Morgunblaðið - 11.05.1990, Qupperneq 28
28
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 11. MAÍ 1990
Kúabændur tapa um 530
millj. vegna júgurbólgu
Ytri-Tjörnum.
SAMEIGINLEGUR aðalfundur
Mjólkursamlags KEA og Félags
eyfirskra nautgripabænda var
haldinn í Hlíðarbæ nýlega. I
skýrslu Þórarins E. Sveinssonar
' mjólkursamlagsstjóra kom fram
að Mjólkursamlag KEA tók á
móti 20.446.540 lítrum af mjólk
á árinu 1989, en það er 0,84%
aukning á innvegnu magni miðað
við árið á undan. Þar voru um
190 þúsund lítrar utan fidlvirðis-
réttar. Fituinnihald var að með-
altali 4,08% og 98,34% af innveg-
inni mjólk fór í fyrsta flokk.
Mun betri útkoma varð á samlag-
inu og varð hagnaður af rekstri á
móti töluverðu tapi á árinu á und-
an. Á næstunni stendur til að breyta
útborgunarreglum til bænda og
verður farið að greiða að hluta til
eftir próteininnihaldi mjólkur, en
vægi fituinnihalds minnkar að sama
skapi.
Sigurborg Daðadóttir dýralæknir
flutti erindi um eggjaflutning á
Frystihús KEA í Hrísey:
Pakkar í neytenöaumbúðir
fyrir Marks og Spencer
FRYSTIHUS Kaupfélags Eyfirð-
inga í Hrísey hóf nýlega pökkun
þorsks í neytendaumbúðir fyrir
Marks og Spencer verslanakeðj-
una í Bretiandi. Fyrsti skammtur
verður afgreiddur í lok mánaðar-
ins, um 11 tonn.
Um er að ræða tæplega eins kílós
pakkningar. KEA-menn í Hrísey
hafa áður pakkað í smásölupakkn-
ingar, en að þessu sinni er farið
.jaðrar leiðir en þá. Nú er fiskinum
pakkað lausfrystum — þ.e. hann
er frystur áður en honum er pakk-
að, og stykkin eru því ekki frosin
saman. Fólk getur þ.a.l. valið sér
eitt og eitt stykki, afþýtt og sett
beint á diskinn.
Ekki er enn Ijóst-hve umfangs-
mikil þessi vinnsla verður, eða hve
lengi hún kemur til með að standa.
En það er von Hríseyinga að vinnsl-
an gangi vel „og að unnið verði við
þetta um ókomna framtíð," eins
Sigmar Halldórsson, verkstjóri í
frystihúsinu orðaði það við Morgun-
blaðið.
milli kúa og greindi frá tilraunum
sem hún stundar á því sviði í Eyja-
firði.
Ólafur Jónsson dýralæknir sagði
frá júgurbólgurannsóknum sem
hann hefur með höndum og kom
fram í máli hans að íslenskir kúa-
bændur tapa 530 milljónum króna
vegna júgurbólgu í kúm.
Oddur Gunnarsson formaður Fé-
lags eyfirskra kúabænda taldi í
sinni framsögu að ekki væri veij-
andi annað en að borga fullt grund-
vallarverð fyrir nautakjöt, en svo
hefur ekki verið um skeið, þar sem
birgðasöfnun væri engin og slátur-
húshafar seldu allt kjöt strax. Þór-
arir.n E, Sveinsson, samiagsstjóri,
verðlaunaði 23 bændur fyrir úrvals-
mjólk sem lögð var inn hjá Mjólkur-
samlagi KEA 1989. Fundinn sóttu
tæplega 100 bændur.
Benjamín
Kapella og líkhús
við kirkjugarðinn
STEFNT er að því að byggð verði
kapella og líkhús við kirkjugarð-
inn á Akureyri, en sú aðstaða er
nú fyrir hendi í litlu húsi við
Fjórðungssjúkrahúsið. Ekki er
ákveðið hvenær hafist verður
handa við verkið, en það verður
þó varla í sumar, að sögn Ragn-
ars Steinbergssonar, formanns
sljórnar kirkjugarðanna.
Hárgreiðslu- eða hárskemvein
vantar á SyPhársnyrtistofa
ÁRTEMI8
Nánari upplýsingar í síma 96-22820.
fitvegsmenn Norðurlandi
Útvegsmannafélag Norðurlands heldur fund mánu-
daginn 14. maí nk. á Hótel KEA kl. 14.00.
Fundarefni:
1. Ný samþykkt lög um stjórnun fiskveiða.
2. Afkomuskýrsla bátaflotans.
3. Önnur mál.
Halldór Ásgrímsson, sjávarútvegsráðherra, Kristján
Ragnarsson, formaður LÍÚ og Sveinn Hjörtur Hjartar-
son koma á fundinn.
Stjórnin.
„Fjórðungssjúkrahúsið hefur sótt
það fast að kirkjugarðarnir taki
yfir þessa starfsemi. Það verður
gert en ekki er ákveðið hvenær það
verður,“ sagði Ragnar. „Það er ver-
ið að finna þessu stað, sem senni-
lega verður austan við kirkjugarð-
inn, norðan við áhaldahúsið."
Nú er unnið að frumhönnun
umrædds húsnæðis.
Útvarp Þór
íþróttafélagið Þór verður 75 ára
6. júní næstkomandi og rekur af
því tilefhi útvarpsstöð, sem send-
ir út á Akureyri og næsta ná-
grenni, í nokkra daga kringum
afmælisdaginn.
Stefnt er að því að útsending
hefjist þriðjudaginn 5. júní og standi
til sunnudagskvölds 10. júní. í út-
varpi Þór er stefnt að því að verði
fræðslu-, menninga- og skemmti-
efni auk tónlistar og frétta. Saga
Þórs verður rifjuð upp, einstaka
deildir sjá um hluta dagskrárinnar,
viðtöl verða við Þórsara og fluttur
ýmis fróðleikur um félagið.
áLVEREYJAFJÖRÐ
FUNDIIR í SJILLINUH UM „MÁL MÁLANHA" ÞRIDJUDA6SK VOLDID15. MAÍ KL. 20.30
„Umhverfisóhrif ólvers“
Andrés Svanbjörnsson, yfirverkfr.
markaðsskrifstofu Iðnaðarróðu-
neytis og Londsvirkjunor.
Fundarstjóri:
Jón Arnþórsson.
„Atvinnuleg
og félagsleg áhrif
álvers“
Þóra Hjaltadóttir, formcður Alþýðu-
sambands Norðurlonds.
„Alver á Islandi
- Möguleikar
Eyfirðinga“
Sigurður P. Sigmundsson, frkvstj
Iðnþróunarfélags Eyjafjarðar.
Akureyringar, CyfirÖingar!
Höfum við efni ó að sleppa þessu eínsfæða tækifæri?
Fjölmennum ó fundinn í Sjallanum.
|7al IÐNÞRÓUNARFÉIAG
lw| EYJAFJARÐAR HF.
Álviðræðunefnd sveitarfélaga við Eyjafjörð.
Morgunblaðið/Benjamín
Atli Guðlaugsson skólasljóri og Óskar Einarsson kennari hlusta á
einn af nemendunum Stefán E. Garðarsson.
■ TÓNLISTARSKÓLI Eyja-
fjarðar er nú að ljúka öðru starfs-
ári sínu. Lýkur því með hefðbundnu
tónleikahaldi og endapunkturinn er
að sjálfsögðu skólaslit með tónlist-
arívafi á Grenivík laugardaginn 12.
maí kl. 17.00. Þessi fyrstu starfsár
skólans hefur uppgangur hans verið
með ólíkindum, þar sem nemendur
í vetur voru 235, en það er hátt í
10% íbúa á starfssvæði skólans, sem
starfar nú í 10 sveitarfélögum við
Eyjafjörð. Hljóðfæraval er mjög
fjölbreytt og eru nemendur skólans
á ýmsum stigum í hljóðfæraleik og
söng, allt upp í 7. stig. Þá er aldurs-
munur á yngsta og elsta nemandan-
um rúm 50 ár.
Allir virðast á einu máli um, að
vel hafi til tekist með þessi fyrstu
skref skólans og horfa björtum
augum til framtíðar hans. I vetur
störfuðu 9 kennarar við skólann,
auk skólastjóra, Atla Guðlaugs-
sonar.
■ UM helgina verða þrennir nem-
endatónleikar á vegum Tónlistar-
skólans á Akureyri. Hinir fyrstu
verða kl. 10.00 á sunnudagsmorgun
í Lóni við Hrísalund. Þar koma fram
nemendur á píanó og fiðlu sem
lært hafa eftir svokallaðri
„Suzuki“-aðferð. Jafnframt eru
þessir tónleikar liður í fjáröflun for-
eldrafélags Suzukideildar Tónlistar-
skólans og verður kaffi og meðlæti
innifalið í aðgangseyri sem er kr.
300. Sama dag verða tvennir tón-
leikar í íþróttaskemmunni, tónleikar
yngri nemenda kl. 14.00 og eldri
nemenda kl. 17.00. Þar koma fram
einleikarar á píanó, fíðlu, selló, gítar
og ýmis blásturshljóðfæri og flytja
fjölbreytta og vandaða efnisskrá.
Seinna í vikunni er svo boðið upp
á áframhaldandi tónleikaveislu í
skemmunni. Þriðjudaginn 15. maí
eru vortónleikar slagverksdeildar
Tónlistarskólans, miðvikudaginn
16. mai eru tónleikar A-, B-, C- og
D-blásarasveita, fimmtudaginn 17.
maí eru tónleikar strengjasveita I
og II og sinfóníuhljómsveitar Tón-
listarskólans og að lokum eru tón-
leikar Big-bands tónlistarskólans
föstudaginn 18. maí. Allir tónleik-
arnir hefjast kl. 20.30. Tónlistar-
skólanum verður svo slitið laugar-
daginn 19. maí í Akureyrarkirkju
kl. 17.00.
■ SJÁVARÚTVEGSDEILD Há-
skólans á Akureyri gengst fyrir
fyrirlestrum um alþjóðlega fisk-
veiðistjórnun á morgun kl. 10.00—
17.00 í Borgarbíói. Fyrirlesarar eru
erlendir, sex að tölu, allt félagar í
Alþjóða Landfræðisambandinu og
starfa saman í rannsóknahópi um
fiskveiðar. Hádegisverður verður á
Hótel Norðurlandi kl. 12.00—14.00.
Aðgangur er ókeypis en hádegis-
verður kostar kr. 1.000.
I PÁLL Einarsson jarðeðlis-
fræðingur við Raunvísindastofnun
Háskóla íslands flytur fyrirlestur á
morgun, laugardag 12. maí, kl.
14.00 á vegum Háskólans á Akur-
eyri. Heiti fyrirlestursins er Eldgos
og eldgosaspár. Hann verður hald-
inn í stofu 24 í húsnæði háskólans
við Þingvallastræti og eru allir vel-
komnir meðan húsrúm leyfir.
■ STUÐNINGSHÓPUR fyrir
aðstandendur aldraðra heldur
síðasta fund vetrarins í dag, föstu-
dag, kl. 17.00, á fjórðu hæð heilsu-
gæslustöðvarinnar. Á fundinn kem-
ur Magnús Ólafsson sjúkraþjálfari
og ræðir um hreyfingu fyrir aldraða
og hreyfiörvun. Allir sem áhuga
hafa á þessu efni eru velkomnir.
FYRIRLESTRAR
Háskólinn á Akureyri,
sjávarútvegsdeild
Fyrirlestrar um alþjóðlega fiskveiðistjórnun í
Borgarbíói laugardaginn 12. maíkl. 10.00-17.00.
Fyrirlesarar eru félagar í Alþjóða
landfræðisambandinu og starfa saman í
rannsóknahópi um fiskveiðar. Fyrirlestrarnir verða
áensku. Fundarstjóri Sigfús Jónsson, bæjarstjóri.
Hádegisverðurá Hótel Norðurlandi
kl. 12.00-13.00.
Háskólinn á Akureyri.