Morgunblaðið - 26.04.1990, Blaðsíða 4
4
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 26. APRÍL 1990
Kögun verður
almenningshluta-
félag eftir 1995
KÖGUN hf., sem hafa mun veg og vanda af þróun og viðhaldi á Is-
lenska loftvarnakerfinu, IADS, er hlutafélag í eigu Þróunarfélags ís-
lands og 38 íslenskra hugbúnaðarfyrirtækja. Skýrt var frá því í Morgun-
blaðinu í gær að gert er ráð fyrir að tölvukerfið, sem tekur við upplýs-
ingum á íslenska flugstjórnarsvæðinu frá fjölmörgum heimildum, kom-
ist í gagnið 1994. Þróunarfélagið er langstærsti hluthafinn í Kögun
með yfir 70% hlutafjár. Hlutafé er 20 milljónir króna.
Að sögn Gunnlaugs Sigmunds-
sonar, stjórnarformanns Kögunar,
er forsagan sú að stjómvöld ákváðu
á sínum tíma að Kögun hf. sæti
eitt að þróun og viðhaldi á hugbún-
aðarkerfinu að uppfylltum vissum
skilyrðum og að íslenskum hugbún-
aðarfýrirtækjum yrði boðin aðild
að fyrirtækinu. „Þróunarfélagið tók
að sér að ábyrgjast að lágmarks-
hlutafjár yrði aflað. Síðan er samn-
ingur í gildi milli Þróunarfélagsins
og utanríkisráðuneytisins um
hvemig beri að gera Kögun að al-
menningshlutafélagi í áföngum, þó
þannig að fyrirtækið ábyrgist að
það verði hæft til að taka við þróun
og viðhaldi íslenska loftvarnakerf-
isins á árunum 1994-1995. Þegar
því er náð er sú kvöð í samningnum
að við seljum öll hlutabréf fyrirtæk-
isins á almennum hlutabréfamark-
aði. Jafnframt er okkur skylt að
reyna að tryggja að mikil dreifing
verði á sölu hlutabréfanna,“ sagði
Gunnlaugur.
Þróunarfélaginu, sem er stærsti
hluthafí í Kögun, er samkvæmt
þessum samningi heimilt að selja
allt að 49% hlutafjár Kögunar fram
til ársins 1995 en hefur jafnframt
skuldbundið sig gagnvart utanríkis-
ráðuneytinu að selja ekki meirihluta
fyrir þann tíma.
Gunnlaugur sagði að enn hefðu
hlutabréf ekki verið seld í fyrirtæk-
Ratsjárstöðin á Gunnólfsvíkur-
fjalli
inu frá stofnun þess en hins vegar
hefði fjöldi fyrirtækja og einstakl-
inga skrifað sig á lista og lýst yfír
áhuga á því að kaupa hlut í fyrir-
tækinu þegar sala á hlutabréfum
hæfist.
„Við höfum ekki hafíð sölu á
bréfunum vegna þess að fyrirtækið
hefur tæpast hafíð starfsemi ennþá
og höfuðstóll þess hingað til ein-
göngu verið kostnaður,“ sagði
Gunnlaugur. Hann kvaðst þó eiga
von á því að sala á hlutabréfum
myndi heíjast á þessu ári.
VEÐUR
Heimild: Veðurstofa Islands
(Byggt á veðurspá kl. 16.15 i gær)
/' DAG kl. 12.00:
VEÐURHORFUR í DAG, 26. APRÍL
YFIRLIT í GÆR: Yfir Langanesi er 966 mb lægð sem þokast norð-
vestur og síðar norðnorðaustur, en 1.025 mb hæð yfir Norðvestur-
Grænlandi.
SPÁ: Smám saman dregur úr norðvestanáhlaupinu, hvass vindur
um norðaustanvert landið fram á kvöld, jafnvel stormur. Norðan-
lands, a.m.k. á annesjum, talsverður éljagangur fram eftir degi.
Vestanlands léttir til fyrir hádegi og síðdegis lægir. Undir kvöld
verður komið besta veður. Á Suður- og Suðausturlandi léttskýjað
en talsverður strekkingur fram eftir degi. Kalt áfram og búast má
við talsverðu næturfrosti. Á föstudag tekur að hlýna.
VEÐURHORFUR NÆSTfJ DAGA:
HORFUR Á FÖSTUDAG: Vaxandi suðlæg átt og hlýnandi veður.
Snjókoma og síðar slydda eða rigning um sunnan- og vestanvert
landið. Þykknar upp norðaustanlands en úrkomulítiðfram eftir degi.
HORFUR Á LAUGARDAG: Suðlæg eða suðvestlæg átt og hlýtt í
veðri, einkum austantil á landinu. Rigning sunnanlands og vestan
en þurrt að mestu norðaustanlands.
10° Hitastig:
10 gráður á Celsíus
ý Skúrir
*
V El
= Þoka
= Þokumóða
’, ’ Súki
oo Mistur
—j- Skafrenningur
Þrumuveður
TAKN:
-/4
Heiðskírt
Léttskýjað
Hálfskýjað
Skýjað
Alskýjað
x Norðan, 4 vindstig:
" Vindörin sýnir vind-
stefnu og fjaðrirnar
vindstyrk, heil fjöður
er 2 vindstig.
r r r
r r r r Rigning
r r r
* r *
r * r * Slydda
r * r
* # *
* * * * Snjókoma
* * *
VEÐUR VÍÐA UM HEIM
kl. 12:00 í gær að ísl. tíma
hiti veður
Akureyri 0 úrk. í grennd
Reykjavik 0 úrk.fgrennd
Björgvin 14 skýjað
Helsinki 16 léttskýjað
Kaupmannahöfn 18 skýjað
Narssarssuaq +12 léttskýjað
Nuuk vantar
Ósló 17 léttskýjað
Stokkhólmur 17 léttskýjað
Þórshöfn 5 rigning
Algarve 19 léttskýjað
Amsterdam 18 léttskýjað
Barceiona 16 hálfskýjað
Berlfn 12 skúrásíð.klst.
Chicago 19 skýjað
Feneyjar 14 þokumóða
Frankfurt 12 skýjað
Glasgow 11 skýjað
Hamborg 16 hálfskýjað
Las Palmas 20 skýjað
Lundúnir 19 léttskýjað
Los Angeles 13 léttskýjað
Lúxemborg 11 skýjað
Madríd 15 skýjað
Malaga 18 mistur
Mallorca 19 skýjað
Montreal 11 skúr
New York 11 alskýjað
Orlando 19 iéttskýjað
París 15 léttskýjað
Róm 17 léttskýjað
Vín 14 skýjað
Washington 13 mistur
Winnipeg 8 þokumóða
Þrír togarar á út-
hafskarfaveiðum
TOGARAR Sjólastöðvarinnar hf. í Hafiiarfirði, Sjóli HF og Haraldur
Kristjánsson HF, eru nú á úthafskarfaveiðum 250-260 mílur út af
Reykjanesi og togarinn Ýmir HF, sem er í eigu Stálskipa hf. í Hafnar-
firði, er einnig farinn á úthafskarfaveiðar, að sögn Helga Kristjáns-
sonar útgerðarstjóra Sjólastöðvarinnar hf. Helgi sagði að rannsókna-
skipið Bjarni Sæmundsson væri einnig á úthafskarfamiðunum og
einn maður frá Hafrannsóknastofhun væri um borð í Sjóla HF.
Helgi Kristjánsson sagði að leið-
indaveður hefði verið á úthafskarfa-
miðunum undanfarið. Hins vegar
hefði verið búið að frysta 17-18
tonn af úthafskarfa um borð í Sjóla
HF á þriðjudag en eitthvað minna
um borð í Haraldi Kristjánssyni HF.
Hann sagði að tveir rússneskir tog-
arar og einn norskur togari hefðu
verið á úthafskarfaveiðum út af
Reykjanesi að undanförnu en
Austur-Þjóðverjar og Búlgarar
hefðu einnig stundað þessar veiðar.
Helgi sagði að aflaverðmæti
Haraldar Kristjánssonar HF hefði
verið um 53 milljónir króna í síðustu
veiðiferð, þannig að hásetahlutur-
inn hefði verið um 550 þúsund krón-
ur. Togarinn var 25 daga í veiði-
ferðinni og kom úr henni 14. apríl.
í þessari veiðiferð fékk skipið sam-
tals 572 tonn upp úr sjó, þar af 198
tonn af ufsa, 189 tonn af þorski,
135 tonn af karfa og 47 tonn af
ýsu. Karfinn er seldur til Japans,
ufsinn til Vestur-Þýskalands en
þorskurinn og ýsan til Bretlands,
að sögn Helga Kristjánssonar.
Stöð 2:
Tilboðið í hlutabréf-
in stendur ekki lengur
-segir Gunnsteinn Skúlason
TILBOÐ þriggja aðUa í hlutabréf
Eignarhaldsfélags Verslunar-
bankans í Stöð 2, stendur ekki
áfram og verður ekki endurnýj-
að, að sögn tilboðsgjafa.
Meirihluti stjórnar Eignarhalds-
félagsins hafnaði kauptilboðinu á
þriðjudag, en Orri Vigfússon, einn
stjómarmanna, sagði að til greina
kæmi að skoða tilboðið aftur, eftir
aðalfund félagsins sem verður á
laugardag. Gunnsteinn Skúlason,
einn þeirra sem að tilboðinu stóð,
sagði við Morgunblaðið í gær að
það yrði ekki endumýjað.
Komið hefur fram að tilboðsgjaf-
ar hafí ætlað, með stuðningi fyrri
aðaleigenda Stöðvar 2, að opna
hlutafélagið um stöðina almenn-
ingi, og leita síðan eftir samningum
við Sýn hf. um sjónvarpsreksturinn.
Jón Ottar Ragnarsson fyrmm sjón-
varpsstjóri Stöðvar 2, sagði að
síðastliðið haust hefði legið fyrir
samstarfssamningur milli Stöðvar 2
og Sýnar. Nýir hluthafar í Stöð 2
hefðu hins vegar ekki sinnt því
máli, og það þýddi að þeir væru
komnir í samkeppni, sem helming-
aði verðið á hlutabréfum Stöðvar-
innar.
„Þessi tilraun nú var síðasta
tækifærið til að bjarga hlutabréfum
allra aðila, með því að ná fram
sameiningu við Sýn. Það tækifæri
er glatað,“ sagði Jón Óttar.
A stjómarfundi Eignarhaldsfé-
lags Verslunarbankans, þar sem
kauptilboðinu var hafnað, létu Gísli
V. Einarsson og Þorvaldur Guð-
mundsson bóka að niðurstaðan
hefði orðið sú að hagsmunir hlut-
hafa félagsins hefðu verið fyrir
borð bornir í málinu. Hannes Þ.
Sigurðsson lét bóka, að teknu tilliti
til forsögu málsins, og þeirra samn-
inga sem Eignarhaldsfélagið hefði
gert og dagsettir væm 9. janúar
og 22. mars 1990, teldi hann það
andstætt góðu viðskiptasiðferði og
ekki þjóna hagsmunum Eignar-
haldsfélagsins, að ganga að kauptil-
boðinu.
Islensk menningarvika í Finnlandi:
Vigdís verður heið-
ursdoktor í Tampere
Helsinki. Frá Lars Lundsten, fréttaritara Morgunblaðsins.
FORSETI íslands, Vigdís Finnbogadóttir, hlýtur heiðursdoktors-
nafnbót við háskólann í Tampere (Tammerfors) í Finnlandi.
Athöfnin fer fram sunnudaginn 21. október nk. en um þær
mundir verður forsetinn í Finnlandi sem heiðursgestur á
íslenskri menningarviku í Tampere. Heimspekideild háskólans
í Tampere tók ákvörðun um doktorsnafiibót Vigdísar á miðviku-
daginn. Að sögn forsvarsmanna deildarinnar er sérstaklega
verið að minnast starfsemi forsetans á sviði leikhús- og menning-
armála. Innan deildarinnar starfar m.a. stofnun sem útskrifar
háskólamenntaða leikara.
Dagana 19.-24. október verður
íslensk menningarvika sem nefn-
ist Islandia í Tampere, sem er
næst stærsta borg Finnlands.
Miðdepill menningarvikunnar
verður ráðstefnuhúsið „Tampere-
húsið" sem verður tekið í notkun
nokkrum vikum áður. Menningar-
vikan er viðamesta kynningin á
íslenskri menningu í Finnlandi
hingað til. í för með forseta |s-
lands verða samtals um 200 ís-
lendingar, m.a. biskup íslands,
herra Ólafur Skúlason, Svavar
Gestsson, menntamálaráðherra,
Sinfóníuhljómsveit íslands, Kór
Langholtskirkju ásamt rithöfund-
um og öðrum menningarfrömuð-
um.
Sinfóníuhljómsveitin fer í
fyrstu tónleikaferð sína um Norð-
urlönd en Tampere verður fyrsti
áfangastaður hennar. Síðan verð-
ur haldið til annarra borga í Finn-
Tandi, Svíþjóð og Danmörku.
Á menningarvikunni verður
íslensk menning kynnt frá mörg-
um hliðum. Auk tónleika og list-
sýninga verða höfundarkynningar
og málþing en einnig er ætlunin
að kynna íslenska hestamennsku,
matargerðarlist, kvikmyndir og
ferðamál. Þá verður messa á
íslensku og finnsku í dómkirkj-
unni í Tampere með þátttöku
þeirra Ólafs Skúlasonar og Paavo
Kortekangas, biskups í Tampere.