Morgunblaðið - 11.05.1990, Blaðsíða 12
12
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 11. MAÍ 1990
Frambjóðendur Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík bjóða Reykvíking■
um í skoðunarferð um höfuðborgina laugardaginn 12. maí nk.
Lagt verður af stað frá sjálfstæðishúsinu Valhöll, Háaleitisbraut 1,
kl. 13.30 og 14.30 (tvær ferðir).
Að lokinni skoðunarferð verður þátttakendum boðið upp á kaffi-
veitingar á Hótel Loftleiðum.
Frambjóðendur annast leiðsögn.
Vinsamlegast tilkynnið þátttöku hið fyrsta á skrifstofu Sjálfstæðis■
flokksins i síma 82900 frá kl. 9.00-17.00.
Frambjóðendur Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík.
Borgarstj ómarkosningar
26. maí 1990
Kristín Á. Ólafsdóttir
þjóðarinnar. Þeir hafa flestir reynst
áhugaminni um að koma leiðrétt-
ingum annarra borgarfulltrúa á
framfæri.
Valdhafarnir í Reykjavík virðast
hafa litlar áhyggjur af því að höfuð-
borgin er mun skemmra á veg kom-
in en önnur sveitarfélög með hús-
næði sem gæti rúmað einsetinn
skóla. I tvígang hafa þeir fellt til-
lögu um að borgin setji meiri kraft
í byggingu skólahúsnæðis með það
fyrir augum að grunnskólar borgar-
innar geti orðið einsetnir innan 5
ára;
Á því kjörtímabili sem nú er að
Streita og stjóramál
ljúka hefur meirihluti borgarstjórn-
ar sett tæpan milljarð í fram-
kvæmdir í þágu elstu Reykvíking-
anna. Það er nánast sama upphæð
og við hitaveitugreiðendur leggjum
til veitingahússins á Öskjuhlíð. Ekki
ein einasta sérhönnuð leiguíbúð fyr-
ir aldraða hefur verið tekin í gagn-
ið síðustu 4 ár. Af þeim 1.350 ein-
staklingum sem voru á biðlista Elli-
máladeilar í september sl. voru 450
í brýnum forgangi eftir öruggu
húsnæði við hæfi og 150 eftir hjúkr-
unarrými. Brýnn forgangur þýðir
að fólkið ætti að vera búið að fá
viðhlítandi úrræði, í mörgum tilfell-
um fyrir löngu. Þessir 450 einstakl-
ingar fá ekki lausn sinna mála með
söluíbúðum sem kosta að lágmarki
5 milljónir króna.
Lífsgleði og vellíðan
Ég er rétt að byrja að telja upp
streituvaldana sem htjá allt of
marga Reykvíkinga nútímans. Það
væri hægt að fylla allar síður Morg-
unblaðsins með dæmum um van-
rækslu núverandi meirihluta borg-
arstjórnar á nauðsynlegri þjónustu
við fólkið sem hér býr. Þá van-
ræksiu ætlar nýja sameiningaraflið,
Nýr vettvangur, að bæta fyrir, fái
það til þess nægilegt fylgi kjós-
enda. Á Nýjum vettvangi er fólk
sem skilur samhengið milli streitu
og þeirra aðstæðna sem einstakl-
ingum eru búnar. Við hlökkum til
þess að fá tækifæri til þess að
hrinda hugmyndum okkar í fram-
kvæmd, hugmyndum um hvernig
má skapa okkur öllum manneskju-
legra umhverfi og meiri lífsgleði.
Höfundur er borgarfulltrúi og 2.
maðurá H-lista Nýs vettvangs.
eftir Kristínu Á.
Ólafsdóttur
Veslings Staksteinar Morgun-
blaðsins áttar sig ekki á samhengi
stjórnmála og þess hvernig fólki
líður frá degi til dags. Hann skilur
ekki að stjórnun Reykjavíkurborgar
hafi nokkuð með streitu eða gleði
borgarbúa að gera. Þessi grunn-
hyggni hans kom í ljós í blaði allra
landsmanna 4. maí sl.
Viðhorf Staksteinars í þessum
efnum þurfa reyndar ekki að koma
á óvart. Sjálfstæðismenn í
Reykjavík hafa verið duglegir að
byggja og kaupa dýr glæsihús fyrir
peninga okkar útsvarsgreiðenda.
Þá virðist hins vegar skorta skilning
á því fólki sem byggir reykvíska
samfélagið. Það er eins og þeir
hafi ekki tekið eftir þjóðfélagsbreyt-
ingunum undanfarna áratugi. Þjón-
ustan sem þeir veita á vegum borg-
arinnar er gamaldags og rýr í roð-
inu. Hún hefði e.t.v. þótt boðleg
þegar algengast var að stórfjöl-
skyldan byggi saman og !aun einn-
ar fyrirvinnu nægðu til framfæris.
Þegar mamma var heima allan dag-
inn og jafnvel líka afí og amma.
Viljum nútíma þjónustu
En nú er öldin önnur. Bamafjöl-
skyldur í Reykjavík þekkja allt of
vel áhyggjur og samviskubit sem
hlýst af því að börnunum er ekki
sinnt sómasamlega á meðan báðir
foreldrar vinna utan heimilis.
Hvorki bömum á gmnnskólaaldri
né þeim sem yngri em. Þetta veld-
ur svo sannarlega streitu, ekki síst
þegar peningaáhyggjur vegna hús-
næðismála íþyngja fólki aukreitis.
Ofan í kaupið bætist við sektar-
kennd margra sem eiga aldraða
foreldra sem ekki fá þá þjónustu
sem þeim er nauðsynleg. Elstu
Reykvíkingarnir búa ekki allir við
það öryggi og þá aðhlynningu sem
sjálfsagt væri í ríkasta sveitarfélagi
landsins. Þetta eru dæmi um
streituvalda sem borgarstjórn gæti
útrýmt hefði hún til þess skilning
og vilja. Það myndi vissulega auka
vellíðan og lífsgleði fólks.
Sjálfstæðismenn í Reykjavík
hafa ekki getað tryggt starfsfólki
til þess að sinna sjálfsagðri þjón-
ustu við borgarbúa. Nánasarháttur
í launagreiðslum er þar stærsta
skýringin. í desember sl. var gerður
samanburður á launum fyrir einstök
störf á vegum 12 sveitarfélaga.
Reykjavíkurborg reyndist greiða
sínu fólki verst í öllum tilvikum
nema einu, þar náði Seltjarnarnes
botninum. Algengt var að munurinn
á grannlaunum væri 8-12 þúsund
krónur á mánuði en mestur varð
hann 19 þúsund krónur!
Meirihlutinn í borgarstjórn hefur
ekki getað boðið Reykvíkingum
valkosti í húsnæðismálum. Búseti,
2.000 manna samtök fólks sem vill
komast í öruggt, viðráðanlegt leigu-
húsnæði, hefur beðið árangurslaust
í fleiri mánuði eftir úthlutun lóðar.
Meirihlutinn segist ekki eiga lóð
undir fjölbýlishús. Reykjavík hefur
misst af lánsfé frá húsnæðismála-
stofnun til byggingar kaupleigu-
íbúða vegna þess að sjálfstæðis-
menn vildu ekki að borgin sækti
um slík ián. Þarna misstu reyk-
vískir byggingaraðilar af fram-
kvæmdum fyrir hundruðir milljóna
og fólk í húsnæðisvanda fékk ekki
gullið tækifæri til þess að leysa sín
mál.
„Meirihlutinn í borgar-
stjórn hefur ekki getað
boðið Reykvíkingnm
valkosti í húsnæðismál-
um. Búseti, 2.000
manna samtök fólks
sem vill komast í ör-
uggt, viðráðanlegt
leiguhúsnæði, hefur
beðið árangurslaust í
fleiri mánuði eftir út-
hlutun lóðar. Meirihlut-
inn segist ekki eiga lóð
undir fjölbýlishús.“
Virðum einstaklinga
á öllum aldri
Borgarfulltrúar Sjálfstæðis-
flokksins bjóða aðeins 14 af hveij-
um 100 forskólabömum heilsdags-
vist á dagvistarheimilum borgarinn-
ar. Þeir sem ráða Stokkhólmsborg
hafa þetta hlutfall 60% og vinir
okkar í Þórshöfn í Færeyjum 28%,
en þeir eru næstlélegastir í þessum
efnum þegar höfuðborgir Norður-
landanna eru bornar saman. Og svo
leyfir æðsti embættismaður borgar-
innar sér að halda því fram við al-
þjóð að Reykjavíkurborg sé í
„hreinni forystusveit hvað úrræði
fyrir fjölskyldur um dagvistun
snertir ef litið er til alls hins vest-
ræna heims“.
Þessi makalausu orð lét Davíð
Oddsson falla í fjárhagsáætlunar-
ræðu sinni í janúar og fjölmiðlar
voru duglegir að koma boðunum til
M-hátíð í Borgamesi
Borgarnesi.
M-hátíðardagskrá Vesturlands
efnir til mikillar tónlistar- og
skemmtidagskrár í Iþróttahús-
inu í Borgarnesi nk. laugardag
kl. 14.
Á dagskránni verður m.a. Bjöllu-
kór Stykkishólms, Grundartanga-
kórinn og Kveldúlfskórinn frá Borg-
arnesi, dansatriði frá Akranesi, fim-
leikaflokkur frá Gerplu, skrúð-
ganga UMF Skallagríms og tívolí-
leikir í umsjón skáta. Síðast en
ekki síst verða síðan hljómleikar
sem standa yfir í 6 klukkustundir
samfleytt. Þar leika m.a. 16 hljóm-
sveitir, þar af em 8 frá Borgar-
nesi. Þá taka einnig lagið þeir Hall-
björn Hjartarson og Magnús Þór
Sigmundsson. Nöfn hljómsveit-
anna, sem margar hveijar eru að
koma fram í fyrsta sinn, eru þó
nokkuð skondin. Til marks um
nafngiftir skulu taldir: Kaþólikkar,
sem em frá Varmalandi, Lína lang-
sokkur og Græna gengið, sem er
frá Borgarnesi, Við emm menn, frá
Borgarnesi, Flott öðru hvoru, frá
Borgarnesi, Bróðir Darwins, frá
Akranesi, The Evil pizza delivery
Frá Borgarnesi.
boys, frá Borgarnesi og síðast en
ekki síst, Austurland að Glettingi,
sem er frá Hvanneyri.
-- TKÞ
Appelsínuhúó - ekki lengur vandamál
Maria Calland no. 81
Slimming Vector frá
Maria Galland er mun
auðveldara í notkun en
áður hefur þekkst um
sambærilegar vörur.
Frábær árangur á stutt-
um tíma.
Sölustaðir:
Clara Laugavegi/Kringl-
unni, Gloría/Njarðvík,
Soffía/Hlemmi, Apótekið
/Vestm.eyjum, Topptískan
/Aðalstræti, Hygea/Lauga-
vegi, Apótek Garðabæjar,
Stúdíó Hallgerður, Snyrti-
stofan Rós/Engihjalla.
Snyrtistofa Sigr. Guð-
jóns./Eiðistorgi.
nt.u
I