Morgunblaðið - 11.05.1990, Blaðsíða 23
MORGUNBLAÐIÐ FOSTUDAGUR 11. MAI 1990
23
Rúmenía:
Stj órnarandstaðan vill
fresta forsetakosningum
Búkarest. Reuter.
FRAMBJÓÐENDUR tveggja stjórnarandstöðuflokka í forsetakosn-
ingunum í Rúmeníu lýstu í gær yfir því að þeir væru tilbúnir til að
draga sig í hlé gerði Ion Iliescu, sitjandi forseti bráðabirgðasljórnar
Endurreisnarráðsins, slíkt hið sama. Petre Roman forsætisráðherra
vísaði þessari hugmynd á bug og sagði hana ólýðræðislega. Þing-
og forsetakosningar fara fram í Rúmeniu þann 20. þessa mánaðar
og fer fylgi bráðabirgðastjórnarinnar minnkandi ef marka má nýj-
ustu skoðanakannanir.
Auk Iliescus eru þeir Radu
Campenau og Ion Ratiu í framboði
í forsetakosningunum og njóta þeir
stuðnings tveggja helstu stjórnar-
andstöðuflokkanna, Bændaflokks-
ins og Fijálslynda flokksins. I sam-
eiginlegri yfirlýsingu þeirra sagði
að fresta bæri kosningunum þannig
að hið nýja þing Rúmeníu kysi for-
setá landsins.
Petre Roman, forsætisráðherra
Rúmeníu, sagði í gær að frambjóð-
endurnir tveir hefu gert sér ljóst
að þeir ættu enga möguleika í for-
setakosningunum og sakaði stjórn-
arandstöðuna um ólýðræðisleg
vinnubrögð.
í höfuðborg Rúmeníu, Búkarest,
hafa stjórnarandstæðingar haft í
frammi linnulítil mótmæli gegn Ili-
escu og bráðabirgðastjórninni og
krafíst afsagnar forsetans sökum
Sovétríkin:
Nýju stjórnmálöflin
sögð of óskipulögð
Amsterdam. Reuter.
HINN kunni sovéski sagnfræðing-
ur og umbótasinni Júrí Afanasjev
heldur því fram að umbótasinnað-
ar sljórnmálahreyfingar í landinu
séu of óskipulagðar til þess að
hafa áhrif og þær skorti ferskar
hugmyndir til þess að vinna al-
menningshylli. Hann segir enn-
fremur að sovésk stjórnvöld geri
allt sem í þeirra valdi stendur til
að kljúfa nýjar stjórnmálahreyf-
ingar í landinu.
Afanasjev sem lengi hefur verið
einn helsti leiðtogi róttækra umbóta-
sinna innan kommúnistaflokksins
sagði sig úr flokknum fyrir
skemmstu til þess að mótmæla því
hversu hægt lýðræðisbreytingarnar
gengju undir stjórn Míkhaíls Gor-
batsjovs Sovétleiðtoga. I fyrradag
flutti hann erindi á áttunda árlega
Sakharov-þinginu í Amsterdam. Þar
sagði hann að það sem einkenndi
ný stjórnmálaöfl „vinstra megin við
Gorbatsjov" [hægra megin í vest-
rænum skilningi] væri skipulags-
leysið. „Stjórnarandstaðan kafnar
undir nafni myndi hún ekki bandalag
lýðræðisafla.“ Hann sagði að nýju
öflin byggðu á mjög veikum grunni.
Aðrir ræðumenn á þinginu spáðu
því að Sovétrikin væru á leið til
stjórnleysis og Gorbatsjov væri að
missa tökin á landstjóminni. „Kerfið
og meirihluti fólks geta ekki tekið
á sig svo miklar breytingar á svo
skömmum tíma. Þess vegna má
búást við miklum óróa sem felur
Hverfisteinar
Sambyggöur hverfisteinn meö hjóli til blautslípunar
og hjóli úr gúmmíbundnum ál-ögnum til brýningar.
Hljóðlátur íönaöarmót-
or 200W, 220v, 50 HZ,
einfasa, snýst 70 snún-
inga á mín.
Laust vatnsílát.
Sérstök stýring ffyrir
sporjárn o.þ.h.
Verðkr. 16.700.
tengsla hans við kommúnistaflokk-
inn og Nicolae Ceausescu, fyrrum
leiðtoga landsins, sem steypt var
af stóli í desember. Iliescu hefur
sagt að hann sæti persónulegum
ofsóknum og Roman forsætisráð-
herra minnti á að forsetinn hefði
einn rúmenskra embættismanna
árætt að mótmæla stefnu Ceausesc-
us en Iliescu féll í ónáð árið 1974
er hann var háttsettur embættis-
maður innan kommúnistaflokksins.
Ef marka má skoðanakannir mun
Iliescu vinna öruggan sigur í for-
setakosningunum. Samkvæmt
könnun sem birt var í gær styðja
rúm 69 prósent kjósenda hann en
næstur honum kemur Campeanu,
frambjóðandi Fijálslynda flokksins.
Kváðust tæp 13 prósent þeirra sem
þátt tóku í könnuninni ætla að
greiða honum atkvæði sitt. Fylgið
við bráðabirgðastjórnina hefur á
hinn bóginn minnkað um tíu pró-
sent frá því í fyrri könnunum og
nýtur hún nú hylli 58,6 af hundraði
kjósenda.
Reuter
De Klerk í Frakklandi
F.W. de Klerk, forseti Suður-Afríku, hóf í fyrradag ferð til níu Evró-
puríkja og er Frakkland fyrsta landið sem hann heimsækir. Á
myndinni ræðir hann við Francois Mitterrand Frakklandsforseta við
forsetahöllina í París. De Klerk hyggst kynna umbótastefnu sína og
hvetja ríki Evrópu til að falla frá efnahagslegum refsiaðgerðum sínum
gegn Suður-Afriku. Spænska stjómin hefur ákveðið að aflétta að hluta
viðskiptabanni á Suður-Afríku og hefur spænska flugfélagið Iberia
hafið vöruflutninga til landsins að nýju eftir þriggja ára hlé.
e.t.v. í sér valdarán, byltingartil-
raunir, byltingu, klofning og jafnvel
borgarastyijöld," sagði Peter
Reddaway, prófessor við George
Washington háskólann í Washington
í Bandaríkjunum. „Gorbatsjov hefur
Færeyjar:
Enn stjórn-
málakreppa
Kaupmannahöfn. Frá Nils Jörgen Bruun,
fréttaritara Morgunblaðsins.
AFTUR er skollin á stjórnmála-
kreppa í Færeyjum. Og enn er
það formaður Sambaudsflokksins,
Pauli Ellefsen, sem stendur í
stríðu. Hann hótar nú að slíta
stjórnarsamstarfinu.
Pauli Ellefsen hefur ekki einasta
lýst yfir að hann sé ósammála sam-
starfsflokkunum, Þjóðarflokknum
og Lýðveldisflokknum, heldur sé
hann einnig gjörsamlega á öndverð-
um meiði við fulltrúa Sambands-
flokksins í landstórninni, Jogvan I.
Olsen, sem fer með fiskveiðimál, um
það hvernig skipta skuli hráefni á
milli fiskvinnslustöðvanna í landinu.
Jogvan I. Olsen vill að hráefninu
verði úthlutað í kílóatali, en Pauli
Ellefsen vill fara aðrar leiðir.
Jogvan Sundstein hefur nú kallað
stjórnina saman til neyðarfundar.
Laugavegi 29
Símar 24320 — 24321 — 24322.
RAFÐA LJONIÐ
er ekki aðeins ein vinsœlasta kráin á höfuðborgarsvœöinu
—á Ljóninu fœrÖ þú frábœran mat á frábœru veröi.
Sýnishorn af nýjum matseöli:
9
8
'CÖ
u
9
■M
■M
'jrt
9
a
«o
S
FORRÉTTIR
Súpa dagsins 320
Reyktur lax með melónu á salatbeði 520
Grafinn lambavöðvi meðjurtasósu Grillaðir humarhalar 590
með hvítlauksbrauði 850
SMÁRÉTTIR
Pasta Carbonara Þið munið - þessi gamli góði pastaréttur með beikoni og eggjum 610
Bujf Gréta Saxað nautakjöt og saxaður laukur steikt ásamt cggi og sinnepi 720
Djúpsteiktar rækjur 650
Brauðsneið með steik 790
100 gr. nautasteik á ristuðu brauði með steiktum lauk. Einfalt en gott
ADALRÉTTIR
Fiskistroganojf í rjómasósu Við efumst um að þú hafír prófað þennan áður Snöggsteikt laxasnitsel 720
með sítrónusmjöri 820
Sjávarréttir „ala maison"- 890
T-Bone steik Steikt að eigin vali með ijómasósu 1.580
Nautapiparsteik Quadro Með 4 tegundum af pipar 1.790
Lambavöðvi „oriental“ 1.11,0
Snöggsteikt aliönd með appelsínusósu Þessi kemur skemmtilega á óvart 1.690
Með öllum aðlaréttum getið þér valið um
bakaða kartöflu, franskar kartöflur, soðnar kartöflur, hrísgijón eða pasta.
EFTIRRÉTTIR
ís Rauða Ijónsins 1,00
ís Helenu fögru með peru og súkkulaðisósu 350
Ávaxtadiskur 1,80
Blandaðir ostar d bakka Minnst fyrir tvo 850
Hinir Ljónsfrægu
Papar
frá Vestmannaeyjum eru
komnir úr heimsreisunni
og skemmta gestum
Rauða Ijónsins
í kvöld og
laugardagskvöld.
Snyrtilegur klæðnaður.
Borðapantanir í
símum 611414 og 611070.
Aldurstakmark 20 ára.
Rauða Ijónið,
meiríliáuar staóur