitt verka Huldu Halldórsdóttur, Við Tjörnina, acryl 80x100.
Verk Huldu Halldórs-
*
dóttur í Asmundarsal
HULDA Halldórsdottir hefur opnað sýningu á verkum sínum í
Ásmundarsal við Freyjugötu og er hún opin frá klukkan 14-20
alla daga.
Á sýningunni eru verk, sem öll
eru unnin úr acryl og olíu. Síðasti
sýningardagur er sunnudagurinn
22. apríl.
Þá sýnir Hulda einnig smærri
myndir í Mokka við Skólavörð-
ustíg og stendur sú sýning til 1.
maí.
Byltingarsöngvar
og læknisfræðirit
KLAUSTURHÓLAR á Laugavegi 8 halda bókauppboð á laugardag
kl. 14, þar sem seldar verða bækur og rit í fjölmörgum greinum
fræða og vísinda og skáldskapar. Þar verða ljóð, skáldsögur, hag-
fræðirit, sagnlræðirit, ferðasögur og gamlar ferðabækur uin ísland,
landbúnaður og önnur atvinnumál frá fyrri tíð, fjöldi gamalla lækn-
ingabóka, orðabækur, tímarit, norræn fræði og íslenzk og ótal fleiri
flokkar.
Af einstökum gripum og bókum
má nefna: Auðfræði séra Arnljóts
Ólafssonar, Kh. 1880, hina bylting-
arsinnuðu ljóðabók séra Sigurðar í
Holti: Hamar og sigð, sem vakti
mikla hneykslan, þegar hún kom
út 1930, hina mjög svo fáséðu ljóða-
bók með æskuljóðum Vilhjálms
skálds frá Skáholti: Næturljóð,
Síðkveld eftir Magnús Ásgeirsson,
fræðibækur um sögu Reykjavíkur
eftir dr. Jón Helgason biskup,
Árbækur Reykjavíkur og fleiri rit,
Menn og menntir 1-4 eftir dr. Pál
Eggert Olason, gamlar ferðabækur
um ísland, m.a. eftir Feilberg,
Shepherd, Jón Sveinsson, Nonna,
Daniel Bruun, Stewart, Magnús
Stephensen o.fl. Það verða alls 150
titlar seldir á þessu uppboði, sem
hefst nk. laugardag kl. 14.00 á
Laugavegi 8, í sýningarsal Klaust-
urhóla, en bækurnar verða til sýnis
daginn áður, föstudag, kl. 13-18,
og einnig sumardaginn fyrsta á
sama tíma og stað.
(Fréttatilkyllning•)
Biskupsvísitas-
ía á Akranesi
BISKUP íslands, Herra Ólafur
Skúlason, sem um þessar mundir
er á vísitasíuferð um Borgarfjarð-
arprófastsdæmi, vísiterar Ákra-
neskirkju og söfnuð á sumardag-
inn fyrsta, þann 19. apríl nk.
Hann verður viðstaddur skáta-
guðsþjónustu í Akraneskirkju kl. 11.
Sama dag kl. 14 prédikar biskupinn
við hátíðarguðsþjónustu og þjónar
fyrir altari ásamt sóknarpresti. Að
messu lokinni býður sóknamefnd til
kaffidrykkju í safnaðarheimilinu
Vináminni. Um kvöldið, kl. 20.30,
verður biskup svo á Dvalarheimilinu
Höfða og föstudaginn 20. apríl heim-
sækir hann Sjúkrahús Akraness kl.
11.
Þá heimsækir biskup Félagsheim-
ili KFUM ogKá Akranesi mánudag-
inn 23. apríl kl. 21 og Fjölbrauta-
skóla Vesturlands þriðjudaginn 24.
apríl kl. 10.30.
(Frcttatilkynning.)
Skátarnir í Kópavogi halda sína árlegu kaffisölu í dag, sumardaginn fyrsta.
Kaffisala skáta í Kópavogi
SKATARNIR í Kópavogi munu í dag, sumardaginn fyrsta, halda sína
árlegu kaffisölu til styrktar félagsstarfsemi sinni. Hún verður í Félags-
heimili Kópavogs, neðstu hæð og stendur yfir frá kl. 15.-18.
Skátafélagið Kópar var stofnað
árið 1946 og er eitt elsta æskulýðsfé-
lag Kópavogs. Skátastarfsemi hefur
ávallt verið mikil í bænum og notið
skilnings og vinsælda hjá bæjarbú-
um, ungum sem öldnum. í Kópum
starfar mömmuskátasveitin Urtur.
Þetta er hópur skátamæðra, sem
vinnur að því að efla og styðja það
starf sem unnið er í skátafélaginu
og hjálparsveitinni. Hin árlega kaffi-
sala er mikilvægur þáttur í ljáröflun-
arstarfsemi skátanna.
Sandgerðishöfii:
Lægsta til-
boð í dýpk-
un 256 millj.
Nýlega voru opnuð tilboð á
skrifstofu Hafnamálastofnunar
ríkisins í dýpkun innsiglingar inn-
siglingarrennunnar til Sandgerð-
ishafnar.
Rennan verður um 800 metra löng
og 50 metra breið. Dýpi yst í renn-
unni verður 5,5 metrar en 5,0 metr-
ar næst hafnarmynninu. Alls verða
fjarlægðir um 65.000 ms af klöpp
og lausu efni.
Markmiðið með dýpkuninni er að
loðnuskip, togarar og flutningaskip
geti tekið höfnina á hálfföllnu' og
sléttum sjó.
Tilboð bárust frá 6 aðilum innlend-
um og erlendum og voru þau eftirfar-
andi
1. Haka Civii and Marine Ltd.
256.618.600 krónur. 2. Lundquist
og Söner Muddrings AB 356.025.450
krónur. 3. Köfunarstöðin hf.
339.584.000 krónur. 4. Hagvirki hf.
. 379.500.000 krónur. 5. Rock Fall
Company Ltd. 444.749.207 krónur.
Selmer-Furuholmen 352.599.750
krónur.
Kostnaðaráætlun hönnuða var
313.700.000 krónur. Hafnamála-
stofnun ásamt Almennu verkfræði-
stofunni hf. hannaði verkið, en Þór
Þorsteinsson, verkfræðingur, sá um
gerð útboðsgagna.
Gert er ráð fyrir að framkvæmdir
hefjist nú í sumar og verði lokið í
síðasta lagi haustið 1992.