Morgunblaðið - 13.09.1990, Page 22

Morgunblaðið - 13.09.1990, Page 22
22 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 13. SEPTEMBER 1990 Úthlutað úr Söngvara- sjóði óperudeildar FIL Morgunblaðið/Sverrir Styrkþegar, fulltrúar þeirra og stjórn óperudeildar. Söngvarasjóður óperudeildar Fé- lags íslenskra leikara styrkir efni- lega söngnema til náms og starf- andi söngvara til frekari menntunar í list sinni. Sjóðurinn úthlutar nú í þriðja sinn samkvæmt nýjum regl- um. Þetta er því í þriðja sinn sem sjóðurinn auglýsir styrkveitingu opinberlega og óskar eftir umsókn- um. Styrkveiting er háð því skilyrði að umsækjandi hafí lagt stund á söngnám um nokkurra ára skeið og ætii í enn frekara nám erlendis. Alls sóttu 19 manns um styrk að þessu sinni. Voru umsækjendur allir í höpi okkar efnilegustu söng- nema og einn söngvari. Til styrk- veitingar í ár komu kr. 400.000 og ákvað sjóðstjórn að skipta þeirri upphæð í fimm hluta. Styrk að upphæð krónur eitt hundrað þúsund hlutu að þessu sinni þrír söngnemar, þær: Hulda Guðrún Geirsdóttir sópr- an, sem stundar nú nám í Miinchen í Þýskalandi annað árið í röð. Hulda Guðrún nam söng við Tónlistarskól- ann í Reykjavík. Kennari hennar var Elísabet Erlingsdóttir. Guðrún Jónsdóttir sópran, sem stundar söngnám í Codigoro á ít- alíu. Hún lauk söngkennaraprófí frá Söngkennaraskólanum í Reykjavík vorið 1989. Guðrún hefur einnig verið við söngnám í Englandi. Elsa Waage alt, sem stundar einkanám í New York í Banda- ríkjunum. Hún lauk BA-námi frá Catholic University í Washington DC. Styrk upphæð krónur fímmtíu þúsund hlutu tveir söngnemar. Þau eru: Steinar Magnússon tenór, sem stundar nám í Bloomington í Bandaríkjunum við Indiana Uni- versity School of Music. Hann hefur einnig verið við nám á Italíu. Hlíf Káradóttir sópran, sem verið hefur við nám við Tónlistarskólann í Reykjavík og lauk þaðan einsöngv- araprófi sl. vor. Kennari hennar var Ruth L. Magnússon. Fjórir af fimm styrkþegum eru þegar farnir utan til náms. I stjórn Söngvarasjóðs óperu- deildar FÍL eru þau Elísabet Erl- ingsdóttir, Júlíus Vífíll Ingvarsson og Kristinn Hallsson. Doktorsritgerð um ís- lenska kvennabaráttu SIGRÍÐUR Dúna Kristmundsdóttir lauk nýlega doktorsprófi í mann- fræði frá Rochester-háskóla í New York. Fór doktorsvörnin fram 26. júlí sl. og voru andmælendur prófessor Brenda Mehan-Waters, prófess- or Walter Sangree, prófessor Nan Johnson og prófessor Mary Young. Doktorsritgerðin, sem er 355 bls. að lengd, nefnist Doing and Becom- ing: Women’s Movements and Wom- en’s Personhood in Iceland 1870- 1990. Hún fjallar um hugmyndir og baráttuaðferðir í íslenskri kvenna- baráttu frá upphafí. Rakin eru áhrif þjóðfélagsbreytinga og menningar- legrar fastheldni á tilurð og þróun réttindabaráttu íslenskra kvenna. Jafnframt er fjallað um á hvern hátt konur leitast við að endurskapa per- sónuímynd kvenna með réttindabar- áttu sinni og umskapa um leið íslenskt þjóðfélag. Til viðbótar við efnislegar niðurstöður er í ritgerðinni þróað nýtt hugtakakerfí til greining- ar á sambærilegum viðfangsefnum. Leiðbeinandi við rannsóknir og ritun var prófessor Alfred Harris við mannfræðideild Rochester-háskóla. Sigríður Dúna er dóttir hjónanna Sigríðar Júlíusdóttur og Kristmundar E. Jónssonar. Hún lauk stúdents- prófí frá Menntaskólanum í Reykjavík 1972 og BSc prófi í mann- fræði frá The London School of Ec- onomics and Political Science 1975. Hún stundaði framhaldsnám i mann- fræði við L’Université de Paris VII 1976- 1977 og við Rochester-háskóla 1977- 1979 og lauk þaðan MA-prófi og fyrrihluta doktorsprófs 1979. Frá 1980 til 1984 var Sigríður Dúna stundakennari í mannfræði við fé- lagsvísindadeild Háskóla íslands og frá 1983 til 1987 þingmaður Reyk- víkinga fyrir Kvennalista. Hún hefur Dr. Sigríður Dúna Kristmunds- dóttir. nú verið ráðin lektor í mannfræði við félagsvísindadeild Háskóla ís- iands. Sigríður Dúna á eitt barn, Ragnar 12 ára. Eiginmaður hennar er Frið- rik Sophusson, alþingismaður. Morgunblaðið/RAX Talið frá vinstri: Páll Hjartarson skipatæknifræðingur hjá Siglinga- málastofnun, Þórður Þórðarson hjá Siglingamálastofnun, Örn Páls- son framkvæmdastjóri Landssambands smábátaeigenda, Hálfdán Henrysson deildarstjóri hjá Slysavarnafélagi íslands og Helgi Lax- dal varaforseti Farmanna- og fiskimannasambands Islands. Ráðstefna um úr- bætur í öryggis- málum sjómanna RÁÐSTEFNA um öryggismál sjómanna verður haldin 21. og 22. þessa mánaðar í Borgartúni 6 í Reykjavík. Að ráðstefnunni standa 20 stofnanir, hagsmunasamtök og félög, sem láta sig öryggi sjó- manna varða á einn eða annan hátt. Þetta er þriðja ráðstefnan, sem haldin er frá árinu 1984, þar sem Ieitast er við að gera úttekt á stöðu öryggismála sjómanna og fjallað um úrbætur í þeim efnum. Þátttakendur í ráðstefnunni eru skráðir hjá Siglingamálastofnun rikisins. Ráðstefnan er öllum opin og nefnd, sem unnið hefur að undir- búningi fyrir ráðstefnuna, vonast til að hún verði vel sótt, ekki síst af starfandi sjómönnum. „Við von- umst til að árangur af þessari ráð- stefnu verði ekki minni en af fyrri ráðstefnum um öryggismál sjó- manna,“ segir Páll Hjartarson skipatæknifræðingur hjá Siglinga- málastofnun en hann er formaður undirbúningsnefndarinnar. „Sem dæmi um árangurinn af fyrri ráðstefnum má nefna að fyrstu sex mánuðina árið 1982 fengu tæp- lega eitt þúsund vélstjórar undan- þágu en á sama tíma í ár voru þeir rúmlega 200 talsins," segir Helgi Laxdal, varaforseti Farmanna- og fískimannasambands Islands, en hann verður ráðstefnustjóri ásamt Halldóri Ibsen framkvæmdastjóra Útvegsmannafélags Suðurnesja. Á ráðstefnunni verða fluttir fyrir- lestrar um ný lög og reglugerðará- kvæði, undanþágur og réttindamál, lögskráningu sjómanna, Slysa- varnaskóla sjómanna, öryggis- fræðslu sjómanna, nýliðafræðslu, bjargtæki um borð í skipum, rann- sóknir á öryggisbúnaði, sjósetning- arbúnað og rek gúmmíbjörgunar- báta, slysaskráningu, störf sjóslysa- nefndar, öryggi smábáta, reynslu vegna bátstaps, ij'arskipti við skip, veðurspár og veðurathuganir, til- kynningaskyldu skipa, björgunar- þjónustu, leit og björgun. Gestafyrirlesarar á ráðstefnunni verða Bárður Hafsteinsson skipa- verkfræðingur, sem fjallar um áhrif reglugerða opinberra aðila á hönn- un skipa, Þorvaldur Ingvason lækn- ir, sem talar um læknisþjónustu við sjófarendur og Magnús H. Ólafsson sjúkraþjálfari, sem ræðir um for- varnir gegn slit- og álagssjúkdóm- um. í starfshópum verður fjallað um menntun og öryggisfræðslu, björg- unar- og öryggisbúnað, slysaskrán- ingu og rannsókn sjóslysa, öryggis- mál smábáta, svo og öryggis- og björgunarþjónustu við sjófarendur. Samstaða um ráðn- ingTina réð úrslitum - segir Þórður Skúlason nýráðinn framkvæmdastj óri Sambands íslenskra sveitarfélaga Hvammstanga. ÞÓRÐUR Skúlason, sveitarstjóri á Hvammstanga, var nú á dögun- um ráðinn framkvæmdastjóri Sambands ísl. sveitarfélaga. Þórður er Vestur-Húnvetningur og hefur alla tíð búið á Hvammstanga. Hann er fæddur 27. júlí 1943, sonur hjónanna Skúla Magnússon- ar vegaverkstjóra og Halldóru Þórðardóttur. Kona Þórðar er Elín Þormóðsdóttir frá Sauðadalsá og eiga þau þrjú börn. Þórður hefur verið sveitarstjóri á Hvammstanga frá árinu 1973 og þótt farsæll í starfí. Einnig atkvæðamikill í samstarfí sveitar- félaga á Norðurlandi, í stjórn Fjórðungssambands Norðlend- inga, þar af tvö ár sem formaður í stjórn sjúkrahúss Hvammstanga um árabil og einnig sem formaður þar, einnig í sýslunefnd V-Húna- vatnssýslu og síðar Héraðsnefnd V-Hún. Morgunblaðið ræddi við Þórð af þessu tilefni. — Hvað getur þú sagt um til- drög ráðningar þinnar, nú varstu þú ekki í hópi þessara tuttugu umsækjenda. Alvarlegur ágreiningur varð í stjórn Sambandsins um ráðningu framkvæmdastjóra, en 21 umsókn hafði borist. Mynduðust fylkingar um tvo umsækjendur, eins og þjóð veit. Meðal annars var deilt um rétt fulltrúa til stjórnarsetu. Þetta er mesti ágreiningur innan stjórn- ar sambandsins, sem ég veit til. — En hvað réð úrslitum? Já, það var farið að nefna nýja menn, þá meðal annars nafn mitt. Sú varð niðurstaðan, að um ráðn- ingu mína náðist algjör samstaða, bæði í stjórn sambandsins og í Lánasjóði sveitarfélaga. Eftir er hins vegar að afgreiða málið í Bjargráðasjóði en þar verður af- greiðsla í næstu viku. Mikilvæg- asta þátt málsins tel ég vera hina skýlausu samstöðu og réð það úrslitum um að ég ákvað að taka að mér þetta starf. — Hvað um hæfni þína til að takast á hendur slíkt starf? Ég tel þessa ráðningu byggða á faglegum grunni, þar sem litið er til minna fyrri starfa að sveitar- stjórnarmálum í 20 ár, á vett- vangi sveitarstjórna í héraði, landshlutasamtökum og í stjórn Sambands ísl. sveitafélaga. Ákvörðun um ráðningu þessa er tekin af mönnum sem þekkja til minna starfa. Ég veit að þessi niðurstaða er ekki valin til að fá lausn í erfiðri deilu, heldur til Þórður Skúlason. þess að fá ákjósanlega niðurstöðu fyrir sambandið. — Þú hefur verið talinn mál- svari sveitafélaga á landsbyggð- inni. Mun það breytast við að taka við þessu starfi? Nei, það ætla ég mér að reyna að vera áfram. En ég vona að sú reynsla sem ég hef sem lands- byggðarmaður muni nýtast mér í hinu nýja starfi við hagsmuna- gæslu fyrir öll sveitarfélög í landinu. Sveitarfélögin eiga mörg sameiginleg hagsmunamál, hvort þau eru smá eða stór. Einn liður í starfi sambandsins er að gæta hagsmuna gagnvart ríkisvaldinu. Löggjafarvaldið er í höndum Al- þingis og þar er árlega samþykkt- ur fjöldi laga sem snerta sveitarfé- lögin, stór og smá. Að auki er síðan gefinn út fjöldi reglugerða m.a. um málefni sveitarfélaganna. Öll þessi mál þarf Samband íslenskra sveitarfélaga að hafa yfírsýn yfir. — Nú eru ólík vandamál í sveit- arfélögum á landsbyggðinni og á höfuðborgars væðinu. Rétt er það. Á höfuðborgar- svæðinu eru mörg vandamál tengd örri íbúafjölgun, eins og umhverfis- og samgöngumál, en á landsbyggðinni eru vandamálin helst tengd skertum framleiðslu- rétti, bæði til sjávar og sveita, þar tengjast atvinnumál og fjármál sveitarfélaga. — Nú eru þetta miklar breyt- ingar á þínum högum, þar sem þú hefur búið hér á Hvammstanga alla ævi. Að því leyti blunda með mér blendnar tilfinningar. Ég mun sakna staðarins hér, þegar ég flyt suður. En fábreytni atvinnulífs á landsbyggðini er einn af ókostum við búsetu úti á landi og ein aðal- orsök búferlaflutninga til höfuð- borgarsvæðisins. Hins vegar leggst vel í mig að takast á hend- ur þetta nýja starf og að vinna á nýjum starfsvettvangi. Karl

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.