Morgunblaðið - 11.05.1990, Side 5
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 11. MAÍ 1990
5
Atvinnuhorf-
ur hjá skóla-
fólki svipað-
ar og í fyrra
Á VEGUM ríkisstjórnarinnar er
verið að athuga með sérstaka
aukafjárveitingu til þess að fjölga
sumarstörfum námsmanna á
þessu sumri. Er það gert vegna
þess að horfur eru á að atvinnu-
ástandið batni ekki á þessu ári.
Samkvæmt upplýsingum Vinnu-
málaskrifstofu félagsmálaráðu-
neytisins eru horfur á að atvinnu-
ástandið meðal námsmanna verði
svipað og á síðasta sumri. „Þegar
þetta lá ljóst fyrir, gerðum við fé-
lagsmálaráðherra viðvart, sem tek-
ið hefur málið upp innan ríkisstjórn-
arinnar," sagði Oskar Hallgrímsson
forstöðumaður Vinnumálaskrifstof-
unnar í samtali við Morgunblaðið.
Ríkisstjórnin ákvað á fundi sínum
að fela aðstoðarmönnum ráðherra
félagsmála, fjármála og forsætis-
ráðherra að fara ofan í málið með
svipuðum hætti og í fyrrasumar,
en ekki liggur fyrir niðurstaða í því
máli.
Gunnar Helgason forstöðumaður
Ráðningarskirfstofu Reykjavíkur-
borgar, sagði atvinnuástandið hjá
námsmönnum í Reykjavík vera með
nokkuð svipuðum hætti og í fyrra.
Á sama tíma þá hefðu verið á skrá
776 piltar og 821 stúlka, en nú
væru 779 piltar og 630 stúlkur á
skrá. Þetta er mun hærra en eðli-
legt er talið hjá Ráðningarskrifstof-
unni, en til dæmis árið 1988 voru
301 piltur á skrá og 395 stúlkur.
í fyrra sumar voru 1116 námsmenn
ráðnir í vinnu hjá borginni og
ástandinu mætt með sérstakri auk-
afjárveitingu borgarinnar, en að
sögn Gunnars verður ekki farið af
stað af alvöru með ráðningar fyrr
en skólum lýkur. Ákvörðun um það
hvort borgin myndi veita sérstakri
fjárveitingu til þessa biði því þess
tíma er ástandið væri orðið skýrara.
Hjá Atvinnumiðlun námsmanna
fengust þær upplýsingar að 650
námsmenn væru þegar komnir á
skrá, miðað við 450 á sama tíma í
fyrra. Atvinnutilboð eru nú 80 tals-
ins, en voru 90 á sama tíma í fyrra.
í samtali við Morgunblaðið sagði
Elsa B. Valsdóttir framkvæmda-
stjóri Atvinnumiðlunar námsmanna
að ástandið væri mjög erfitt á
vinnumarkaðnum um þessar mund-
ir; sýnu verra en í fyrrasumar.
„Undanfarin ár hefur staðan verið
þannig að mun fleiri atvinnutilboð
hafa verið á skrá en námsmenn. í
fyrrasumar snerist þetta við og þá
sögðu menn að hið slæma atvinnu-
ástand væri aðeins tímabundið.
Atvinnuleysi meðal námsmanna
hefur hins vegar aukist í sumar,“
sagði Elsa B. Valsdóttir.
Norræn keppni
í ökuleikni á
strætisvögnum
NORRÆN góðakstur-
skeppni verður haldin i dag,
11. maí, á athaftiasvæði SVR
á Kirkjusandi og hefst kl. 9
að morgni. Er það í fyrsta
sinn sem þessi keppni fer
fram á íslandi, en keppnin
hefur verið haldin árlega frá
árinu 1977.
íslenskt lið tók fyrsta þátt í
þessari keppni árið 1982, en
það éru vagnstjórar hjá SVR
sem hafa skipað lið íslands frá
upphafi. Mótorklúbbur Starfs-
mannafélags SVR hefur veg
og vanda af skipulagi keppn-
innar hér á landi og móttöku
hinna erlendu gesta en alls
koma um 100 manns hingað
til lands vegna keppninnar.
Hraðakstur og
nagladekk
Lögreglan í Reykjavík stöðvar nú
bifreiðir á götum borgarinnar og
bendir ökumönnum á að ekki
megi nota nagladekk eftir 1. maí.
Þá er einnig ástæða til að stöðva
allmarga vegna hraðaksturs, en
undanfarna sólarhringa hafa tug-
ir ökumanna verið stöðvaðir dag-
lega á of miklum hraða. Lögreglu-
þjónarnir Gísli Skúlason og Bald-
vin Viggósson fylgdust með hrað-
anum á Stekkjarbakka, en Hlynur
Sigurðarson félagi þeirra hafði
stöðvað eina bifreið til að líta á
dekkjabúnaðinn. Nýjar reglur
taka gildi næsta haust, en þá má
ekki setja nagladekkin undir fyrr
en 1. nóvember, í stað 15. októ-
ber samkvæmt núgildandi regl-
um. Að ári verða menn svo að
taka dekkin undan fyrir 15. apríl,
í stað 1. maí. Þannig styttist sá
tími, sem leyfilegt er að hafa
nagladekk, um mánuð.