Morgunblaðið - 11.05.1990, Side 30
•30
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 11. MAÍ 1990
ATVINNVJA UGL ÝSINGAR
Alftanes
- blaðburður
Blaðbera vantar á Álftanes.
Upplýsingar í síma 652880.
fllttjpiiittbifrifr
Fóstrur
Okkur á Öldukoti vantar fóstru eða starfs-
mann til framtíðarstarfa. Á barnaheimilinu
eru tvær deildir með börn á aldrinum IV2-
6 ára.
Upplýsingar veitir forstöðumaður í síma
604365 milli kl. 9.00 og 14.00.
Matreiðslumaður
Óskum eftir að ráða matreiðslumann með
meistararéttindi til framtíðarstarfa nú þegar.
Upplýsingar í síma 98-21356.
Fossnesti - Inghóll,
Selfossi.
"1RÍKISSKIP
Skrifstofuvinna
Óskum eftir að ráða starfskraft til starfa við
símavörslu, tölvuskráningu og ritarastörf.
Um er að ræða 60% starf. Vinnutími frá kl.
8.00-13.00.
Upplýsingar veittar hjá starfsmannastjóra í
síma 28822.
Umsóknir berist fyrir fimmtudaginn 17. maí
nk.
Frá Grunnskóla
Njarðvíkur
Kennara vantar í eftirfarandi greinar næsta
vetur:
Myndmennt og tónmennt.
Nánari upplýsingar veitir Gylfi Guðmunds-
son, skólastjóri, í skólanum í síma 92-14399
eða heima í síma 92-14380.
Skólastjóri.
HÚSNÆÐIÓSKAST
Lítil íbúð óskast
Rithöfundur óskar eftir einstaklingsíbúð (1
eða 2ja herbergja) í 12-14 mánuði á kyrrlátum
stað, helst í Reykjavík.
Upplýsingar í síma 96-73135 milli kl. 16 og 19.
ATVINNUHÚSNÆÐI
Atvinnuhúsnæði til leigu
í húseigninni nr. 9 við Engjateig (Verkfræð-
ingahúsinu) er til leigu nú þegar 225 fm hús-
næði á jarðhæð og 116 fm geymslurými í
kjallara. Húsnæðið er hentugt fyrir ýmiskon-
ar starfsemi t.d. sérþjónustu.
Upplýsingar veittar í síma 689155 daglega
frá kl. 10.00-18.00.
HÚSNÆÐI í BOÐI
Fort Myers - Florida
Höfum til leigu tveggja manna svefnherbergi
með sjónvarpi og góðum morgunverði,
$39.00. Pantið tímanlega.
1717 S.E. 9th Terrace, Cape Coral 33904,
Florida, sími 13-574-5329.
Geymið auglýsinguna.
Eyja Henderson.
TILKYNNINGAR
fLóðaúthlutun í
Reykjavík
Til úthlutunar eru lóðir í Rimahverfi fyrir 28
einbýlishús, 6 íbúðir í raðhúsum, 66 íbúðir í
tvíbýlis- eða parhúsum og 6 fjölbýlishús með
samtals 144 íbúðum. Gert er ráð fyrir, að
lóðirnar verði byggingarhæfar í júlí/ágúst
1990.
Nánari upplýsingar verða veittar á skrifstofu
borgarverkfræðings, Skúlatúni 2, 3. hæð,
sími 18000. Þar fást einnig afhent umsóknar-
eyðublöð og skipulagsskilmálar og ennfrem-
ur eru þar til sýnis skipulagsuppdrættir.
Tekið verður við lóðarumsóknum frá og með
mánudeginum 14. maí 1990 á skrifstofu
borgarverkfræðings. Athygli er vakin á því,
að staðfesta þarf skriflega eldri umsóknir
eða leggja inn nýjar í þeirra stað.
Áskorun til greiðenda
fasteignagjalda \
Kópavogi
Hér með er skorað á alla þá, sem eigi hafa
greitt gjaldfallin fasteignagjöld ársins 1990,
að gera skil innan 30 daga frá birtingu ásko-
runar þessarar.
Hinn 11. júní nk. verður krafist nauðungar-
uppboðs samkvæmt lögum nr. 49/1951 á
fasteignum þeirra, er þá hafa eigi gert skil.
Innheimta Kópavogskaupstaðar.
Grafarvogsbúar!
Laugardaginn 12. maíkl. 10.00-12.00 verður
fræðsla um garðyrkju og garðrækt í félags-
miðstöðinni Fjörgyn.
Allir velkomnir.
Sveilarsl|ðplnn GpundapliPOI
Tilkynning
Skrifstofa Eyrarsveitar, Grundarfirði, hefur
verið opnuð í nýjum húsakynnum á Grundar-
götu 30.
Símanúmer er 93-86630 og telefaxnúmer er
93-86779.
Sveitarstjórinn á Grundarfirði,
Ólafur Hilmar Sverrisson.
Lögreglustjórinn í Reykjavik
Hverfisgötu 115, sími 10200
í vörslu óskilamuna-
deildar lögreglunnar
er margt óskilamuna, svo sem:
Reiðhjól, barnakerrur, fatnaður, lyklaveski,
lyklar, buddur, seðlaveski, kvenveski, skjala-
töskur, úr, gleraugu o.fl.
Er þeim, sem slíkum munum hafa glatað,
bent á að spyrjast fyrir um þá á skrifstofu
óskilamuna, Hverfisgötu 113, (gengið inn frá
•Snorrabraut) frá kl. 14.00-16.00 virka daga.
Þeir óskilamunir, sem búnir eru að vera í
vörslu lögreglunnar í ár eða lengur, verða
seldir á uppboði í portinu í Borgartúni 7, laug-
ardaginn 12. maí 1990.
Uppboðið hefst kl. 13.30.
ÝMISLEGT
Húsafriðunarnefnd auglýsir
Húsafriðunarnefnd auglýsir hér með eftir
umsóknum til húsafriðunarsjóðs, sem starfar
samkvæmt lögum nr. 88/1989, til að styrkja
viðhald og endurbætur húsa, húshluta og
annarra mannvirkja, sem hafa menningar-
sögulegt eða listrænt gildi.
Umsóknir skulu sendar fyrir 1. september
nk. til Húsafriðunarnefndar, Þjóðminjasafni
íslands, pósthólf 1489, 121 Reykjavík, á
eyðublöðum, sem þar fást.
Húsafriðunarnefnd.
FUNDIR - MANNFA GNAÐUR
Framhaldsaðalfundur
Hestamannafélagsins Fáks verður haldinn
í Félagsheimilinu þriðjudaginn 15. maí kl.
20.30.
Dagskrá: Lagabreytingar.
Önnur mál.
Stjórnin.
FJÁRFESTINGARFÉIAGIÐ
Aðalfundur
Aðalfundur Fjárfestingarfélags íslands hf.
árið 1990 verður haldinn á Hótel Holiday Inn
föstudaginn 18. maí nk. kl. 16.00.
Dagskrá:
Aðalfundarstörf skv. 15. gr. samþykkta fé-
lagsins.
Tillögur frá hluthöfum, sem bera á fram á
fundinum, skulu vera komnar skriflega í
hendur stjórnarinnar eigi síðar en sjö dögum
fyrir aðalfund.
Reikningar félagsins liggja frammi á skrifstof-
unni viku fyrir aðalfund.
Aðgöngumiða ber að vitja á skrifstofu félags-
ins í Hafnarstræti 7, 4. hæð, Reykjavík, þrjá
síðustu daga fyrir aðalfund og á fundardegi.
Borgarstjórinn í Reykajvík.
Lögreglustjórinn í Reykjavík.
Stjórn Fjárfestingarfélags Islands hf.