Morgunblaðið - 11.05.1990, Side 17
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 11. MAÍ 1990
17
hefðu þeir betur leitað ráða hjá
Guðjóni. Síðasta greinin hans birtist
eftir að hann hafði farið að heiman
í síðasta skipti. Þetta var kveðja til
stjórnenda landsins.
Guðjón hafði gott minni, var vin-
margur og þekkti mikið af fólki og
vissi deili á ætterni og sögu flestra.
Því hafði ég hvatt hann til að skrifa
ævisöguna. Það hefði verið fróðleg
bók. Allt séð með augum Guðjóns.
Sú bók verður aldrei skrifuð. Það
er svo margt, sem hverfur á þennan
hátt. Oft hverfur það, sem síst
skyldi.
Guðjón var vantrúaður á líf eftir
dauðann, en þegar séð var, hvert
stefndi, fór hann jafnvel að efast
um þessa vantrú. „Vitundarlausa
tilveran“ hans ber vott um íhugun
fram á veginn ósýnilega. Eitt sinn
sagði hann: „Ef það er eitthvert
frámhald, eftir þetta líf. . .“ Síðan
kom þögn. Ætlaði hann að gera
vart við sig? Það hafði leynst slysa-
gildra, og hún ekki lítil í mínu húsi,
sem „hrundið var niður“ á eftir-
minnilegan hátt með miklum fyrir-
gangi, sama daginn og hann lést.
Undirskriftin var hans. Þá veit
maður það.
Síðustu mánuðina naut hann
heimahlynningar Krabbameinsfé-
lagsins, og dáðist að alúð þeirrar
líknarstarfsemi. Frænkur hans
tvær, Sigurbjörg og Helga, reynd-
ust Guðjóni vel í erfiðum veikindum
hans. Sálræn aðhlynning er sjúkl-
ingi jafnvel mikilvægust. í legu á
Landakoti var hann veikari en svo,
að hann skynjaði slíkt. Rétta um-
hverfið var honum þá horfið. Jafn-
vel það gerðist skjótar en hann átti
von á. Eitt ósýnilega bragðið enn.
Sjálf stjórnstöðin var fallin á undan.
Guðjón lést á Landakotsspítala
að porgni 2. maí.
Ég kveð hér góðan vin minn með
söknuði og virðingu. Blessuð sé
minning hans.
Jón Brynjólfsson
Góður maður er genginn. Með
Guðjóni Teitssyni fyrrverandi for-
stjóra Skipaútgerðar ríkisisn er
genginn gagnmerkur og góður
drengur.
Það man ég fyrst er ég var í
Verzló að leiðir okkar lágu saman
í „Gimli“, sem þá var mötuneyti í
Lækjargötunni. Guðjón var þá
skrifstofustjóri hjá Ríkisskip, en í
mötuneytinu var hann „potturinn
og pannan", eins og raunar í öllu
sem hann kom nálægt.
Guðjón var mikill útivistarmaður,
átti hesta og ferðaðist um landið,
stundaði sund og skíðaíþróttir, og
bar af öðrum fyrir frækilega
frammistöðu í eftirlætis íþrótta-
greinum sínum. Söngmaður var
Guðjón góður, og hafði unun af
góðri tónlist. Hann var hrókur alls
fagnaðar í heimahúsum, og söng
oft fyrir.
Guðjón var margfróður, mála-
maður mikill, og snaraði m.a. bók
um Nixon fyrrverandi Bandaríkja-
forseta á íslensku.
Guðjón lét þjóðfélagsmál mikið
til sín taka, og skrifaði íjölmargar
greinar í dagblöðin um dægurmál
og áhugaefni sín.
Hin seinni ár beindist áhugi Guð-
jóns æ meira að skáklistinni. Við
Guðjón vorum skákfélagar í fjölda-
mörg ár, og ótaldar eru þær brýnur
sem við háðum yfir skákborðinu.
Oft var allt í loftköstum þegar
klukkan taldi síðustu sekúndurnar
í hraðskákinni, en alltaf endaði
þetta með fullri vinsemd og frið-
sæld.
Guðjón var um tímabil í stjórn
Taflfélags Reykjavíkur, eða um
sama leyti og skákfélagi okkar
Guðfinnur Kjartansson var formað-
ur. Guðjón stjórnaði þó skákmótum
og skákæfingutn um áraraðir eftir
það, og þótti enginn skákstjóri
stjórnsamari eða röggsamari en
Guðjón.
Að endingu kveð ég minn gamla
og góða vin og skákfélaga. Ég held
ég megi bera honum kveðju skákfé-
laga okkat' allra. Við munum sakna
hans, en við þökkum honum allir
góða viðkynningu, drengskap og
ógleymanlegan hressilegan félags-
skap.
Richardt Ryel
Guðjón Teitsson fyrrverandi for-
stjóri Skipaútgerðar ríkisins er lát-
inn. Guðjón fæddist árið 1906 og
var því á 85. aldursári er kallið kom.
Farsæll og langut' starfsferill í
þjónustu hins opinbera verður ekki
rakinn hér, en er Guðjón fór á eftir-
laun 1976 hófust afskipti hans af
málefnum Taflfélags Reykjavíkur
sem naut starfskrafta hans í heilan
áratug. Guðjón var í stjórn þess
félags á árunum 1977-87 og var
virkur þátttakandi í því uppbygg'-
ingarstarfi sem unnið vat' í TR á
þessum árum og er nú þessi árin
að bera ríkulegan ávöxt eins og
alþjóð veit. Þannig var Guðjón um
árabil eftirlitsmaður og stjórnandi
kvöldæfinga Taflfélagsins og minn-
ast vafalaust margit' rólegrar og
höfðinglegrar framkomu hans, þar
sem ætíð vat' þó stutt í kímni og
léttleika.
A stjórnarfundum vat' Guðjón
ávallt tillögugóður og á hann var
hlustað, enda duldist engum ein-
lægur áhugi hans á framgangi fé-
lagsins og öflugur stuðningur sem
var ekki aðeins í orði heldur einnig
í verki. Bætt húsnæði TR var Guð-
jóni mikið hjartans mál og er félag-
ið réðst í kaup á hinu glæsilega
húsnæði í Faxafeni 12 lagði hann
umtalsvert fé til byggingarinnar og
sýndi þannig hug sinn í verki.
Guðjón hafði reyndar sjálfur mik-
ið yndi af að tefla og tefldi hrað-
skák við kunningjana eins lengi og
stætt var og hélt oftast sínum hlut
þótt komið væri á níræðisaldur.
Og nú er Guðjón allur. Við sem
eftir sitjum getum ekki deilt við
þann dómara, sem kallaði hann til
nýrrar taflmennsku að lokinni
langri og veltefldri æviskák hérna
megin grafar. Okkai' er aðeins að
þakka hið mikla framlag Guðjóns
til eflingar Taflfélags Reykjavíkur.
Eftir standa verk hans og minn-
ing um traustan og góðan dreng.
Eftirlifandi ættingjum Guðjóns
sendum við einlægar samúðarkveðj-
ur.
Stjórn Taflfélags Reykjavíkur
Rétt verð kr. 36.990,-
Rétt verð kr. 33.500,-
Sláttuvélar fyrir allar stærðir
garða.
★Sláttutraktorar ★ raforf ★
vélorf ★ kantklippur ★ hekk-
klippur ★ o.fl.
Einungis viðurkennd
hágæðamerki ★ MURRAY
★ ECHO ★ AL-KO.
Góð varahluta- og viðhalds-
þjónusta. Póstsendum um
land allt.
Metsöluhjólið Murray og
önnur úrvalsreiðhjól
fyrir alla fjölskylduna.
Sláttuvéla- & Hjólamarkaður ' Hvellu r
Smiðjuvegi 4c, Kóp S: 689699 og 688658
SÍMINN ER
689400
BYGGT & BÚIÐ
KRINGLUNNI
*
3
<