Morgunblaðið - 13.09.1990, Blaðsíða 15

Morgunblaðið - 13.09.1990, Blaðsíða 15
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 13. SEPTEMBER 1990 hungurtilfinning og þróttleysi fer smám saman að gera vart við sig. Þegar blóðsykurinn fellur niður í 65 milligrömm kemur oft fram löngun í sætindi og/eða garnagaul gerir vart við sig. Falli blóðsykurinn enn neðar getur það komið fram í höfuðverkjum, máttleysi, óstöðug- leika, truflunum á hjartslætti, ógleði og jafnvel uppköstum. Þessi einkenni þekkja margir. Adella segir ennfremur, að ef blóðsykur hjá einstaklingum falli niður fyrir eðlileg mörk, hafi þeir tilhneigingu til að verða uppstökkir og skapstirðir, þunglyndir, ósam- vinnuþýðir og hugsun verði órökvís. (Slys í umferðinni eigi sér oft stað á þeim tíma dags þegar blóðsykur er hvað lægstur.) Nái fólk því aftur á móti, að halda jafnvægi á sykurmagni í blóði, þá líði því vel, verði samvinnu- þýtt og hlaðið starfsorku, hugsunin verði hröð og skýr, löngun í sæt- indi hverfi, fólk verði glaðlegt og lífið verður ánægjulegt. Það má því segja að full ástæða sé til að unnið verði á markvissan hátt að því að efla og bæta matar- menningu okkar. Sjónvarp, útvarp og dagblöð gætu unnið stórvirki með vel skipulögðum fræðsluþátt- um, þar sem komið er að málinu frá mörgum hliðum. Við hefjum hér átakið og tökum fyrir næringarinnihald morgun- verðar: Maðurinn er það sem hann borð- ar. Æskilegt er að morgunverður- inn innihaldi örlítið af sykri, fítu og hæfilega mikið af próteini, melt- ingin verður hægari og sykurinn fer hægt inn í blóðstrauminn og geta áhrifin varað klukkustundum sam- an. Ef málsverðurinn inniheldur meira prótein t.d. 55 g eða meira geta áhrifin varað í 6 klst. eða leng- ur. Til viðmiðunar er má benda á, að í einum lítra af mjólk eru 32 til 35 g af próteini, 6 g eru í einu eggi soðnu eða steiktu, 2 grömm í einni sneið af brauði eða beikoni, 10-12 g í tveim þykkum sneiðum af osti eða 27 g í 26% osti. 14-22 g af próteini eru í hálfum bolla af hnetum, 1-3 grömm eru í 3A bolla af soðnu haframjöli, 11,5 g eru í skyri og 60 g í einum bolla af soja- baunamjöli, svo dæmi séu tekin. Hvað vítamíninnihaldi mjólkur viðvíkur, er rétt að benda foreldrum ungra barna á, að í undanrennu vantar fituuppleysanleg vítamín eins og A og D vítamín. Nýmjólkin inniheldur aftur á móti 1.500 ein- ingar af A vítamíni, magn D vítamíns fer trúlega eftir árstíðum. Lystugan morgunverð má svo útbúa á ýmsa vegu. Margir eggja- réttir þykja mjög góðir. Egg á ekki að steikja á álpönnu, heldur í eld- föstu eða í stál- eða pott-pönnu, pönnukökupannan er ágæt. Eggjabrauð með hunangi: Eggið er brotið í skál og þeytt í sundur, brauðsneið er síðan velt upp úr egginu, ef brauðið er gljúpt dregur það til sín eggið. Pannan er hituð og örlítið smjör eða smjörvi sett á pönnuna og brauðið steikt við væg- an hita á báðum hliðum. Koma má tveim sneiðum á pönnuna með því að skera þær í tvennt. Eggjahræra: 2 msk. smjör eða smörvi bræddur á pönnu eða potti í vatnsbaði, 3 egg, 3 msk. mjólk eða rjómi, '/$ tsk. salt og ‘/i tsk. paprika eru þeytt saman. Áður en heit feitin fer að krauma er eggja- blandan sett á pönnuna, hitinn er hafður vægur. Þegar eggjahræran fer að hlaupa við pönnubotninn er hún brotin upp í strimla með gaffli eða tréspaða og þegar hræran hef- ur öil hlaupið er bætt út í hana, ef vill, allskonar kjötmeti til að gera hana matarmeiri. Það geta verið skinkubitar, steiktir beikon- bitar, kjötafgangar, sýrður ijómi og saxaður graslaukur, ostatening- ar, steiktar pylsur niðurskornar, sardínur eða skorinn laukur. Eggja- hræran er einnig ágæt ein og sér. Hin sígilda omeletta samanstend- ur af 2-3 eggjum og 1 msk. af smjöri. Linsoðin egg eru ágæt öðru hvoru svo og steikt egg og beikon. Ekki má gleyma hafragrautnum þó hann sé ekki uppáhald allra. Graut- urinn er mun lystugri þegar hafra- mjölið eru soðið í vatni og mjólk til helminga. Súrmjólk, ab mjólk og musli þykir víða ómissandi. Osykrað morgunkorn er ef svo slæmt ef það er borið fram með mjólk! Gæði morgunverðarins byggjast að sjálfsögðu á því að hráefnið sé bæði ferskt og gott. M. Þorv. EINDAGI STAÐGREIÐSLUFJÁR ER 15 HVERS MÁNAÐAR Launagreiðendum ber að skila afdreginni staðgreiðslu af launum og reiknuðu endurgjaldi í hverjum mánuði. Með gírókerfi staðgreiðslu er unnt að greiða í öllum bönkum, sparisjóðum og pósthúsum. Eindagi staðgreiðslufjár er 15. hvers mánaðar. Munið að gera skil tímanlega! RSK RtKISSKATTSTJÓRI 15 Þykkmjólk er mildsýrð, hnausþykk, bragðljúf, holl og næringarrík með BIOgarde®gerlum sem öllum gera gott. Kærkomnar nýjungar - ekki síst fyrfr smáfólkið. eru þegar ný aíkvæmi líta dagsins ljós Við fógnum tveimur nýjum afkvæmum þykkmjólkurkýrinnar góðu. Þykkmjólk með súkkulaði og appelsínum og trefjaríkri þykkmjólk með möndlum^ hnetum, ananas, appelsínum, rúsínum og marsípani. CT) * 3 < HVÍTA HÚSIÐ / SÍA

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.