Morgunblaðið - 11.05.1990, Síða 18

Morgunblaðið - 11.05.1990, Síða 18
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 11. MAÍ 1990 Frambjóðendur Sjálfstæóisflokksins i Múlakaffi Tveir af frambjóðendum Sjálfstaðisflokksins við borgarstjórn- arkosningarnar i Reykjavik, Árni Sigfitsson, borgarjulltn'ti og Kalrin Gunnarsdóllir framkvamdastjóri, verða i Midakafft kl. 9.00 I fyrramálið. Vm hvað snýst kosningabaráttan i Reykjavík? Hver eru stefnumál sjálfstæöismanna? 1.695,- 3ffe KRINGWN KHUeNU S. 689212 Litir: Svart og hvítt Stærðir: 25- 35 Domu» M»*ci, u3. S«mi: 11519 j 21212 Póstsendum samdægurs — 5% staðgreiðsluafsláttur BARNASKÓR Guðmunda Jóhanns- dóttir — Minning Sunnudaginn 6. maí sl. lést elskuleg amma okkar, Guðmunda Jóhannsdóttir á Hrafnistu í Hafnar- firði eftir langt og viðburðaríkt lífsskeið. Amma fæddist 28. mars 1898 á Skúmsstöðum á Eyrarbakka en fluttist mjög ung að Hofi á Eyrar- bakka þar sem hún- ólst upp í hópi 9 systkina, sem upp komust. Nú er hún síðust af systkinunum frá Hofi sem kveður þennan heim. For- eldrar ömmu voru Ingibjörg Rögn- valdsdóttir og Jóhann Gíslason. Árið 1922 giftist amma Felixi Jónssyni frá Núpi í Ölfusi, síðast deildarstjóra hjá tollgæslunni í Reykjavík. Þau bjuggu allan sinn búskap_ í Reykjavík. 1924 keyptu afi og Ólafur föðurbróðir hans hús- ið á Baldursgötu 7, sem þá var bara lítið hús. 1930 réðust þeir í það verkefni að stækka húsið og ári síðar þegar foreldrar afa brugðu búi og fluttu til Reykjavíkur var enn þá byggt við húsið og nefndist sá hluti Baldursgata 7A. Þar bjuggu síðan gömlu hjónin á meðan þau lifðu og lengst af bjuggu þar einnig tvö bama þeirra með sínum fjöl- skyldum. Þannig var Baldursgata 7 og 7A orðin einn stór fjölskyldu- heimur og síðan kom hver kynslóð- in eftir aðra af ættingjum í húsið. Þarna í húsinu áttum við systkinin alla okkar æsku, á hæðinni fyrir ofan afa og ömmu. Þar sem mamma okkar þurfti að vinna úti þegar við systkinin komumst aðeins á legg er óhætt að segja að amma hafi verið einn af föstu punktunum í tilveru okkar. Það voru ófáir bitam- ir sem við fengum hjá henni ömmu og oft strauk hún burt tár og hugg- aði þegar eitthvað bjátaði á í leik og starfi hjá okkur. Amma og afi eignuðust 3 börn og 1 kjörbam. Það eru þau Svava, Hanna, Gylfi og dóttursonurinn Grétar, sem þau ólu upp sem sitt eigið barn. Afkomendurnir eru nú orðnir 27 og hafði hún oft á orði hve lánsöm hún væri. Það er ekki hægt að minnast hennar ömmu án þess að nefna hennar einstaka jafnlyndi. Hún var ætíð yfírveguð á augnablikum þar sem aðrir misstu oft stjórn á hugs- unum sínum og athöfnum. Þessi rósemi hennar gerði það að verkum að hún var aldrei ráðalaus, hvort sem um var að ræða bam sem þurfti a'aðhlynningu að halda eftir meiðsli í „portinu" góða bak við húsið, eða ef einhver vandamál komu upp sem þurfti að leysa úr. Nú er ákveðnum kafla í lífí okk- ar afkomenda ömmu á Baldó lokið. Afi Felix lést árið 1978 og síðan þá hefur amma verið ákveðið sam- einingartákn í fjölskyldum okkar. Framvegis verðum við því að láta minningu hennar sameina okkur. Við kveðjum elskulega ömmu og þökkum henni fyrir allt. Jafnvel viljum við fjölskylda ömmu þakka frábæra hjúkrun og umönnun, sem hún varð aðnjótandi á meðan hún dvaldi á Hrafnistu í Hafnarfirði. Guðrún og Nonni Elskuleg tengdamóðir mín er lát- in og langar mig til að minnast hennar í örfáum orðum. Hún var einstaklega ljúf og elskuleg manneskja, sem gott var að þekkja og umgangast. Gestrisni var henni í blóð borin og fór enginn svangur af hennar fundi. Hef ég fáa þekkt sem höfðu jafn mikið yndi af að gefa og hún hafði. Guðmunda var gift Felixi Jóns- syni yfirtollverði og bjuggu þau mestallan sinn búskap á Baldurs- götu 7 í Reykjavík. Þar var alltaf gott að koma, þar mætti manni alltaf sama hlýjan og þakklætið. Betri tengdaforeldra hefði ég ekki getað átt. Amma á Baldó, eins og við köll- uðum hana, hefur nú fengið hvfldina í hárri elli, hún kveið ekki kallinu, enda trúði hún hiklaust á líf eftir dauðann. Hun átti góða ævi, umvafín hlýju og kærleika af öllum sem hana þekktu. Hafí hún þökk fyrir allt. Hvíli hún í friði. Hanna Það var sól og sumar í Osló þeg- ar ég fékk fréttimar um lát ömmu. Þannig vil ég minnast hennar, með björtum huga og brosi, ég er viss um að þannig hefði hún viljað hafa það. Amma Gumm, eins og við kölluð- um hana, tilheyrði aldamótakyn- slóðinni sem nú er óðum að hverfa af sjónarsviðinu. Kynslóð sem hefur upplifað tímana tvenna í orðsins fyllstu merkingu og færði okkur inn í tæknivætt hraðaþjóðfélag nú- tímans. Ömmu fannst nú svo sem nóg um hraðann og tímaleysið sem allt- af virtist htjá afkomendur hennar, en það kom þó ekki í veg fyrir að hún fengi heimsóknir daglega, sér- staklega af dætrum sínum tveim, Svövu og Hönnu, sem önnuðust hana af einstakri alúð. Amma var gift Felix Jónssyni yfirtollverði sem lést 1978. Þau áttu bæði ættir sínar að rekja aust- ur fyrir fjall, amma frá Eyrarbakka og afi frá Landeyjunum og Ölfus- inu. Á fyrstu búskaparárum sínum fluttust þau til Reykjavíkur þar sem þau stofnuðu heimili á Baldursgötu 7, í húsi sem nefnt var Garðshom og var það sannkallað fjölskyldu- hús. Þaðan á ég margar ánægjuleg- ar minningar sem strákur, afi hár, grannur og teinréttur í baki. Amma nokkuð lægri og þétt á velli. Þama var heill ævintýraheimur fyrir strákpjakka, hitaveitukjallari með undarlegum hljóðum sem var fljótur að breytast í ægilegasta drauga- bæli. Og í bakgarðinum voru skúrar og kjallarar fullir af spennandi dóti og smíðatólum sem afí átti. Ég fínn ennþá þessa góðu lykt sem fylgdi trésmíðavinnu afa. Frá ömmu komst enginn án þess að þiggja veitingar, þó hann væri pakksaddur! Ég man að hún bjó til besta kakó í heimi, og versta hafra- graut í heimi, fannst mér a.m.k. því hann mátti ekki sykra! Eftir að afí dó bjó amma áfram á Baldursgötunni, en síðustu árin var hún á Hrafnistu í Hafnarfírði og naut þar frábærrar umönnunar sem þakka ber. Hún var ótrúlega hress fram undir það síðasta, fylgd- ist vel með afkomendum sínum og var full af áhuga og jákvæðu lífsvið-. horfi. Þó hún væri slæm af gikt og að mestu bundin við hjólastól fór hún á fætur á hveijum degi, því það varð „að liðka síg og gera leik- fimiæfingar“. Hún kunni ógrynni af sögum frá langri ævi og var vel ættfróð eins og fólk af hennar kynslóð er upp til hópa. Hlutur sem við yngra fólk- ið mættum vel hlúa betur að og viðhalda. Nú er amma komin á annað til- verustig. Þar er eflaust glatt á hjalla og margir fagnaðarfundir með vinum og ættingjum sem hún hefur séð á bak á langri ævi. Hún kenndi okkur margt en það sem einkenndi hana hvað mest í mínum huga var gleðin yfir að gefa án þess að ætlast til að fá eitthvað í staðinn, gleðin af að gefa af sjálfri sér. Veganesti sem gott er að hafa með sér út í lífið. Að leiðarlokum vil ég þakka henni samfylgdina, enn einn hlekk- urinn frá fortíðinni er horfinn af sjónarsviðinu. Hvíli hún í friði. Oddgeir Vignir sýnir í Nýhöfii VIGNIR Jóhannsson opnar sýn- ingu í listasalnum Nýhöfii, Haín- arstræti 18, laugardaginn 12. maí kl. 14—16. Á sýningunni verða listaverk unnin úr ýmsum efnum á þessu og síðasta ári. Vignir er fæddur á Akranesi árið 1952. Hann stundaði nám við Myndlista- og handíðaskóla íslands 1974—1978 og framhaldsnám í Rho.de .Island School of Design í Bandaríkjunum. Vignir hefur búið lengi erlendis og núna er hann búsettur í Santa Fe í Nýju Mexíkó þar sem hann vinnur alfarið að list sinni. Hann hefur haldið fjölda einka- sýninga hér heima og erlendis og tekið þátt í samsýningum víða um heim. Sýningin, sem er sölusýning, er opin virka daga frá kl. 10—18, nema mánudaga og frá kl. 14—18 um helgar. Sýningunni lýkur 30. maí. 'jtifrf/BíHI' og &SAMBANDSINS KAUPFÉLÖGIN VIÐ MIKLAGARÐ, SÍMAR 68 55 50 Kanadísku gasgrillin voru að koma * Mjög sterk álblanda, sem er 4-5 mm þykk * Mjög kraftmikil eða 14,3 KW (45.000 BTU) * Mjögöruggmeð tveimur hitahlífum * Mjög auðvelt og fljótlegt að setja þau saman * Postulínshúðaðar grillgrindur

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.